Morgunblaðið - 25.01.1992, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 25. 'JÁn'ÚAR 1992
Sínfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Finnski hljómsveitarstjórinn
Osmo Vánská og rússneski píanó-
snillingurinn Dmitri Alexeév voru
gestir Sinfóníuhljómsveitar fslands
en auk þess var frumflutt nýtt ís-
lenskt hljómsveitarverk eftir Finn
Torfa Stefánsson. Á efnisskránni
var Hljómsveitarverk II, eftir Finn
Torfa Stefánsson, Tíli Ugluspegill,
eftir Richard Strauss ogþriðji pían-
ókonsertinn eftir Sergej Prokofíev
og þar var Dmitri Alexeév við
píanóið. Öllu þessu stjómaði Osmo
Vánská afburða vel.
Hljómsveitarverk II er vel unnið
verk, auðugt af alls konar hug-
myndum, sem birtast í temtískri
úrvinnslu og mynda sannfærandi
framvindu og sterk tengsl við eldri
tónlist. Samleikur hugmynda var
oft útfærður í ómstríðum tónbilum,
svona til að draga úr að „únison“
væru hugmyndirnar of gamaldags,
en einmitt þesskonar útfærsla var
mikið tíðkuð, þegar tónskáld voru
að bijóta sér leið út úr alveldi sam-
hljómsins, um og upp úr aldamótun-
um, t.d. hjá Stravinsky. Eins og
fyrr segir er verkið vel unnið en á
köflum nokkuð um of, sem dregur
heldur úr andstæðum hugmynd-
anna en skapaði þó verkinu sterka
heild.
Líklega er Tíli Ugluspegill eftir
91Q7H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTIÓRI
ml I vw CIO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Ný og glæsileg af yfirstærð
3ja-4ra herb. íbúð á 1. hæð við Sporhamra 118,3 fm nettó. Tekin í
notkun ekki fullgerð. Sérþvottahús. Sameign frágengin. Fullg. bílskúr.
40 ára húsnæðislán um kr. 5,0 millj. Um 1,5 millj. af útborgun má
greiða á 4 árum.
Ágæt íbúð við Álftamýri
3ja herb. á 3. hæð rúmir 80 fm nettó. Sólsvalir. Ágæt sameign, nokk-
uð endurbætt. Bílskúrsplata fylgir. Útsýni. Skipti æskileg á raðhúsi í
Háaleitishverfi, Hvassaleiti eða nágr.
Nýtt stórgiæsilegt einbýlishús
við Kársnesbraut, Kóp. Steinhús, 157,1 fm. 4 svefnherb., þaraf 1 með
sérsnyrtingu. Stór og góður bílskúr 32,4 fm. Langtímalán um 4,5
Eignaskipti möguleg.
Gott einbýlishús
eignaskipti möguleg
Steinhús, nýstækkað og endurbyggt, ein hæð, 129,5 fm við Háabarð
í Hafnaríirði. Góður bílskúr 36 fm. Ræktuð lóð, 630 fm með trjá-
gróðri. Útsýnisstaður.
Skammt frá Dalbraut
Endurbætt 4ra herb. íb. á 1. hæð. Suðursvalir. Risherb. fylgir með
snyrtingu. Sameign töluvert endurn. Gott verð. Góð lán.
Einstaklingsíbúð í lyftuhúsi
Ný endurbyggð góð eign í lyftuhúsi við Tryggvagötu á 4. hæð. Góðar
sólsvalir. Laus eftir samkomulagi.
Við Asparlund - eignask. möguleg
Giæsilegt einnar hæðar raðhús með bílsk. um 170 fm. Skipti æskileg
á 3ja herb. íb. miðsv. f borginni. Útsýnisstaður.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Leitum að einbýlishúsi í Garðabæ 180-200 fm með góðum bílsk.
Ennfremur óskast 3ja-5 herb. íbúðir og sérhæðir. Og nokkrir óska
eftir eignum sem þarfnast standsetningar.
ALMENNA
ÆZSISSZ,. fasteighasalan
Margskonar eignaskipti. LAUGAVEGM^SIMA^21150~21370
120 fm íbúðir til sölu
Á góðum stað í Hamrahverfi, Grafarvogi eru til sölu
íbúðir með 2-3 svefnherb., stórum stofum, sérþvotta-
húsi, svölum á móti suðri og bílskúr.
íbúðirnar henta vel fyrir eldra fólk og eru til sýnis fullbúnar.
Örn Isebarn, byggingameistari,
sími31104.
Stakfell
Fasteignasala Suðurlandsbraut 6
687633
Lögfrædingur
Þórhildur Sandholt
Sölumenn
Gisli Sigurbjömsson
Sigurbjörn Þorbergsson
Valhúsabraut - Seltjnesi
Tvö uppsteypt einbýlishús á einni hæð rúmlega 240 fm. Enn-
fremur 7 byggingalóðir við Valhúsabraut. Eignarlóðir.
