Morgunblaðið - 10.04.1992, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 10. APRIL 1992
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Mestur hluti dagskrár skeifudagsins fer fram í reiðskálanum.
Morgunblaðsskeifan á Hólum:
Nemendur þreyta tvö
próf á skeifudaginn
Skeifudagur Hólanema verður haldinn á morgun, laugardag, þar sem
afhent verður Morgunblaðsskeifan fyrir besta árangur nemanda í hesta-
mennsku og hrossarækt. Þreyta nemendur tvö próf á skeifudaginn sem
er lokaáfangi i hestamennsku- og hrossaræktarbraut.
kannski aldrei betur í ljós en í fæð-
ingunni. Nær uppruna sínum og
innsta eðli verður hún aldrei. Sá
fundur hefur afgerandi áhrif á mót-
un hennar sem móður og sem mann-
eskju. Karlmaðurinn fer ekki heldur
varhluta af þeirri reynslu og hefur
mannfræðingurinn Shila Kitzinger
bent á að fæðing barns sé ekki bara
líffræðilegur atburður í líkama kon-
unnar heldur sé fæðingin þroska-
ferli beggja foreldranna. Ennfremur
beinast augu manna að þeim áhrif-
um sem barnið verður fyrir í og
strax eftir fæðinguna og rætt er
um tímabil óafturkræfrar mótunar
er geti haft áhrif á hegðunarmynst-
ur á fullorðinsárum.
En í hvaða aðstöðu eru foreldr-
arnir til þess að takast á við þetta
þroskaverkefni? Og hvers á barnið
að gjalda?
Eru þær aðstæður sem við búum
þeim þær bestu og hvetjandi til að
aðlagast nýju hlutverki? Eða- eru
okkar aðgerðir kannski hamlandi?
Við sem alltaf erum tilbúin til þess
að gera allt fyrir alla. Taka burtu
óþægindin og erfiðleikana, koma
sem frelsandi englar og bjarga mál-
unum. Hefur bjargvættarnevrósa
fagfólksins gengið of langt?
Erum við farin _að hindra í stað
þess að stuðla að? Óttumst við þann
óbeislaða lífskraft sem er tilbúinn
til þess að bijótast fram og strýa
ferðinni í fæðingunni. Er það okkur
e.t.v. nauðsynlegt að halda honum
niðri, kæfa hann í fæðingu svo við
getum haft stjórn á aðstæðum.
Verða e.t.v. þær konur sem kynnast
þessum óbeislaða lífskrafti sem býr
innra með þeim of liættulegar á
eftir? Því hefur verið haldið fram
að þær verði aldrei samar á ný, þær
verði sterkari og ekki verði aftur
af þeim haldið. Þær verði ekki auð-
veldlega bundnar aftur á bás frekar
en kýrin Von forðum sem hafði brot-
ist til frelsis þegar átti að leiða hana
til slátrunar. Það vissi bóndinn, eig;
andi kýrinnar, og lét fella hana að
loknu þessu afreki hennar. Hún
hafði skynjað það sem í henni bjó,
þann kraft sem gaf henni líf, frj álst
Ííf á eigin forsendum. Bóndinn vissi
að hún yrði aldrei söm á ný og því
skyldi hún lífið láta.
Þær nýjustu áherslur sem í dag
eru ríkjandi í fæðingarþjónustu
stuðla að kynnum konunnar við
þennan frumkraft sem í henni býr.
Lögð er áhersla á að skapa þær
aðstæður að konan finni sig örugga
í því umhverfi sem hún er í og að
hún sé studd á þann hátt og hún
verði næmarí á hvað hún geti sjálf
gert til þess að létta sér fæðinguna.
Einnig er leitast við að hafa fund
foreldranna, sérstaklega móðurinn-
ar með nýfæddu barninu, sem mest
ótruflaðan alveg frá fyrstu mínútu.
Kýrin Von átti samúð þjóðarinn-
ar, það var sá sem við hana átti að
tjónka sem hvað upp dauðadóminn
því honum var ógnað. Söm voru
örlög valkyijunnar Brynhildar er
hún óhlýðnaðist föðurvaldinu, Óðni.
Dæmd til svefns, umlukin eldi þar
til staðgengill karlveldisins, Sigurð-
ur Fáfnisbani, vekti hana til lífs á
ný. Óhlýðnar konur eru ekkert fyrir
þennan heim. Fyrir þær er ekkert
rými. Að þeim skal þrengt úr öllum
áttum, ekki síst af hlýðnum konum.
