Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 35
 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992 35 Minning: Bárður Olgeirsson, Ytri-Njarðvík Fæddur 4. ágúst 1905 Dáinn 17. janúar 1992 Bárður var fæddur á Risabjörgum á Hellissandi 4. ágúst 1905, sonur merkishjónanna Maríu Guðmunds- dóttur frá Stóru-Hellu við Hellissand og Olgeirs Oliverssonar, formanns þar. Bárður var næstelstur fjögurra systkina.. Elst var Anna Margrét, síðar gift þeim er þetta ritar, en yngri systkinin voru Karvel Línberg er giftist Halldóru Veturliðadóttur, bjuggu þau lengst af á ísafirði, og Guðrún er giftist Albert Guðjóns- syni, útgerðannanni í Reykjavík. Þegar Bárður var níu ára gamall veiktist Olgeir faðir hans af lungna- bólgu, sem dró hann til dauða á nokkrum dögum aðeins fertugan að aldri. Stóð þá María móðir Bárðar ein uppi með fjögur börn, hið yngsta tveggja ára og það elsta tíu ára. Við fráfall föðurins var bræðrunum komið tii fósturs. Föðurbróðir Maríu, Einar Hákonarson, og kona hans tóku Karvel Línberg að sér og Bárð- ur Þorsteinsson frá Gröf í Grundar- fírði, frændi Olgeirs, og kona hans, Jóhanna Magnúsdóttir, tóku Bárð. Bárður var hjá þeim í tvö ár en kom þá aftur til móður sinnar út á Hellis- sand. María bjó þá í einu herbergi ásamt dætrum sínum í húsi Ólafs Jóhannessonar formanns og Bjargar Guðmundsdóttur frá Stóru-Hellu, systur Maríu, því búið var að selja hús Maríu og Olgeirs og alla lausa- muni tii greiðsluskila. Eftir hálfs árs dvöl hjá móður og systrum í hinu þrönga herbergi fór Bárður til Klemensar bónda í Gröf í Miðdölum og konu hans, Sessilíu. Dvaldi hann hjá þeim hjónum sem í foreldrahúsum væri til fermingar- aldurs. Þá fluttist hann aftur að Hellissandi og fór að stunda sjóróðra á árabátum, en síðar á seglskipum við handfæraveiðar, línuveiðar, síld- veiðar o.fl. Hann hélt heimili með móður sinni og systrum sem fyrir- vinna ásamt þeim, því María stund- aði fiskvinnu og dæturnar einnig þá er þær höfðu aldur til. Síðar fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu þar saman í nokkur ár, en sneru svo aftur vestur á Sand og bjuggu þá í eigin húsi. Árið 1934 þegar Bárður var 25 ára fluttist hann til Innri-Njarðvík- ur. Þar kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Eyrúnu Helgadóttur, ættaðri frá Vík í Mýrdal, hinni mestu myndar- og dugnaðarkonu. Þau gift- ust 4. október 1935 og hófu búskap í Narfakoti í Innri-Njarðvík. Þar eignuðust þau sitt fyrsta barn, 01- geir. Tveim árum síðar fluttust þau að Sólbergi í Ytri-Njarðvík þar sem þau leigðu í 10 ár hjá þeim sæmdar- hjónum Guðmundi Þórarni Ög- mundssyni og Amöndu Ingibjörgu Baldvinsdóttur konu hans. Þar eign- uðust þau þijú börn, Ingólf, Halldór og Guðlaugu. Þá byggðu þau sér fallegt og vandað hús á Þórustíg 17 í Ytri-Njarðvík og þar fæddist þeim fimmta barnið, Oliver. Eftir að Bárður og Rúna fluttust til Ytri-Njarðvíkur stundaði Bárður vinnu í hraðfrystihúsi okkar bræðra, mín og Þórarins, meðan við áttum það eða í 20 ár. Síðan stundaði liann sjóróðra á bátum frá Njarðvík og loks var hann í 19 ár við störf á Keflavíkui'flugvelli. Árið 1984 flutt- ust þau að Vallarbraut 2 í Ytri- Njarðvík og bjuggu þar síðan. Þaðan var hann fluttur veikur á Sjúkrahús Keflavíkur og hálfum sólarhing síðar var hann látinn, 17. janúar 1992. Það var hamingjudagur í lífí þeirra beggja, Bárðar og Eyrúnar, er fundum þeirra bar fyrst saman svo samrýnd og farsæl sem þau hafa verið í langri sambúð. Heimili þeirra bar ávallt vott um stjórn- semi, snyrtimennsku og þrifnað, þótt ítrustu sparsemi væri gætt. Þau hafa komið upp og til hag- nýtrar menntunar fímm myndarleg- um