Gísli Sigurbjörnsson, heimasími 687633.
Strauss eitt skemmtilegasta tón-
verk síðari tíma (1895), glettið og
snjallt hermitónverk, með alvarlegu
niðurlagi, sem túlka mætti sem
áminningu til allra þeirra er stunda
að hrekkja fólk. Upphafið í strengj-
unum mætti túlka sem „Einu sinni
var“ og stefið í hornunum bætir við
„prakkari, sem hét Tíli Ugluspegill"
en til að lýsa kæruleysi þessa prakk-
ara, er stefið endurtekið á^Es-
kiarinett. Þannig mætti rekja sög-
una, því allt verkið er byggt á tákn-
rænum tónhugmyndum, eins og t.d.
þegar Tíli verður ástfanginn og
ekki síst, þegar hann í lokin er tek-
inn af lífi. Verkið var mjög vel leik-
ið og auðheyrt að Vánská er snjall
hljómsveitarstjóri.
Lokaviðfangsefni tónleikanna
var þriðji píanókonsertinn eftir Pro-
kofíev. Þetta er erfitt verk sem
píarósnillingurinn Dmitri Alexeév
lék snilldarvel, t.d. fyrsta kaflann,
sem er ein allsheijar stórkadensa,
vafín inn í stöðugan samleik við
hljómsveitina. Annar kaflinn er
bráðsnjall tilbrigðakafli og þar
dregur höfundurinn hlutverk pían-
ósins á köflum út úr sinfónískum
samleiknum við hljómsveitina og
var leikur Alexeév hreint ótrúlega
góður í þessum skemmtilega kafla.
Það sýnir að hljómsveitin okkar er
vel á vegi stödd, að eftir aðeins
eina æfingu með einleikaranum, lék
sveitin mjög vel, enda naut hún þar
ágætrar stjómar Osmo Vánská.
Finnur Torfi Stefánsson
Dmitri Alexeév
Heimildarmynd um
Jón Signrðsson forseta
S AG A Filmhefurákveðiðaðgeraleikna heimildarmynd umJónSigurðs-
son forseta. Jón starfaði lengst af í Kaupmannahöfn við skjalavörslu og
ritstörf, auk þess að vera helsti baráttumaður Islendinga í frelsisbarátt-
unni. Jón var forseti Alþingis þau þing sem hann sat á árunum 1845-
1879. Hann var auk þess f orseti Háfnardeildar Bókmenntafélagsins. Jón
Sigurðsson lést í Kaupmannahöfn 1879 og var jarðsettur í Reykjavík.
Vandað verður til myndarinnar Umsjón með sjónvarpsgerð hefur
Björn G. Björnsson. Fyrirhuguð er
samvinna við íslenska og danska
sjónvarpið. Áætlað er að myndin
verði tilbúin til sýningar í sjónvarpi
1994 á 50 ára afmæli lýðveldisins.
eins og kostur er og hefur Guð-
mundur Magnússon sagnfræðingur
verið ráðinn að verkefninu og er
undirbúningur að handritsgerð þeg-
ar hafínn, segir í frétt frá Saga fílm.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Mikið skelfíng finnst mér
sögnin að „tippa“ ljót; ekki það
að mér þyki hún dónaleg eða
„typpisleg“, hún er mikiu fremur
viðrinisleg og snautleg. Nú legg
ég til að við hressum upp á sögn-
ina að giska í sambandi við
getraunirnar. Næst ætla ég að
giska á sex heimasigra, þijú
jafntefli og fjóra útisigra.
Atviksorðið úti getur falið í
sér merkinguna liðinn, búinn að
vera, glataður. Það er úti um
hann, getum við sagt, ef einhver
er glataður, dáinn. Þegar enn
er eftir einhver vonarglæta,
segjum við á hinn bóginn: Það
er ekki öll nótt úti enn. Úti
fyrir merkir hins vegar fyrir
utan í venjulegri staðarmerk-
ingu. Ýmsum verður á að rugla
saman orðtökum, eins og mann-
inum sem sagði: Ekki er öll nótt
úti fyrir enn.
Og alltaf heyrir maður eitt-
hvað kyndugt í fréttum. Sagt
var frá því að „slökkviliðinu
hefði tekist að ráða niðurlögum
eldsins eftir hetjulega baráttu.
Var þá allt brunnið sem brunnið
gat“.
Fyrir nokkru birti ég hér í
þáttunum vísu sem ég eignaði
án fyrirvara Sigurhirti Péturs-
syni lögfræðingi:
Mínar andans stoltu stundir
storka vandanum,
en skip mitt strandar ávallt undir
óiánsgrandanum.
