Morgunblaðið - 25.01.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANUAR 1992
33
Sigríði var afar annt um fjöl-
skyldu sína og vildi leggja allt af
mörkum sem hún gat til að börn
hennar hlytu gott veganesti. Eftir
að við tengdabörnin og barnabörnin
komum til sögunnar var hún vakin
og sofin yfir velferð okkar allra.
Barnabörnin virtu og elskuðu hana
og nutu þess að vera hjá henni.
Okkar börn vissu ekkert skemmti-
legra en að koma í Skógargötuna,
dveljast í gamla húsinu bakvið
kirkjuna, hlaupa um í garðinum og
úða í sig kökunum hennar og góða
matnum.
Sigríður var alla tíð nett og fal-
leg kona, sviphrein og reisn yfir
henni. Hún var mjög jafnlynd og
yfirveguð og hafði sínar ákveðnu
skoðánir á málum og þá var henni
ekki þokað. Hún las mjög mikið,
hafði yndi af ferðasögum og var
sérfræðingur í sögum frá Græn-
landi. Þangað sagði hún að sig hefði
alltaf langað. Allur þjóðlegur fróð-
leikur var henni hugleikinn, hún var
afar minnug á það sem hún las og
þann söguarf sem hún hlaut frá
fólki sínu i uppvextinum. Ættfróð
var hún mjög og var hvergi komið
að tómum kofunum hjá henni í
þeim efnum. Eftir að sjónleysið fór
að hijá hana harmaði hún það
mest að geta ekki grúskað í ætt-
fræðibókum sínum.
Á síðustu árum fór heilsu Sigríð-
ar hrakandi þótt hún héldi sinni
andlegu reisn til hins síðasta. Trú-
lega hefur löngun hennar til að
hlynna að Friðriki syni sínum hald-
ið í henni lífsneistanum. Að því
hlaut þó að koma að veikindin bæru
hana ofurliði og lést hún eftir t
skamma sjúkdómslegu 16. janúar j
síðastliðinn.
Við sem eftir stöndum kveðjum jj
hana með virðingu og þökk.
Guðmundur B. Jóhannsson.
Nú er komið að því að kveðja :
ömmu okkar í Skógargötu, eða I
ömmu í Skógi, eins og hún var oft j
kölluð á okkar heimili. Lífið verður j
fátæklegra, því að tækifærin til að |
spjalla við hana í síma og skreppa ;
jónusta kl. 14.00. Organisti Helgi
iragason. Séra Þórhildur Ólafs.
RÍKIRKJAN Hafnarfirði: Barna-
amkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
4. Að lokinni messu verður borið
am kaffi í safnaðarheimilinu. Sr.
iinar Eyjólfsson.
iAPELLAN St. Jósefsspítala:
/lessa kl. 10.30. Rúmhelga daga
tessa kl. 18.
iARMELKLAUSTUR: Messa kl.
.30. Rúmhelga daga messa kl. 18.
iAPELLA St. Jósefssystra
■arðabæ. Þýsk messa kl. 10.
TRI-Njarðvíkurkirkja: Barnastarf
l. 11 í umsjá Sigfríðar og Gróu.
ióknarprestur.
MNRI-Njarðvíkurkirkja: Messa kl.
4. Sr. Bjarni Þór Jónsson héraðs-
restur. Organisti Steinar Guð-
nundsson. Sóknarprestur.
iEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
kóli kl. 11 í umsjá Ragnars og
/lálfríðar. Munið skólabílinn.
/lessa í kirkjunni kl. 14 og í Hlé-
angi kl. 15.30. Organisti Orn Ein-
rsson. Sr. Lárus Halldórsson.
iAÞÓLSKA kapellan Keflavík:
/lpQCfl H 1
IVALSNESKIRKJA: Guðsþjón-
sta kl. 14. Organisti Ester Ólafs-
lóttir. Messað í sjúkrahúsinu
ieflavík kl. 10.45. Kór Hvalsnes-
irkju syngur. Sr. Hjörtur Magni
óhannsson.
ITSKÁLAKIRKJA: Kvöldguðs-
'jónusta kl. 20. Organisti Ester
Jlafsdóttir. Sr. Hjörtur Magni Jó-
lannsson.
iYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
luðsþjónusta kl. 10.30. Messa kl.
4. Aðalsafnaðarfundur að lokinni
nessu og kaffi.
iKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
jónusta kl. 11. Messa kl. 13.30
g messa í Höfða kl. 12.30. Ath.
reytta messutíma á báðum stöð-
m. Fyrirbænaguðsþjónusta, beð-
i fyrir sjúkum. Organisti Jól. Ól.
igurðsson. Sr. Björn Jónsson.
íORGARPRESTAKALL: Barna-
uðsþjónusta í Borgarneskirkju kl.
1. Helgistund í kirkjunni nk.
riðjudagskvöld kl. 18.30. Sóknar-
restur.
til hennar þegar maður á leið um
Norðurlandið, eru horfin. Við höfð-
um líka mikið af henni að segja
þegar við vorum lítil, því við vorum
meira og minna hjá henni heilu
sumrin. Allar þær minningar eru
Ijúfar og skemmtilegar því amma
var þannig gerð að öllum leið vel í
návist hennar. Það gerði jafnaðar-
geð hennar og það, að aldrei nokk-
urn tíma heyrði maður hana hall-
mæla annarri manneskju.
