Morgunblaðið - 25.01.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992
9
Aðstoð óskast
Vegna veikinda óskast aðstoð ó heimili í
Seljahverti í Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 15.30-20.00 mánudag til fimmtudags.
Sjúkraliðamenntun æskileg.
Umsóknir, með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf, leggist inn á auglýsinga-
deild Morgunblaðsins merktar: „Aðstoó -
14323“ fyrir miðvikudaginn 29. janúar.
AIIGNLÆKNIR
Hef opnað augnlækningastofu á Laugavegi 24, Rvík.
Tímapantanir alla virka daga í síma 91-629733.
Gunnar Ás Vilhjálmsson, læknir.
Sérgrein: Augnlækningar.
Fákskonur
Attalfundur kvennadeildar
Aðalfundur kvennadeildar verður haldinn
mánudaginn 27. janúar og hefst kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Fjölmennum.
Kvennadeildin.
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
vx/ 7’
'“ÍSSS* LANDSBJÖRG
Dósakúlur um allan bæ.
BANDAU0 tSUMXM SdU
Kostnaðarleg undir-
staða velferðarinnar
Það er mikið skrifað og skrafað um vel-
ferð þessa dagana. Umræðan snýst ekki
um það, hvern veg tryggja megi kostnað-
arlega undirstöðu velferðarþáttanna í
samfélaginu, með því að efla atvinnulíf
og verðmætasköpun. Stjórnarandstaðan
heidur umræðunni á einum fleti málsins:
viðleitni stjórnvalda til að draga úr hrika-
legum ríkissjóðshalla og opinberri lánsfj-
áreftirspurn, sem er meginorsök hárra
vaxta. Guðmundur Einarsson fjallar m.a.
um þetta mál h' Alþýðublaðinu.
Velferðar-
kerfið tekið í
slipp
Guðmundur Einarsson
segir í grein í Alþýðu-
blaðiuu:
„Nú reyna andstæð-
ingar Alþýðuflokksins og
ríkisstjómarinnar að
halda fram þeirri firru
að verið sé að gera
grundvaliarbreytingar á
velferðarkerfinu og þær
breytingar séu í andstöðu
og mótsögn við einhvers
konar samkomulag, sem
ríkt hafi meðal lands- ;
manna um uppbyggingu
þess og aðferðir.
Þetta er auðvitað arg-
asta vitleysa.
Það er ekki verið að
breyta grundvallar-
markmiðum velferðar-
innar. Það er hins vegar
verið að taka hana í slipp,
yfirfara og öxuldraga og
skrapa hrúðurkarlana af
botninum. Botnhreinsun-
in mun auka skriðið á
skútunni og bæta hag-
kvæmnina. Það er auð-
vitað í samræmi við hefð-
ir Alþýðubandalagsins
og Framsóknar að vifja
halda í botnhrúðrið, enda
mega þeir flokkar aldrei
neitt nýtt sjá.
Það er líka verið að
spara á öðrum sviðum
ríkisrekstrarins til þess
einmitt meðal annars að
sinna þörfum þess samfé-
lags frelsis og jafnréttis
sem báðir ríkisstjómar-
flokkamir hafa lýst yfir
að þeir styðji".
Tölvur yfír-
dráttardeildar
og skuldfærsl-
ur á uppvax-
andi kynslóð
„Þeir, sem harðast
beijast gegn þessari end-
urskoðun, hafa reyndar
margir reynzt velferöar-
kerfinu hættulegir. I
hvert sinn sem þeim er
hleypt til mannaforráða
vinna þeir skemmdar-
verk. Þegar Steingrímur
J. Sigfússon fékk að vera
svolitla stund í landbún-
aðarráðuneytinu eyddi
hann 50 miHjónum í að
kaupa gjaldþrota loð-
dýrabú af fólki sem hann
vorkenndi. Þannig er
haim stórtækur í velferð-
armálum.
Og Steingrímur Her-
mannsson eyddi stómm
fjárhæðum í að kaupa
gjaldþrota flskeldisstöð
af mönnum sem haim
vorkenndi. Þamiig var
hans velferðarhugsjón.
