Morgunblaðið - 10.04.1992, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Þegarkeypter l.hjól
Þegar keypt eru 2.hjól
Þegar keypt eru 3.hjól
Stabgreitt:
20% afsl.
30% afsl.
40% afsl.
Afborganir:
10% afsl.
20% afsl.
30% afsl.
VIÐMIÐUNAR VERÐ Á FJALLAHJOLUM EFTIR TEGUND GIRABUNAÐAR:
MUDDY FOX HJÓLIN ERU ÚTBÓIN MEÐ SHIMANO GÍRBÚNÁÐI.
TEGUND.
DEORE XTR
DEORE XT
DEOREDX
DEORELX
EXAGE 500 LX
EXAGE 400 LX
EXAGE 300 LX
200 GS
70 GS
VERÐ HOPAR:
110- 200 ÞÚS. KR
80-100
56 - 80
45 - 60
40 - 58
40 - 50
34 - 40
27 - 34
20 - 26
0S&
GAP
VIÐHALDS-
. OG VARAHLUTAÞJÓNUSTA
G.Á.PÉTURSSON HF RAÐGREIÐSLUR
FJALLAHJÓLABÚÐIN, NÚTÍÐINNI, FAXAFEN114, SÍMI: 685580
OPIÐ LAUGARDAGA KL 10 -16
HIOLAVEISLA
SEEKER MEGA
LX 500 gíraskiptlng
Verb kr. 49.900.-
Verb meö 20% stabgr.afsl.
kr.39.920.-
SORCERER MEGA
Deore LX gíraskipting
Verb kr. 54.900.-
Verb meb 20% stabgr. afsl.
kr. 43.92®.-
COURIER MEGA
LX 400 gíraskipting
Verb kr. 48.525.-
Verb meb 20% stabgr.afsl.
kr, SS0§1S9“
Sjónþing Bjarna
H. Þórarinssonar
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Það vill oft gleymast í hinu dag-
lega amstri að góð samskipti manna
í milli eru reist á grunni sameigin-
legs menningararfs, og þar með
sameiginlegri þekkingu og tilvísun-
um; að orð og hugtök hafi afmark-
aða, almenna merkingu sem allir
geti vísað til og gengið út frá að
náunginn skilji á sama veg og sá
sem talar. Mikilvægi slíks grunns
í samskiptum manna verður enn
augljósari þegar menn rekast á ein-
staklinga frá öðrum menningar-
svæðum, sem ganga út frá allt
annarri þekkingu og tilvísunum í
samskiptum sínum við annað fólk;
átök og óvild milli þjóða má oftar
en ekki rekja til misvísana og mis-
skilnings í tjáskiptum.
Menning og listir hafa verið sett
undir sama hatt og aðrir þættir
mannlegra samskipta, og byggt á
sameiginlegum grunni listamanna
og listnjótenda. Ýmsir listamenn
hafa í gegnum tíðina öðlast nokkra
sérstöðu með því að þenja þennan
grunn til hins ýtrasta, oft með því
að skilgreina tilvísanir, hugtök og
viðfangsefni upp á nýtt, og víkka
þannig út þann ramma, sem menn-
ingararfurinn afmarkar.
Fáir hafa þó orðið til að ganga
sömu leið og Bjarni H. Þórarinsson,
sem segja má að hafi hafnað þess-
um sameiginlega menningararfi al-
farið, en í stað þess kosið að skapa
list sinni nýjan grundvöll, byggðan
á eigin kenningum. Um þessar
mundir getur að líta nokkurn hluta
af afrakstri þess starfs í neðri sölum
Nýlistasafnsins við Vatnsstíg.
Það er til marks um mikilvægi
heita og hugtaka í verkum Bjarna
að hann heldur Sjónþing, en ekki
sýningar eins og aðrir listamenn.
Opnunardag sjónþingsins voru
haldnir þingleikar, sem nefndust
gjörningahríðir; þar hélt Bjarni fyr-
irlestur, auk þess sem fluttir voru
gjörningar, blástur, ljóð og kvæsur
(?). Bjarni, sem kýs að kalla sig
sjónháttafræðing fremur en lista-
mann, hefur sett, fram grunn að
heildarkerfi hugsunar á þessu sviði.
Undirstaða þess er Vísiakademía,
sem hann skiptir í Vísióvísindi og
Vísiólist sína. Út frá þeirn kvíslast
síðan ýmsar fræðigreinar, t.d. Vísi-
bókmenntir, Vísitáknfræði, Vísi-
mynzturfræði, Vísigjörhyglifræði
og Benduheimspeki, svo eitthvað
sé nefnt af þeim Ijölskrúðugu grein-
um, sem sjónháttafræðingurinn er
að fást við.
Þó að tengslin við myndlistina
séu ekki augljós af framansögðu,
þá eru þau engu síður til staðar. I
Vísiólist sinni er Bjarni að þróa
myndlykla, sem fylla annan salinn;
þar getur að líta ákveðin stef og
stuðlun í myndflötunum, þar sem
samsetningarmöguleikarnir verða
ótölulega margir í úrvinnslunni. í
neðri salnum getur að líta fjölmarg-
ar útfærslur hinna ýmsu fræði-
kerfa, þar sem framsetning fræði-
lyklanna er afar vandlega unnin á
myndrænan hátt, sem um margt
Biarni H. Þórarinsson: mi-lykill
(1992)
minnir á grunnskipulag frægra ly-
stigarða, t.d. hins skrautlega garðs
í Versölum. Hið nákvæma penna-
verk er góð vísbending um þá alúð,
sem sjónháttafræðingurinn setur í
úrvinnslu hugmynda sinna.
