Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992 plíirgmiMalíií Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Námsmenn og lánareglur Framlag ríkissjóðs til Lánasjóðs íslenzkra námsmanna á þessu ári nemur 2.220 milljónum króna, en útgjöld hans eru áætluð tæpar 5.800 milljónir samkvæmt fjárlög- um. Til að brúa bilið mun sjóðurinn taka lán að upphæð 2.815 milljón- ir, auk þess sem hann hefur rúmar 740 milljónir í tekjur af afborgun- um og vöxtum. Reiknað er með því að um 8 þúsund nemendur fái lán í sjóðnum á þessu ári, þar af 5.500 vegna náms innanlands og 2.500 vegna náms erlendis. Framlag rík- issjóðs til lánasjóðsins hækkar um nærri hálfan milljarð frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlögum fyrir 1991, en það ár fóru fjármál lána- sjóðsins úr böndunum, þrátt fyrir breytingu á útlánareglum, sem gerðar voru sl. vor. Af 5.800 millj- ón króna útgjöldum lánasjóðsins í ár fara 3.330 milljónir til útlána, en tæpar 2.280 milljónir í afborg- anir lána og vexti. Augljóst er, að kostnaður vegna lánasjóðsins er þungur baggi á rík- issjóði og hann hefur farið ítrekað fram úr áætlunum sem gerðar hafa verið og það hefur kallað á aukin framlög og lántökur. Það er óhjá- kvæmilegt, að sá mikli vandi, sem við er að etja í ríkisfjármálum, bitni á lánasjóðnum, sem og öðrum þátt- um í rekstri ríkisins. Gífurlegur halli á ríkissjóði undanfarin ár og linnulausar lántökur halda uppi vaxtastiginu í landinu og valda þannig auknum útgjöldum heimila og atvinnulífs. Það er meginatriði við endumýjun þjóðarsáttar, að það takist að lækka vexti. Þess vegna verður að draga úr hallarekstri rík- isins og lántökum og það er megin- skýringin á niðurskurði ríkisstjóm- arinnar. Námsmenn eiga ekki síður en aðrir landsmenn mikið undir því komið að það takist að ná vöxtun- um niður, ekki sízt þegar þeir halda til starfa í þjóðfélaginu að námi loknu og þurfa að koma sér upp húsnæði fyrir sig og sína. Það er hins vegar námsmönnum nauðsyn, að þeir viti að hveiju þeir ganga þegar þeir fá lán hjá Lána- sjóði íslenzkra námsmanna, geti treyst því að lánareglum sé ekki breytt í sífellu eins og verið hefur undanfarin ár. Steingerður Sigur- bjömsdóttir, sem stundar sérfræð- inám í læknisfræði í Bandaríkjun- um, hefur nýlega vakið athygli á því í greinum hér í blaðinu, hversu breytingar á lánareglum geta bitn- að illa á námsmönnum. Sérfræði- nám í læknisfræði er ekki lengur lánshæft, en þegar hópur lækna hóf sérfræðinám sitt árið 1990 gátu þeir fengið námslán í samfæmi við ákvörðun stjómar lánasjóðsins. Það segir sig sjálft, að þegar reglunum var breytt aftur á sl. ári breytti það gmndvellinum, sem sérfræði- nám þessa hóps byggðist á. Grein- arhöfundur spyr, hvort það sé lög- legt og leyfilegt að breyta stefnu lánasjóðsins fyrirvaralaust og láta það ganga yfir fólk, sem þegar hafí hafíð nám. Það er eðlilegt að þannig sé spurt. í svari framkvæmdastjóra lána- sjóðsins við þessari gagnrýni segir hann, að læknar í sérfræðinámi hafí ekki nema í undantekningar- tilfellum fengið lán, þar sem tekjur þeirra séu það háar. Hann bendir á að skerðing á framfærslulánum breyti forsendum allra náms- manna. Framkvæmdastjórinn segir einnig, að breytingin á lánshæfni lækna í sérfræðinámi þýði, að þeir fái ekki frestun á endurgreiðslu lána, svo og gæti hún haft áhrif á lánshæfni maka hjá sjóðnum. Það er náttúrlega ótækt að svipta fólk rétti til námsláns án fyrirvara, eft- ir að það hefur gert fjárráðstafanir vegna framhaldsnáms á ákveðnum forsendum frá lánasjóðnum og hefja jafnframt innheimtu á lánum á meðan það er enn í námi. Það er réttmæt krafa að endurgreiðsla hefjist ekki á meðan nám er stund- að, ef það er gert af fullri alvöru. Almennt talað er óhjákvæmilegt, að námsmenn búi við sömu efna- hagslegu skilyrði og almenningur í