Morgunblaðið - 25.01.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANUAR 1992
21
Jouko Hemmi ferðamálastjóri Eyjólfur Ólafsson.
Rovaniemi.
Islandsvika hald-
in í finnsku borg-
inni Rovaniemi
FYRIRHUGAÐ er að halda íslandsviku í sumar í finnsku heimskauts-
baugsborginni Rovaniemi, sem liggur álíka norðarlega og Grímsey.
Vikan verður dagana 15. til 21. júní og mun Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra væntanlega setja vikuna, sem á að verða á
mjög breiðum menningarlegum grunni og á að kynna ísland og ís-
lendingar sem best.
Réttur Hallargarðsins nr. 40:
Nautalundir með fivítlauk og cfiallottulauk í rauðvínssósu
Verið velkomin á veitingastað vandlátra.
Borðapantanir ísíma 678555 eða 30400.
Símon ívarsson,
gítarleikari, leikur
Ijáfa tónlist fyrir
matargesti.
Við kynnum nýjar
matargerðarperlur
á lystilegum
matseðli.
Hallargarðurinn
í Hási verslunar.
Vegna þessarar viku eru staddir
hérlendis þeir Jouko Hemmi ferða-
málastjóri í Rovaniemi og Eyjólfur
Ólafsson, íslendingur, sem verið
hefur búsettur í Rovaniemi um
langt skeið.
Fyrirhugað mun að Flugleiðir
verði með beint flug fyrir íslendinga
til Rovaniemi vegna hátíðarinnar.
Þeir félagar sögðust hafa notið
dyggrar aðstoðar Lars Áke Eng-
blom, forstjóra Norræna hússins,
en takmarkið er að sýna og kynna
íslenskt þjóðfélag eins gjörla og
frekast er kostur. Haldnir verða
tónleikar, haldnar myndlistasýning-
ar og bókmenntir íslendinga verða
kynntar. Sem dæmi nefndu þeir að
Elín Ósk Óskarsdóttir og Ólafur
Vignir Albertsson myndu halda tón-
leika, Bamakór Tónlistarskóla
Hafnarijarðar myndi syngja undir
stjórn Guðrúnar Ásbjarnardóttur,
Rangæingakórinn og einnig stæðu
vonir til að Harmoíkufélag Reykja-
víkur færi utan til Rovaniemi.
Síðast en ekki síst nefndu þeir
félagar að Rovaniemibúar mættu
einnig eiga von á góðum gestum
frá Grindavík, en Grindavík er vina-
bær Rovaniemi. Kirkjukór Grinda-
víkur myndi væntanlega halda tón-
leika á íslandsvikunni og íþrótta-
hópar frá Grindavík kæmu í heim-
sókn. Þá væri von á hópum Lions-
manna frá Grindavík og félags-
manna Norræna félagsins í Grinda-
vík. Þá væri einnig boðið tveimur
Grindvíkingum þeim bræðrum,
Guðbergi og Vilhjálmi Bergssonum.
Guðbergur muni kynna bækur sínar
og Vilhjálmur myndlist sína.
Þeir félagar frá Rovaniemi sögðu
að samskipti íslands og norðurhér-
aða í Skandinavíu hafa aukist mik-
ið undanfarin ár, þar sem haldin
væru námskeið bæði í finnsku,
sænsku og norsku á sumrin í lönd-
unum og eins íslenzkunámskeið
fyrir Skandínava ytra. Þannig hefðu
kynni manna af íslandi í norðurhér-
uðunum aukist mjög, en þeir kváð-
ust vonast til að íslenska menning-
arvikan í Rovaniemi í júní í sumar
yrði hápunktur þessara menning-
arsamskipta til þessa.
KYNNINGARFUNDUR UM
STARFSEMI
LÍFEYRISSJÓÐS
VERZLU NARMANNA
Frá æfingu Fúríu á Lýsiströtu eftir Aristófanes.
Fúría frumsýnir Lýsiströtu
LEIKFÉLAG Kvcnnaskólans,
Fúría, frumsýnir í dag, laugar-
dag, gamanleikinn Lýsiströtu
eftir Aristófanes undir leik-
stjórn Péturs Einarssonar.
Sýnt er á Galdraloftinu, Hafn-
arstræti 9, og hefjast sýningar
kl. 20.30. Önnur sýning verður
mánudaginn 27. janúar og svo
verður sýnt alla daga vikunnar
nema fimmtudag.
Miðapantanir eru í síma 24650
eftir kl. 18.00 og verða miðar
einnig seldir á Galdraloftinu á
sama tíma.
í tilefni af 100 ára afmæli Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður
haldinnsameiginlegurkynningarfundurVRogLVástarfsemiLífeyrissjóðs
verzlunarmanna. Kynningarfundurinn verður haldinn sunnudaginn 26.
janúar 1992 kl. 14 í súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn verður öllum opinn.
Fundarstjóri, Magnús L. Sveinsson, formaður VR.
1. Setningarávarp. Guðmundur H. Garðarsson, stjórnarformaður
LV.
2. Starfsemi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Þorgeir Eyjólfsson,
forstjóri LV.
3. Lífeyrissjóðir - fortíð og framtíð. Hallgrímur Snorrason,
Hagstofustjóri.
4. Lífeyrissjóðir og atvinnulífið. Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands.
5. Fyrirspurnir til framsögumanna.
6. Fundarslit.
V_______________________________________________________________________/
Þórarinn V.
Þórarinsson