Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Rcuter
Olga Suvic, 22ja ára göinul stúlka í Sarajevo í Bosníu, lét lífið í fyrradag, féll fyrir serbneskri leyni-
skyttu. Fór útförin fram í gær og það er faðir hennar, sem hér lætur bugast.
Ottast allsheijar-
styrjöld í Bosníu
Sar^jevo. Reuter.
HART var barist í Bosníu-Herzegovínu í gær og einkum í héruðun-
um, sem liggja að Serbíu. Hafa leiðtogar lýðveldisins gripið til neyð-
arráðstafana til að reyna að koma í veg fyrir allsheijarstyijöld í
landinu en þar eigast við Serbar annars vegar og Króatar og múslim-
ár hins vegar.
Tsongas al-
veg hættur
PAUL Tsongas, fyrrverandi
öldungadeildarþingmaður,
sagði í gær að hann myndi
ekki gefa kost á sér aftur í
forkosningum demókrata
vegna forsetakosninganna í
Bandaríkjunum í nóvember.
Tsongas hætti kosningabar-
áttu sinni fyrir þremur vikum
vegna sjóðþurrðar. Samt varð
hann annar atkvæðamesti
frambjóðandinn í forkosning-
unum í New York á þriðjudag.
Rabin veitist
að Shamir
Kosningabaráttan í ísrael
hófst formlega í gær og Yitz-
hak Rabin, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, gagnrýndi
Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra harðlega, sakaði liann
um að hafa hindrað árangur í
friðarviðræðum við araba.
Hann kvaðst betur í stakk
búinn að semja um frið við
Palestínumenn og ætla að
stöðva frekara landnám gyð-
inga á hemumdu svæðunum.
Nýtt tilboð
frá Líbýu
LÍBÝUSTJÓRN sendi Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna,
þau skiiaboð á miðvikudag að
hún væri reiðubúin að afhenda
„hlutlausu ríki“ mennina tvo,
sem grunaðir eru um að hafa
sprengt þotu Pan Am-flugfé-
lagsins yfir Lockerbie árið
1988. Er þetta tilboð talið
keimlíkt öðru tilboði Líbýu-
manna í síðasta mánuði sem
vestræn ríki höfnuðu. Að sögn
stjórnarerindreka hafa líbýsk
yfirvöld lagt til að mennirnir
verði afhentir í Túnis í viður-
vist fulltrúa Arababandalags-
ins og Sameinuðu þjóðanna.
Matarskortur
í S-Afríku
Hjálparstofnunin Operation
Hunger skýrði á miðvikudag
frá því að um tvær milljónir
Suður-Afríkubúa nytu nú
neyðarmatvælaaðstoðar á veg-
um stofnunarinnar og að nokk-
ur böm hefðu þegar dáið úr
hungri. Miklir þurrkar hafa
heijað á suðurhluta Afríku í
vetur og uppskera brugðist á
flestum stöðum. Mpho Mashin-
ini, aðstoðarframkvæmdastjóri
hjálparstofnunarinnar, sagði
fimm þúsund nýjar umsóknir
um neyðaraðstoð berast í
hverri viku og gerði stofnunin
ráð fyrir að þurfa að fæða 2,25
milljónir manna í júní.
Norskur
„tannbanki“
NORSKIR vísindamenn við
háskólann í Bergen fara þess
nú á leit við börn um allan
heim að þau gefi þeim barna-
tennur sínar þegar þær losna.
Hafa Norðmennirnir sett á lag-
girnar sérstakan „tannbanka"
sem notaður er við mengunar-
rannsóknir. Þegar hafa tíu
þúsund tennur verið lagðar inn
í bankann en vísindamennirnir
mylja þær og athuga síðan
mun á magni ýmissa efna, s.s.
blýi, kopar og zinki, eftir
heimshlutum.
Sprengjunum rigndi í gær yfir
Zvornik, bæ á bökkum Drinu, sem
skilur Bosníu og Serbíu, en múslim-
ar í bænum neituðu lengi vel að
gefast upp þótt þeir væru umkringd-
ir sveitum Serba. Komst hann þó
Lima. Reuter.
