Morgunblaðið - 25.01.1992, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992
í
Sigríður Eiríksdóttír
Hansen — Minning
Fædd 13. janúar 1907
Dáin 16. janúar 1992
I dag verður til grafar borin á
Sauðaárkróki Sigríður Eiríksdóttir
Hansen, en hún lést í Sauðár-
króksspítala á 86. aldursári hinn
16. dag þessa mánaðar. Nú þegar
stjúpmóðir mín er látin er mér ljúft
að minnast hennar nokkrum orðum.
Sigríður var síðari kona föður
míns, Friðriks Hansens kennara á
Sauðárkróki, en hann lést á árinu
1952. Hún hafði því verið ekkja í
nær 40 ár, er andlát hennar bar
að höndum. Sigríður var frá
Djúpadal í Blönduhlíð og dóttir
heiðurshjónanna, Eiríks Jónssonar
og Sigríðar Hannesdóttur, er þar
bjuggu lengi.
Eg mun hafa verið á 13. ári þeg-
ar Sigríður giftist föður mínum og
tók við búsforráðum á heimili hans
á Sauðárkróki. Þá þegar höfðu þau
eignast tvö böm, Sigurð, sem ólst
upp í Djúpadal og nú er loðdýra-
bóndi á Kringlumýri þar í grennd,
og Jósefínu, sem ber nafn móður
minnar. Hún er nú yfirkennari við
Ölduselsskóla í Reykjavík. Síðar
eignuðust þau Eirík sem er banka-
starfsmaður á Sauðárkróki og Frið-
rik sem einnig er búsettur á Sauðár-
króki. Þar sem ég var yngstur af
átta börnum föður míns af fyrra
hjónabandi hans, mun ég hafa dval-
ist lengur á því stóra heimili sem
þarna var til stofnað en þau alsystk-.
ini mín sem eldri voru. Eftir á að
hyggja gerði ég mér ljóst að hlut-
verk Sigríðar á þessum árum hlýtur
að hafa verið vandasamt og erfitt
á stundum. Ekki minnist ég þó
, neinna atvika eða árekstra sem
varpa skugga á samskipti mín við
stjúpmóður mína og vil ég þakka
það m.a. þeirri glaðværð og ljúf-
mennsku sem voru einkennandi
þættir í skapferli hennar.
Á heimili þeirra Friðriks og Sig-
ríðar var oft gestkvæmt því bæði
voru þau hjón vinsæl og löðuðu að
sér gesti. Kom þar til hvort tveggja
að frændgarður Sigríðar í Skaga-
firði var stór, hin svonefnda Djúpa-
dalsætt, og Friðrik eignaðist marga
vini og kunningja í sambandi við
störf sín í þágu Sauðárkrókshrepps,
þar sem hann var oddviti hrepps-
nefndar um skeið, m.a. á fyrstu
hjúskaparárum þeirra og fram til
þess tíma er Sauðárkrókur hlaut
kaupstaðarréttindi 1948.
Samvistarár Friðriks og Sigríðar
urðu ekki mörg, aðeins tíu, ef mið-
að er við giftingarár þeirra, þar sem
faðir minn féll frá 1952 eins og
áður greinir. Þá voru börn þeirra
ung og smá, yngsti drengurinn að-
eins fimm ára og ekki heilsuhraust-
ur, og ljóst var að Sigríður varð
að standa ein að uppeldi barnanna
og því mörg erfið ár framundan.
Það hlutverk leysti hún vel af hendi.
Sigríður hafði sterkar taugar til
æskustöðva sinna. Er því við hæfí
að ég ljúki þessum orðum mnum
með ljóði um þær, sem hún hafði
miklar mætur á, eftir Friðrik Han-
sen:
Hver gleymir, bjarta Blönduhlíð,
blámanum þinna Qalla?
Hver man ekki og þráir á sumrin síð
sólskinsblettina alla?
Hver vill ekki eiga vorin frið,
þar sem vötn þín að bökkum falla?
Blessuð sé minning hennar.
Guðmundur Hansen.
9
í dag er til moldar borin Sigríður
Eiríksdóttir Hansen tengdamóðir
mín. Mér er ljúft að minnast henn-
ar fáum orðum og þakka henni
rúmlega 30 ár samfylgd.
Sigríður fæddist í Djúpadal í
Blönduhlíð, 13. janúar 1907. For-
eldrar hennar voru Eiríkur Jónsson
trésmiður og bóndi í Djúpadal og
Sigríður Hannesdóttir kona hans.