Með nokkrum rétti má segja að
Bjarni sé með verkum sínum á slóð-
um höfunda alfræðibóka fyrri alda,
þar sem menn reyndu að koma
þekkingu heimsins saman í einn
stað á skipulegan hátt. Vegna
óánægju með það þekkingarkerfi
sem almennt er viðurkennt, hefur
hann hins vegar kosið að hanna
algjörlega nýtt kerfi, og sjónþing
hans veitir öðrum nokkra innsýn í
þann heim, sem þar birtist. Um leið
er þessi framsetning vel til þess
fallin að minna á, að möguleikar
myndlistarinnar eru í raun nær
ótæmandi, ef vel er að gáð.
Sjónþing Bjarna H. Þórarinsson-
ar í Nýlistasafninu stendur til
sunnudagsins 12. apríl.
Skin minningar
________Myndlist______________
Bragi Ásgeirsson
Á einblöðungi, sem er sýningar-
skrá sýningar Húbeits Nóa í Nýlist-
asafninu stendur. „Lítill glampi
minningar getur innihaldið geysi-
miklar upplýsingar líkt og eining
af almynd. Þetta minningabrot
rennur oft saman við annað rými
eða annan tíma vegna eðli hugsun-
arinnar sem er gegnsæ. Tilfinning
augnabliksins skín þó ávallt í gegn
og myndar kjarna sem húgsanir
fljóta umhverfis.
Þetta er skilvirk og heimspekileg
útskýring á inntaki mynda gerand-
ans, sem fylla mið- og efsta sal
Nýlistasafnsins og eru allar nær
alveg svartar nema að það rétt glitt-
ir í blátt form í þeim sem tilsýndar
er eins og svífandi hlutur í fjarska.
En þegar nær er komið uppgötvar
maður að bláa formið er hlutvakið,
t.d. mótar fyrir skál, kúlu eða vasa,
en á stundum svo ógreinilega að
líkast er sem hluturinn sé svífandi
og kannski að hverfa inn í svarthol
eilífðarinnar.
í þessum myndum er mikil þögn
og heilmikið af óræði, þannig að
maður fer ósjálfrátt að velta fyrir
sér merkingunni að baki og jafn-
framt ómæli fjarlægðanna. Ein-
hæfni myndanna gera það að verk-
um að þær renna saman og mynda
eitt allsherjar heildarstef þannig að
erfitt reynist að komast í eintal við
hvetja fyrir sig því að hver grípur
í aðra.
Allt er þetta auðvitað af ráðnum
huga gert, en ég held fyrir mitt
leyti, að fáar sér muni njóta sín
betur en svona margar saman, og
vísa hér til myndanna þriggja á
miðhæðinni, sem njóta sín mun
betut' en þær á efstu hæðinni.
En annars hugnaðist mér helst
þær myndir þar sem bláa formið
var hreinast og greinilegast eins
ogt.d. í myndunum „Ker“ (3), „Blár
vasi“ (7), „Kúla“ (8) og „Vasi“ (9).
í þessum ijórum myndum eru
andstæðurnar klárari og það gerir
myrkrið að baki bláa formsins dýpra
og heildina markvissari. Glampi
minninganna er full þokukenndur í
mörgum hinna myndanna, líkast
einhvetju óræðu sem vill bijótast
fram úr hugskotinu, þrengja sét'
fram, en er fjarhEgt og fær ekki á
sig neina fastmótaða mynd.
Af öllu þessu má ráða að mikil
hugsun liggur að baki verkanna,
en um leið eru þau tæknilega vel
útfærð sem styrkir áhrifamátt
Má þar nefna að dregið verður
úr réttum lausnum í ijölskylduleik
Eiðistorgs þar sem vegleg verð-
laun verða í boði. Barnakór Mela-
skóla syngur og ungar frá eggja-
og kjúklingabúinu Hvammi verða
til sýnis. Vífilfeli býður upp á Coca
Húbert Nói
þeirra. Er það trú mín að einar og
sér kunni áhrifamáttur þeirra að
vera margfaldur, einkum í hópi
annarra og frábrugðinna ntynd-
verka. :
Cola, Nói-Siríus kynnir páska- ;
eggjaúrvalið, Nýhetji kynnirtölvu-
búnað fyrir einstaklinga og í'jöl-
skyldur og Flugferðir-Sólarflug
kynna sitt ódýra leiguflug. Fjöl-
skylduhátíðin hefst klukkan hálf
tvö og stendur til klukkan fjögur.
Fjölskylduhátíð á
Eiðistorgi á morgun
VERSLANIR að Eiðistorgi 11 gangast fyrir sérstakri fjölskylduhá-
tíð á tnorgun, laugardaginn 11. apríl. Það verða kynntar breyting-
ar þær sem gerðar hafa verið á efri hæðum hússins, auk þess sem
boðið verður upp á ýmsar uppákomur.
JÓA BOURNIR
KOMNIR HAGKAUP