Morgunblaðið - 10.04.1992, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Gamla þjóðleiðín milli
Hafna og Grindavíkur
eftir Ólaf
Sigurgeirsson
Þegar gamla þjóðleiðin milli
Hafna og Grindavíkur er farin úr
Höfnum, liggur leiðin frá Kalmans-
tjöm um Hafnarsand fyrir norðan
Presthól og um Kinn þar sem far-
ið er ofan í sigdalinn upp af stóru
Sandvík, þaðan hjá Haugum og
yfir Haugsvörðugjá og síðan með
rótum Sandfellshæðar og fylgir
gatan þar hraunjaðri Eldvarpa-
hrauns þar til kemur á móts við
Rauðhól, en þar er farið yfir hraun-
haft að hólnum og síðan hjá Eld-
vörpum og yfir Hrafnagjá og það-
an að Húsatóftum í Staðarhverfi.
Öll þessi leið er vel vörðuð og
ber þess merki að þar hefur verið
íjölfarið um aldir, víða sést hvar
umferðin hefir markað alldjúpar
götur í hraunið og lausagijót hefír
verið tínt úr götunni og lagt til
hliðar.
Þetta var aðalleið vermanna af
Suðurlandi sem sóttu sjó frá Höfn-
um og af Romshvalsnesi, og þar
hafa skreiðarlestir verið á ferð.
Eins hafa Grindvíkingar lagt leið
sína þar um á þeim tíma sem þeir
þurftu að sækja verslun til Bás-
enda, þótt þeir hafi einnig farið
sjóleiðina, en á sautjándu og
átjándu öld urðu þeir að sæta því
í nokkra áratugi að sækja verslun
þangað, sökum þess að kaupmenn
treystu sér ekki til að sigla til
Grindavíkur vegna skipskaða sem
urðu þar fyrri part sautjándu ald-
ar. Þá hefur Sigvaldi Sæmundsson
póstur verið þarna á ferð, á leið
sinni milli Básenda og Grindavík-
ur, en hann var fyrsti póstur sem
ráðinn var með skriflegum samn-
ingi til póstferða árið 1785.
Hafnir voru fyrr á öldum blóm-
legur útgerðarstaður og var þar
stundaður umfangsmikill búskapur
bæði til lands og lagar. Vermenn
a
I
«
BIACKSDEOKER
PR0FESSI0NAL
Slípirokkur
P 55 -12 • 900 Wött • 125 mm skífa
• 10.000 snúningar á mínútu
------------------ Sölustaöir um land allt
Verö 11.686 kr.
_ , . , ___ -sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 ■ SlMI 6272 22
P 57- 2 • 1800 Wött • 180 mm skífa
• 8000 snúningar á mínútu
verð: 16.356 kr
fjölmenntu þangað á vertíðum og
eru sagnir til um stórfellda útgerð
Ketils Ketilssonar í Kotvogi, en
hann gerði út þtjú skip, á árunum
1870-1880, og voru þá um 50 sjó-
menn á hans vegum auk 22 ann-
arra heimilismanna. Ketill var
meðal auðugustu manna landsins
á sínum tíma, hann byggði stein-
kirkju þá á Hvalsnesi sem enn
stendur, en Ketill átti meðal ann-
ars alla Hvalsnestorfuna og Járn-
gerðarstaði í Grindavík.
Landkostum hafa á síðari öldum
hrakað mjög í Höfnum vegna sand-
ágangs og margir bæir farið í eyði
af þeim sökum, þar á meðal Haug-
sendar sem snemma fóru í eyði,
en Haugsendar voru á milli Kirkju-
vogs og Merkiness, voru tún þar
mikil, vegleg húsaskipan og mynd-
arlega búið. Sagnir um mannlíf þar
lifir í gömlum húsgangi:
Á Haugsendum er húsavist
sem höldar iofa.
Þar hefur margur glaður gist,
og gleymt að sofa.
Ég hefi stundum heyrt þessa fornu
þjóðleið nefnda Prestastíg en
hvergi hefi ég fundið það nafn í
þeim bókum sem ég hefi séð. Geir
Bachmann lýsir þeim þjóðleiðum
sem frá Grindavík liggja, í sóknar-
lýsingu frá 1840. Hann nefnir með
nafni fyrstu þrjá aðalvegi yfir
hraunin en segir svo: „Sá fjórði
og síðasti vegur sem úr sókninni
liggur og alþjóðarvegur má kall-
ast, liggur upp frá Húsatóttum í
útnorður ofan í Hafnirnar og er
hann sá eini sem héðan farinn
verður þangað.“ Þetta er eini veg-
urinn frá Grindavík sem Geir nefn-
ir ekki með nafni.
Ferðafélag Islands fyrirhugar
gönguferð um þessa fornu þjóðleið
frá Höfnum til Grindavíkur sunnu-
daginn 12. apríl og hefst gangan
við Kalmanstjörn og lýkur hjá
Húsatóftum í Staðarhverfi. Gang-
an tekur um 5 klukkustundir og
er þá rólega farið.
Höfundur er verslunurmaður.
Tónljóðmyndir í Perlunni
OPNUÐ verður sýning sunnudaginn 12. apríl á myndum Gríms
Marínós Steindórssonar í Perlunni. Myndirnar eru unnar úr
málmum, steinum og pappír. Á sýningunni verða einnig ljóð
eftir Hrafn Andrés Harðarson og flutt tónlist eftir Gunnar Reyni
Sveinsson en þessir þrír hafa unnið saman undanfarna mánuði
og kveikt hugmyndir hver hjá öðrum.
Þá kemur út bók í tilefni af Hrafns Andrésar og nótum Gunn-
þessari sýningu með ljósmyndum ars Reynis Sveinssonar og verður
af verkum Gríms Marínós, Ijóðum hún til sölu í Perlunni.
Bókin er prentuð í Prentstofu
G. Ben. í Kópavogi. Ljósmyndir
tók Ragnar Th. Sigurðsson.
Hönnuður bókar er Birgir
Andrésson.
Sýningin hefst kl. 17.00 sunnu-
daginn 12. apríl og mun standa
til 18. maí. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir að njóta
tóna, mynda og ljóða.
Afmæli:
Jón Þ. Sigurðs-
son 80 ára
Hann afi minn, Jón Þ. Sigurðs-
son, er 80 ára í dag. Hann er orð-
inn svo gamall að hann er orðinn
langalangaafi og á glás af afkom-
endum. Samt var hann hjólandi
út um allt hverfi með lappirnar á
stýri þegar hann kom til Noregs í
fyrra.
Hann vinnur á fínasta veitinga-
staðnum í bænum sem móttöku-
stjóri og útkastari upp á hvern ein-
asta dag. Það er synd að segja að
hann afi sé ekki með á nótunum
þegar viðkemur fréttum og eru
stjórnmálin ofarlega á baugi.
Skemmtilegustu sendingamar sem
við fáum frá Islandi eru segul-
bandsspólur frá „Studíó Elló“, sem
eru troðfullar af allskonar heima-
tilbúnum sögum, þjóðlegri tónlist,
upptökum úr fréttatímum og
ómildum túlkunum afa á stjórn-
málaástandinu.
Hann afi hugsar um bílinn sinn
eins og sautján ára unglingur ný
komin með bílpróf. Jeppinn er bú-
inn ýmsum græjum og útbúnaði
' sem afi hefur búið til sjálfur. Stór-
merkilegur jeppi!
Ég óska þér innilega til ham-
ingju með afmælið, elsku „afi í
banka“. Sjáumst í sumar.
Þóra litla Tómasdóttir
í Noregi.
t