Morgunblaðið - 10.04.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Samið við Landakot
að opna 24 hjúkrun-
arrými fyrir aldraða
Á FUNDI sem Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra átti með
Bandalagi kvenna í Reykjavík í fyrradag kom m.a. fram hjá ráðherra
að búið er að semja við Landakotsspítala um opnun 24 hjúkrunarrýma
fyrir aldraða. Barna- og unglingageðdeild við Dalbraut verður ekki
lokað í sumar, ráðherra vonast til að öldrunardeildinni í Hátúni verði
ekki iokað og lausn er fyrirsjáanleg á málefnum Fæðingarheimilis
Reykjavíkurborgar.
Sighvatur Björgvinsson sagði við
Morgunblaðið að hann hefði gert
samning við Landakotsspítala um að
taka að sér opnun einnar deildar
fyrir aidraða og yrði þar um að ræða
hreina viðbót við þá þjónustu sem
fyrir væri. Kostnaðurinn við nauð-
synlegar breytingar á spítalanum og
rekstur deildarinnar með 24 hjúkrun-
arrýmum væri áætlaður um 2,1 millj-
ón á hvem sjúkling árlega. Af heild-
arupphæðinni færu 10-12 milljónir
í breytingar á einum gangi sjúkra-
hússins en um 34 milljónir i rekstur.
Breytt lög um LÍN:
Landsbanki
gerir ráð fyr-
ir viðræðum
við námsmenn
Landsbankinn gerir ráð fyrir
að taka upp viðræður við hags-
munafélög námsmanna þegar ljóst
verður hvernig nýtt lagafrumvarp
um Lánasjóð íslenskra náms-
manna lítur út. Samkvæmt þeim
tillögum sem kynntar hafa verið
munu námsmenn ekki fá lán úr
lánasjóðnum fyrr en þeir hafa
sýnt fram á námsárangur og gætu
því þurft að brúa bilið með banka-
lánum.
Ingólfur Guðmundsson hjá Lands-
banka íslands sagði við Morgunblað-
ið að rætt hefði verið óformlega við
námsmannasamtök og skoðað hvem-
ig best yrði að taka á málinu, en Ijóst
væri að þarfir námsmanna kæmu til
með að breytast gagnvart lánafyrir-
greiðslu og öðru slíku. Hins vegar
lægju ekki fyrir áætlanir um lánsfjár-
þörf náíbsmanna í kjölfar breyttra
lánasjóðslaga.
Samkvæmt núgildandi lögum fá
nýnemar ekki lán fyrr en að loknum
fyrstu prófum. Ingólfur sagði að eft-
irspum hjá fyrsta árs nemum eftir
bankalánum til að brúa bilið hefði
verið mun minni en búist var við.
En líklegt væri að námsmenn hefðu
meiri þörf á lánafyrirgreiðslu á vo-
rönn en haustönn vegna sumarvinnu.
Ingólfur sagði að lán til náms-
manna væru venjulega skuldabréfa-
lán með ábyrgðarmönnum eða víxl-
ar, en einnig hefðu námsmenn getað
fengið yfirdráttarheimild á einka-
reikningum.
í niðurskurðaráformum Ríkisspít-
alanna var gert ráð fyrir að bama-
og unglingageðdeild við Dalbraut og
öldrunardeildinni í Hátúni yrði lokað
5 sumar en vonast er til að svo verði
ekki. Ráðherra óskaði eftir því að
þessum áformum yrði frestað meðan
beðið væri niðurstöðu úr kjarasamn-
ingum. Ríkisspítalamir eiga eftir að
skera niður útgjöld um 100 milljónir
króna og lokanir á Dalbraut og í
Hátúni komu til greina til að mæta
þeim niðurskurði.
Um Fæðingarheimili Reykjavíkur
segir Sighvatur að lausn þess máls
liggi í að tryggja konum sömu val-
kosti og þær hafa haft um fæðingar
hingað til. Gert sé ráð fyrir sérstakri
tíu milljóna króna Ijárveitingu til
Landspítalans til að koma þar á fót
sömu aðstöðu og er til staðar á
Fæðingarheimilinu. Fæðingar fari
sem sagt fram á Landspítalanum en
sængurkonum sé eftir sem áður
frjálst að liggja á Fæðingarheimilinu
fyrir og eftir fæðingu. „Hér er yerið
að gæta ýtrustu öryggissjónarmiða
því ef eitthvað kemur upp á við fæð-
ingu em öll tæki og tækni Landspít-
alans til staðar til að mæta þeim
vandamálum," segir Sighvatur.