Aldrei heyrðum við hana heldur
kvarta né barma sér þó að ævi
hennar hafi verið erfið og leiðin
grýtt á köflum. Amma í Skógi var
nefnilega ein af þessum hversdags-
hetjum sem litla umbun fá fyrir
störf sín, en gera hana enn merki-
legri persónu fyrir þá sem þekkja
hana.
Eitt af því sem gerði það svo
notalegt að umgangast ömmu í
Skógi var að hún hafði skopskynið
í lagi og gat verið svolítill grallari
á sinn hátt. Oft gat maður velst
um af hlátri, þegar amma datt nið-
ur á skemmtilega sögu af samferða-
fólki sínu eða hnyttin tilsvör. Síð-
ustu verslunarmannahelgi hringd-
um við til hennar á föstudeginum
og spurðum hana í gríni hvers
vegna hún væri ekki komin á Húna-
vershátíðina. „0, þetta er nú ekki
almennilega byijað ennþá!“ svaraði
hún að bragði.
Það var líka eftirminnilegt þegar
hún kom að heimsækja okkur til
Svíþjóðar sem var fyrsta og eina
skiptið sem hún kom til útlanda.
Man ég vel eftir því þegar við vorum
á gangi við sumarhöll kóngsins að
við ákváðum að stela okkur eplum
af stóru eplatijánum. Pabbi lyfti
mér á axlir sér en amma stóð niðri,
leiðbeindi mér og benti á hvar bestu
eplin væru. Eg man hvað þau
brögðuðust vel!
Alltaf var vel tekið á móti okkur
þegar við komum í Skógargötuna,
hlaðið borð af brauði, kökum og
meðlæti og svo hin óviðjafnanlega
„ömmulambasteik“ sem fáir elda
jafn vel og hún. Og aldrei var nóg
borðað hjá ömmu, eða það fannst
henni og oft heyrðist þetta: „Þið
verðið nú að fá nóg í kroppinn, þið
hafið varla snert á matnum!"
Þegar komið er að le'ðarlokum
gamals fólks, sem lifað hefur
tímana tvenna, finnst manni að öll
sú þekking, reynsla og þroski, sem
fólk hefur öðlast í skóla lífsins sé
horfin að eilífu. Það er ekki svo að
öllu leyti, vegna þess að samneyti
við lífsreynt fólk hefur ákveðin
mannbætandi áhrif á þá sem þess
njóta. Hvað ungur nemur gamall
temur. Þegar þessi 85 ára gamla
kona er fallin frá, er ekki rétt að
vera sár út í þennan gang lífsins,
heldur þakka þau ár, sem við feng-
um að umgangast hana.
Sigurður Hrafn og
Helga Salbjörg.
Athugasemd
VEGNA greinar Egils Jónssonar
tannlæknis 23. janúar sl. varðandi
grein mína „Tannlækningaþjón-
usta á íslandi 1991“, sem birtist
í Morgunblaðinu 10. janúar sl.
skal tekið fram að upplýsingar
mínar um tíðni tannskemmda hér-
lendis eru byggðar á rannsóknum
Pálma Möller, prófessors 1970 og
1983 og Sigfúsar Þórs Elíassonar,
prófessors 1986 og 1990.
Upplýsingar um ástand tanna
hjá öðrum þjóðum eru frá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni.
Magnús R. Gíslason
yfirtannlæknir í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu.
n
CSl /
IJ-lll '
TEPPI - DÚKAR - FLISAR
30—70%
Flisan á veggí og gólf
OPIB IAUBARDABA Kl. 10-16
PARKET - MOTTUR
áður
nú lækkun
Höganes - hvítar 15x15 cm
Höganes - gráar 15x15 cm
Fiaba - marmor 20x25 cm
Golfo - gráar 20x20 cm
Carrara - Ijósar 30x30 cm
20—30%
Armstrong-gólfdúkur 2ja, 3ja og 4ra m breiður
Þarf ekki að lima!
Boutique - 2mm þykkur
Spectrum - 3mm þykkur
Balaflor - 2mm þykkur
15—40%
1.203 083 22%
1.180 23%
1.570
310
30%
Sahara- 3 litir 080 ' ■ ■ ■■ 780 20% Góð greiðslukjör - Raðgreiðslur:
| i 1 1.433 030 35% Eurokreúit 11 afborganir
Alafoss - 4 litlr 4.300 18% Visa-raðgreiðslur 18 afborganir
VerO áður kr. 400.-Nú kr. 345,-
Dreglar og dyramottur - 5%
Bútar, smástykki og afgangar
Allt að 70% afsláttur
Takið málin með ykkur
Það má jafnvel pnútta um venúið /
œm&amm '■■■ '1
E
TEPIftBUÐIN
Góllefnamarkaður, Suðurlandsbraut 26, sími 91-681350
HHHHHHHHH