Vegna þessa kom að máli við
mig Sigurbjörn Bjarnason skrif-
stofustjóri á Akureyri og sagði
mér eftirfarandi:
Einhverju sinni voru þeir „við
spil og vín“, eins og skáldið
sagði, hann sjálfur, Sigurhjörtur
áðurnefndur og Einar Ágústs-
son, síðar ráðherra, og fleiri.
Var þá glímt við að botna fyrri-
part sem Tryggvi Emilsson hafði
einhveiju sinni komið með inn á
skrifstofu Rafveitu Akureyrar,
þar sem Sigurbjörn var á sínum
tíma kunnugur. Sigurhjörtur
botnaði fyrripartinn á sama hátt
og fyrr sagði, en Einar Ágústs-
son svo:
Varla standa vil þó undir
vísufjandanum.
Það er gamla sagan, að góðar
vísur eru stundum eignaðar fleiri
en einum.
★
Umsjónarmaður hefur fyrr og
síðar hvatt menn til að segja
skoðun sína á íslensku máli og
greina frá tilfinningu sinni fyrir
því. Þessi þáttur hefur frá upp-
hafí verið ætlaður til vettvangs
af því tagi. Ég ítreka því það
sem sagði í næstsíðasta þætti í
framhaldi af orðum Haralds í
Kvistási. Nú hef ég fengið gott
bréf frá Guðbrandi Þorkeli Guð-
brandssyni á Sauðárkróki. Eftir
vinsamleg orð í garð umsjónar-
manns og Morgunblaðsins seg-
ir bréfritari:
„Hitt er svo annað mál, að
venjulegur, ómenntaður maður
veigrar sér við bréfaskriftir til
slíkra manna. Þar kemur bæði
til að manni finnst slíkt bera
vott um hálfgert yfirlæti, sem
viðkomandi hafi ekki efni á svo
og hitt, að frambornar spurning-
ar komi beinlínis upp um hversu
illa maður er sjálfur málfarslega
á vegi staddur.
En það eru sumsé nokkur
atriði, sem sá er þetta ritar hef-
ur veitt athygli í máli fólks að
undanförnu og langar að vekja
athygli á og spyijast fyrir um.
Taka ber fram, að hér er ekki
einungis um að ræða s.n. „fjöl-
miðlamál“, heldur einnig það,
sem aðrir láta frá sér fara í
ræðu og riti.
Nokkuð hefur borið á því að
fólk, sem jafnvel telur sig skrifa
og tala vandað mál, skýtur inn
auka -r- í samsettum orðum.
Auka —, tja, hver er nú að setja
sig á dómarasæti? Dæmi: Leið-
inda-r-veður, Vestfjarða-r-mið,
afurða-r-sala. Hvað er hér á
ferðinni?
625. þáttur
Nokkrir gamlir og góðir þegn-
ar í málinu taka líka breytingum
og nægir að nefna tvö dæmi.
Nú tala flestir um að ver-m-da
hlutina, en þegar ég var að al-
ast upp var alltaf talað um að
ver-n-da eitthvað. Annað dæmi.
Nú tala flestir um að hlutir séu
dijú-f-ir en ekki dijúgir. Þetta
eða hitt er dijú-f-t. Merkilegt.
Dijúfur verður síðasti áfanginn,
eða hvað?
Löng bréf eru yfirleitt leiðin-
leg, svo hér skal láta nótt sem
nemur.“
Umsjónarmaður segir enn, að
hann ansar engu tali um „venju-
lega ómenntaða" menn. Sýsl-
ungi Guðbrands kvað:
Þitt er menntað afl og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd,
hjartað sanna og góða.
Og svo geta menn spreytt sig
á að skilgreina orðið menntað-
ur. Eitt er víst: Það er skylt
orðinu maður.
Umsjónarmaður getur ekki
svarað spurningu bréfritara um
auka-r í þeim dæmum sem hann
til tók, nema þá að menn, sem
svo tala, séu í meira lagi ruglað-
ir á eintölu og fleirtölu. Hljóð-
breytingarnar vernda > vermda
og drjúgt > drjúft eru annars
eðlis. Hin fyrri er kannski til
komin vegna þess að menn átta
sig ekki á að vernda er skylt
vörn, halda kannski að skyld-
leiki sé við sögnina að verma.
Siðari breytingin er alkunn c>g
víða þekkt í framburði. Ég
heyrði fyrir löngu krakka segja
„fluvu“ í staðinn fyrir flugu, og
„fluvurnar“ í staðinn fyrir flug-
urnar. í dönsku hefur sögnin
að fljúga orðið flyve.
Hlymrekur handan stældi úr
ensku:
Eru verur sem við nefnum guði
sem virðast ofl lenda í puði
við að skapa - ég skil -
og þegar Skammkell varð til,
þá var skaparinn ekki i stuði.