Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 1
72 SIÐUR B/C/D
85. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þingkosningarnar í Bretiandi:
Snörp fylgissveifla sviptir
Verkamannaflokkinn sigri
Áframhaldandi stjórn íhaldsmanna talin
tryggð - Fylgisaukning í lykilkjördæmum
ófullnægjandi fyrir Verkamannaflokkinn
Lundúnum. Frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÍHALDSFLOKKURINN, undir forystu Johns Majors forsætisráð-
herra, vann í nótt sögulegan sigur í tvísýnustu þingkosningum sem
fram hafa farið í Bretlandi í áratugi. Þegar atkvæði höfðu verið talin
í um 500 kjördæmum kváðu spár sjónvarpsstöðva á um að íhalds-
menn næðu naumum meirihluta á þingi þar sem 651 þingmaður sit-
ur. Kannanir tvo síðustu sólarhringana höfðu gefið til kynna umtals-
verða fylgisaukningu íhaldsmanna miðað við eldri skoðanakannanir
og var hún staðfest í kosningunum. Þó var talið hugsanlegt í nótt
að flokkurinn næði ekki hreinum meirihluta. Talið er að útkoma
Verkamannaflokksins kunni að leiða til þess að Neil Kinnock, leið-
togi flokksins, verði að segja af sér á næstu mánuðum.
John Major forsætisráðherra og eiginkona hans, Norma, á kjörstað í Huntingdon í gær. Reut«r
Forsetar Rússlands og Ukraínu:
Sátta leitað í deilunni
um Svartahafsflotann
Skoðanakannanir höfðu gefið til
kynna að búast_ mætti við 6-7%
fylgissveiflu frá íhaldsflokknum til
Verkamannaflokksins, sem trúlega
hefði getið af sér minnihlutastjórn
Neils Kinnocks. En úrslit í nótt og
spár breskra sjónvarpsstöðva gáfu
til kynna að sveiflan væri að jafn-
aði mun minni eða um 3-4%. Sýnt
þótti einnig að Verkamannaflokk-
urinn myndi ekki vinna þá sigra sem
flokkurinn vænti í mikilvægustu
kjördæmunum. Þannig var talið að
flokkurinn myndi einungis vinna
ellefu sæti hér í Lundúnum af þeim
24 sem að var stefnt. A landsvísu
bentu kosningaspár til að Verka-
mannaflokkurinn myndi hljóta
36-37% atkvæða en skoðanakann-
anir sem gerðar voru fyrir kjördag
bentu til að flokkurinn fengi tæp
40%. Var litið svo á að málflutning-
ur íhaldsmanna síðustu dagana fyr-
ir kosningar þar sem þeir lögðu
einkum áherslu á skattahækkun-
aráform flokks Kinnocks og vænt-
anlegan efnahagsbata í Bretlandi
hefði skilað árangri.
Um leið og kjörfundi lauk kl. 21
í gærkvöldi að íslenskum.tíma voru
birtar skoðanakannanir sem teknar
voru á kjörstöðum í völdum kjör-
dæmum. Niðurstaða þeirra var að
enginn einn flokkur fengi hreinan
meirihluta á þingi. Samkvæmt
könnun bresku sjónvarpsstöðvar-
innar BBC fengi íhaldsflokkurinn
301 þingsæti, Verkamannaflokkur-
inn 298, Fijálslyndi demókrata-
flokkurinn 24 og aðrir 28 þingsæti.
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra, var einn af fyrstu
stjórnmálamönnunum sem tjáðu sig
um þessar tölur. Sagðist hún telja
að þegar talið yrði upp úr kjörköss-
unum kæmi í ljós að straumur at-
kvæða til Verkamannaflokksins
væri ekki eins mikill og kannanir
bentu til. Tölur úr fyrstu kjördæm-
unum staðfestu þetta. Fyrstu úrslit-
in í einstöku kjördæmi sem komu
verulega á óvart voru að Chris
Patten, formaður íhaldsflokksins,
missti þingsæti sitt í Bath. Paddy
Ashdown, formaður Fijálslynda
demókrataflokksins, hélt sæti sínu
í Yeovil, fékk 52% atkvæða og jók
fylgi sitt lítillega.
Tæplega 44 milljónir manna voru
á kjörskrá en alls voru 2.925 manns
í framboði í 651 kjördæmi. Kosn-
ingaþátttaka þótti með miklum
ágætum og höfðu starfsmenn á
nokkrum kjörstöðum hér í Lundún-
um á orði að góða veðrið hefði ekki
orðið til þess að draga úr henni.
Kíev, Moskvu, Brussel. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
og Leoníd Kravtsjúk, forseti
Ukraínu, náðu í gær samkomu-
lagi um að tilskipunum þeirra
um yfirráð yfir Svartahafsflotan-
um yrði ekki framfylgt á meðan
reynt yrði að leysa deiluna með
samningaviðræðum. Mikilvæg
nefnd rússneska fulltrúaþingsins
hafnaði í gær tillögu um að af-
nema sérstök völd Jeltsíns til að
stjórna með tilskipunum og er
litið á það sem sigur fyrir forset-
ann.
