Morgunblaðið - 10.04.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Ólympíu-
meistari
á Islandi
ÓLYMPÍU- og heimsmeistarinn
í stórsvigi kvenna, Pernilla Wi-
berg frá Svíþjóð, kom til lands-
ins í gær. Hún keppir á alþjóð-
legum mótum í Hlíðarfjalli um
helgina.
Wiberg varð heimsmeistari í
fyrra og var útnefnd íþróttamaður
ársins í Svíþjóð 1991. Hún vann
einu gullverðlaun Svía á Ólympíu-
leikunum í Albertville í febrúar.
„Ég verð væntalega með á Ólymp-
íuleikunum í Lillehammer eftir tvö
ár og þá ætlum við Svíar að gera
betur en í Albertville,“ sagði Wi-
berg.
Þetta er í fyrsta sinn sem Wi-
berg kemur til íslands. „Ég hef
talað við marga sem hafa heimsótt
ísland og látið vel af dvölinni. Það
var því kærkomið tækifæri fyrir
mig að skoða landið eftir að ég
fékk boð frá Skíðasambandi Island
um að keppa hér. Ég kem hingað
fyrst og fremst með tilbreytingu
Morgunblaðið/Sverrir
Pernilla Wiberg, heims- og
Ólympíumeistari í stórsvigi
kvenna, keppir á Akureyri um
helgina.
og skemmtun í huga ogtil að hjálpa
yngri keppendunum að ná sér í
betri punkta fyrir næsta vetur,“
sagði Ólympíumeistarinn.
Wiberg keppir á sex mótum hér
á landi. Á Akureyri á laugardag,
sunnudag og mánudag. Síðan fer
hún til Isafjarðar og keppir þar á
miðvikudag og fimmtudag og loks
í Bláfjöllum annan laugardag. 53
erlendir keppendur taka þátt í þess-
um mótum.
Sjómenn telja að þorskur
gangi nær landi en áður
Skyndilokanir hafa engu skilað, segir togaraskipstjóri
SKIPSTJÓRAR sem Morgunblaðið hafði samband við vegna frétta
um fjórðungs minnkun á stofnvísitölu þorskstofnsins sem fram kom
í bráðabirgðaniðurstöðum úr togararalli, eru þeirrar skoðunar að
orsakir þessa séu ekkert síður sveiflur í fiskigengd. Þeir telja jafn-
vel að þorskur gangi nær landi en áður. Þá kom fram í máli þeirra
gagnrýni á vinnubrögð viðvíkjandi lokunum á svæðum.
„Það eru einhver önnur skilyrði á minnkandi afla sé m.a. sú að
í hafinu núna en hafa verið. Það fiskurinn er mikið meira með land-
er allt gert til að hefta veiðarnar
og ekkett sparað til þess. Mér
finnst þessi niðurstaða ganga þvert
á það sem fiskifræðingar hafa
gert til að friða fískinn undanfarin
10-12 ár. Skyndilokanir og lokanir
á svæðum hafa tíðkast undanfarin
ár en samt er allt á niðurleið. Lok-
anirnar hafa engum árangri skil-
að,“ sagði Hermann Skúlason,
skipstjóri á skuttogaranum Júlíusi
Geirmundssyni ÍS 270, er Morguii-
blaðið hafði samband við hann þar
sem skipið var statt djúpt út af
Reykjanesi. „Ég held að skýringin
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
Helmild: Veöurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 10. APRIL
YFIRLIT: Skammt suðvestur af Jan Mayen er 988 mb lægð sem hreyf-
ist hægt norður. Um 700 km vestur af íriandi er önnur 988 mb lægð
sem hreyfist allhratt norðaustur. Yfir vestanverðu Grænlandshafi er
kyrrstætt lægðardrag. Heldur kólnar í veðri.
SPÁ: Vestan- og norðvestanátt. Minnkandi ól á Vesturlandi, en annars
nokkuð bjart. Hiti 0-7 stig að deginum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Austan strekkingur og dálítil súld allra syðst
á landinu, en annars fremur hæg, breytileg átt, þurrt og víða bjart.