Bæði voru þau komin af traustum
og dugmiklum bændaættum, voru
raunar bæði af Djúpadalsætt, sem
búið hefur hátt á þriðju öld í
Djúpadal. Er margt merkra karla
og kvenna af Dalsættinni komið og
um hana hefur rithöfundurinn Elín-
borg Lárusdóttir skrifað fjögurra
binda ættarsögu.
Systkini Sigríðar voru sex, elstur
var Stefán, sem fór til Kanada,
starfaði þar fram á efri ár, en kom
þá heim og dvaldist í Djúpadal til
dauðadags. Jón bóndi í Djúpadal,
Valgerður húsfreyja í Sólheimum í
Blönduhlíð, Eiríkur trésmíðameist-
ari í Reykjavík, Ingibjörg húsmóðir
á Sauðárkróki og yngstur Skarp-
héðinn bóndi í Djúpadal. Nú eru
þeir Eiríkur og Skarphéðinn einir á
lífi af þeim systkinum.
Frá Djúpadal er fagurt útsýni
yfir Skagafjörðinn, þar sem vötnin
liðast um héraðið, og Tindastóll og
Mælifellshnjúkur varða fjörðinn í
norðri og suðri. Við bæjarvegginn
rís Glóðafeykir og Dalsáin niðar við'
túnfótinn. Á myndarlegu og fjöl-
mennu heimili ólst Sigríður upp í
stórum og glaðværum systkina-
hópi, og voru rætur hennar til
Djúpadals æ síðari mjög sterkar.
Hún og bræður hennar völdust oft
á Reynistað hjá föðursystur þeirra
Sigríði, sem var gift Sigurði óðals-
bónda þar, og hafði hún alla tíð
miklar mætur á frænku sinni og
því heimili.
Flest systkinanna' sóttu skóla
umfram venjulega skólagöngu, og
um tvítugt dvaldist Sigríður ásamt
Ingibjörgu systur sinni á Hvítár-
bakkaskóla. Kynntust þær fólki
víða að af landinu og áttu góðar
minningar frá þessari skóladvöl.
Sigríður var eftir þetta við ýmis
sveitastörf í Djúpadal og á Reyni-
stað, og á þessum tíma veiktist hún
af berklum og dvaldist á Kristnes-
hæli. Um tíma var hún við heimilis-
hjálp hjá Lovísu ísleifsdóttur, afa-
systur minni á Stýrimannastíg 9 í
Reykjavík. Þar naut hún mikils
dálætis ijölskyldunnar, og þar
kynntist hún m.a. Þórbergi Þórðar-
syni, sem þar var í húsnæði, og
kunni hún margar skemmtilegar
sögur af samskiptum við hann. Alls
staðar þar sem hún dvaldist vann
hún hug og hjörtu samferðafólks
síns.
Seint á 4. áratugnum kynntist
hún Friðriki Hansen kennara, odd-
vita og vegavinnuverkstjóra á Sauð-
árkróki (f. 1891). Friðrik var þá
ekkill, hafði misst konu sína Jósef-
ínu Erlendsdóttur frá átta börnum.
Sigríður og Friðrik giftust 1942.
Börn þeirra urðu fjögur: Sigurður
bóndi í Kringlumýri, f. 1939,
kvæntur Maríu Guðmundsdóttur
hárgreiðslumeistara og eiga þau tvö
böm, Sigríði og Esther, sem þau
hafa alið upp saman. Jósefína, f.
1942, aðstoðarskólastjóri í Reykja-
vík, gift Guðmundi B. Jóhannssyni
lækni. Böm þeirra eru Sigurður
Hrafn og Helga Salbjörg. Eiríkur,
f. 1945, deildarstjóri í Búnaðar-
banka Islands á Sauðárkróki,
kvæntur Kristínu Björnsdóttur hús-
móður. Börn þeirra eru Friðrik
Smári, Atli Björn og Birna. Kristín
átti áður dótturina Hebu, sem þau
misstu 5 ára gamla. Friðrik, f. 1947,
ókvæntur og barnlaus, bjó hjá móð-
ur sinni á Sauðárkróki.
Sigríður tók við húsmóðurhlut-
verki á stóru heimili, þar sem mikið
var umleikis. Friðrik var störfum
hlaðinn, því að auk kennslu var
hann oddviti Sauðárkrókshrepps og
síðar bæjarfulltrúi. Skrifstofa
hreppsins var á heimilinu, og fylgdi
þvi mikill erill, og auk þess voru
þau hjón vinmörg og frændgarður
stór. Oft komu skáldbræður Frið-
riks í heimsókn, og var oft ort og
skeggrætt fram á nætur.