landinu. Samdráttur í þjóðartekj- um hlýtur að bitna á þeim sem öðrum. Það verður samt að hafa i huga vegna námsmanna erlendis, að framfærslukostnaður þeirra fer eftir aðstæðum á dvalarstað og taka verður tillit til þess þegar upphæð námsláns er ákveðin. Það hefur löngum viljað brenna við í íslenzku þjóðfélagi, að leikregl- um sé breytt fyrirvaralaust. Það hefur meira segja komið fyrir, að skattalög hafa verið látin virka afturábak og sjá þó allir, hversu slíkt er fáránlegt. Það er illkleift að gera nokkrar vitrænar áætlanir fram í tímann, ef grundvelli þeirra er skyndilega breytt. Afnám á láns- hæfni sérnáms í læknisfræði er gott dæmi um þetta. Kominn er tími til þess að sátt takist um það milli samtaka námsmanna og lána- sjóðsins að mótaðar verði lánaregl- ur sem gildi til frambúðar og að á þeim verði ekki gerðar breytingar nema með svo góðum fyrirvara að námsmenn svífi ekki í lausu lofti. Hafa verður einnig í huga, að fram- haldsnám erlendis er dýrmæt við- bót við þann sjóð sem þekking og aukin menntun veita þjóðinni í ná- inni framtíð, enda hefur þessi þekk- ingarbrunnur verið einn helsti hvati og forsenda velferðar og betri lífs- kjara. Þennan þátt þjóðfélagsins á að rækta eftir getu, en ekki skerða. Kostnaður almennings vegna námslánakerfísins er hins vegar orðinn það mikill, að full ástæða er til að endurskoða það. Kemur þá til greina að athuga aðgang að lánasjóðnum og hvort ekki eigi að taka strangt tillit til námsárangurs og koma í veg fyrir að námsmenn, sem ekki hyggja á nám í fullri al- vöru, bindi fjármuni hans að tals- verðu leyti. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Sameínaðir verktakí á þriðja milljarð í eig Höfuðstöðvar íslenskra aðalverktaka á Höfðabakka, þar sem Sameir höfuðstöðvar. Sameinaðir verktakar stofnuðu Aðalverktaka — en spun líka frá þeim. HLUTHAFAR Sameinaðra verk- taka hafa á undanförnum fimm árum fengið meira en einn og hálfan milljarð skattfijálst frá félaginu — 1540 milljónir króna. Þessi tala er fengin með því að leggja saman arðgreiðslur fé- lagsins til hluthafanna og bæta þeim við þá upphæð sem hluthaf- arnir hafa fengið með því að félagið hefur greitt þeim út and- virði jöfnunarhlutabréfa í hvert skipti sem ákvörðun hefur verið tekin um að hækka hlutaféð og færa niður aftur með útgreiðsl- um. Eftir þessar greiðslur til hluthafanna er hægt að áætla eiginfjárstöðu félagsins eins og hún er í dag, á þann veg að eig- ið féð frá-því í árslok 1990 er framreiknað miðað við 7% verð- breytingar og telst þá vera að minnsta kosti 3.266 milljónir króna. Þær útgreiðslur sem tíundaðar hafa verið á síðasta ári og núna um daginn eru síðan dregnar frá, eða 985 milljónir króna, og þá standa eftir um það bil 2.280 milþ'ónir króna. í þess- um útreikningi hefur ekki verið tekið tillit til þess hvað eigið fé hefur aukist vegna rekstraraf- gangs fyrir árið 1991. Sameinaðir verktakar eru í dag lítið annað en eignarhaldsfélag, eins og starfsemi félagsins er háttað. Tilgangur félagsins, samkvæmt Hlutafélagaskrá er: „Að taka þátt í og hafa með höndum bygginga- framkvæmdir, svo og vinnumiðlun til einstakra hluthafa og almenna útlánastarfsemi." Stjórn félagsins, sem á nú 7,48% í sjálfu sér, er skip- uð þeim Halldóri H. Jónssyni, sem er formaður, Bergi Haraldssyni, Guðjóni B. Ólafssyni, Páli Gústafs- syni og Thor Ó. Thors. Raunar má segja að stjórnar- menn í Sameinuðum verktökum endurspegli þann klofning sem kominn er upp í röðum þeirra, því þeir Halldór H. Jónsson og Thor Ó. Thors og Bergur Haraldsson hafa samkvæmt mínum upplýsing- um jafnan verið þeirrar skoðunar að félaginu bæri að fara sér hægt í greiðslum til hluthafanna. Þeir Guðjón B. Ólafsson og Páll Gústafs- son hafa á hinn bóginn gerst tals- menn þeirra félaga í Sameinuðum verktökum sem nefnt hafa sig „um- bótasinna" og