Urslit ráðast í næsta leik
Jonathan Bow og Jón Kr. Gíslason klappa hér
áhorfendum á leik ÍBK og Valsmanna í gærkvöldi
lof í lófa. Keflvíkingar sigruðu Val með yfirburðum
í fjórða úrslitaleik liðanna í Valsheimilinu í gær-
kvöldi 78:56. Liðin þurfa því að mætast fimmta
sinni, í hreinum úrslitaleik, á laugardaginn og nú
í Keflavík. Á innfelldu myndinni má sjá stöðuna
leikhléi. Valsmenn gerðu þá aðeins 19 stig gegn
40 stigum ÍBK. Elstu menn muna vart til þess að
lið hafi gert jafn fá stig í einum hálfleik.
Sjá nánar bls. 47
íslendingar, Grænlendingar, Færeyingar og Norðmenn stofna sjávarspendýraráð:
Styrkir stöðu þessara hval-
veiðiþjóða á alþjóðavettvangi
- segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Sjávarspendýraráð Norður- Atlantshafs (NAMMCO) var stofnað í
Nuuk á Grænlandi í gær af Islendingum, Norðmönnum, Grænlending-
um og Færeyingum. Stofnsamningur ráðsins tekur gildi eftir þrjá
mánuði og er ráðinu ætlað að sjá um visindalegar rannsóknir og
stjómun á öllum sjávarspendýmm. Fyrst í stað mun ráðið einbeita
sér að smáhvölum, sem ekki heyra undir Alþjóðahvalveiðiráðið, og
selum, en samningurinn gerir ráð fyrir því að ef allar aðildarþjóðirn-
ar em sammála um það, geti ráðið síðar tekið að sér nýtingarsljórn-
un á stærri hvölum.
„Þetta er mjög markverður
áfangi í okkar baráttu fyrir að fá
viðurkenndan rétt til að nýta auð-
lindir hafsins, þar á meðal hvalina,"
sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra í gær. Hann sagði að
einn mesti áfanginn sem náðst hefði
með samkomulaginu væri að ráðið
gæti tekið yfir stjómun á öllum
hvölum. „Ég held að óhætt sé að
fullyrða að stofnun þessa ráðs hefur
mjög styrkt stöðu þessara fjögurra
hvalveiðiþjóða á alþjóðavettvangi,
þar á meðal gagnvart hvalveiðiráð-
inu. En hvaða áhrif það mun hafa
verður framtíðin að leiða í Ijós,“
sagði Þorsteinn.
Um það hvort ráðið myndi beita
sér fyrir upplýsingamiðlun um
hagsmuni þjóðanna á þessu sviði
sagði Þorsteinn að á alþjóðaráð-
stefnu um hvalveiðimál, sem haldin
var í Nuuk í vikunni, hefðu spum-
ingar um sameiginlega upplýs-
ingamiðlun landanna verið ræddar,
og áfram yrði fjallað um möguleik-
ana á því.
Sérstakt ráð mun fara með æðsta
vald innan sjávarspendýraráðsins.
Þá verður komið á fót vísindanefnd
og stjórnunarnefndum fyrir ein-
Frumvarp til nýrra Seðlabankalaga:
Stöður bankastjóra verði aug-
lýstar og áhrif bankaráðs aukin
Stjórntæki Seðlabankans gerð óháðari ríkissljórn
STEFNT er að því að beiting stjórntækja Seðlabankans verði gerð
óháðari ríkisstjórn, fagleg stjórnun bankans verði styrkt og eftirlit
hankans með starfsemi fjármálastofnana verði eflt samkvæmt frum-
varpi til nýrra Seðlahankalaga sem viðskiptaráðherra hefur dreift
til allra þingflokka á Alþingi. I frumvarpinu, sem samið var af nefnd
fulltrúa allra þingflokka, er lagt til að áhrif bankaráðs Seðlabank-
ans verði aukin og að auglýst verði eftir umsóknum um stöður banka-
stjóra. Skv. ákvæðum frumvarpsins verða umsækjendur að hafa hlot-
ið atkvæði í bankaráði til að ráðherra geti skipað þá í stöðurnar.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði á fréttamannafundi í
gær að frumvarpið væri nú lagt
fram til kynningar. Ríkisstjómin
hefði ekki tekið eínislega afstöðu
til frumvarpsins en ráðherra sagðist
stefna að því að það verði afgreitt
sem Iög á haustþingi og þau tækju
gildi um næstu áramót.