A vorin fór Friðrik vestur í Húna-
vatnssýslu oft með einhver eldri
barnanna sem unnu þar með hon-
um, og fór Sigríður þá fram í
Djúpadal með yngri börnin og
dvaldist þar sumarlangt.
Ekki unni forsjónin þeim Sigríði
og Friðriki langra samvista, því að
árið 1951 kenndi Friðrik sér þess
meins er dró hann til dauða 27.
mars 1952. Stóð Sigríður þá ein
uppi með börn sín og veikindi í fjöl-
skyldunni ekki á enda, því að yngsti
sonur hennar, Friðrik, var mikill
sjúklingur frá fæðingu, veiktist æ
ofan í æ af ókennilegum sjúkdómi
og vakti hún oft yfir honum meira
og minna vikum saman. Um það
leyti sem hún missti mann sinn
veiktist einnig Eiríkur, næst yngsta
barnið, og fór hún með drengina
til Reykjavíkur, þar sem þeir lágu
hvor á sínum spítalanum tímum
saman. Var Sigríði þá mikil stoð
að bróður sínum Eiríki og Helgu
konu hans. '
Vegna þessara veikinda gat Sig-
ríður ekki unnið frá heimilinu en
þess í stað hafði hún leigjendur og
kostgangara á heimilinu. Alltaf
hélt hún ró sinni, og sáu fáir henni
bregða, og vissu raunar fáir, sem
ekki þekktu mjög vel til hve erfitt
hlutverk hennar var. Heimilið var
þó alltaf opið og fijálslegt, vinir
bama hennar ætíð velkomnir, og
safnaðist oft stór hópur þar saman
við leiki og spil.
iíleööur ■■ L ■■ ■ ■ ' ■■
;:lrír ;•
á IÉI111É®
morgun ÍJl| m
Guðspjall dagsins:
Matt. 8.: Jesús gekk ofan af
fjallinu.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Munið
kirkjubílinn. Kaffi eftir messu.
Fimmtudag: Biblíulestur í safnað-
arheimilinu kl. 20.30. Guðspjall og
önnur rit Jóhannesar kynnt. Allir
velkomnir. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
og almenn guðsþjónusta kl. 11.
Athugið breyttan messutíma. Org-
anisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti Mar-
teinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu á sama tíma í
umsjá Báru Elíasdóttur. Bæna-
guðsþjónusta kl. 17. Sr. Hjalti Guð-
mundsson. Miðvikudag: Kl. 12.10.
Hádegisbænir í kirkjunni. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu. Kl.
13.30-16.30: Samvera aldraðra í
safnaðarheimilinu. Tekið í spil.
Kaffiborð, söngur, spjall og helgi-
stund.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Magnús Gunnars-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. 6 ára börn og eldri
og foreldrar þeirra uppi. Vngri
börnin niðri. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Halldór G. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Fyr-
irbænir eftir messu og heitt á
könnunni. Kvöldmessa kl. 20.30.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Tónlist annast sönghópurinn „Án
skilyrða" undir stjórn Þorvaldar
Halldórssonar. Þriðjudag: Kyrrðar-
stund kl. 12.00. Orgelleikur í 10
mínútur. Fyrirbænir, altarisganga
og léttur hádegisverður og biblíu-
lestur og kirkjukaffi kl. 14. Sr. Hall-
dór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kl. 17. „Við krossins djúpa hreina
harm“. Dagskrá á vegum listvina-
félags Hallgrímskirkju um sálma-
skáldið dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup. Sr. Bolli Gústafsson vígslu-
biskup tekur saman. Sungnir verða
sálmar eftir Sigurbjörn. Þriðjudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Arngrímur Jónsson. Bar-
naguðsþjcnusta kl. 11. Kirkjubíll-
inn fer frá Suðurhlíðum um Hlíð-
arnar fyrir barnaguðsþjónustuna.
Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveins-
son. Mánudag: Biblíulestur kl.
21.00. Kvöldbænir og fyrirbænir
eru í kirkjunni á miðvikudögum kl.
18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur, sögur,
fræðsla. Umsjón sr. Flóki Kristins-
son. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Langholtskirkju flytur stólvers.
Organisti Jón Stefánsson. Prestur
sr. Flóki Kristinsson. Kaffi að guðs-
þjónustu lokinni. Aftansöngur alla
virka daga kl. 18 í umsjá sr. Flóka
Kristinssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Organisti Ronald Turner. Sr.
