Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
29
Beiðni um gjaldþrotaskipti POB:
Landsbankinn tryggir
rekstur fyrst um sinn
Guðný og
drengirnir
syngjaá
samkomum
UM HELGINA verður á Akur-
eyri og Húsavík hljómsveit sem
kallar sig Guðný og drengirnir.
Hljómsveitina skipa meðlimir
úr Hvítasunnukirkjunni, Hjálp-
ræðishernum og Veginum og hafa
þeir sungið á ýmsum stöðum og
ferðast um með séra Halldóri
Gröndal. í för með þeim að þessu
sinni verður Hafliði Kristinsson,
forstöðumaður Fíladelfíusafnaðar-
ins í Reykjavík.
Hljómsveitin syngur og leikur
sálma í léttum dúr. Samkomur
verða haldnar í Hvítasunnukirkj-
unni við Skarðshlíð í kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20.30 og á sunnu-
dag, 12. apríl, kl. 15.30 og í sam-
komuhúsinu á Húsavík laugar-
dagskvöldið 11 apríl kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
---------------
Karlakórinn Heimir:
Tvennir tón-
leikar haldnir
á laugardag
KARLAKÓRINN Heimir úr
Skagafirði heldur tvenna tón-
leika um helgina, í Hlíðarbæ
og í Ydölum.
Fyrri tónleikarnir verða í Hlíð-
arbæ á morgun, laugardaginn 11.
apríl, og hefjast þeir kl. 15, en
hinir seinrti, í Ýdölum, verða haldn-
ir á laugardagskvöld kl. 21.
Söngstjóri er Stefán R. Gísla-
son, undirleikari Tómas Higger-
son, en einsöngvarar með kórnum
eru Björn Sveinsson, Einar Hall-
dórsson, Pétur Pétursson og Sig-
fús Pétursson. Söngskrá tónleik-
anna verður mjög fjölbreytt, en
söngfélagar eru um 60 talsins.
LÖGÐ VAR í gær fram hjá
skiptaráðanda bæjarfógetans á
Akureyri beiðni um að Prent-
verk Odds Björnssonar, POB,
yrði tekið til gjaldþrotaskipta.
Gert er ráð fyrir að úrskurður
um gjaldþrot fyrirtækisins liggi
fyrir í dag, föstudag. Beiðnin
var lögð fram af lögfræðingi
Landsbanka Islands, en bankinn
á langstærstu kröfurnar á hend-
ur fyrirtækinu.
Gunnar Sólnes lögfræðingur
Landsbanka íslands á Akureyri
sagði að ekki hefði verið um annað
að ræða, en óska eftir gjaldþrota-
skiptum þar sem augljóst hefði
verið að rekstur fyrirtækisins
gengi ekki upp. Hann sagði að
Landsbankinn kæmi til með að
verða langstærsti kröfuhafinn í
búið, en ekki hefði tekist að inn-
heimta tug milljóna króna kröfur
sem bankinn átti inni hjá Prent-
verkinu.
Gunnar sagði að gert væri ráð
fyrir að rekstri fyrirtækisins yrði
haldið áfram til að byija með,
bankinn myndi tryggja reksturinn
með svipuðum hætti og gert var
við gjaldþrot Álafoss hf. á síðasta
ári. Hann sagði að væntanlega
yrði samið um þau mál við bú-
stjóra þrotabúsins er hann yrði
ráðinn.
Prentverk Odds Bjömssonar var
stofnað árið 1901, en Bókaforlag
Odds Björnssonar sem rekið er
samhliða Prentverkinu er eidra,
stofnað 1887. Félagið rak prent-
smiðju, bókaforlag, sem gefíð hef-
ur út fjölda bóka, og þá var tíma-
ritið Heima er best einnig gefið
út hjá fyrirtækinu.
Grágæs-
in komin
Ytri-Tjörnum.
GRÁGÆSAHÓPUR sást á túni í
Eyjafjarðarsveit í gærdag og eru
þær með fyrstu farfuglunum á
þessu vori. Sýnist mönnum sem
þessum fuglum fari fjölgandi ár-w''
frá ári.
