Morgunblaðið - 10.04.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
23
Frakkland:
Stefnuræðu Ber-
egovoy vel tekið
París. Reuter.
FYRSTU stefnuræðu Pierre Beregovoy, forsætisráðherra Frakk-
lands, var vel tekið í frönskum blöðum í gær. I ræðunni kvaðst
ráðherrann ætla að draga úr atvinnuleýsi og lækka skatta til að
blása lífi í efnahaginn, auk þess sem hann tilkynnti að kjarnorku-
tilraunum Frakka yrði hætt til ársloka að minnsta kosti.
Pierre Beregovoy.
Quotidien de París, sem er
hægrisinnað og yfirleitt fjandsam-
legt sósíalistum, sagði að ræðan
hefði verið „skynsamleg, raunsæ
og rökrétt.“ íhaldsblaðið Le Fig-
aro sagði að aðeins væri hægt að
fagna loforði Beregovoys um að
draga úr atvinnuleysinu, flýta fyr-
ir efnahagsbata og treysta frank-
ann í sessi.
„Pierre Beregovoy tókst vel upp
og gældi við markaðina, fyrirtæk-
in, gamla fólkið, unga fólkið,
verkamenn og Græningja ... en
hann hefur ekki nægan tíma,“
sagði Liberation, sem er vinstri-
sinnað. Forsætisráðherrann hefur
aðeins tæpt ár til að koma stefnu
sinni í framkvæmd því þingkosn-
ingar verða á næsta ári.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Joker
Verð kr.
1.995,-
Stærðir: 22-35
Litir: Hvítur m/bleiku og hvítur m/fjólubláu.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Domus Medica, Toppskórinn, Kringlunni,
Egilsgötu 3, Veltusundi, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 21212 sími 689212
Suður-Afríka:
Winnie Mandela
sökuð um að tengj-
ast morði á lækni
Jóhannesarborg. Reuter.
SUÐUR-afríska lögreglan skýi'ði á miðvikudag frá því að hún væri
að kanna hvort ásakanir þess efnis, að Winnie Mandela hefði átt
aðild að morði á lækni í Soweto árið 1989, ættu við rök að styðjast.
Winnie lýsti því yfir í gegnum lögfræðing sinn á þriðjudag að hún
væri á engan hátt tengd málinu.
Neitun Winnie Mandela, sem er
eiginkona blökkumannaleiðtogans
Nelsons Mandela, kom í kjölfar
greinar í blaðinu Christian Science
Monitor sem hafði það eftir ungum
Sowetobúa, Katiza Chebekulu, að
læknirinn, Abu Baker Asvat, hefði
verið myrtur vegna þess að hann
neitaði að taka til meðferðar ungan
dreng sem misþyrmt hafði verið af
lífvörðum Winníar. Drengurinn,
Stompie Sepei, fannst síðar látinn.
Voru Winnie Mandela, Katiza Che-
bekula og Xoliswa Falati dreginn
fyrir rétt á síðasta ári fyrir að hafa
rænt og misþyrmt Seipei og þremur
öðrum ungmennum. Falati og Mand-
ela voru sakfelld en þau hafa áfrýjað
í málinu og ganga fijáls ferða sinna
gegn tryggingu meðan beðið er eftir
að það verði tekið fyrir að nýju.
Chebekulu flúði áður en réttað var
í málinu og er talið að hann hafist
við í Zambíu. Yfirlífvörður Winnie
Mandela, Jerry Richardson, hefur
verið dæmdur fyrir að myrða Sepei.
í grein Christian Science Monitor
er haft eftir Falati að hún hafi sönn-
unargögn undir höndum tengd
dauða læknisins sem komi sér mjög
illa fyrir Winnie Mandela.
Johan Mostert einn yfirmanna
suður-afrísku lögreglunnar sagði að
ákveðnar ásakanir hefðu komið fram
og að þær persónur sem bæru
ábyrgð á þeim, s.s. Xoliswa Falati,
yrðu spurðar hvort þær væru reiðu-
búnar að standa við þær eða hvort
að þetta væri bara gert til að vekja
athygli.
)ýK&\INÍðURENJ
Kynning
á nýju vor- og sumarlitunum í
cLico-
Kringlunni 8-12
Þórunn Jónsdóttir, förðunarfraððingur, veitir ráðgjöf
um förðun og liti,
í dag, föstudag, frá kl. 12-18 og
á morgun, laugardag, frá kl. 12-16.
Tekið er við tímapöntunum í síma 689033 ef óskað er.
Rjómi
1/21. (heildsöluverð)
Coca Cola 21
Maískom 4803
Maarud skrúfur 70g
Emmess skafis 21
Vínber græn/blá kr. kg
Hamborgarhryggur kr.kg
KAUPSTAÐUR
MIÐVANGI HAFNARFIRÐI
GAiií/Aíl/S
VESTUR I BÆ (JL- HÚSINU)
í MJÓDD