Morgunblaðið - 10.04.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
11
La Bohéme
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Óperan La Bohéme eftir Pucc-
ini var flutt í Borgarleikhúsinu
sl. miðvikudagskvöld og er þetta,
eftir því sem undirritaður veit
best, þriðja uppfærslan á þessari
vinsælu óperu hér á landi. Óperu-
smiðjan stóð fyrir sýningunni,
sem tókst hið besta í alla staði.
A sínum tíma þegar Þjóðleikhús-
ið var opnað, sáu margir fyrir
sér niðurlag á sögu Leikfélags
Reykjavíkur. Sem betur fór gekk
sú hrakspá ekki eftir og ekki nóg
með það að tvö leikhús störfuðu
samtímis í Reykjavík, heldur
voru stofnaðir litlir leikhópar,
sem sumir hverjir bættu miklu
við leikhússögu íslands. Það er
svo með alla nýbreytni í athafna-
semi mannsins, að hún getur
vakið marga af dásvefni sinnu-
leysis, verið fólki kennsla og eflt
því áræði til að takast sjálft á
við erfið verkefni.
Óperusmiðjan er eðlilegt
framhald á því starfi, sem unnið
hefur verið varðandi menntun
og vinnuaðstöðu söngvara og
sönnun á þeim mikla viðgangi,
sem einkennt hefur tónlistarlíf á
Islandi undanfarna áratugi og
birtist meðal annars í margþættu
tónleikahaldi.
Uppfærsla á la Bohéme er að
mörgu leyti góð, vel æfð og því
jöfn að gæðum, þrátt fyrir að
saman starfi þar reyndir og
óvanir hlið við hlið. Söngurinn
og leikurinn hjá Keith Reed, í
hlutverki málarans Marcello, var
hápunktur sýningarinar. Þarna
réði miklu öryggi „atvinnu-
mannsins“ bæði raddlega og
hvað leik snertir, en Marcello fær
ekki til meðferðar neina „aríu“
en skemmtilegar senur með fé-
lögunum, þar sem Keith Reed
var frábær og einnig sem her-
bergisfélagi Rodolfos í fyrsta og
fjórða þætti.
Annar hápunktur sýningar-
innar var frammistaða Þorgeirs
J. Andréssonar, í hlutverki Ro-
dolfo og kom hann verulega á
óvart í þessu erfiða hlutverki.
Þorgeir hefur vaxið sem söng-
vari við hvert nýtt hlutverk. Það
er reyndar mikilvægt fyrir
söngvara að fá tækifæri til að
aga sig sem listamann í átökum
við stór og erfið viðfangsefni og
það hefur Þorgeir gert og tekið
miklum framförum, bæði sögu-
lega og í leik. Aríurnar og sam-
söngsatriðin í fyrsta og þriðja
þætti voru glæsilega sungnar og
túlkun hans á tilfinningum Ro-
dolfo til Mímíar í þriðja þætti,
eftirminnileg.
Nýliðarnir í sýningunni voru
Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jó-
hanna Linnet, Jóhann Smári
Sævarsson og Ragnar Davíðs-
son. Ingibjörg í hlutverki Mím-
íar, sýndi að hún ræður yfir góðri
tækni og er líkleg til stórræða í
framtíðinni. Samsöngur hennar
og Þorgeirs var víða mjög góð-
ur, t.d. í fyrsta þætti, í aríunni
„Ég heiti Mímí“, sýndi Ingibjörg
að hún er.efnileg söngkona. Fín-
legur söngur hennar féll vel að
hlutverkinu og leikur hennar var
fallega útfærður í þriðja og
fjórða þætti. Þarna er á ferðinni
söngkona, sem á sér mikla fram-
tíð.
Jóhanna Linnet, í hlutverki
Musettu kom einnig á óvart, sér-
staklega í kaffihúsasenunni, þar
sem hún syngur eina frægustu
aríu óperunnar. Ragnar, sem fór
með hlutverk Shaunard, er enn
í námi og er efnilegur söngvari.
Hann sýndi og góðan leik í kát-
legum tiltektum félaganna. Sá
af nýgræðingunum, sem „kom
sá og sigraði“, var Jóhann Smári,
í hlutverki heimspekingsins
Colline. Þar er á ferðinni mikið
söngvaraefni og söng hann t.d.
„frakkakveðjuna" mjög vel.
Kristinn Hallsson, sem hús-
eigandinn Benoit og Eiður Á.
Gunnarsson, sem Alcindoro, við-
hald Musettu, skiluðu sínum litlu
hlutverkum mjög vel, enda gam-
alreyndir óperusöngvarar.
Leikstjórn Bríetar Héðinsdótt-
ur er í heild góð, þó undirritaður
vilji setja fyrirvara á flatsæng-
ina, sem er mikilvægt „húsgagn“
í lokaþætti óperunnar og stað-
setningu kórsins í kaffihúsinu í
öðrum þætti. Kórinn er hafðu
nokkuð aftarlega, fyrir utan
kaffihúsið, í stað þess að setja
þá senu upp sem götukaffihús.
Kórinn og krakkarnir sungu og
léku af miklu fjöri. í þessum
þætti riðlaðist samsöngurinn
svolíitð, einkum þar sem kór-
raddirnar víxlast ört, sem má að
nokkru rekja til fjarlægðarinnar
á milli kórsins og hljómsveit-
arinnar. Sviðsmynd og búningar
vohj vel unnir en þar átti Mess-
iana Tómasdóttir aðild að og lýs-
ingin, sem Lárus Björnsson sá
um, féll mjög vel að sviðsgerð-
inni.
Guðmundur Oli Gunnarsson
stórnaði hljómsveitinni, sem lék
mjög vel. Í heild var sýningin
nokkuð hægferðug og ekki eins
tilfinningalega þrungin og hún
mætti vera, en í góðu jafnvægi.
Þetta var frumraun Guðmundar
sem óperustjórnanda og þó það
hafi lengi verið vitað, að þar er
á ferðinni efnilegur hljómsveitar-
stjóri, er frammistaða hans eitt
það eftirtektarverðasta við þessa
ágætu sýningu.
SPRENGIMARKADUR
BÍLDSHÖF
Opnunartími: Fðstudaga kl. 13-19
Laugardaga kl. 10-16
Aðradagakl. 13-18
Frftt kaffi
Myndbandahorn
lyrir börn
ILLRl SIBUSni DAGAR1DAG0
Dömuherra- og barnafatnaður
Skór á alla fjölskylduna
Hljómplötur - diskar - kassettur
Gjafavara -
Efni - gluggatjöld
Blóm o.m.fl.
GÓÐAR VORUR - GOn VERDIII