Morgunblaðið - 10.04.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
21
Atak fyrir Afríku
27 millj. horfast í augn við huiigurdauða
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar efnir til söfnunarátaks til
styrktar hungruðum í Afríku dagana 10.-30. apríl. Ágóðinn
verður framlag Islendinga til Norræns átaks en ætlunin er að
senda skip hlaðið matvælum til Afríku. Fólk er sérstaklega
minnt á gíróseðla Hjálparstofnunarinnar í öllum bönkum á
meðan á söfnuninni stendur en ekki verður sérstaklega gengið
í hús. Stefnt er að því að safna 2-3 milljónum króna og hefur
verið sótt um álíka hátt mótframlag frá ríkisstjórninni.
Frá Bórana í Suður-Eþíópíu. 6 af 50 millj. íbúum þarfnast hjálpar.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Forráðamenn kirkjuhjálpar
stofnana á Norðurlöndunum
segja að ástandið í Afríku sé það
alvarlegt að grípa verði til að-
gerða strax. Þurrkar og upp-
skerubrestur valdi því að um það
bil 27 milljónir manna í nokkrum
Afríkulöndum horfist í augu við
hungurdauða. Sé það einkum í
Austur- og Suðaustur Afríku.
Auk uppskerubrests hafa inn-
anlandsátök, borgarastríð og
gífurlegur fjöldi flóttamanna
gert ástandið enn verra í sumum
löndum, sérstaklega Sómalíu,
Djibúti og Eþíópíu. Um það bil
ein milljón manna hefur flúið
heimalönd sín og yfir sjö milljón-
ir eru á flótta í eigin landi sam-
kvæmt upplýsingum frá Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna. Lönd sem um árabil hafa
getað flutt út kornvörur, svo sem
Kenýa, Malawi og Zimbawe eru
nú hjálpar þurfi. Kornhlöður
þeirra eru tómar.
Reiknað er með að skip
Norðurlandanna leggi úr höfn
með 3-400 milljóna króna farm
strax eftir páska. Þess má geta
að lútherska heimssambandið
undirbýr einnig aðgerðir með
sérstökum stuðningi Evrópu-
landa.
Ný útgáfa af Lilju,
Eysteins munks
VAKA-HELGAFELL hefur sent
frá sér nýja bók, Lilju eftir Ey-
stein munk í aðgengilegri út-
gáfu fyrir almenning.
„Lilja er frægasta helgikvæði
sem ort hefur verið á íslenska
tungu. Hrifning manna á kvæðinu
var slík á sínum tíma að svo var
sagt að „allir vildu Lilju kveðið
hafa.“ Kvæðinu fylgja formáli og
ítarlegar skýringar, en Pétur Már
Ólafsson bókmenntafræðingur
hafði umsjón með útgáfunni. Lilja
er þriðja verkið í nýjum flokki lítilla
gjafabóka sem Vaka-Helgafell hóf
útgáfu á í tilefni af tiu ára afmæli
forlagsins. Hinar tvær eru í skugga
lárviðar, ljóð eftir Hóras, höfuð-
skáld Rómveija, og Úr sagna-
brunni, þjóðsögur, sagnir og ævin-
týri Ásdísar Ólafsdóttur.
Lilja er helgikvæði frá miðri fjór-
tándu öld, byggt upp sem drápa í
hundrað erindum. Tungutak kvæð-
isins markar tímamót í íslenskum
kveðskap því að höfundur hennar
hafnaði að yfirlögðu ráði hinu forna
kenningastagli og tók upp nýtt og
auðskiljanlegt mál. Efni Lilju var
einnig nýlunda. Hún íjallar um
sjálft drama veraldarsögunnar frá
sköpuninni til dómsins. Meginefni
hennar er barátta góðs og ills,
Krists og hins færaglögga fjanda,
og er skáldið sjálft í orrustunni
miðri því að hún stendur um sálu
þess.“
Lilja er 152 bls. að stærð, prent-
uð og bundin í Prentsmiðjunni Odda
hf.
HREINLÆTI
= ÖRYGGI
Einföld, þœgileg, hnéstýrð
blöndunartœki.
Þar sem ýtrasta hreinlœtis
er gœtt.
Hagstœtt verð.
^ VATNSVIRKINN HF.
SSSaRMULA 21 SIMAR 686455 6B5966
Söngvarinn Bobby Kimball
*
skemmtir á Hótel Islandi
BOBBY Kimball fyrrum söngvari bandarísku hljómsveitarinnar
TOTO er væntanlegur hingað til lands í dag og mun skemmta á
Hótel Islandi í kvöld og annað kvöld. Bobby er einn af stofnendum
TOTO og söng hann með sveitinni árin 1976 til 1984 þegar TOTO
gerði garðinn frægan með lögum á borð við Rosanna, Africa og I
won't hold you back.
Þekktasta plata TOTO meðan ársins.
Bobby var enn með sveitinni var Eftir að Bobby skildi við TOTO
TOTO IV sem kom út 1984. Fyrir 1984 hefur hann unnið víða á eigin
hana hlaut TOTO sex Grammyverð- vegum og nú er í smíðum ný plata
laun, meðal annars var platan kosin hjá honum þar sem hann syngur
plata ársins Bandaríkjunum og lag- eigin lög.
ið Rosanne á henni var kosið lag
Bobby Kimball fyrrum söngvari
TOTO skemmtir á Hótel íslandi.
RSherwood
Hljómflutningssamstæðan
sem sló í gegn í Ameríku
THVALIN..
Sherwood hljómtækin hafa svo sannarlega gert garðinn
frægan í henni Ameríku, frábærir dómar og gríðarleg sala á
þeim segir meira en mörg orð. Góðar viðtökur hér á íslandi
hafa sýnt okkur að hægt er að mæla með MC 1200
hljómflutningssamstæðunni.
ÚTVARPSTÆKIÐ
Grafískur skjár, 30 stöðva
minni, sjálfvirkur leitari og
fínstilling.
MAGNARINN
Mjög öflugur, 2x100 músik
Wött. 5 banda grafískur tón-
jafnari (Équalizer). Mótordrif-
inn styrkstillir. Aukainngangur
fyrir videó og sjónvarp.
TVÖFALT SEGULBAND
Frábær hljómgæði (Dolby B).
Tvöfaldur upptökuhraði. Sjálf-
virk spilun á spólu beggja
vegna. (Auto Rev.) Sjálfvirk
upptökustilling. Sjálfvirk
stöðvun á.enda.
GEISLASPILARINN
Fullkominn lagaleitari. 20 laga
minni. Grafískur skjár. Hægt
er að láta sama lagið eða lögin
hljóma endalaust. Tekur bæði
5 og 3ja tommu diska.
HÁTALARARNIR
Þriggja-átta lokaðir hátatarar
með bassa „Woofer“.
FJARSTÝRINGIN
Mjög fullkomin fjarstýring sem
gefur þér möguleika á að sitja
í rólegheitum í hæfilegri fjar-
lægðog stýraöllum aðgerðum.
PLÖTUSPILARINN
Hálfsjálfvirkur, tveggja hraða
45 og 33 snún. Verð kr. 7.890,-
Heimilistæki hf
OG
SÆTUNl 8 SIMI691515« KRINGLUNNI SÍMI691520
Traust þjónusta í 30 ár.
V/S4
E