Morgunblaðið - 03.04.1992, Síða 32

Morgunblaðið - 03.04.1992, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992 Unnið að stofnun Sam- bands húsnæðisnefnda HÚSNÆÐISNEFND Akureyrarbæjar boðaði flestar stærstu húsnæðis- nefndir í landinu til fundar í liðinni viku þar sem m.a. var rætt um stofnun sambands húsnæðisnefnda fyrir landið allt. Á fundinum var einnig rætt um samræmingu á reglum um útleigu á félagslegum íbúðum, reglur um mat á endursöluíbúðum og að vínna að sameiginlegu kerfi til notkunar við skráningu. Samþykkt voru drög að samþykkt- um fyrir Samband húsnæðisnefnda í landinu, sem hefur heimili og varn- arþing á Akureyri, en helsti tilgangur sambandsins verður að efla samstarf húsnæðisnefnda og koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart Alþingi, ríkis- stjórn og stofnunum sem fara með húsnæðismál þegar um almenn mál er að ræða, auk þess að vinna að þróun og stefnumörkun innan félags- lega íbúðakerfisins. Kosin var á fundinum fimm manna undirbúningsnefnd, en hana skipa Birna Bjarnadóttir, Kópavogi, Einar S. Bjarnason, Akureyri, Hilmar Guð- laugsson, Reykjavík, Jón Karlsson, Sauðárkróki, og Kristinn Kristinsson, Egilsstöðum. Lúðrasveit Akureyrar: Afmælistónleikar haldnir í Glerárkirlgu Afmælistónleikar Lúðrasveitar Akureyrar verða haldnir í Glerár- kirkju á morgun, laugardaginn 4. apríl, og hefjast þeir kl. 14. Lúðra- sveit Akureyrar fagnar hálfrar aldar afmæli um þessar mundir. sveit Akureyrar og Lúðrasveit Hafn- artjarðar. Stjórnendur á tónleikunum eru Atli Guðlaugsson sem stjórnar akureysku sveitinni og Stefán Ómar Jakobsson, sem stjórnar þeirri hafn- firsku. I Lúðrasveit Akureyrar eru um 40_manns á aldrinum 12 til 65 ára. í tilefni afmælisins hefur verið gefíð út afmælisrit þar sem saga sveitarinnar er rakin í stórum drátt- um, getið er um stjórnendur hennar og birtar kveðjur og ávörp frá ýmsum aðilum sem á einhvern hátt tengjast hljómsveitinni. Tónleikarnir heíjast með því að eldri félagar úr Lúðrasveitinni leika nokkur lög, þá taka við gestirnir, Lúðrasveit Hafnarfjarðar og síðan léttsveit Lúðrasveitar Akureyrar. Þá spila afmælisbörnin úr Lúðrasveit Akureyrar, en í lokin leika báðar sveitimar saman þtjú lög, þ.e. Lúðra- Hádegistón- leikar í Akur- eyrarkirkju Vinir að leik Skólabúð- ir stofnað- ar í Mý- vatnssveit Björk, Mývatnssveit. STOFNAÐAR hafa verið skóla- búðir á vegum Grunnskólans í Mývatnssveit og hefur hann tekið Hótel Reynihlíð á leigu. Skólabúð- ir þessar verða með svipuðu sniði og á Reykjum í Hrútafirði. Nem- endur mæta hér fyrir hádegi á mánudögum og fara síðdegis á föstudögum. Fyrsti hópurinn, 18 nemendur og kennarar, komu frá grunnskólanum á Þelamörk 23. mars og dvöldu í fimm daga, ennfremur fjórir nem- endur frá Hvammshlíðarskóla á Akureyri auk kennara. Næsti hópur er væntanlegur mánudaginn 7. apríl, það eru 60 nemendur frá Barna- skóla Akureyrar og kennarar og dvelja í fimm daga. Það námsefni sem nemendum er boðið upp á er m.a. myndun lands, hraun, sprungur, jarðskjálftar, gliðnum lands og eldgos. Háhita- svæði, jarðhiti til orkunýtinga; raf- orku, framleiðslu á kísilgúr og til upphitunar húsa. Lífríki Mývatns, skoðunarferðir, farið á dorg, tekin sýni og skoðuð, gengið á Hverfjall, hverasvæðið við Námafjall skoðað og Kröfluvirkjun og fleiri staðir. Til afþreyingar er sundlaug á staðnum, 25 metra löng, góð aðstaða fyrir kvöldvökur og stuttar göngu- ferðir. Forstöðumaður skólabúðanna er Steinþór Þráinsson. Kristján BJÖRN Steinar Sólbergsson, or- gelleikari í Akureyrarkirkju, heldur tónleika í kirkjunni á morgun, laugardag, kl. 12.00. Tónleikarnir eru liður í því að auka hlut orgelsins í helgihaldi kirkjunnar og fyrir fólk sem vill njóta rólegrar hádegisstundar í erli dagsins og verða þessir tónleikar haldnir fyrsta laugardag í hverjum mánuði. Tónleikarnir fara þannig fram að Björn Steinar leikur orgelverk, síðan er lesin ritningarlestur og aftur leikið orgelverk. í safnaðar- heimilinu verður svo boðið upp á léttan hádegisverð að tónleikunum loknum. Á efnisskrá verða verk eftir J.S. Bach og F. Liszt. Um 100 fleiri á atvinnu- leysisskrá