HORFUR Á SUNNUDAG: Austlæg átt og lítilsháttar rigning við a'ustur-
og suðausturströndina, en annars nokkuð bjart veður.
Svarsími Veðurstofu fslands - Veðurfregnir: 990600.
o
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.
///*?**** . ! * 10° Hitastig
' ' *' ** V V V V Súld
////*/*** V v 7 >
Rígning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél Él = Þoka
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
V
FÆRÐA VEGUM: <ki. 17.30 fgær)
Góð færð á vegum á Suður- og Vesturlandi, og með suðurströndinni
austur á firði. Greiðfært er á vegum i Borgarfirði, á Snæfellsnesi, í Döl-
um og Reykhólasveit. Versnandi veður er á Holtavörðuheiðí og Bröttu-
brekku og er færð farin að þyngjast á Bröttubrekku. A sunnanverðum
Vestfjöröum er fært frá Patreksfirðí til Tálknafjarðar, en Kleifaheiði og
Hálfdán eru þungfær. Á norðanverðum Vestfjörðum er Breiðadalsheiði
ófær og Steingrímsfjarðarheiði þungfær. Heiðarnar verða mokaðar á
morgun. Fært er norður til Hólmavíkur og Drangsness. Greiðfært er um
vegi á Norðurlandi, og með ströndinni til Vopnafjarðar. Á Austfjörðum
er yfirleítt góð færð og Möðrudalsöræfí eru fær. Vegagerðin.
/ VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltí veður Akureyri 3 skýjað Reykjavík +1 úrkoma
Bergen 11 skýjað
Helsinki 1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 8 þoka
Narssarssueq +11 léttskýjað
Nuuk +10 léttskýjað
Ósló 9 skýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Algarve 18 léttskýjað
Amsterdam 14 léttskýjað
Barcelona 18 mistur
Berlín 13 léttskýjað
Chicago 6 léttskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 14 iéttskýjað
Glasgow 13 alskýjað
Hamborg 12 hálfskýjað
London 17 heiðskírt
Los Angeles 16 alskýjað
Lúxemborg 13 heiðskírt
Madríd vantar
Malaga 19 léttskýjað
Mallorca 14 úrkoma
Montreal 0 skýjað
NewYork 9 skýjað
Orlando vantar
París 14 heiðskirt
Madeira 17 skýjað
Róm 18 skýjað
Vín 11 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +8 úrkoma
inu en verið hefur. Sóknarmynstr-
inu hefur verið breytt og veiðiheim-
ildir mikið verið færðar yfir á tog-
ara. Áður fyrr tóku menn ZA þor-
skaflans í net á vetrarvertíðinni
en nú er engin sókn með netum.
Það hlýtur því að veiðast mikið
minna þegar mun færri veiðarfæri
eru í sjó. Togararnir eru langt úti
í hafsauga þar sem engum hefði
dottið í hug að kasta trolli á vetrar-
vertíð og komast ekki á þessa
slóð,“ sagði Hermann.
Leó Oskarsson, skipstjóri á
Haukafelli SF 111, sagði að niður-
stöður togararallsins sýndu hve
litlu kvótakerfið hefði skilað í þessu
tilliti. „Kvótinn er skertur ár eftir
ár og alltaf verður ástandið verra.
Þetta eru uggvænlegar tölur, en
ég held að við vitum alltof lítið um
þorskinn. Núna eru fiskifræðingar
fyrst að komast að því að Aust-
fjarðafiskurinn er staðbundinn,"
sagði Leó. Hann sagði að lokanir
á veiðisvæðum skiluðu ekki Til-
skildum árangri því ekki væri
nægilega vel fylgst með því hvort
fiskur á tilteknu svæði væri kom-
inn að hrygningu. Oft væri svæð-
um lokað þar sem enn væri tölu-
vert í hrygningu. „Fiskurinn
hrygnir á mismunandi tímum á
mismunandi svæðum. Mér finnst
að eftirlitsmenn eigi að vera meira
um borð í skipunum og fylgjast
með því hvar farið er að leka úr
fiskinum. Svæðið verði þá lokað
meðan fiskurinn hrygnir og klakið
er að koma til. Það mætti koma á
meiri samvinnu milli sjómanna og
fiskifræðinga. Hafrannsóknastofn-
un gæti til dæmis hringt í flotann,
eins og þú ert að gera núna, spyrja
hvernig hrognastaðan er á hveijum
stað. Menn myndu ekki ljúga neitt
til um það og réttar niðurstöður
fengjust. Það eru allir tilbúnir að
vinna saman að þessum hlutum,"
sagði Leó.
