Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992 Frá fundi Versiunarmannafélags Reykjavíkur með vinnuveitendum í gær. VR leggur fram sérkröfur vegna fjögurra starfsgreina: Svar um starfsgreínasamnínga er forsenda heildarviðræðna - segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR Verslunarmannafélag Reykja- með vinnuveitendum í gær, en víkur lagði fram sérkröfur vegna áður höfðu verið lagðar fram fjögurra starfsgreina á fundi kröfur vegna sérmála tveggja Kaupmáttur óbreyttur á þjóðarsáttartímanum Kaupmáttur verkakvenna jókst um 11,8% frá 3. ársfjórð- ungi 1990 til jafnlengdar 1991 og skrifstofukvenna um 6,8% KAUPMÁTTUR launa var óbreyttur frá 3. ársfjórðungi 1990 til sama tíma 1991, að því er fram kemur í könnun Kjararannsókna- nefndar. Laun landverkafólks innan Alþýðusambands íslands hækk- uðu um 7,4% á tímabilinu og framfærsluvísitalan um það sama. Þá er ekki tekið tillit til 6.300 króna eingreiðslu vegna viðskiptakjara- bata sem hækkar kaupmáttinn um 2%. Sunday Times bridsmótið: * Islendingam- ir aftarlega ÍSLENSKU þátttakendurn- ir á Sunday Times brids- mótinu í London enduðu í 12. og 14. sæti af 16 þátttak- endum. Gabriel Chagas og March- ello Branco frá Brasilíu unnu mótið með yfirburðum, en þeir fengu 645 stig. í öðru sæti urðu Bob Hamman og Bobby Wolff frá Bandaríkjun- um með 566 stig, og í þriðja sæti urðu Enry Leufkens og Barry Westra frá Hollandi með 494 stig. Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson urðu í 12. sæti með 401 stig, og þeir Guðmundur Páll Arn- arson og Þorlákur Jónsson í 14. sæti með 382 stig. Að sögn Jóns Baldurssonar spiluðu þeir íslendingarir illa, og fannst þeim þá skorta út- hald. Þetta mót er eitt það sterkasta sem haldið hefur verið í heiminum, en pörin 16 sem tóku þátt í því hafa öll unnið ýmist heimsmeistara- titla, Ameríku- eða Evrópu- titla. Niðurstaðan er sú sama ef gildis- tími þjóðarsáttarsamninganna frá I. febrúar 1990 til 15. september 1991 er tekinn. Kaupmáttur er nánast sá sami í upphafi tímabilsins og í lok þess. Greitt tímakaup hækkaði um 11% að meðaltali á þessu tímabili og kauptaxtar um 10,6%, en framfærsluvísitalan um II, 2%. Mánaðartekjur einstakra starfs- stétta innan ASÍ hækkuðu sem hér segir frá 3. ársfjórðungi 1990 til 3. ásrfjórðungs 1991: Verkakarlar hækkuðu úr 94.535 krónum í 103.445 krónur, hækkunin er 9,4% og hækkun kaupmáttar 1,9%. Verkakonur hækkuðu úr 71.552 í 85.927 krónur í mánaðartekjur, hækkunin er 20,1%, sem er 11,8% aukning kaupmáttar. Iðnaðarmenn hækkuðu úr 128.940 krónum í 136.299 krónur, hækkunin er 5,7%, sem er 1,6% minni kaupmáttur en var 1990. Afgreiðslukarlar hækk- uðu úr 101.319 krónum í 110.648 kr., sem er hækkun um 9,25 og aukning kaupmáttar um 1,7%. Af- greiðslukonur hækkuðu úr 71.937 kr. í 76.425 krónur, hækkunin er 6,2% og kaupmáttarrýrnun 1,1%. Skrifstofukarlar hækkuðu úr 119.822 krónum í 127.902 krónur, hækkunin er 6,7%, sem þýðir kaup- máttarrýmun upp á 0,6%. Skrif- stofukonur hækkuðu úr 78.978 krónum í 90.609 krónur, hækkunin er 14,7% og aukning kaupmáttar er 6,8%. starfsgreina. Magnús L. Sveins- son, formaður VR, segir að það sé meginkrafa félagsins að gerð- ir verði við það starfsgreina- samningar og fyrr en skýr svör hafi fengist frá vinnuveitendum varðandi það atriði sé félagið ekki tilbúið til viðræðna um að- alkjarasamning á vettvangi heildarsamtakanna. í gær voru lagðar fram sérkröfur vegna starfsfólks í byggingarþjón- ustu, starfsfólks í bíla- og vélasölu, starfsfólks í lyfjabúðum og starfs- fólks í ferðaþjónustu, en áður höfðu kröfur vegna sérmála starfsfólks í stórmörkuðum og starfsfólks í trýggingafélögum verið lagðar fram. Magnús sagði að meginatriði í kröfugerð félagsins væri að samið yrði við það á grundvelli starfs- greina, en afdráttarlaust svar varð- andi það hefði ennþá ekki fengist frá vinnuveitendum. Hins vegar væri búið að skipa undimefndir til að fara yfir nokkur mál og þær væm að störfum. Varðandi sérmál þeirra hópa sem lögð voru fram í gær sagði Magnús að vinnuveitend- ur hefðu sagst ætla að skoða þau og láta vita fljótlega. Aðspurður hvemig viðræður um aðalkjarasamninga á vettvangi heildarsamtakanna horfðu við VR, sagði Magnús: „Á meðan við fáum ekki skýr svör um okkar megin- kröfu að við fetum okkur sameigin- lega inn í það samningsform að samningar verði gerðir á grundvelli starfsgreina þá erum við ekki til- búnir til að fara í heildarsamninga- gerð. Við þurfum að fá skýrari svör en við höfum fengið frá vinnuveit- endum áður en við gætum gert það.