Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
31
JOFUR
Gijótið -
nýr rokk-
staður
GRJÓTIÐ er nýr veitingastaður
sem opnar í kvöld, föstudag, í
Tryggvagötu 25.
Þetta er veitingastaður fyrir aila
þá sem hlusta á rokk af öllum gerð-
um og frá öllum tímum. Staðnum
hefur verið breytt mikið, allar inn-
réttingar og skreytingar eru þannig
að staðurinn stendur fyllilega undir
nafni sem samastaður rokkara. Eins
og gefur auga leið er um stórt stökk
og mikla tilbreytingu í skemmtana-
lífi borgarinnar að ræða þar sem
staðurinn er innréttaður með því til-
liti að þar verði spilað rokk.
Hljómsveitin Gildran ríður á vaðið
og spilar föstudags- og laugardags-
kvöld.
----» ♦ ♦---
Ræðukeppni
JC-hreyf-
ingarinnar
Mælsku- og rökræðukeppni JC-
hreyfingarinnar verður haldin í
Hamraborg 11, 3. hæð, Kópavogi.
Það eigast við aðildarfélögin JC-Bros
og JC-Nes. Keppnin hefst kl. 20.30
og eru allir velkomnir.
Þorbjörg Þórðardóttir sýnir
myndvefnað í Norræna húsinu
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
OPNUÐ verður sýning á mynd-
vefnaði eftir Þorbjörgu Þórðar-
dóttur veflistarkonu í sýningar-
sölum Norræna hússins laugar-
daginn 11. apríl.
Þorbjörg stundaði nám við Myndl-
ista- og handíðaskóla Islands
1968-72 og lauk myndmenntakenn-
araprófi þaðan 1972. Síðan stundaði
hún framhaldsnám við Konstfack-
skolan í Stokkhólmi 1972-74. Hún
starfaði sem kennari við Textíldeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands
á árunum 1975-87. Þorbjörg er einn
af stofnendum Gallerís Sólon ísland-
us sem rekin var af nokkrum mynd-
listarmönnum og var til húsa í Aðal-
stræti 8. Hún er einnig ein af stofn-
endum Gallerís Langbrókar sem rek-
ið var um árabil af hópi myndlistar-
kvenna og var til húsa við Vitastíg
og síðar á Bernhöftstorfu.
Þetta er fyrsta einkasýning Þor-
bjargar en hún hefur tekið þátt í
íjölda samsýninga hér heima, á
Norðurlöndum og Bandaríkjunum.
Þorbjörg verður ein af þátttakendum
í farandsýningunni Form Island II
sem hefur göngu sína í Bergen sem
hluti af íslenskrar menningarviku
Eitt atriði úr myndinni Banvæn blekking.
Bíóhöllin sýnir mynd-
ina Banvæn blekking
BIOHOLLIN hefur hafið sýningar á myndinni Banvæn blekking. Með
aðalhlutverk fara Richard Gere og Kim Basinger. Leikstjóri er Phil
Joanou.
Myndin segir frá sáifræðingi sem aðstoð hans vegna ákveðins vanda-
Richard Gere leikur. Hann kynnist máls sem reynist heldur vafasamt
tveimur aðlaðandi en jafnframt dul- 0g kemur honum í mikla klípu.
arfullum systrum. Biðja þær um
og tengist „Bergenfestivalen" í maí
nk.
A sýningu Þorbjargar í Norræna
húsinu eru 15 verk unnin á síðustu
þremur árum, þau eru öll ofin úr
ull, hör og handspunnu hrosshári.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-19 og lýkur sunnudaginn 26.
apríl.
Það verður glæsileg bflalest sem heldur uppá Akranes
um helgina. Fremstur og alls staðar í sérflokki fer
Cherokee; jeppi og glæsivagn sem gerir þér kleift að
takast á við tvo heima samtímis. Fast á hæla hans
koma hinir lipru og kraftmiklu bræður, Peugeot
405 sem er búinn öllum þægindum og öryggi fyrir
eldh'nu umferðarinnar og Peugeot 106, spameytni
bfllinn með stóru kostina. Síðast en ekki síst skal telja
hina rúmgóðu Skoda Favorit og Forman,
kniftmikla bíla sem fara vel á vegi. Konidu við hjá
Bflveri sf., Akursbraut 13, Akranesi um helgina.
Þar finnur þú örugglega bfl við þitt hæfl.
Opið fóstudag kl. 10-19, laugardag kl. 10-17 og
sunnudagkl. 13-17.
Þorbjörg Þórðardóttir veflistakona.
BÍLVER SF.
AKURSBRAUT13
AKRANESI • SÍM111985
Kreiglusporti, stærstu sportvöruverslun landsins, færðu góðar
fermingargjafir á hagstæðu verði. Við bjóðum nú sérstakt fermingar-
tilboð og þú færð svefnpoka á aðeins 6.900.*
Auk þess veitum við 30% afslátt af öllum skiðabúnaði.
I Kringlusporti er landsins mesta úrval af sport- og útivistarvörum og hjá okkur getur þú
valið úr meira en 100 tegundum af íþróttaskóm. Þá höfum við á boðstólum
gott úrval af gönguskóm, veiðibúnaði hvers konar, viðlegubúnaði og fleiru og fleiru.
KRINGLU
Þú finnur örugglega fermingargjöfina í Kringlusporti.