Jón D. Hróbjartsson. Barnastarf á
sama tíma í umsjá Þórarins Björns-
sonar. Heitt á könnunni eftir guðs-
þjónustu. Fimmtudag: Kyrrðar-
stund kl. 12. Orgelleikur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur máls-
verður í safnaðarheimilinu að
stundinni lokinni.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Guðsþjónusta kl. 14. Munið kirkju-
bílinn. Sr. Frank M. Halldórsson.
Miðvikudag: Bænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
Fimmtudag: Biblíulestur kl. 20 í
safnaðarheimilinu í umsjá Sr.
Franks M. Halidórssonar.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir. Barna-
starf á sama tíma í umsjá Eirnýjar
og Báru. Miðvikudag: Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu og samkoma kl.
20.30 á vegum Seltjarnarneskirkju
og sönghópsins „Án skilyrða" und-
ir stjórn Þorvaldar Halldórssonar.
Söngur, prédikun fyrirbænir.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Sunnu-
dag: Guðsþjónusta kl. 14. Miðviku-
dag: Morgunandakt kl. 7.30. Or-
gelleikari: Pavel Smio. Sr. Cecil
Haraldsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árdegis. Kirkjubíll-
inn gengur um Ártúnsholt og Efri
Selás. Guðsþjónusta kl. 14. Altar-
isganga. Ath. breyttan messutíma.
Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Halla Jónasdóttir syngur einsöng.
Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra í messunni.
Fyrirbænaguðsþjónusta miðviku-
dag kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14 með þátttöku ferm-
ingarbarna og barnakórsins. Org-
anisti Þorvaldur Björnsson. Að lok-
inni guðsþjónustu verður kaffisala
kirkjukórsins. Bænaguðsþjónusta
þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónas-
son.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
FELLA- OG Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Barnastarf á sama
tíma. Fyrirbænir í Fella- og Hóla-
kirkju mánudag kl. 18. Prestarnir.
GRAFARVOGSSÓKN: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Organisti
Ingimar Pálsson. Skólabíllinn fer
frá Hamrahverfi kl. 10.30 og fer
venjulega skólaleið. Nýr sunnu-
dagspóstur, Valgerður, Katrín og
Hans Þormar aðstoða. Kirkjukór-
inn syngur við guðsþjónusta í Skál-
holtsdómkirkju kl. 14 að loknu
kóranámskeiði. Organisti Sigur-
björg Helgadóttir. Vigfús ÞórÁrna-
son.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar Digranesskóla.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Húsið
opnað kl. 10.30. Messa kl. 14. Alt-
arisganga. Magnús Þorleifsson
flytur stólræðu og kynnir m.a. starf
Gídeonfélagsins. Félagar úr Gíde-
onfélaginu annast ritningarlestra.
Organisti Oddný Jóna Þorsteins-
dóttir. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Fjórir nem-
endur úr Tónlistarskóla Kópavogs
leika á fiðlur og cello í guðsþjón-
ustunni. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Molasopi eftir guðsþjónustuna.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Messa kl.
14. Áðalsafnaðarfundur og kaffi
eftir messu.
KRISTSKIRKJA Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30 og
messa kl. 14. Ensk messa kl. 20.
Laugardag messa kl. 14 og ensk
kl. 20. Aðra rúmhelga daga kl. 18.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugardaga kl. 14, fimmtu-
dag kl. 19.30. Aðra rúmhelga daga
kl. 18.
KFUM/KFUK, kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58: Kveðjusam-
koma fyrir kristniboðana Kari og
Jóhannes Ólafsson sem eru á för-
um til Eþíópíu. Sunnudagaskóli kl.
11. Bænastund mánudagskvöld á
Holtavegi kl. 17.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelf-
ía: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Einar Gíslason. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson.
HJÁLPRÆDISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Ingibjörg og Óskar
Jónsson stjórna.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma kl. 17. Ræðumaður:
Louisa Nicklason. Organisti Eiríkur
Skála.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Garðakirkju kl. 14. Kór kirkjunnar
syngur. Organisti Ferenc Utassy.
Fundur Æskulýðsfélag í Kirkjuhvoli
nk. þriðjudagskvöld kl. 20. Gestur
fundarins verður Hjalti Árnason
Úrsus. Sr. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kór Víðisstaðasóknar syngur.
Organisti Úlrik Ólason. Sr. Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11.00. Guðs-
p
ti
»
!
>
i
s
1
f
E
I
1
r
E
E
E
(
l<
c
V
I
1
r
r
H
C
f
f
v
c
K
f
1
l
c
E
k
J
l
t
C
f
E
c
1
r
t
t
c
fc
t
i<
S
E
c
í
fc
fc