ALBERTO Fujimori, forseti Per-
ús, sagði í gær, að almenningur
i landinu væri sammála þeirri
ákvörðun hans að Ieysa upp þing-
ið þar sem ríkt hefði „einræði
hinna spilltu og duglausu". Sagði
hann þetta á fundi með fulltrúum
útflutningsiðnaðarins í landinu
en skömmu síðar óku skæruliðar
Skínandi stígs stætisvagni,
hlöðnum sprengiefni, inn í lög-
reglustöð í Lima og sprengdu
hann þar. Biðu þrír lögreglu-
menn bana og 22 menn aðrir slös-
uðust.
„Fólk kaus mig til að gera Perú
að landi þar sem unnt er að bera
virðingu fyrir yfirvöldunum, ekki
að landi þar sem fólk á allt sitt
undir spilltum dómurum, spilltum
stjórnmálamönnum, mútum og
glæpaverkum. Fólkið vill ekki ein-
ræði, allra síst einræði hinna spilltu
og duglausu," sagði Fujimori og
vitnaði til skoðanakannana, sem
sýna, að allt að 85% landsmanna
eru honum sammála.
Það var sl. sunnudag, sem Fuji-
mori leysti upp þingið og lét hand-
taka nokkra stjórnmálamenn vegna
þess, að þingið og dómskerfið í
landinu hefðu komið í veg fyrir ein-
hvern árangur af baráttunni gegn
ejturlyfjum og skæruliðum maóis.tæ
að lokum í hendur þeim síðarnefndu
og var það haft eftir flóttafólki, að
margir hefur fallið. Hafa átökin í
Bosníu aukist eftir að Evrópuband-
alagið og Bandaríkin viðurkenndu
sjálfstæði landsins og í gær veitti
hreyfingarinnar Skínandi stígs.
Hefur hann ákveðið að endurskipu-
leggja dómskerfið og reka úr starfi
spillta dómara og stórherða barátt-
una gegn skæruliðum og eiturlyíja-
versluninni.
------♦ ♦ ♦------
Rússar landa
á Grænlandi
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun,
fréttaritara Morgrunblaðsins.
RÚSSNESKIR togarar eru byrj-
aðir að landa þorski í Paamiut
(Frederiksháb) á Grænlandi í
kjölfar grænlensk-rússneska
fiskveiðisamningsins. Það hefur
skapað atvinnu í frystihúsi stað-
arins og Iífgað upp á bæinn, að
sögn grænlenska blaðsins Gren-
landsposten.
Þrír rússneskir sjómenn hafa
beðið um hæli á Grænlandi. Því var
hafnað. Mikið hefur verið um svarta
sölu á rússnesku áfengi og rúss-
neskum sígarettum. Grænlendingar
sem ekki hafa haft reiðufé til að
kaupa smyglvarninginn hafa greitt
með fötum og húsgögnum, sem
Rússarnir vilja gjarna fá í stað pen-
jnga. ........
forsætisráðið sjálfu sér völd til að
stjórna með tilskipunum. Hefur það
vakið nokkrar vonir, að bosníska
innanríkisráðuneytið og yfirmenn
júgóslavneska sambandshersins
hafa komist að samkomulagi um að
afvopna fjandmannaflokkana og
flytja þá burt frá höfuðborginni,
Sarajevo, en þar hefur að minnsta
kosti fallið 31 maður frá því um
helgi.
Cyrus Vance, sérstakur sendi-
maður Sameinuðu þjóðanna í Júgó-
slavíu, sagði í gær, að viðurkenning-
in á sjálfstæði Bosníu hefði gert illt
verra og hann kvað ekki útilokað,
að þar brytist út allsheijarstríð.