nú en fyrir ári í LOK síðasta mánaðar voru eitt hundrað fleiri menn á atvinnu- leysisskrá en var í marslok á liðnu ári. Aðeins liefur fækkað á atvinnuleysisskránni þegar miðað er við febrúarmánuð. Það sem einkennir helst síðasta mán- uð er að járniðnaðarmönnum á atvinnuleysisskrá hefur fjölgað um helming, en töluvert er um að verkafólk hafi dottið út af skránni. Um mánaðamótin voru alls 316 skráðir atvinnulausir á Akureyri, 203 karlar og 113 konur. í febrúar Sigrún Eðvaldsóttir leikur með Kammerhljómsveit Akureyrar FIMM einleikarar koma fram með Kammerhljómsveit Akur- eyrar undir stjórn Arnar Ósk- arssonar á tvennum tónleikum sem haldnir verða á Blönduósi og Akureyri helgina 4. og 5. apríl næstkomandi. í frétt frá Kammersveitinni seg- ir að tónleikarnir hefjaist með tón- verkinu „Quite City“ eftir Aron Copeland, en einleikarar í því verki verða Gordon G. Jack á trompet og Jacqueline Simm á enskt horn. Næst á efnisskránni er hið sívin- sæla verk „Karnival dýranna" eftir Saint Saéns. Einleikarar á píanó verða þeir Richard Simm og Tomas Higgerson og leika þeir á tvo flygla. Þá segir að hæst rísi tónleikarn- ir með fiðlukonsert í e-moll eftir Mendelsohn, sem Sigrún Eðvalds- dóttir flytur með hljómsveitinni, en hún hlaut verðlaun fyrir flutning sinn á þessum fiðlukonsert á al- þjóðlegri keppni fiðluleikara í Well- ington á Nýja-Sjálandi nýverið. Norðlendingar eiga þess fyrstir Sunna Stefánsdóttir færði Sigrúnu blóm við komuna til Akur- eyrar í gær. kost að hlýða á flutning hennar á því verki hér á landi. Tónleikarnir á Blönduósi verða í félagsheimilinu laugardaginn 4. apríl og hefjast þeir kl. 15, en þeir eru skipulagðir í samráði við Tón- listarfélag Austur-Húnvetninga. Tónleikarnir á Akureyri fara fram í íþróttaskemmunni sunnu- daginn 5. apríl og hefjast kl. 17, en forsala aðgöngumiða er þegar hafin. voru 333 á atvinnuleysisskrá, en á milli mánaða fækkaði um fimm karla og 12 konur á skránni. Á sama tíma á síðasta ári var hundr- að manns færra á atvinnuleysis- skrá, eða 216. Þá voru 137 karlar skráðir án atvinnu og 79 konur. Langflestir þeirra sem eru skráðir án atvinnu eru félagar í Einingu, eða 132 samtals, 84 karl- ar og 48 konur. Þá eru 57 félags- menn í Félagi verslunar- og skrif- stofufólks á Akureyri an atvinnu, 20 karlar og 37 konur. í Iðju, félagi verksmiðjufólks, eru 40 félags- menn skráðir atvinnulausir, 18 karlar og 22 konur. Þá eru á at- vinnuleysisskrá 13 trésmiðir og 11 járniðnaðarmenn, en þeim hefur fjölgað umtalsvert á milli mánaða. I lok febrúar voru sex járniðnaðar- menn skráðir atvinnulausir. Sigrún Björnsdóttir, forstöðu- maður Vinnumiðlunarskrifstofunn- ar á Akureyri, sagði að fækkað hefði um 17 á milli mánaðamóta á atvinnuleysisskrá og flestir þeirra sem fengið hefðu vinnu væru úr hópi verkafólks. Einhveijir hefðu verið ráðnir til starfa við Skíða- staði þegar opnað var í Hlíðar- 1 fjalli, en annars hefði fólk fengið vinnu á ýmsum stöðum. Hún sagði að mun færra verkafólk hefði verið atvinnulaust á sama tíma í fyrra og til að mynda væri nú 40 manns fleira úr hópi verkafólk á skránni en á þeim tíma. „Það er svo geggjað“ sýnt í síðasta sinn LOKASÝNING á söngleiknum „Það er svo geggjað — saga af sveita- balli“ verður í Sjallanum á Akurcyri á laugardagskvöld. Hefur sýning þessi hlotið lof þeirra fjölmörgu sem á hana hafa farið. í sýningunni koma fram Rúnar Júlíusson, Karl Örvarsson, Jakob Jónsson og Díana Hermannsdóttir auk dansara og leikara. Hljómsveit- in Vinir og synir leikur fyrir dansi og syngur Rúnar Júlíusson með hljómsveitinni á dansleik á eftir, en hann hefur gert stormandi lukku síðustu helgar með frábærri sviðs- framkomu og söng, enda hefur hann staðið í eldlínunni í tuttugu ár. I kvöld leikur hljómsveitin Loðin rotta í Sjallanum, en hana skipa þeir Ingólfur Guð- jónsson, hljóm- borð, Sigurður Gröndal, gítar, Sigfús Óttarsson, trommur, Bjarni Bragi Kjartans- son, bassi, og Jó- hannes Eiðsson, Karl Örvarsson söngur. Hljóm- sveitin þykir ein besta rokkhljóm- sveit sem starfandi er á landinu um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.