Morgunblaðið - 25.01.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 25.01.1992, Síða 1
64 SIÐUR B/LESBOK 20. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992 Prentsmiðja Morgunbíaðsins Þing Suður-Afríku sett: De Klerk boðar kosningarétt handa blökkumönnum Höfðaborg. Reuter, Tlie Daily Telegraph. FORSETI Suður-Áfríku, F.W. de Klerk, boðaði í ræðu, sem hann flutti við setningu suður-afríska þingsins í gær, breytingar í átt að lýðræðis- legri Suður-Afríku á næstu árum. Forsetinn boðaði m.a. kosningar sem allir íbúar landsins gætu tekið þátt í þar sem kosið yrði sérstakt þing til að sjá um að koma á lýðræðislegum breytingum og senvja nýja stjórnarskrá sem síðan yrði borin undir þjóðaratkvæði. Hann tók þó fram að þótt allir íbúar Suður-Afríku myndu hafa kosningarétt í þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði einnig að líta á niðurstöðurnar út frá því hvernig einstakir kynþættir greiddu atkvæði. Aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni sögðu að væri meirihluti hvítra andvígur breytingum yrði líklega að hefja viðræður að nýju. De Klerk hefur undanfarið verið undir miklum þrýstingi frá hvítum öfgamönnum til hægri sem ekki vilja veita blökkumönnum aðild að stjórn landsins. í setningarræðunni reyndi hann því að fara bil beggja. Hann lofaði hinum svarta meiri- hluta íbúa Suður-Afríku kosninga- rétti í náinni framtíð, en reyndi einn- ig að slá á ótta hvíta minnihlutans með því fyrirheiti að honum yrði hugsanlega veitt neitunarvald varð- andi allar breytingar á stjórnar- skránni. „Ef hvítir sætta sig ekki við breytingamar en allir aðrir gera það þá er okkur mikill vandi á höndum. Við verðum að horfast í augu við --------------------------- Georgía; Skotið á stuðn- ingsmenn Gamsakhúrdía Senakí. Reuter. SVEITIR herráðsins, sem nú fer með völd í Georgíu, skutu í gær á hóp fólks sem komið hafði sam- an til útifundar á torgi í borginni Senaki, í vesturhluta lýðveldisins. Höfðu fundarmenn lýst yfir stuðningi við Zvíad Gamsakhúrd- ía, fyrrum forseta, og báru marg- ir myndir af honum. Hundruð manna hlupu í burtu hrópandi af skelfingu er skothríðin hófst. Byssumennirnir, sem klæddir voru í felubúninga, skutu úr vopnum sínum í um tvær mínútur eða þang- að til síðasti fundarmaðurinn hafði flúið í burtu. „Þessir hermenn eru bijálaðir,“ sagði gömul kona þar sem hún óð djúpan snjóinn. Enginn særð- ist í skothríðinni svo vitað sé. Jaba Ioselani, annar tveggja yfir- manna herráðsins, sagði við blaða- mann Reuters-fréttastofunnar í gær að hann hefði gefið sveitum Gamsakhúrdía sólarhrings frest til að yfirgefa bæjinn Poti við Svarta- haf. Hann var hins vegar ekki bjart- sýnn á að þeir myndu fara að þeim tilmælum og sagði helmings líkur á að til átaka myndi koma. Sveitir Ioselani, sem kalla sig Mkhedrioni eða „Riddaraliðið" eru skrautlegt lið og samanstendur af atvinnuhermönnum jafnt sem náms- mönnum. „Ioselani er okkar Hrói höttur og við erum Rambóar," sagði einn liðsmanna herráðsins, tuttugu og sjö ára gamall hagfræðikennari að nafni Vakhtang Vegiashvili, og bætti við: „Gamsakhúrdía er einræð- isherra. Við viljum ekki átök en það verður að drepa hann.“ það; við yrðum að hefja samningavið- ræður á ný,“ sagði Pik Botha utan- ríkisráðherra. í næsta mánuði verða haldnar aukakosningar í hinu íhaldssama kjördæmi Potschef- stroom skammt frá Jóhannesarborg. Þetta kjördæmi hefur ávallt verið með sterkari vígjum Þjóðarflokks de Klerks en nú er talið líklegt að íhalds- flokkurinn, sem er andvígur umbóta- stefnu forsetans, muni vinna þar sig- ur. Öfgaflokkum til hægri, sem ekki vilja neinar breytingar, hefur vaxið mjög ásmegin að undanförnu í Suður-Afríku, ekki síst vegna erfiðs efnahagsástands og stóraukinnar glæpatíðni. Forystumenn íhalds- flokksins hvöttu í gær stuðnings- menn sína til að leggjast á bæn áður en forsetinn flutti ræðu sína og biðja um að snúið yrði aftur til tíma að- skilnaðarstefnunnar. „Við getum ekki setið aðgerðarlaus á meðan ver- ið er að reka hvíta út á gaddinn,“ sagði Andries Treumicht, formaður flokksins. Nelson Mandela, forseti Afríska þjóðarráðsins (ANC), sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum með ræðu de Klerks. Hann hefði vonað að hann myndi kynna lagafrumvarp er fæli í sér kosningarétt handa