Morgunblaðið - 10.12.1991, Side 30

Morgunblaðið - 10.12.1991, Side 30
f£ 30 fiÖQI ýJýSJ.í/.IjíEHiC? J)f fflQAé&yiWffflQtií MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1991 1600 TONNA KVOTI SELDUR FRÁ VESTMANNAEYJUM TIL AKUREYRAR Sala Bergejgar og loforð íslands- banka um lán gengn tíl baka Nauðvörn til að verja eignir félaganna, segja forsvarsmenn útgerðarinnar ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Bergur-Huginn hf. í Vestmannaeyjum ákvað að selja kaupsamning sinn um grænlenska togarann Natsek ásamt 1.600 tonna kvóta togarans Bergeyjar til Útgerðarfélags Akureyrar hf. vegna þess að Islandsbanki treysti sér ekki, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, til að standa við gefin fyrirheit um fjármögnun kaupanna á grænlenska togaranum í kjölfar þess að salan á Bergey með litlum kvóta til Húsavíkur gekk til baka. Forráðamenn fyrirtækisins segjast gera þetta í nauðvörn til að verja eignir félaganna. Isfélag Vestmanna- eyja hf. missir við þetta hátt í fjórðung af kvóta þeirra skipa sem lagt hafa upp hjá félaginu. Það ætlar að leita á fiskmarkað sem fyrirhugað er að stofna í Vestmannaeyjum og annað til að afla hráefnis á móti kvótanum sem Bergur-Huginn hf. hefur selt til Akureyrar. Magnús Kristinsson stjórnarformaður Isfélagsins og framkvæmdastjóri Bergs- Hugins hf. segir að reynt yrði að komast sem mest hjá samdrætti með kaupum á fiski eða veiðiheimildum. „Við reynum að horfa fram á veg- inn,” sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær. Síðastiiðinn föstudag undirritaði Begur-Huginn hf. í Vestmannaeyjum og Útgerðarfélag Akureyringa hf. (ÚA) samning um að ÚA yfirtæki kaupsamning á græillenska togaran- um Natsek sem Bergur-Huginn hafði gert samning um. Jafnframt keypti ÚA rúmiega 1.600 þorskígildistonn af aflaheimildum útgerðarinnar. Um ástæður þess að Bergur-Hug- inn afsalaði sér kaupsamningnum og seldi kvótann til Akureyrar segir í fréttatilkynningu frá félaginu: „Vegna breyttra aðstæðna hafði Bergur-Huginn hf. ekki fjárhagslega getu til að standa við fyrrgreindan kaupsamning um togarann. Riftun á kaupsamningum hefði verið félaginu afar dýr að mati lögfræðinga. Til að lágmarka fjárhagslegan skaða fé- iagsins var farin sú leið að selja samninginn en til að gera það fært var nauðsynlegt að gera útgerð skipsins rekstrarhæfa með framsali á veiðiheimildum. Bergur-Huginn hf. heldur togaranum Bergey VE með veiðileyfi án kvóta, en erlenda togar- anum var ætlað að koma í stað þess skips. Við sölu samningsins og veiði- ■heimildanna telja forráðamenn Bergs-Hugins hf. að fram hafi náðist veruleg fjárhagsleg endurskipulagn- ing, sem geri félaginu kleift að standa af sér þá erfiðleika sem hafa verið ,og verða að Öllum líkindum í sjávarútvegi og salan veiji félagið og geri það hæfára að takast á með auknum krafti við rekstrarlega upp- byggingu á nýju ári.” Magnús Kristinsson framkvæmda- stjóri vildi litlu við þetta bæta í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði þó að salan á Bergey með 260 tonna kvóta til Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. hefði gengið til baka þar sem norðanmenn hefðu ekki treyst sér til að standa við samning- inn. Ámi Johnsen alþingismaður Hugsanlegt að Vinnslu- stöðin selji kvóta TIL greina kemur að Vinnslustöðin í Vestmanna- eyjum selji kvóta til að minnka skuldir og er rætt um allt að 1.500 tonn í því sambandi. „Við erum opnir fyrir öllu,” sagði Björn .