börnum. Þau eru: Olgeir, málara- meistari, sem var giftur Sigríði Jóns- dóttur, Ytri-Njarðvík og eiga þau fímm börn en slitu samvistir. Olgeir býr nú í Reykjavík með sambýlis- konu sinni Gunnhildi Ólafsdóttur; Ingólfur, rafvirkjameistari, giftur Halldóru Jónu Guðmundsdóttur, eiga þau fimm börn; Halldór, múrar- ameistari; Guðlaug, verslunarkona, gift Ólafí Guðmundssyni, málara- meistara, þau eiga þrjú börn; yngst- ur er Oliver, múrarameistari, giftur Guðrúnu Lárusdóttur og á hún fjög- ur börn frá fyrra hjónabandi. Yngri börnin fjögur búa ásamt fjölskyldum sínum í Ytri-Njarðvík. Samtals eru barnabörnin 12 og barnabarnaböm eru orðin 12. Bárður Olgeirsson var af stór- vönduðu og alþýðufólki kominn. Lífsleiðir okkar hafa legið saman mestan hluta ævinnar. Við ólumst upp í sama byggðarlagi og ég var giftur Önnu Margréti, systur hans, í 32 ár, þar til hún lést. Bárð þekkti ég því náið. Hann var trúaður, hóg- vær og gerði aldrei á hlut nokkurs manns. Hann var sjómaður ágætur, I < < í Magnús A. Magnús- son - Minning Fæddur 16. júlí 1967 Dáinn 19. janúar 1992 í dag verður vinnufélagi okkar, Magnús Axel Magnússon borinn til grafar. Mánudaginn 20. janúar fengum við þær sorglegu fréttir að Magnús Axel væri farinn frá okkur. Engann hafði grunað á föstudeginum að við værum að kveðja hann í hinsta sinn. Magnús Axel var afskaplega dug- legur ungur maður, bæði hvað varð- ar leik og starf. Hann var vel gefinn og víðlesinn, og hafði hann myndað sér sterkar skoðanir bæði í heims- málum og öðrum málum. Ósjaldan voru þessi mál og önnur tekin fyrir og alltaf liafði hann eitthvað til málanna að leggja. Við starfsfólk í Trésmiðju Þor- valdar Ólafssonar hf. biðjum góðan Guð að geyma og varðveita minn- ingu félaga okkar. Hans er nú sárt saknað. Nú legg ég augun aftur, Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm i nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Foersom, Sveinbjörn Egilsson.) Við vottum fjölskyldu Magnúsar Axels Magnússonar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Starfsfólk Tré-X. lagvirkur og aðgætinn svo af bar. Hann var sæmdur heiðursmerki sjó- mannadagsráðs í Keflavík 1980 og þótti það öllum að verðleikum svo lengi hafði hann sjóinn stundað. Nú er þessi góði drengskaparmað- ur fluttur yfir landamæri lífs og dauða, þar sem ég trúi að allra bíði þroskabrautir hins æðra og full- komnara lífs. Ég votta eiginkonu hans og öllum aðstandendum ein- læga samúð. Karvel Ögmundsson. í dag þegar tengdafaðir minn, Bárður Olgeirsson, Vallarbraut 2, Njarðvík, er kvaddur hinnstu kveðju langar mig að minnast hans með nokkrum fátæklegum orðum. Bárði kynntist ég fyrst árið 1961 er við Guðlaug dóttir hans rugluðum saman reytunum. Ég komst fljótlega að því hvílíkum mannkostum hann var gæddur í hvívetna og sérlega var það aðdáunarvert og lærdóms- ríkt fyrir yngri menn hvað hann var nærgætinn og tillitssamur við konu sína. Bárður var alla tíð beinvaxinn maður og bar aldur sinn frábærlega vel og er einn af þeim sem elli kerl- ing vann seint á. Bárður var hógvær maður að eðl- isfari og naut sín best í fámenni þar sem frásagnarlist hans var þannig að allir tóku eftir. Ég minnist margra ánægjulegra sumarferðalaga er við fjölskyldurnar fórum saman en sérlega er minnis- stæð ferð um hans æskuslóðir á utanverðu Snæfellsnesi. Þar kom frásagnarlist hans lifandi í ljós er hann lýsti svo af bar mannlífí og sjósókn er hann var þátttakandi í á sínum yngri árum. Bárður líktist sinni kynslóð mikið hvað viðvíkur að taka í spil og þar kom berlega í ljós hve laginn hann var að spila úr gjöfinni og sigra án þess að taka nokkra áhættu og má