í frumvarpinu er kveðið á um
sérstaka ráðningu formanns banka-
stjórnar sem verði talsmaður Seðla-
bankans.
Lagt er tiL að bankanum verði
óheimilt að veita ríkissjóði yfirdrátt-
arlán eftir 1995 en fram að þeim
tíma verði sett hámark á yfirdrátt-
arskuld ríkissjóðs í bankanum
þannig að á næsta ári verði há-
marksfjárhæðin þrír milljarðar,
tveir milljarðar 1994 og einn millj-
arður 1995.
Lagt er til að felld verði niður
ákvæði um möguleika bankans til
að hlutast til um vaxtaákvarðanir
innlánsstofnana og að eigið fé
Seðlabankans verði byggt upp með
þeim hætti að þar til það hefur náð
6% af vergri landsframleiðslu renni
fjórðungur af meðalhagnaði næst-
liðinna þriggja ára í ríkissjóð en
þegar 6%-markmiðinu er náð renni
allur hagnaður bankans í ríkissjóð.
Skv. núgildandi fyrirkomulagi renn-
ur ávallt helmingur af meðalhagn-
aði næstliðinna þriggja ára í ríkis-
sjóð óháð eiginfjárstöðu bankans.
Þá er gert ráð fyrir að laga-
ákvæðum um laust fé innlánsstofn-
ana verði breytt þannig að það þjóni
einungis þeim tilgangi að tryggja
að lánastofnanir hafí yflr nægjan-
legu lausu fé að ráða til að mæta
fjárþörf sinni en verði ekki almennt
stjórntæki í peningamálum.
Nefndarmenn voru allir sammála
um meginstefnu frumvarpsins en
tveir nefndarmenn skiluðu séráliti
um nokkur ákvæði þess.
Sjá nánar á miðopnu.
stakar tegundir sem ákveðið verður
að taka undir stjórnun. Gert er ráð
fyrir að opnuð verði skrifstofa en
ekki hefur verið ákveðið hvar hún
verður. Ekki hefur heldur verið
ákveðið hvernig formennsku í ráð-
inu verður skipað en að þessum
atriðum verður unnið á næstu þrem-
ur mánuðum á undirbúningsfund-
um. Þá hefur ekki verið fjallað um
hvernig kostnaður af ráðinu skipt-
ist. En sjávarútvegsráðherra sagði
að þar yrði um iítinn kostnað að
ræða miðað við þá hagsmuni sem
í húfi væru og þjóðirnar hefðu haft
með sér óformlegt samráð og sér-
staka skrifstofu í kringum það og
viðbótarkostnaður yrði ekki veru-
legur.
Auk Þorsteins undirrituðu Odd-
runn Pettersen sjávarútvegsráð-
herra Noregs, Kaj Egede, sjávarút-
vegsráðherra Grænlands, og John
Petersen, sjávarútvegsráðherra
Færeyja, stofnsamning sjávarspen-
dýraráðsins í gær. Þessir aðilar
hafa lýst yfir áhuga á að Kanada-
menn og Rússar geti síðar gerst
aðilar að samningnum. Þorsteinn
sagði aðspurður að samkomulagið
væri viðurkennt af dönskum stjórn-
völdum en Færeyingar og Græn-
lendingar eru innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins gegnum Dani.
Nafn manns-
ins sem lést
MAÐURINN sem féll fyrir
borð á rannsóknaskipinu
Bjarna Sæmundssyni og lést
síðdegis á miðvikudag hét
Kristján Jónsson, 62 ára gam-
all.
Kristján fæddist 25. apríl
1929. Hann var yfirstýrimaður
á Bjarna Sæmundssyni. Kristján
var til heimilis í Erluhrauni 11
í Hafnarfirði og lætur eftir sig
aldraða móður.