Evrópuþingið í Strassborg hvatti í
gær til, að friðargæslulið SÞ yrði
einnig sent til Bosníu en umboð þess
nær nú aðeins til Króatíu. Innanrík-
isráðherra Páfagarðs, Angelo
Sodano kardináli, hefur lýst áhyggj-
um Jóhannesar Páls páfa af ástand-
inu í Bosníu og kemur það meðal
annars fram í bréfi, sem hann hefur
ritað Alija Izetbegovic, forseta Bos-
níu.
Skandia
og Hafnia
fyrirhuga
sanmma
SÆNSKA tryggingafyrirtækið
Skandia Group Försakrings AB
hefur uppi áform um samruna
við danska fyrirtækið Hafnia
Holding A/S og að selja endur-
tryggingastarfsemi sína til
norska fyrirtækisins UNI Store-
brand. Var viljayfirlýsing þessa
efnis undirrituð af forsvars-
mönnum Skandia og Hafnia í
gær.
Skilyrðin fyrir þessum áformum
eru að Skandia bjóðist til að kaupa
öll hlutabréf í Hafnia Holding, eig-
endum hlutabréfa í Hafnia bjóðist
að festa kaup á þeim hlutabréfum
í Skandia sem nú eru í eigu UNI
Storebrand og UNI Storebrand
kaupi loks endurtiyggingastarfsemi
Skandia, að þeirri í Norður-Amer-
íku undanskilinni, gegn því að selja
Skandia-bréf sín.
Stjómir félaganna þriggja eiga
eftir að staðfesta samkomulagið og
er von á frekari fréttum af málinu
í byijun maí, að því er segir í frétt
frá Skandia í Svíþjóð. Þar segir
einnig að lokaniðurstaða þessara
viðskipta verði að Hafnia verði dótt-
urfyrirt'æki að öliu leyti í eigu
Skandia og megnið af Skandia-
bréfum UNI Storebrands dreifíst á
hina tíu þúsund núverandi hluthafa
Hafnia. Yrði Skandia-Hafnia
stærsta tryggingafyrirtæki Norður-
landa ef af samrunanum yrði og
vel í stakk búið að fara í sam-
keppni við evrópsku tryggingaris-
ana í framtíðinni, segir í frétt
Skandia.
------»--♦ ♦----
■ TIRANA - Sali Berisha,
leiðtogi Lýðræðisflokksins í Alba-
níu, var kjörinn forseti landsins á
þingi í gær og er hann jafnframt
fyrsti andkommúnistinn, sem gegn-
ir því embætti. Hann er 47 ára að
aldri og hjartaskurðlæknir að
mennt. Lýðræðisflokkurinn vann
mikinn sigur í þingkosningunum
fyrir skemmstu og á þingi var Beris-
ha kjörinn forseti með'96 atkvæðum
gegpi 35 atkvæðum sósíalista sem
heita svo nú en kommúnistar áður.
Þess má geta, að nýkjörinn forseti
þingsins, Pjeter Arbnori, var í
næstum 30 ár í fangelsum komm-
únista fyrir að reyna að stofna
stjórnarandstöðuflokk. Ramiz Alia,
fyrrum forseti, tók við af stalínist-
anum og einræðisherranum Enver
Hoxha en í síðustu viku sagði hann
af sér embætti til að hlífa sér við
þeirri niðurlægingu að vera í raun
rekinn úr því.
Rcutcr
Gaddafi viijar Arafats
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu (PLO), var í gær
útskrifaður af sjúkrahúsi í Líbýu. Hafði hann slasast lítillega eftir
að Antonov-flugvél hans brotnaði í þijá hluta við nauðlendingu í
Sahara-eyðimörkinni í austurhluta landsins. Líbýsk yfírvöld sögðu
að Arafat væri við góða heilsu en palestínskir embættismenn sögðu
að hann þyrfti að vera áfram í lyfjameðferð. Ráðgert hafði verið að
forysta PLO kæmi saman í Túnisborg í gær en fundinum var fre-
stað þar til Arafat hefði jafnað sig. Myndin var tekin þegar Muamm-
ar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, heimsótti Arafat á sjúkrahúsið.
Perú;
Alberto Fujimori
kveðst njóta stuðn-
ings almenning’s