Alexej Bazarov, herfylkishöfð-
ingi og þingmaður, sagði blaða-
mönnum á rússneska fulltrúaþing-
inu að Jeltsín og Kravtsjúk hefðu
rætt deiluna um Svartahafsflotann
í síma og ákveðið að skipa nefnd
til að ræða hana. Þeir myndu sjálf-
ir taka þátt í viðræðunum síðar.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að j>að hefði
boðið utanríkisráðherra Ukraínu tii
viðræðna í Moskvu á morgun, laug-
ardag.
Jeltsín hafði gefið út tilskipun
um að Rússar réðu yfir Svartahafs-
flotanum og svaraði þannig tilskip-
un frá Kravtsjúk um að allur her-
afli, sem væri á úkraínsku land-
svæði, þar með talinn Svartahafs-
flotinn, tilheyrði Úkraínu. Bazarov
sagði að forsetarnir hefðu ákveðið
að afturkalla þessar tilskipanir á
meðan gerð yrði úrslitatilraun til
að leysa deiíuna. Talsmaður Úkra-
ínuforseta sagði hins vegar að því
hefði aðeins verið frestað að fram-
fylgja tilskipununum.
Embættismenn í höfuðstöðvum
Atlantshafsbandalagsins sögðust í
gær hafa „miklar áhyggjur“ af
þeirri ákvörðun Úkraínumanna að
hætta að flytja kjarnorkuvopn til
niðúrrifs í Rússlandi. Málið var
rætt í Atlantshafsráðinu, sem hvatti
Úkraínumenn til að ljúka flutning-
unum fyrir 1. júlí, eins og ráðgert
var í upphafi. Þing Úkraínu stað-
festi hins vegar stefnu stjórnarinnar
í þessum efnum síðdegis í gær.
Þingnefndin, sem hafnaði tillög-
unni um að takmarka völd Jeltsíns,
er að leggja drög að ályktun um
efnahagsstefnu rússnesku stjórnar-
innar. Þótt hugsanlegt sé að tillag-
an verði lögð fram á þinginu þykir
það sigur fyrir Jeltsín að nefndin
skyldi ekki mæla með henni.
Nefndin lagði til að rússneska
fulltrúaþingið skikkaði Jeltsín til að
tilnefna mann í embætti forsætis-
ráðherra Rússlands áður en full-
trúaþinginu yrði slitið eftir níu
daga. Jeltsín gegnir nú embættinu
sjálfur.
Jegor Gajdar aðstoðarforsætis-
ráðherra, sem stjórnar framkvæmd
efnahagsstefnu stjórnarinnar, varði
aðgerðir sínar á þinginu og sagði
að tekist hefði að minnka fjáriaga-
hallann niður í 1,5% af vergri þjóð-
arframleiðslu á fyrsta fjórðungi árs-
ins, miðað við 18% í fyrra. „Ef þetta
eru misheppnaðar aðgerðir þá veit
ég ekki hvað góður árangur er,“
sagði hann.
Bandaríkin:
Noriega sakfelldur
Miami. Reuter.
KVIÐDÓMUR í máli Manuels Noriega, fyrrum einræðisherra
Panama, komst í gær að þeirri niðurstöðu að Noriega væri sekur
um átta af þeim tíu ákæruatriðum sem bandarísk yfirvöld sökuðu
hann um. Var hann m.a. sakaður um að hafa þegið milljónir
Bandaríkjadollara frá eiturlyfjaframleiðendum í Medellin í Kól-
umbíu gegn því að halda verndarhendi yfir eiturlyfjasendingum
til Flórída.
Noriega, sem handtekinn var í
kjölfar innrásar Bandaríkjamanna
í Panama fyrir rúmlega tveimur
árum, lét ekki í ljós nein viðbrögð
er kviðdómurinn kvað upp úrskurð
sinn. Fjölskylda hans var einnig
stödd í dómsalnum i Miami á
Flórída og brast ein þriggja dætra
hans í grát er hún heyrði dóminn.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði úrskurð kviðdómsins vera
„stórbrotinn sigur í baráttunni við
eiturlyfjabarónana" og sagðist
vona að þetta yrðu skýr skilaboð
til eiturlyfjasala um allan heim
um að þeim yrði refsað ef þeir
héldu áfram að eitra líf ungmenna
í Bandaríkjunum eða annars stað-
ar í heiminum. „Nú þegar búið
er að sakfella hann tel ég vera
við hæfi að segja
að réttlætinu hafi
verið framfylgt,“
sagði Banda-
ríkjaforseti.
Réttarhöldin
yfir Noriega hafa
tekið sjö mánuði
og hafði kvið-
dómurinn fundað
í 35 klukku-
stundir á síðustu fimm dögum
áður en hann komst að niðurstöðu
sinni. Að sögn dómarans í málinu
verður kveðið á um refsinguna
10. júlí og á Noriega yfir höfði
sér allt að 120 ára fangelsisdóm.
Noriega