verið helstu talsmenn þess, ásamt þeim Guðmundi Einars- syni verkfræðingi og Gissuri Símon- arsyni sem hafa sótt stíft á um auknar greiðslur til hluthafa. Svo virðist sem hinir svokölluðu „umbót- asinnar" hafi heldur betur haft yfír- höndina, nú þegar ákveðið var að færa hluthöfunum tæpan milljarð króna á silfurbakka. Ekki er hægt í dag að segja að Sameinaðir verktakar séu samstæð- ur hópur verktaka, sem einkum sinni verktöku í landinu, því mikill fjöldi hluthafa eru ekkjur og aðrir erfíngjar upphaflegra stofnenda, auk fyrirtækja sem skráð eru hjá Hlutafélagaskrá með ýmsa verk- taka- og byggingarstarfsemi sem samkvæmt því sem næst verður komist eru ekkert annað en pappírs- fyrirtæki um fjármuni í Aðalverk- tökum. Raunar hafa heyrst ákveðin sjónarmið úr röðum Sameinaðra verktaka um að slíta beri félaginu og meira að segja telja ákveðnir menn að það hefði átt að gera fyr- ir löngu. Þeir sem eru þessarar skoðunar segja enga ástæðu til þess lengur að halda þeim eignum sem Sameinaðir verktakar eiga áfram í félaginu. Félagið hafí í raun og veni ekkert markmið annað en eiga eignarhlut í íslenskum aðalverktök- um og einhveijar fasteignir. Ef það yrði gert, þá er ljóst að það væru ekki bara þær 310 milljónir króna í hlutafé, sem nú er skráð nafnverð hlutafjár Sameinaðra verktaka, sem kæmu til skiptanna, heldur marg- föld sú upphæð. Kæmi til slíkra félagsslita, þá væri ekki um það að ræða að þær útborganir yrðu skattfijálsar. Eig- endumir þyrftu að greiða fullan skatt af öllum greiðslum sem væru umfram 310 milljón króna nafnverð hlutabréfa fétagsins. Samkvæmt ársreikningi Samein- aðra verktaka fyrir árið 1990 var eigið fé félagsins þá 3.052 milljónir króna — liðlega þrír milljarðar króna. Á síðastliðnu ári var greidd- ur arður að upphæð 46,5 milljónir króna, greidd út jöfnunarhlutabréf að andvirði 38 milljónir króna og loks nú fyrir fímm dögum var greidd út til hluthafanna 900 milljóna króna upphæð, eða sama upphæð og hlutafé félagsins var hækkað og lækkað um. Eftir þessar útgreiðslur er hægt að áætla eiginfjárstöðu félagsins, eins og hún er í dag, á þann veg að eigið féð frá því í árslok 1990 er framreiknað miðað við 7% verð- breytingar og telst þá vera að minnsta kosti 3.266 milljónir króna. Þær útgreiðslur, sem tíundaðar hafa verið á síðasta ári og núna um daginn, eru síðan dregnar frá, eða 985 milljónir króna og þá standa eftir um það bil 2.280 milljónir króna. í þessum útreikningi hefur ekki verið tekið tillit til þess hvað eigið fé hefur aukist vegna rekstrar- afgangs fyrir árið 1991. Hér í blaðinu í gær var greint frá því að á undanförnum fimm árum hafa hluthafar Sameinaðra verktaka fengið 1.355 milljónir króna á núvirði, í formi þess að ákvörðun hefur verið tekin á hlut- hafafundum/aðalfundum félagsins um að hækka hlutaféð með útgáfu jöfnunarhlutabréfa og færa það nið- ur aftur um leið, en greiða hluthöf- um út fjármunina í réttu hlutfalli við eignarhlut þeirra. Þessar greiðslur hafa allar verið skatt- fijálsar. Sama máli gegnir um arðgreiðsl- ur Sameinaðra verktaka sem fram- reiknaðar til núvirðis hafa samtals numið 184 milljónum króna undan- farin fímm ár. Arið 1987 var lögum samkvæmt einungis hægt að greiða út 10% arð og þá voru-arðgreiðsl- urnar vegna ársins 1986 9 milljónir króna. Þær voru einnig 10% árin 1988 og 1989, 18 milljónir króna fyrra árið en 27 milljónir króna það síðara. Árið 1990 mátti hins vegar lögum samkvæmt greiða út 15% arð, án þess að hann væri skattlagð- ur sérstaklega og þá greiddu sam- einaðir út 45 milljónir króna og í fyrra var arðgreiðslan sömuleiðis 15%, eða 46,5 milljónir króna. Sam- tals hafa því verið greiddar út í arð á þessum árum 146 milljónir króna, framreiknað til núvirðis, frá hverju ári fyrir sig eru það 184 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.