Því sá sem skilur er sá sem þekkir
og sá sem hefur reynt. Og ennþá
eru það karlmenn sem eru í meiri-
hluta þegar um er að ræða líf útfrá
eigin forsendum.
Ekkert samráð við starfsfólk
Þessi síðasta aðför að Fæðingar-
heimili Reykjavíkur er aðferðar-
fræðilega sú grófasta sem um getur
og þó víðar væri leitað. Á meðan
markvisst er unnið að því að flytja
fæðingarnar yfir á Fæðingardeild
Landspítalans er fólki sagt beint út
og blygðunarlaust að ekki sé verið
að leggja Fæðingarheimlið niður
sem fæðingarstofnun. Þau orð eru
bókfærð í Alþingistíðindum frá 22.
desember 1991 eftir heilbigðis- og
tryggingamálaráðherra Sighvati
Björgvinssyni. Fleiri hafa látið svip-
aðar fullyrðingar falla á meðan hið
gagnstæða blasti við.
Áðurnefndur ráðherra sagði síðan
í fréttatíma ríkisútvarpsins laugar-
daginn 4. apríl að þjónustusérstaða
Fæðingarheimilisins væri tryggð því
búið væri að koma upp nákvæmlega
sömu aðstöðu við Kvennadeild
Landspítalans og konum byðist á
Fæðingarheimilinu.
Ætla þessi óheiðarlegu vinnu-
brögð engan endi að taka? Heldur
ráðherrann að hann sé staddur í
ævintýrinu um nýju fötin keisarans
í hlutverki klæðskerans og man
hann ekki örlög þeirra félaga er
reyndu að telja öllum trú um það
sem ekki var. Kóngurinn var allsber
og það er Fæðingardeild Landspítal-
ans líka hvað þjónustusérstöðu Fæð-
ingarheimilisins varðar. Aðstaðan
er ekki fyrir hendi þrátt fyrir allt
tal um eina fæðingarstofu til viðbót-
ar í anda Fæðingarheimilisins. Þjón-
ustusérstaða Fæðingarheimilisins er
meðal annars lítil heimilisleg eining
með samfellu í þjónustunni, fæðing-
ar og sængurlega í einni einingu,
en það er undirstaða þess að fagleg
markmið að öðru leyti náist. Þessi
sérstaða verður ekki tryggð með því
að stækka stærstu fæðingardeild á
Islandi og kljúfa fæðingar og sæng-
urlegu í tvær einingar eins og nú
er gert ráð fyrir. Svo einfalt er það.
Allt þetta er gert með því mark-
miði að spara. Ekki hefur verið sýnt
fram á hvað það kostaði að bæta
u.þ.b. 500 fæðingum við Fæðingar-
deildina né hvað það hefði kostað
að bæta 500 fæðingum við Fæðing-
arheimilið. Við það hefði náðst að
skapa tvær einingar af hóflegri
stærð sem ef til vill væri jafn hag-
kvæmt og að slá öllu saman í eina.
Við það kæmumst við hjá því að
fara þetta heljarstökk til fortíðar
sem lokun Fæðingarheimilisins í
núverandi mynd er.
Viðhorf og áherslur eru að breyt-
ast. Þessi aukni áhugi á náttúruleg-
um fæðingum er einungis einn liður
í þeirri þróun sem nú er með hávaða-
látum að ryðja sér til rúms á öllum
sviðum, en þar er mannlegi þáttur-
inn settur í forgang. Það er því í
algerri mótsögn við þessa hugar-
farsbreytingu nútímans að leggja
Fæðingarheimilið niður. Einmitt
núna er bráðnauðsynlegt að staður
eins og Fæðingarheimilið fái að
dafna, því tilvera þess tryggir og
knýr á um að þróunin taki á sig þá
mynd, sem æskileg er í fæðingar-
þjónustu framtíðarinnar.
Sjónarmið Fæðingarheimilisins
hafa ekki verið höfð til hliðsjónar
við þessa ákvarðanatöku. Ekkert
samráð var haft við starfsfólk þess.
Menn hafa þó víða heyrst túlka sjón-
armið Fæðingarheimilisins en ekki
uplýst annað en eigin vanþekkingu
á málefninu.
