Morgunblaðið - 25.01.1992, Side 20
' MORGÚNBLAÐIÐ LÁÚ'gÁRDÁGUR 25. JANÚAR 1992
Tónmenntadagar Ríkisútvarpsins:
Unnið við pökkun og frágang fatnaðarins.
Fötin sett í gáma.
Morgunblaðið/Þorkell
Fatasöfnun fyrir Kúrda:
Nærfellt 180 tonn af
fötum hafa safnast
GERT er ráð fyrir að safnast hafi allt að 180 tonn af fatnaði í
fatasöfnuninni fyrir Kúrda. Að sögn Jóhannesar Tómassonar,
blaðafulltrúa Hjálparstofnunar kirkjunnar, hefur söfnunin gengið
ótrúlega vel og hafa margir aðstoðað við hana. Nú þegar hefur
eitthvað magn farið af stað til Kaupmannahafnar og í næstu viku
fara a.m.k. 16 gámar með skipum og um 10 tonn fara væntan-
lega með danskri herflugvél á mánudag.
Um 12 tonn af fötum fóru með
flugvél danska hersins á fimmtu-
dag, sem var á leið til Kaupmanna-
hafnar frá Grænlandi. Auk þess
hafa Eimskip og Samskip boðist
til að flytja nokkra gáma að kostn-
aðarlausu og á fimmtudag í næstu
viku fer skip Eimskipafélagsins,
Bakkafoss, með um átta gáma og
sömuleiðis Helgafell, skip Sam-
skipa, einnig með átta gáma.
Fiskimjölsverksmiðjan og Hrað-
frystistöðin í Reykjavík hafa lánað
húsnæði í Örfyrirsey, þar sem tek-
ið hefur verið við fatnaðinum og
gengið frá pökkun hans.
Að sögn Jóhannesar Tómassonar
er gert ráð fyrir að mestur hluti
fatnaðarins verði kominn á leiðar-
enda í vikunni 10.-15. febrúar en
hjálparstofnun dönsku kirkjunnar
sér um að keyrt verður með hann
frá Kaupmannahöfn til fjallasvæða
í norðurhluta íraks, þar sem Kúrd-
arnir halda sig.
Hann segir að þrátt fyrir alla
þá aðstoð sem fólk og fyrirtæki
hafí veitt, nemi kostnaður við þessa
söfnun a.m.k. hundruðum þúsunda
króna en enn sé ekki séð fyrir um
nákvæma upphæð.
Þeir sem vilja aðstoða við pökkun
og frágang fatnaðarins geta gefið
sig fram í húsi Slysavarnafélags
íslands í dag frá kl. 10.
Tónleikum verður útvarp-
að beint til tuttugu landa
Morgunblaðið/Sverrir
Frá vinstri Guðmundur Emilsson, sem séð hefur um yfirstjórn og
skipulag Tónmenntadaga Ríkisútvarpsins, og Kristinn J. Níelsson,
sem séð hefur um framkvæmastjórn hátíðarinnar.
TÓNMENNTADAGAR Ríkisút-
varpsins er heiti tónlistarhátíðar
sem Ríkisútvarpið efnir til dag-
ana 10.-15. febrúar næstkom-
andi. Tilgangur tónmenntadag-
anna er að styrkja vitund fólks
um tónlistarstarf bæði á Islandi
sem og annars staðar. Tón-
menntadagarnir hefast á tónleik-
um í Hallgrímskirkju og verður
þeim útvarpað beint til um tutt-
ugu landa í Evrópu og er þetta
jafnframt í fyrsta skipti sem Rík-
isútvarpið sendir út tónleika
beint um gervitungl til annarra
landa.
Tónleikarnir í Hallgrímskirkju
verða mánudaginn 10. febrúar kl.
19.30. Á efnisskrá eru bæði gömul
og ný íslensk verk og saga íslenskr-
ar tónlistar rakin. Um 500 listamenn
taka þátt í tónleikunum og má þar
nefna Sinfóníuhljómsveit íslands,
Mótettukór Hallgrímskirkju,
Hamrahlíðakórinn, Kór Langholts-
kirkju, Kór Öldutúnsskóla, Karlakór
Reykjavíkur og Karlakórinn Fóst-
bræður auk einsöngvaranna Berg-
þórs Pálssonar, Sigurðar Bragason-
ar og Mörtu Halldórsdóttur. Aðeins
verða seldir 500 miðar á tónleikanna.
Fræðimenn á ýmsum sviðum tón-
listar koma hingað til lands í tengsl-
um við Tónmenntadagana og verða
með fyrirlestra sem útvarpað verður
í þættinum Tónmenntir sem eru á
dagskrá á laugardögum kl. 15 á Rás
1. Auk þess verða íslenskir fræði-
menn með fyrirlestra í Útvarpshús-
inu á hveijum degi hátíðarinnar og
einnig verður opið hús þar sem ís-
lenskir og útlendir gestir taka þátt
í pallborðsumræðum og verður þessu
hvoru tveggja útvarpað síðar.
Opnir tónleikar verða í Útvarps-
húsinu fimmtudaginn 12. febrúar
og þar koma fram Kolbeinn Bjarna-
son, flautuleikari, og Páll Eyjólfsson,
gítarleikari. Alla daga hátíðarinnar
verða opnar tvær sýningar í Út-
varpshúsinu, annars vegar tónminja-
sýning og hins vegar hljóðritasýning.
Að sögn Guðmundar Emiissonar,
sem séð hefur um skipulag og yfir-
stjóm hátíðarinnar, hefur undirbún-
ingur tekið um tvö ár. Hann segir
að áhersla verði lögð á tónlist, sem
hafi mikla þýðingu fyrir samfélagið,
en hafi ekki náð heimsathygli.