Við höfum ekki efni á
góðverkum þessara
miklu mannvina.
Fyrir loðdýrahúsnæði
Steingríms J. hefði mátt
leysa húsnæðisvanda 10
fjölskyldna eða manna
heilan barnaskóla í eitt
ár. I hvert skipti sem
Alþýðubandalagsmenn í
ríkisstjórn tóku upp
tékkheftið fóm tölvumar
í yfirdráttardeildinni i
gang og sendu gula miða
inn um bréfalúgur bam-
anna okkar. Þeir ætla
ævinlega unga fólkinu og
ókomnum kynslóðum að
axla byrðamar af greiða-
semi og atkvæðakaupum
þeirra.
Þessvegna er falskur
hljómur í hörpunni lýá
Ólafi Ragnari þegar
hann situr eins og gló-
andi engill á skýi og spil-
ar undir söngimi hjá „vel-
ferðarvinunum“ sjálf-
skipuðu. Einn daginn
brestur harpan og ljúf-
lingurinn lokkabjarti
fellur niður úr skýjunum
og verður metinn af
verkum sínum en ekki
vængjaslætti".
Athugasemd
við forustu-
grein
Hagfræðingur bænda-
samtakanna, Gimnlaug-
ur A. Júlíusson, gerði
nýlega athugasemd við
forystugrein Morgun-
blaðsins um landbúnað-
hm og GATT.Hann segir
m.a. í athugasemdinni:
„Þetta magn innflutnings
sem hér er minnst á, 3%
árið 1993 og aukningu
upp í 5% árið 1999, er það
magn sem flutt yrði til
landsins með „Iágmarks
eða ipjög litlum tollum"
er lagður yrði ofan á
heimsmarkaðsverð, eins
og segir í samningstexta.
Hér er því í raun um að
ræða þvingaðan innflutn-
ing án álagningar tolla
sem einhveiju nemur."
Það er rétt þjá hag-
fræðingi bændasamtak-
anna, að í forustugrein-
inni var ekki tekið fram,
að þessi 3-5% innflutn-
ingur er fyrst og fremst
til að tryggja lágmarks
innflutning á búvörum,
sem enginn eða minni-
háttar innflutningur hef-
ur verið leyfður á, og
hann skal ekki bera
nema lágmarks tolla eða
enga. Er beðið velvirð-
ingar á því, ef það hefur
valdið þeim misskilningi
lesenda, að innflutningur
umfram það magn yrði
ekki leyfður. Á innflutn-
ing umfram þessi 3-5%
er heimilt að leggja jöfn-
unargjald, sem lækkar í
áföngum á sex ára tima-
bili. Aætlað er, að verð-
mismunur innlendrar
framleiðslu og innfluttr-
ar á mikilvægum búvör-
um, sem innflutiiiiigur
hefur verið baimaður á,
mjólkurvömm og flest-
uin kjötvömm, geti num-
ið að lágmarki 15% í lok
þessa sex ára tímabils.
Hins ber þó að gæta,
að fomstugreinin fjallaði
almennt um landbúnað-
inn og GATT og við-
brögð bændaforustunn-
ar, svo og markaðsstöðu
íslcnzks landbúnaðar.
Fomstugreinhi fjallaði
ekki um einstök ákvæði
sem snerta landbúnað-
inn. Það var gert í frétta-
skýringu, sem birtist í
blaðinu sama dag.
% ~ , §g
W'y-'
i
1
.
■
!
X'. "L-.
SSB
Siffí. ”
■■
Allt um ávöxtun á erlendum verðbréfum
Opið í Kringlunni í dag á milli kl.10 og 16.
Raunávöxtun 1991
Agnar Jón Ágústsson hagfræðingur
verður í Kringlunni í dag.
Verið velkomin!
NORTH AMERICA
FAR EAST
GLOBAL
INTERNATIONAL
JAPAN
-1,76% 1
-3,22%
-5,90%
-9,08%
32,63%
19,26%
I 16,86%
7,88%
I 1,57%
CONTINENTAL EUROPE
UNITED KiNGDOM
NORDIC
MEDITERRANEAN
-10
10
20
30
<B>
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700