fullyrða að sá lífsmáti hafi fylgt honum gegnum lífíð. Um leið og ég þakka Bárði sam- fylgdina í þessu jarðríki bið ég al- máttugan Guð að styrkja tengda- móður mína og aðstandendur í sorg okkar. Guð blessi minningu Bárðar. Ólafur Þorgils Guðmundsson. Hann elsku afí okkar, Bárður, er dáinn. Það er aldrei auðvelt að sjá á bak ástvinum sínum hvort heldur þeir eru ungir eða gamlir, lasburða eða í blóma lífsins en við vitum að afi hefur nú öðlast ró og frið frá amstri dagsins og veikindum og fyrir það ber að þakka. Það er ákaflega erfitt að þurfa að kveðja hann í hinsta sinn og við slíkar aðstæður rifjast uþp margar góðar minningar, eins og þegar ég var lítil stelpa var gott að kúra hjá afa þegar hann hvíldi sig á beddan- um sínum. Afi var rólegheitamaður og við börnin fundum ró og næði í hans návist. Það var ávallt gaman að ræða við afa um lífið og tilveruna þó sérstaklega um útgerðina og sjó- inn. Elsku amma, Guð styrki þig. Minning: Lilja Tryggvadóttir Fædd 26. júlí 1910 Dáin 16. janúar 1992 Okkur langar að minnast elsku ömmu sem við hér á heimilinu köll- uðum ýmist ömmu Lilju eða ömmu í Goða. í Goðabrautina þótti okkur ætíð gott að koma. Hún dró okkur að sér líkt og segull. Hlýjan og nota- legheitin í fari hennar virkuðu þann- ig. Hún lét líka svo vel í ljós hve velkomin við vorum og hvað henni þótti vænt um heimsóknir okkar. Marga kaffi- og tesopana drukkum við í eldhúsinu hjá henni og ekki spillti það þegar hún átti sandköku, pönnukökur eða nýbakaðar kleinur. Þetta þótti okkur heimsins besta meðlæti. Ekki þótti henni verra að langömmubörnin væru með í för. Hún raulaði þá gjarnan við þau, svo yfir þau færðist ró og friður. Fjöl- skylda ömmu skipti hana miklu máli og eru jóladagsboðin okkur ógleymanleg. Amma lagði sig fram um að njóva þess besta og fegursta í lífínu. Trúin var kjölfesta hennar. Aldrei heyrðum við hana hallmæla öðrum og það sem henni þótti neikvætt geymdi hún mest með sjálfri sér. Þrátt fyrir það hafði hún ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Söngurinn var förunautur hennar alla tíð. Hún byijaðir ung að syngja með kórum og fylgdi því eftir af fulium krafti til dauðadags. Fyrir nokkrum árum keypti hún orgel, sem hún settist oft við. Síðast munum við eftir henni við orgelið á nýársdag þar sem hún sat á undirkjólnum og æfði sig áður en hún fór til messu. Amma bar lengi fyrir bijósti að fá nýtt orgel í Dalvíkurkirkju. Henni auðnaðist að sjá þann draum rætast fyrir rúmu ári. Til marks um hve mikið mál þetta var henni eru orðin sem hún lét falla að vígslu lokinni, en þau voru á þá leið að nú væri hún tilbúin til að deyja. Annar draumur hennar rættist nú fyrir jól- in þegar hún f.h. kvenfélagsins Vöku, afhenti Dalbæ, heimili aldr- aðra, nýtt altari að gjöf. Hún lét sér annt um Dalbæ og starfið sem þar fer fram. Hana vant- aði sjaldan í föndur og spil eða ann- að sem þar stendur til boða. Þar og heima sat hún mikið við að mála dúka, myndir og fleira. Þessa muni sýndi hún okkur með stolti, en sagði þó stundum: „Upp á hvaða vitleysu haldið þið að ég hafi nú verið að taka?