-----» ♦ «----
Skíðalönd
Reykvíkinga:
Gott skíða-
færi en fá-
ir á skíðum
UNDANFARNA daga og helgar
hefur skíðafæri verið einstak-
lega gott í skiðalöndum Reykvík-
inga, að sögn Þorsteins Hjalta-
sonar fólkvangsvarðar í Bláfjöll-
um. Á sama tima hefur veður
verið nokkuð gott en þrátt fyrir
það hefur aðsókn verið treg,
jafnvel um lielgar.
„Það er svona heldur dauft og
kemur verulega á óvart,“ sagði
Þorsteinn. „Það er oft þannig þegar
komið er fram á vor og veðrið er
gott, þá dettur aðsóknin niður.
Hins vegar á ég von á að fólk taki
við sér ef við fáum góða páska.
Ég veit ekki hvað veldur en hef
grun um að fólk sé farið að huga
að görðunum og sækja sumarbú-
staðina. Það er greinilega vor í
lofti.“
Síðustu tvo daga hefur snjóað í
fjöllin og sagði Þorsteinn, að skíða-
færið væri einstaklega gott. Þús-
undir skólabarna hafa dvalið í skíð-
askálum undanfarna daga en
minna er um að fólk hafi sótt þang-
að eftir vinnu í miðri viku.
Stakk félaga sinn með hnífi í Hafnarfirði:
Segir hormónalyf hafa
breytt skapgerð sinni
RÚMLEGA tvítugur piltur, sem
tilefnislaust stakk kunningja
sinn með hnífi á heimili hans í
Hafnarfirði um síðustu helgi,
hefur við yfirheyrslur hjá RLR
gefið þá skýringu á árásinni að
ólögleg hormónalyf sem hann
hafi notað í tengslum við iðkun
vaxtaræktar, hafi valdið breyt-
ingum á skapgerð hans og gert
hana hömlulausari en áður.
Pilturinn, sem stundað hefur
lyftingar og vaxtarækt, fyrst og
fremst sem áhugamaður, eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst,
hefur borið að hafa sprautað sig
með hormónalyfjum um fjögurra
ára skeið til að auka vöðvavöxt.
Við yfirheyrslur kom fram, að því
er RLR staðfesti við Morgunblaðið
í gær, að fljótlega eftir að pilturinn
tók að neyta lyfjanna hafi farið
að bera á skyndilegum skapofsa-
köstum, einkum ef hann hafði
áfengi um hönd, eins og kvöldið
þegar hann stakk félaga sinn.
Auk gæsluvarðhalds til 29.
þessa mánaðar hefur piltinum ver-
ið gert að sæta geðheilbrigðisrann-
sókn vegna rannsóknar hnífstung-
umálsins.
Hamrahlíðarkórinn og Háskólakórinn:
Sameiginlegir tónleik-
ar í Islensku óperunni
Hamrahlíðarkórinn og Há-
skólakórinn halda sameiginlega
tónleika í íslensku óperunni á
morgun, 11. apríl, í tilefni af ári
söngsins. Efnisskráin verður
fjölbreytt og má þar nefna verk
eftir E. Grieg, Poulene og Luigi
Dallapiccola.
Hamrahlíðarkórinn frumflytur
einnig nýtt verk eftir Atla Heimi
Sveinsson og Háskólakórinn ásamt
píanóleikaranum Péter Máté flytur
verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
sem kórinn frumflutti fyrr í vetur.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessir
kórar syngja saman á tónleikum.
Stjórnendur kóranna eru Þor-
gerður Ingólfsdóttir og Ferenc Ut-
assy. Hefjast Lónleikarnir kl. 14.30
og er miðasala á staðnum. Miða-
verð er 800 kr. og 500 kr. með
nemendaafslætti.