Eignasamlag Draupnissjóðsins og Vogunar sf:
Sérstaklega stofn-
að vegna Nýherja
STÆRSTI hluthafinn í Nýherja, nýstofnuðu hlutafélagi um rekstur
IBM á íslandi og Skrifstofuvéla hf., er Eignasamlag Draupnissjóðsins
og Vogunar sf. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er hlutur
Eignasamlagsins 35% eða 70 milljónir króna þar sem hlutafé Nýheija
er 200 milljónir. Þar af Ieggur Draupnissjóðurinn hf. fram 40 milljón-
ir og Vogun hf. 30 milljónir.
Að sögn Árna Vilhjálmssonar, sem
situr í stjóm Nýheija fyrir hönd
Eignasamlags Draupnissjóðsins og
Vogunar, var það eingöngu myndað
vegna þátttöku þessara tveggja
félaga í Nýheija. Þau kæmu þannig
fram sem einn aðili gagnvart hinu
nýja fyrirtæki og hefðu meiri áhrif
en ella sem stærsti hluthafinn.
IBM í Danmörku er næst stærsti
hluthafi I Nýheija með 30% hlutafj-
ár. Þess má geta að ef IBM væri
stærsti hluthafi Nýheija yrði rekstur
fyrirtækisins tekinn inn í samstæðu-
reikning IBM á heimsvísu.
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Emilsson, upptökustjóri, ásamt aðstoðarmönnum sínum í gær.
Eurovisionsöngvakeppnin:
Valið úr 9 lögnm
UPPTOKUR á þeim lögum sem valið verður úr í Eurovision söngva-
keppnina í Málmö í Svíþjóð í vor hófust í Sjónvarpinu í gær. Upphaf-
lega átti að velja úr 10 lögum en Björn EmUsson, sem sér um upptök-
ur laganna, átti eitt þeirra og dró það til baka. Því keppa aðeins 9
lög til úrslita.
Dómnefndin valdi 10 lög úr 150
innsendum lögum en það er svipað-
ur fjöldi og í fyrra. Bjöm Emilsson,
upptökustjóri hjá Sjónvarpinu,
sendi eitt útvöldu laganna í keppn-
ina. Hann sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki hafa ætlað að
stjórna upptökum á lögunum þegar
hann sendi inn sitt eigið lagið en
þegar svo hefði hins vegar farið
hefði hann dregið lagið til baka.
Fyrstu 5 lögin verða kynnt í Sjón-
varpinu 4. febrúar en þau 4 sem
eftir verða 14. febrúar. Jafnframt
verða lögin kynnt í Sjónvarpinu
þijú og þijú saman 18., 19., og 20.
febrúar strax að loknum fréttum.
Samsent verður með Rás 2 en þar
verða lögin einnig kynnt sérstak-
lega. Framlag íslendinga til Euro-
vision keppninnar verðu valið í
beinni útsendingu 22. febrúar. Þátt-
urinn verður einnig samsendur á
Rás 2. Höfundur eða höfundar sig-
urlagsins fá í sinn hlut, verðlauna-
grip sem Sjónvarpið hefur sérstak-
lega látið gera að þessu tilefni,
200.000 kr. peningaverðlaun,
300.000 kr. til þess að undirbúa
lagið fyrir lokakeppnina og ferð til
Malmö í Svíþjóð til þess að fylgjast
með keppninni.
Flytjendur laganna em Arnar
Freyr Gunnarsson, Bjarni Arason,
Karl Örvarsson, Helga Möller,
Margrét Eir Hjartardóttir, Gylfi
Hilmarsson, Sigurður Guðrún
Gunnarsdóttir, Björgvin Halldórs-
son, Grétar Örvarsson, Sigríður
Beinteinsdóttir. Um bakraddir sjá
Eva Ásrún Albertsdóttir, Erna Þór-
arinsdóttir og Eyjólfur Kristjáns-
son. Jón Ólafsson stjórnar hljóm-
sveitinni og er formaður dómnefnd-
ar.
Vegarlagning vegna HvaJfjarðarganga:
Andstaða íbúanna
- segir Anton Ottesen Innri-Akraneshreppi
ANTON Ottesen, oddviti Innri-Akraneshrepps, lýsir furðu sinni yfir
því að fyrirhuguð lagning vegar vestan Akrafjalls I tengslum við
Hvalfjarðargöng hafi ekki venð rs
ir að vegagerð yfír jarðir bænda
andstöðu íbúanna.
„íbúamir almennt eru ekki sáttir
við gífurlega aukningu umferðar
vestan Akrafjalls. Þannig hagar til
að hér er mjög þéttbýlt og lönd jarða
ná almennt frá sjó til fjallsins. Þessi
framkvæmd myndi kljúfa mikið lönd
manna og fara sumstaðar óþægilega
nálægt byggð,“ sagði Anton. Hann
sagði að íbúamir litu á þetta sem
algera röskun við sína hagi. „Þetta
mun mæta harðri og samstæðri and-
stöðu íbúanna."
Hann sagði að íbúar hreppsins
d við hreppsnefndina. Hann seg-
þessu svæði muni mæta harðri
*•»
vildu að innri leiðin yrði valin fyrir
Hvalfjarðargöng, ekki Hnausaskers-
leið sem ákveðið hefur verið að fara.
„Við tökum afstöðu til þessa máls
þegar beiðni berst hreppsnefndinni.
Það getur ekkert félag ætlað sér að
koma upp úr jörðinni hér í sveitinni
án þess að málið gangi rétta leið,“
sagði Anton.
Fjöldi manns í Innri-Akranes-
hrepp hefur, að sögn Antons, skrifað
undir mótmælaskjal gegn fyrirhug-
aðri vegarlagningu.