“ Þessa setningu heyrðum við helst þegar hún réðst í stór verk- efni, en þeim lauk hún öllum með sóma. Munirnir frá henni ömmu minna okkur á hana og þá alúð sem hún lagði 1 allt sem hún tók sér fyr- ir hendur. Okkur verður minnisstætt hvernig hún hlúði að gróðri og raunar öllu lífi. Garðurinn ber þess glöggt vitni, einnig blómin hennar sem alltaf voru jafn falleg og alltaf átti hún nógan fuglamat í krukkunni í þvottahúsinu. Amma barðist við liðagigt hálfa ævina, en það var fjarri henni að kvarta. Þegar hún sagði: „Það á bara eftir að negla og grafa,“ vissum 'ið að henni leið ekki vel. Ellinni tók h n af æðruleysi, hélt reisn sinni og 'rðingu þar til kallið kom. l’. Jir okkar með ömmu Lilju í kirkjug 'ðana á Dalvík og Völlum á aðfanga g verða ekki fleiri. Svo lengi sei við höfum tækifæri til munum sjá um að tendra kerta- ljósin, sem næst verða einu fleiri en áður. Minningin um hana verður ljós á vegi okkar. Hafði hún þökk fyrir allt. Dóra, Viðar og börn. í dag kveðjum við ömmu, en hún lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri. Andlát hennar bar fremur snöggt að. Við vorum ekki tilbúin til þess að horfa á eftir henni. Þótt árin væru orðin nokkuð mörg var hún enn mjög virk í daglegu lífi og hafði svo mikið að gefa okkur öllum. Amma hafði alltaf nóg fyrir stafni og af henni mátti læra að lífið er ekki búið þótt árin færist yfír. Hún hafði yndi af tónlist og æfði og söng Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þokk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Br.þ Blessuð sé minning. hans afa. Fyrir hönd systkina minna, Ragnhildur Helga Ingólfsdóttir. Nú er hann elsku afí okkar dáinn og við erum þakklát fyrir að fá að kynnast svona góðum manni eins og hann var. Upp í huga okkar koma allar þær ánægjustundir sem við áttum hjá afa og ömmu á Þórustíg 17 og svo síðar í Ólafslundi. Allar minningarnar frá þessum heimsókn- um eru óteljandi því þær eru svo margar og góðar. Bárði afa þótti alltaf gaman að spila á spil og að tefla. Þegar við komust til vits og ára langaði okkur að gera slíkt hið sama, þá gaf hann sér góðan tíma til að kenna okkur hin ýmsu spil og mannganginn. Okkur eru líka í fersku minni öll ferðalögin er við fórum með foreldr- um okkar og afa og ömmu á hveiju sumri. Margt var gert sér til dund- urs en ósjaldan var spilað langt fram eftir kvöldi. Þegar afí var sjötugur var haldið upp á afmælið í Borgarfirðinum í faðmi afkomenda og maka. Þá var farið í ferð á Snæfellsnes, þar naut afi sín sem leiðsögumaður því afí hafði einstakan .frásagnarhæfileika og naut maður þess að hlusta á hann segja frá liðnum tímum. Þegar afi veiktist stóð amma eins og klettur við hlið hans, hjúkraði honum og hjálpaði. þar til yfir lauk. Nú hefur hann hlotið hina eilífu hvíld í Guðs ríki. Við þökkum afa fyrir allar yndislegu stundimar sem við áttum saman. Elsku amma, miss- ir þinn er mikíll og við biðjum góðan Guð að styrkja þig í þessari miklu sorg. Rúnar Bárður, Viðar og Sveina. með Kirkjukór Dalvíkur allt til dauðadags. Hún tók virkan þátt í starfi aldraðra í Dalbæ. Þar eyddi hún mörgum stundum við föndur, spil eða annað. Þar málaði hún ýmsa muni sem hún gaf okkur ættingjun- um og við nú njótum að eiga sem hluta af minningunni um hana. I hvert sinn sem við komum norð- ur á Dalvík eyddum við dijúgum tíma á Goðabrautinni hjá ömmu. Ymist var rabbað saman yfir kaffi- bolla eða tekið í spil. Þessara stunda eigum við eftir að sakna sárt. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að eyða með henni dýrmætum tíma nú um jólin. Þegar við kvöddum ömmu 30. desember sl. er jólafríi okkar lauk óraði okkur ekki fyrir því að við værum að kveðja hana í síðasta sinn. Hún var svo hress og okkur fannst hún aldrei eldast neitt. Amma var mjög trúuð og hefur það eflaust haft áhrif á viðhorf henn- ar gagnvart dauðanum. Hún var fyrir löngu tilbúin til þess að mæta honum og einmitt á þann hátt sem varð. Við kveðjum ömmu með söknuði og þökkum henni fyrir allt. Það er okkur huggun að vita að svona vildi hún hafa þetta. Megi góður Guð geyma hana og blessa minningu hennar. Anna Lilja og Kristinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.