Úlf- Ijótsson framkvæmdastjóri aðspurður um þetta. Bjöm segir að sala kvóta sé eitt af því sem komið hafi til tals vegna þrýstings frá íslandsbanka um að Fiskiðjan hf. verði sameinuð Vinnslu- stöðinni. „Ef það er snúið upp á hendurnar á manni kemur maður sér undan . vafningn- um,” sagði Björn. sagði í ræðu á Alþingi fyrir nokkru að Islandsbanki hefði stöðvað nær algjörlega alla fyrirgreiðslu til stærstu íískvinnskustöðva og út- gerða í Vestmannaeyjum. Magnús neitaði því að íslandsbanki hefði átt þátt í þessari breyttu stefnu Bergs- Hugins hf. og vísaði til fréttatilkynn- ingar Bergs-Hugins og ísfélags Vest- mannaeyja frá því í gær en þar seg- ir: „Að gefnu tilefni skal tekið fram að forráðamenn fyrirtækjanna hafa átt farsælt samstarf við íslandsbanka hf. sem er viðskiptabanki þeirra. „Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi” Nokkuð er um liðið frá því aftur- kippur kom í söluna á Bergey til Húsavíkur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fóru forráðamenn Bergs-Hugins í framhaldi af því að . leita leiða til að komast út úr þeirri klípu sem það setti fyrirtækið í. Full- reynt var að þeir gætu ekki losnað undan kaupsamningnum um græn- Iénska togarann nema með miklum kostnaði, eins og fram kemur í frétta- tilkynningu þeirra hér að ofan. Leit- uðu þeir m.a. til íslandsban'ka um fyrirgreiðslu. Á miðvikudag svaraði bankinn bréflega. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins kom fram í bréfinu að íslandsbanki treysti sér ekki til að standa við gefin fyrirheit um að fjármagna kaupin é togaran- um þar til langtímafjármögnun feng- ist. Þegar þessi fyrirheit voru gefin Iá það fyrir að Bergey færi til Húsa- víkur. Bankinn taldi, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að fyrir- tækið gæti ekki staðið undir íjárfest- ingunni án sölu á Bergey og vildi tryggja að skipið yrði selt aftur áður en fyrirgreiðslan yrði veitt. Bankinn bauðst til að aðstoða fyrirtækið við sölu á Bergey. í bréfinu sagði að ekki væri rétt að fjárfesta á tímum minnkandi kvóta og minnt á hið forn- kveðna að betri væri einn fugl í hendi en tveir í skógi. Þegar þetta lá fyrir gekk fram- kvæmdastjóri Bergs-Hugins hf. í það að reyna að selja kaupsamninginn um grænlenska togarann og náði samkomulagi við Útgerðarfélag Ak- ureyringa hf. sem setti það sem skil- yrði að allur kvóti Bergeyjar fyigdi með. Magnús Kristinsson undirritaði samninginn á Akureyri á föstudag, með fyrirvara um samþykki stjórnar fyrirtækisins. Eftir það ræddi hann við bankastjóra íslandsbanka en það varð ekki til þess að breyta áformum um sölu kvótans og var samningurinn síðan samþykktur í stjórn Bergs- Hugins hf. á laugardag. Tryggvi Pálsson bankastjóri Is- landsbanka vildi ekki ræða opinber- lega um viðskipti bankans við Berg- Huginn hf. „Nauðvörn til að verja eignir félaganna” ísfélag Vestmannaeyja hf. á 40% í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn hf. Skip útgerðarfélagsins hafa lagt fiskvinnslu ísfélagsins til verulegan hluta hráefnis þess og því ljós að nú minnkar hráefni félagsins verulega. „En forráðamenn félaganna meta þá fjárhagslegu endurskipulagningu sem þessi aðgerð leiðir af sér, þ.e. að losna undan verulegum skuldum þrátt fyrir minni veiðiheimildir, geri félögin enn sterkari en áður til að takast á við uppbyggingu þegar rofa fer til í útgerð og fiskvinnslu á ís- landi. Á nýju ári mun opna fiskmark- aður í Vestmannaeyjum. Til að afla hráefnis á móti því sem hefur verið framselt mun félagið leita þangað eða annað til að afla fiskvinnslunni hréfnis,” sagði Magnús Kristinsson. Magnús sagði nánar aðspurður um þetta að reynt yrði að komast sem mest hjá samdrætti með kaupum á fiski eða veiðiheimildum. „Við reyn- um að horfa fram á veginn,” sagði hann. „Forráðamenn félaganna hafa ekki lagt árar í bát. Varnaraðgerð sem þessi var gerð sem nauðvörn til að veija eignir félaganna og mun gera þeim kleift að helja framsækna uppbyggingu til heilla fyrir byggðar- lagið,” segir ennfremur í fréttatil- kynningu frá því í gær. Bergur-Huginn hf. gerir út ísfisk- togarana Halkíon, Gideon og Smáey, auk Bergeyjar og frystitogarans Vestmannaeyjar. í grein um 90 ára afmæli ísfélagsins 1. desember síð- astliðinn kemur fram að samanlagð- ur kvóti ísfélagsflotans sé 6-7 þús- und tonn. Um fjórðungur kvótans hefur nú verið