Gæsin verpir í töluverðum mæli á
Staðabyggðamýrum og eru egg kom-
in í fyrstu hreiðrin viku af maí. I
hveiju hreiðri eru 4 til 12 egg, dúðuð
í gráan dún. Eitthvað er um að menn
taki egg úr hreiðrunum til neyslu og
þykir mörgum þau mesta hnossgæti.
Einnig kemur fyrir að fólki taki grá-
gæsarunga, enda hænast þeir auð-
veldlega að mönnum og má stundum
sjá þessa fugla á vappi í hlaðvarpan-
um. Séu flugfjaðrir ekki klipptar
hverfa þeir frá bæjum að haustinu
og geta þar af leiðandi orðið auðveld
bráð veiðimanna.
- Benjamín
Sjallinn:
Omar, Pálmi
og Manna-
korn á ferð
HLJÓMSVEITIN Mannakorn
leikur í Sjallanum í kvöld mcð^.
Pálma Gunnarsson í broddi
fylkingar. Mannakorn eru að
ljúka við nýja plötu sem kemur
út í sumar og munu þeir félag-
ar leika lög af þeirri plötu í
bland við eldra efni.
Á laugardagskvöld kemur Ómar
Ragnarsson í heimsókn og flytur
Sjallagestum glænýja skemmti-
dagskrá sem hann hefur verið að
setja saman síðustu misseri. Hon-
um til aðstoðar verða Haukur
Heiðar, Pálmi Gunnarsson og
Mannakorn. Boðið verður upp á
þríréttaðan kvöldverð, skemmtun
og dansleik með hljómsveitinni
Mannakorn á laugardagskvöldið.
Umgangspest-
ir hafa hrjáð
um 700 manns
LUNGNABÓLGA stakk sér niður
á Akureyri í síðasta mánuði og
voru 52 lungnabólgutilfelli skráð
í skýrslu um smitsjúkdóma á svæði
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri.
Þá voru margir sem máttu þola
umgangspestir af ýmsu tagi, 547
voru þjakaðir af kvefi, hálsbólgu eða
með vírus og 104 fengu inflúensu,
en sú pest hefur verið skæð nú sl
útmánuðum. Þá voru skráð 53 til-
felli þar sem magakveisa gerði mönn-
um lífið leitt. Þannig leituðu um 700
manns á svæðinu til lækna vegna
þessara pesta í síðasta mánuði.
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Bjarni KR. Grímsson bæjarstjóri og Jóhann Helgason, formaður
Leifturs, undirrita samning um samstarf við byggingu íþrótta-
húss í kaffisamsæti sem haldið var af tilefni undirritunar þriggja
samninga við íþróttahreyfinguna í bænum.
Olafsfjarðarbær semur
við íþróttahreyfinerma
Ólafsfirði. ■*“ ^ ^—*
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag bauð bæjarstjórn Ólafsfjarðar for-
ustumönnum íþróttahreyfingarinnar í Ólafsfirði til kaffisamsætis
og var tilefnið undirritun þriggja samninga sem Ólafsfjarðarbær
liefur gert við íþróttahreyfinguna í bænum.
Um er að ræða samstarfssamn- loks samning við aðalstjórn íþrótt-
ing við Ungmenna- og íþrótta- afélagsins Léifturs um samvinnu
bandalag Ólafsfjarðar, samning um byggingu á nýju fullkomnu
við knattspyrnudeild Leifturs um íþróttahúsi.
uppbyggingu vallarmannvirkja og SB
Knattspyrnufélag Akureyrar
Þau félög, sem óska að taka þátt í knattspyrnumóti KA fyrir A-,
B-, C- og D-lið í 5. flokki karla, tilkynni þátttöku á símrita KA
(96) 11839 eða í pósthólf 16 á Akureyri fyrir 14. apríl nk.
Staðfestingargjald kr. 15.000 á hvert lið viðkomandi félags
greiðist í síðasta lagi 21. apríl nk.