Þessar aðferðir sem við hafa ver-
ið hafðar eru u.þ.b. að vekja drek-
ann í þjóðinni, en það er betri vit-
und þeirra sem hingað til hafa látið
allt yfir sig ganga. Það er mitt mat
að þjóðin hafi aldrei ætlað sér að
borga Perlu- og Ráðhússævintýrið
með heilbrigðis- og menntakerfinu.
Mér finnst að fólk sé allstaðar til-
búið til þess að spara, en það eru
þessar aðferðir sem verið er að
mótmæla. Jafn viðamiklar aðgerðir
og nú eru á döfinni er ekki hægt
að framkvæma eingöngu með bein-
um tilskipunum untanfrá. Aðgerð-
irnar þarf að þróa inannfrá á mark-
vissan hátt svo að gæði haldist en
hagræðing náist. Það þarf að hafa
samráð við fleiri en skipstjóra og
stýrimenn stofnana, það þarf að
virkja alla áhöfnina og það á annan
hátt en bara til að hlýða blint.
Höfundur er yfírljósmóðir
Fæðingarheimilis Reykja víkur.
Dagskráin hefst klukkan 9.00 með
B-prófi sem er hlýðniverkefni B og
fer það fram í reiðskálarmm. Eftir
hádegið hefst dagskrá kl. 13.00 með
fánareið nemenda frá Hólakirkju að
hesthúsum Hólaskóla. Að henni lok-
inni fer fram keppni í fjórgangi á
hringvellinum og verða úrslit strax
að lokinni forkeppni. Því næst flyst
dagskráin aftur inn í reiðskálann þar
sem þrír efstu úr B-prófinu keppa
til úrslita. Þá verða nemendur með
Gaukshreiðrið er í leikgerð Dale
Wassemann og var sýnt á Broadway
í New York á sínum tíma, að sögn
Maríu Sigurðardóttur leikstjóra
verksins. Það er unnið upp úr skáld-
sögu eftir Ken Casey og samnefnd
kvikmynd með Jack Nicolson í aðal-
hlutverki hlaut á sínum tíma fimm
óskarsvprðlaun.
María sagði að alls væru 35
manns í hópnum, þar af 19 leikar-
ar. Leikmyndina hafði hópurinn með
sér að norðan. Hún sagði að sýn-
sýningu í fimi og munsturreið og að
síðustu verða verðlaun afhent. Auk
Morgunblaðsskeifunnar verða afhent
ásetuverðlaun Félags tamninga-
manna og Eiðfaxabikarinn fyrir
bestu hirðingu.
Prófin sem nemendur þreyta á
skeifudaginn gilda 2/5 af heildarein-
kunn en prófunum er skipt í þrjá
hluta það er reiðmennska, frumt-
amning og járningar og er urn að
ræða bæði bóklegt og verklegt próf.
ingarnar legðust mjög vel í hóp-
inn. Aðsóknin virtist ætla að verða
mjög góð, hringt væri látlaust í
leikhúsið og spurt eftir miðum. í
gær var því sern næst uppselt á
fyrstu tvær sýningarnar. Aðal-
hlutverkið, hlutverk Mac Murp-
hys, leikur Jón Friðrik Benónys-
son og Guðný Þorgeirsdóttir leik-
ur hjúkrunarkonuna.
Þetta verða síðustu sýningar
Leikfélags Húsavíkur á Gauks-
hreiðrinu.
Leikfélag Húsavíkur:
Mikil aðsókn að Gauks-
hreiðrinu í Bæjarbíói
LEIKFÉLAG Húsavíkur frumsýndi leikritið Gaukshreiðrið í Bæjarbíói
í Hafnarfirði í gærkvöldi en leikritið verður auk þess sýnt í kvöld og
á morgun. Leikfélagið hefur sýnt leikritið fyrir fullu húsi 25 sinnum
í Húsavík og Þingeyingafélagið í Reykjavík átti frumkvæði að því að
leikhópurinn sýnir nú verkið sunnan heiða.
TOYOTA
GANG-
BRETTI OG
STRÍPUR
■ Vönduö gangbretti úr áli á mjög góöu veröi
' Toyota "strípur" á Double Cab, Xtra Cab
og 4 Runner. Ýmsar geröir, margir litir.
Úrvalsvara - aðaleinkenni Toyota aukahluta.
Nýttu þér ráðgjöf okkar og sendingarþjónustu
® TOYOTA
Aukahlutir
NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI44144