seldur til Akureyrar. Grænlenski togarinn Natsek sem Útgerðarfélag Akureyringa er að eignast. Gunnar Ragnars íramkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa: Sólbakur úreltur á móti grænlenska togaranum Kvótimi notaður til að auka vinnslu í landi ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa ætlar að úrelda togara sinn Sólbak EA 305 á móti grænlenska togaranum Natsek sem félagið eignast með yfirtöku á kaupsamningi Bergs^Hugins hf. í Vestmannaeyjum. Sá rúmlega 1600 tonna kvóti sem ÚA kaupir frá Vestmanneyjum ætlar félagið að nota til að mæta kvótaskerðingu og auka fisk- vinnslu á Akureyri, að sögn Gunnars Ragnars framkvæmdasljóra. Gunnar segir að kaupin á græn- lenska togaranum og kvótanum hafi komið til vegna kvótaskerðing- ar á yfírstandandi fískveiðiári og vegna úreldingar Sólbaks EA 305. Hann segir að haffærniskírteini Sólbaks renni út um áramót og ekki svari kostnaði að endurbyggja hann. Ákveðið hefði verið að leggja Sólbak og láta önnur skip félagsins veiða kvóta hans. Hann segir að félagið eigi þá eftir fjóra ísfisktog- ara, auk tveggja frystiskipa, og dugi það varla til að halda uppi hnökralausri vinnslu í fiskvinnslu fyrirtækisins. Því hefði verið talið æskilegt að eignast fimmta ísfisk- togarann og kvóta fyrir hann. Seg- ir Gunnar að viðskiptin við Berg- Hugin hf. falli vel að þessari stefnu fyrirtækisins. Kaupverð kvóta og skips verður ekki gefíð upp að sinni, samkvæmt samkomulagi aðila, að sögn Gunn- ars.; : „Eg bendi á að eitt mikilvægasta atriði laganna um stjórn fiskveiða er fijáls tilfærsla kvóta. Það leiðir til mestrar hagræðingar og verða menn að horfast í augu við það,” sagði Gunnar þegar leitað var álits hans á umræðum í Vestmannaeyj- um vegna sölu kvótans þaðan. Grænlenski togarinn Natsek er rúmlega 430 tonn að stærð, um 30% minni en Sólbakur. Hann er 47,15 metra langur og 9,50 rp breiður. Hann var smíðaður í Danmörku 1980 og endurbyggður þar 1988. Hann er nú í slipp í Hirtshals í Danmörku og eru starfsmenn Út- gerðarfélagsins í skipasmíðastöð- inni til að fylgjast með klössuninni. Gunnar vonast eftir að skipið komi til Akureyrar fyrir jól. Okkur svíður þetta mikið - segja talsmenn sjómanna SALA Bergs-Hugins hf. á rúmlega 1.600 tonna kvóta til Akureyrar kom flatt uppá forystumenn sjómanna í Vestmannaeyjum. „Þetta er hið versta mál,” sagði Elías Björnsson formaður sjómannafélags- ins Jötuns í samtali við Morgunblaðið í gær. „Okkur svíður þetta mikið,” sagði Richard Sighvatsson gjaldkeri skipstjóra- og stýrimann- afélagsins Verðandi. Elías Bjömsson sagðist ekki hafa við uppákomum af þessu tagi. „En kynnt sér málið í smáatriðum enda þetta er hið versta mál,” sagði hann. hefði þetta borið brátt að. Sagði Elías sagði að sjómenn væru orðnir hann að núverandi fyrirkomulag á eitt núll í kvótamálunum, það væru stjórn fiskveiða byði uppá svona einungis peningamenn sem gætu hluti og því alltaf hægt að búast keypt skip og kvóta. Richard Sighvatsson gjaldkeri skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi sagði að Bergur-Huginn hf. hefði misst 1.000 tonn í kvóta- skerðingunni og nú þegar salan á kvótanum bættist við hlyti það að þýða að einu skipi yrði lagt. Ekkert mun liggja fyrir um það hvort það verður Bergey eða eitthvert af öðr- um togurum útgerðarinnar. Fimmt- án menn eiga að vera skráðir á Bergey. Elías vissi ekki hvort ein- hveijir sjómenn færu með kvótan- um til Akureyrar. Richard sagði að kvótasalan hefði komið flatt upp á sjómenn. „Okkur svíður þetta mikið,” sagði hann. Sagði hann að lítið virtist vera hægt að gera til að koma í veg fyrir söluna, svo virtist sem gat væri í lögunum þar sem ekki þyrfti að leita umsagnar bæjarstjórnar eða annarra við sölu á óskráðum framtíðarkvóta eins og hér væri um að ræða. Bæjarstjórn gæti hins vegar gripið i taumana ef skip væri selt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.