Morgunblaðið - 10.04.1992, Page 14
—
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
SÆTRE FYRIR SÆLKERANN
Hvenær sem er...
hvar sem er...
með hverju sem er...
nýtur FROKOST sín
til fullnustu.
• •
Onnur kveðja til
Helga Hálfdanarsonar
eftirJón Þórarinsson
Ég brást við hugvekju þinni og
áskorun í Morgunblaðinu 2. þ.m.
um lag við barnavísur Guðjóns
Guðjónssoanr Það er leikur að læra
með líkum hætti og Atli _ Heimir
Sveinsson (í Mbl. 5. apríl). Ég hrip-
aði undir eins niður svolítinn lag-
stúf samkvæmt forskrift þinni. Síð-
an hef ég velt honum dálítið fyrir
mér, því að margs er jafnan að
gæta þegar lag er sett við ljóð, en
hér held ég hann sé kominn í endan-
legri gerð. Hann er í sexskiptum
takti, og að minnsta kosti að því
leyti ólíkur lagi Atla. En alveg eins
og hans lagi má breyta úr tvískipt-
um takti í þrískiptan (eða sexskipt-
an) mætti breyta þessu í íjórskiptan
takt (eða tvískiptan).
Vitanlega er allt rétt sem þú seg-
ir um ósamræmi milli bragarháttar
á vísum Guðjóns Guðjónssonar og
þess erlenda lags sem sungið hefur
verið við þær. Þess háttar misræmi
er því miður alltof algengt, einkum
þega erlend lög eru sett við íslensk
Ijóð, og eru mörg dæmi um það
miklu átakanlegri en þetta. Hvað
t.d. um Vísur íslendinga eftir Jónas
Hallgrímsson, þegar þær eru
sungnar við lagið eftir Weyse? Eða
Fjallið Skjaidbreiður með laginu
eftir Stuntz? í báðurn tilvikum
stangast áherslur lags og bragar
illilega, og iðulega eru stuðlar og
höfuðstafir rændir réttmætum
áhersluþunga sínum. Við virðunrst
vera ótrúlega umburðarlyndir, Is-
lendingar, í þessu efni. Eða er brag-
eyrað orðið svona sljótt?
Þegar ég fór að huga að lagi við
vísur Guðjóns Guðjónssonar rakst
ég þegar í stað á svolítinn hnökra,
sem gæti bent til þess að Guðjón
hefði þrátt fyrir allt haft erlenda
lagið í huga þega hann orti vísurn-
ar. Ef sett er við þær „rétt gert“
lag samkvæmt forskrift þinni kem-
ur þung aðaláhersla þegar í upp-
hafi á merkingarlaust smáorð: Það
er leikur að læra. Kannski er það
þetta sem hefur sætt menn við út-
lenda lagið, því að þar falla áhersl-
ur á þau orð sem merkinguna bera.
Þú sýnir með dæmi, hvernig unnt
hefði verið að laga vísurnar að er-
lenda laginu með breyttri orðaröð.
Á sama hátt hefði mátt „leiðrétta"
það sem mér finnst hér miður fara:
Borgarafundur í Háaleitishverfi
FÉLAG sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi heldur borgarafund um
málefni Háaleitishverfis á morgun laugardag 11. apríl og hefst hann
klukkan 14 í SEM-salnum að Sléttuvegi 1-3, en það er nýtt hús við
götu, sem er framhald af suðurenda Háaleitisbrautar. Fundarefnið
er heilsugæslu-, félags- og skipulagsmál í Háaleitishverfi.
ur Samtaka aldraðra, Víðir Þor-
steinsson formaður SEM, Samtaka
endurhæfðra mænuskaddaðra bg
Ásgeir Hallsson formaður Sóknar-
nefndar Grensássóknar. Þá koma
til fundarins borgarfulltrúar og mun
Fundurinn hefst með ávarpi for-
manns félagsins Þórarins Sveins-
sonar, en síðan flytja ávörp: Gyða
Jóhannsdóttir formaður samstarfs-
nefndar félaga aldraðra í Reykja-
vík, Magnús H. Magnússon formað-
lÚStfesffi vegna bragðsins. f|L yjjNGÁI SUMAR N0J 'DAGS SAMEINAOA /SlA
p
Guðrún Zoéga ræða um félagsmál
með tilliti til aldraðra og öryrkja,
Katrín Fjeldsted ræðir stöðu heilsu-
gæslu- og heilbrigðismála í hverfinu
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ræð-
ir um skipulagsmál með tilliti til
aldursskiptingar í hverfinu.
Að umræðunum loknum er gert
ráð fyrir almennum umræðum og
geta fundarmenn þá borið fram
fyrirspurnir til borgarfulltrúanna
og borgarstjóra, Markúsar Arnar
Antonssonar, sem mun flytja loka-
orð á fundinum og draga saman
það sem efst er á baugi.
/
ORAfi
Þú opnar
dós og gæðin
koma í Ijós!
LEGUR
Nachi legurer
japönskgæöavara
á sérsaklega hagstæóu veröi.
Allaralgengustu tegundir
fáanlegará lager.
Sérpantanir eftir þörfum.
J@Úty)KDR0
Mldsodty
HOf ÐABAKKA 9 .112 REYKJAVÍK SÍMI91-67000000 665656