“ Fundur hefur verið boðaður á mánudag með miðstjórn ASÍ og formönnum landssambanda ASÍ og svæðasambanda til að fara yfir stöðu samningamála og meta hvort grundvöllur sé til að hefja viðræður um heildarkjarasamning. Síðar á mánudag hefur fundur vinnuveit- enda og Verkamannasambands ís- lands um aðalkjarasamning verið ákveðinn. Mikíl hálka á vegiim MIKIL hálka var víða á vegum í gærkvöldi. Skammt frá Fífl- holti á Mýrum missti ökumaður Toyota pallbíls stjórn á bílnum í beygju vegna hálku með þeim afleiðingum að bíllinn rann á hliðinni út af veginum og lenti þar á toppnum. Þrennt var í bílnum og slapp allt ómeitt. Þá varaði lögreglan í Keflavík við hálku á Reykjanesbraut en þar gekk á með éljum í gærkvöldi. Engin óhöpp höfðu orðið en að sögn lögreglunnar lá greinileg glæra yfir veginum. ■" ■ " ■■■— Brennivín- ið vinsælt YFIR 50 flöskur af gömlu, íslensku brennivíni seldust í ÁTVR í Kringlunni í gær, á fyrsta degi þorra. Á venju- legum föstudegi seljast að meðaltali um 8 flöskur af sömu tegund. Sævar Skaftii- son, hjá útsölueftirliti ÁTVR, segir að þennan mánuð selj- ist að jafnaði helmingi meira af íslensku brennivíni en aðra mánuði. í ÁTVR í Kringlunni seldust 263 flöskur af venjulegu ís- lensku brennivíni en yfirleitt seljast um 150 flöskur á föstu- dögum. í verslun ÁTVR á Stuðlahálsi seldust 230 flöskur af íslensku brennivíni í gær en aðra föstudaga seljast um 140 flöskur. Vetrartilboð Flugleiða í Bandaríkjunum: Flogið milli Evrópu og Ameríku fyrir 17.000 til 20.500 krónur Mismunandi markaðsaðstæður valda lægri fargjöldum vestra, segja Flugleiðir FLUGLEIÐIR bjóða nú vetrarfargjöld frá Bandaríkjunum til áfanga- staða sinna í Evrópu, með millilendingu á íslandi, á 298 til 358 Banda- ríkjadali, eða 17.135 til 20.585 íslenzkar krónur. Þarna er meðal annars um að ræða flug til borga á Norðurlöndum. Flugleiðir hafa sótt um að fá að lækka fargjöld til Norðurlanda, í kjölfar áforma skandinaviska flugfélagsins SAS um Tækkun. Lægsta fargjald til Norðurlanda á þá að verða 29.000 krónur. Margrét Hauksdóttir lyá upplýsingadeild Flugleiða segir að markaðsaðstæður séu ólíkar í Bandaríkjunum og á íslandi og því sé unnt að bjóða lægri fargjöld vestra. „Fargjöld eru mismunandi eftir mörkuðum. Við munum til dæmis bjóða enn Jægra fargjald næsta sumar frá íslandi til Norðurland- anna en það sem við erum að sækja um núna. Við erum þegar byijuð að selja miða á því fargjaldi, sem er 20.900 krónur, en það tekur gildi 15. april,“ sagði Margrét Hauks- dóttir hjá upplýsingadeild Flug- leiða. Hún sagði að Bandaríkjamarkað- ur væri stór og því væri hægt að bjóða þar lægri vetrarfargjöld en hér heima. „Á þessum árstíma er minnst að gera í fluginu og Flug- leiðir flytja fjórum sinnum færri farþega en yfir sumarmánuðina. Til að hægt sé að halda úti nægi- legri ferðatíðni þarf að ná inn til- teknum farþegafjölda á öllum mörkuðum. Þessi tímabundna lækkun með takmörkuðu sæta- framboði er okkar leið til að keppa um þessa farþega við fjölda amer- ískra risaflugfélaga á Bandaríkja- markaði, en þessi fargjöld eru svip- uð og önnur félög bjóða þar. Oll önnur flugfélög eru með mismun- andi uppbyggingu fargjalda eftir mörkuðum og mismunandi fargjöld geta verið í gildi hjá sama flugfé- lagi á sömu leiðum. Atlantshafs- flugið og Skandinavíuflugið er tengt saman og heldur hvort öðru uppi. íslenzki markaðurinn er svo lítill að í raun þarf að fá stóran hluta farþeganna af öðrum mörkuð- um til að geta haldið uppi sæmilega tíðu áætlunarflugi,“ sagði Margrét. Ráðherra samþykkur lækkun fargjalda Umsóknir SAS og Flugleiða um lækkun fargjalda til Norðurlanda verða afgreiddar í samgönguráðu- neytinu eftir helgina. Halldór Blöndal samgönguráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að það væri ánægjuefni ef hægt væri að lækka fargjöld til annarra landa og hann sæi enga meinbugi á því að umsóknir flugfélaganna yrðu samþykktar. Ráðherrann bætti því við að ef samningar um evrópskt efnahagssvæði tækjust myndu loks gjlda reglur ftjálsra markaðsvið- skipta um leigu- og áætlunarflug til og frá landinu. „Flugleiðir geta þá keppt á jafnréttisgrundvelli á öðrum Norðurlöndum og í Evrópu. Því fylgir mikið hagræði fyrir okkur og mun auka möguleika Flugleiða til þess að bjóða góða og ódýra þjónustu,“ sagði Halldór.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.