svertingjum. ANC efndi til mótmælafundar fyrir utan þinghúsið í Höfðaborg meðan á þingsetningunni stóð þar sem tutt- ugu þúsund manns kröfðust þess að bráðabirgðastjóm sem fulltrúar blökkumanna ættu sæti í, myndi taka við af stjórn hvíta minnihlutans innan sex mánaða. Reuter Leitað eftir lífsbjörginni Sú ákvörðun rússnesku stjórnarinnar að gefa verðlag frjálst 2. janúar hefur leitt til þess að verð á matvælum hefur hækkað um 300-3.000%. Þetta hefur komið illa niður á mörgum Rússum, einkum öldmðu fólki, eins og þessari konu sem reynir að kaupa fisk fyrir gamla peysu á flóamarkaði í Moskvu. Sjá fréttir á bls. 22. Alsír: Lögregla kom í veg fyrir bæna- fundi FIS Algeirsborg. Reut- MORG hundruð óeirðarlögreglu- ffienn og hermenn stóðu vörð við og lokuðu aðkomuleiðum að tveimur helstu moskum Algeirs- borgar, Bab EI-Qued og Kouba, í gær til að koma í veg fyrir að íslamskir heittrúarmenn gætu efnt til fjöldabæna. Moskurnar tvær hafa verið meðal helstu vígja flokks heittrúarmanna í Alsir (FIS) en fyrr i vikunni lýstu sljórnvöld því yfir að þau hygðust banna alla stjórnmálastarfsemi í kringum moskur. Nokkrir heittrúarmenn reyndu þrátt fyrir bannið að setja upp hátal- ara fyrir utan Bab El-Qued og skutu þá óeirðarlögreglumenn viðvörunar- skotum. Að sögn yfirvalda hörfuðu þá heittrúarmennirnir án þess að nokkur særðist. Bænafundimir í gær vora þeir fyrstu sem FIS hafði áformað að halda eftir að bann stjómvalda gekk í gildi. Nokkur fjöldi heittrúarmanna var þegar í moskunum áður en leið- um að þeim var lokað og í hinni fullsetnu Kouba-mosku hvatti Mo- hamed Said, einn helsti leiðtogi FIS, hermenn til að óhlýðnast skipunum yfirmanna sinna. „Ekki skjóta neinu skoti ... að bróður þínum jafnvel þó yfirmaður þinn skipi þér svo fyrir. Neitaðu því, jafnvel þó að það muni kosta þig lífið,“ sagði Said. Hann bætti því við að hinu ísl- amska ríki yrði fyrr eða síðar komið á í Alsír hvort sem valdhöfum líkaði það betur eða verr. „Það er'hægt að skjóta þá eða stinga þeim í stein- inn en þú getur ekki tekið þessa von úr hugum múhameðstrúarmanna." Nokkrir stuðningsmanna FIS voru handteknir fyrir að ögra lög- reglumönnum að sögn sjónvarvotta og einnig voru nokkrir þeirra erlendu blaðamanna, sem reyndu að nálgast moskurnar, settir í skammvinnt varðhald. Rússneska þingið kannar lögmæti gjafar Krímskaga til Úkraínu; Þörf er á nægum herafla ef granmíki eru með landakröfur - segir embættismaður í varnarmálaráðuneyti Úkraínu Kiev. Reuter. STJÓRNVÖLD í Úkraínu brugðust í gær harkalega við því tiltæki rússneska þingsins að vekja máls á því hvort sá gjörningur hafi yerið löglegur er sovéski kommúnistaflokkurinn ákvað 1954 að gefa Úkra- inumönnum Krímskaga i tilefni af 300 ára afmæli einingar slavnesku þjóðanna. „Úkraína neitar öllu tilkalli til lands þess sama hvaðan það kemur,“ sagði Anatolíj Zlcnkó utanríkisráðherra á fréttamannafundi. Háttsettur úkraínskur embættismaður sagði nauðsynlegt fyrir Úkra- ínumenn að hafa sterkan her ef nágrannaríki ætluðu að fara að gera landakröfur. Rússneska þingið ákvað á fímmtudag að fela laga- og alþjóða- málanefndum þingsins að kanna nánar hvort þessi gjöf hafi verið lög- leg. Jafnframt skoraði þingið á Úkraínustjórn að falla frá tilkalli til Svartahafsflotans. Rússnesku ríkis- stjórninni er greinilega umhugað um að deilan við Úkraínumenn blossi ekki upp að nýju en samkomulag var gert um skiptingu Svartahafs- flotans fyrir skemmstu. Andrej Kozyrev utanríkisráðherra varaði þingmenn við því á fimmtudag að spilla samskiptunum við Úkraínu- menn. Vladímír Shljaposhníkov, blaða- fulltrúi Leóníds Kravtsjúks, forseta Úkraínu, sagði í gær að Rússland og Úkraína hefðu þegar komið sér saman um að landamærum ríkjanna yrði ekki breytt. Sagði hann að sum- ir rússneskir þingmenn virtust halda að Úkraína væri hluti af Rússlandi. Viktor Antonov, ráðuneytisstjóri varnarmálaráðuneytis Úkraínu, sagði í gær að Úkraínumenn ætluðu sér að halda þeim hluta Svartahafs- flotans sem ekki bæri kjarnavopn. „Við þurfum að hafa nægilega öflug- an her, sérstaklega ef nágrannaríki ætla að fara að vekja máls á landa- kröfum.“ Sagði hann að framkvæði rússneska þingsins væri sett fram í því augnamiði að Úkraínumenn gæfu eftir á öðrum sviðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.