Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Minning:
Sigurbjörg Sigurðar-
dóttir frá Skuld
Fædd 2. febrúar 1917
Dáin 4. apríl 1992
Hún Sibba er dáin. Það er svo
erfitt að trúa því. Á slíkum stund-
um hrannast minningarnar upp.
Það er svo stutt síðan við áttum
saman yndislega kvöldstund og var
hún þá svo hress og kát.
Sibba var yndisleg manneskja.
Hún var einstaklega jákvæð og
gat alltaf _séð björtu hliðarnar á
málunum. Ég dáðist að þeim eigin-
leika hennar. Glaðlyndi hennar var
einstakt, hláturinn smitandi og
kátínan skein úr augum hennar.
Hún var mikill vinur vina sinna.
Hún Sibba var í alla staði mjög
gefandi kona.
Tilfinningar mínar til Sibbu tóku
á sig nýja mynd fyrir nítján árum.
Er ég minnist þess get ég ekki
annað en talað í sömu andránni
um Guðmund J. Gíslason, eigin-
mann hennar, sem lést 10. maí
1988. Þau Sibba og Guðmundur
höfðu alla tíð reynst foreldrum
mínum og okkur systkinunum
miklir og traustir vinir. Er dauðinn
kvaddi fyrii’varalaust dyra hjá ijöl-
skyldu minni fyrir nítján árum kom
enn einu sinni í ljós hversu miklir
vinir þau voru og hve stórt hjarta
þau höfðu. Þau veittu okkur ómet-
anlega aðstoð og styrk með nær-
veru sinni. Frá og með þessu kvöldi
urðu Sibba og Guðmundur mér
annað og meira en áður. Tilfinn-
ingum mínum til þejrra verður
ekki með orðum lýst. Ég mun alla
tíð muna og ylja mér við hlýjuna
sem streymdi frá þeim í minn garð.
Elsku Erna Björk. Ég votta þér,
systkinum þínum og fjölskyldum
ykkar mína dýpstu samúð. Blessuð
sé minning Sigurbjargar Sigurðar-
dóttur.
Guðrún Jóhannsdóttir.
í dag verður elskuleg amma mín
og nafna, Sigurbjörg Sigurðardótt-
ir frá Skuld í Vestmannaeyjum,
jarðsett frá Bústaðakirkju.
Orð virðast fátækleg á stundum
sem þessari, en margs er að minn-
ast. Það verður skrýtið að koma
til Reykjavíkur og vera ekki hjá
henni. Hún tók alltaf svo vel á
móti mér þegar ég var að koma
úr Eyjum. Ég og vinir mínir vorum
ávallt svo velkomin til hennar.
Mér verður líka hugsað til allra
yndislegu stundanna, sem við öll
fjölskyldan og vinir höfum átt uppi
í sumarbústað með ömmu og afa,
þegar hann var á lífi. Það voru
góðir dagar. Amma undi sér vel í
bústaðnum og þar vildi hún helst
vera. Hún var mjög gestrisin og
ánægðust, þegar bústaðurinn var
fullur af gestum.
Veturinn 1990, þegar ég var í
skóla í Reykjavík, var ég til húsa
Hermundur Þórðar-
son - Minning
Fæddur 12. ágúst 1903
Dáinn 4. apríl 1992
I dag kveðjum við elskulegan
tengdaföður minn, Hermund
Þórðarson, sem andaðist í Sólvangi,
Hafnarfirði, laugardaginn 4. apríl
sl., 88 ára að aidri, og langar mig
að minnast hans í fáum orðum.
Hermundur fæddist 12. ágúst
1903 á Neðra-Hóli í Staðarsveit og
voru foreldrar hans hjónin Herdís
Jónsdóttir og Þórður Bjarnason
bóndi.
Aðeins tveggja ára gamall missir
Hermundur móður sína, og er hon-
um komið í fóstur til Hafnárfjarðar
til sæmdarhjónanna Kristínar
Bjarnadóttur sem var föðursystir
hans, og Sigurðar Sigurðssonar,
sem hann mat ávallt mikils og var
afar kært með þeim og vitnaði hann
oft í fóstru sína.
17. júní 1933 kvæntist hann elsk-
ulegri eiginkonu sinni, Sólveigu
Siguijónsdóttur, og eignuðust þau
fjóra syni: Sigurdór Sævar, f. 2.
febrúar 1934, maki Sigrún Ólafs-
dóttir; Bjarni Birgir, f. 11. ágúst
1935, maki undirrituð; Hermundur
Hafsteinn, f. 8. október 1938, lést
6 mánaða; Sigurður Kristinn, f. 26.
maí 1944, maki Ingibjörg Jónsdótt-
ir. Allir eru þeir búsettir í Hafnar-
firði. Barnabörnin eru fimm og
barnabarnabörnin eru orðin níu.
Sólveig og Hermundur bjuggu
allan sinn búskap við Norðurbraut
í Hafnarfirði, og var alltaf einstak-
lega notalegt og gott að koma til
þeirra og raunbetra fólki hefi ég
ekki kynnst, ávallt boðin og búin
til að hlúa að öðrum.
Sóiveig tengdamóðir mín lést
snögglega 8. febrúar 1980 og var
það okkur öllum mikið áfall og sökn-
uður Hermundar mikill og náði hann
sér aldrei eftir það, og hafa eflaust
orðið fagnaðarfundir hjá þeim hjón-
um og syninum unga þegar þau
hittust á ný. Hermundur var alveg
sérlega barngóður og hændust öll
börn að honum, og var hann barna-
börnum sínum elskulegur afi meðan
hann var og hafði heilsu.
Tengdafaðir minn var mjög hag-
mæltur og eigutn við yndislega fal-
leg kvæði og vísur eftir hann bæði
frá fæðingum í Ijölskyldunni, ferm-
ingum og afmælum, og oft þurfti
ekki mikið tilefni til að laumað
væri til manns fallegri vísu og geymi
ég það sem perlur í minningarsjóði
mínum.
Ég er með litla fallega kveðju og
þakklæti til hans frá lítilli vinu sem
þótti svo undur vænt um hann og
veit fyrir satt að það var gagn-
kvæmt.
Ég minnist með hlýju og þakk-
læti seinasta aðfangadagskvölds,
hvað það var ánægjulegt að hafa
hann hér hjá okkur, hann var svo
kátur og leið svo vel, lék á als oddi
og gerði að gamni sínu, og eftir á
að byggja hefði mátt halda að hann
hefði fundið það á sér að þetta væri
í síðasta sinn sem hann væri hér
hjá okkur.
Því kveð ég nú kæran tengdaföð-
ur minn með söknuði og þakka hon-
um samfylgdina og óska honum
góðrar heimkomu til ástvina sinna
sem á undan eru farnir.
Iivíli hann í friði, og hafi þökk
fyrir allt og allt.
hjá ömmu. Þá kynntumst við bet-
ur. Hún var í mínum augum alltaf
svo jákvæð og gjafmild og vildi
allt fyrir mig gera. Þó svo að heilt
kynslóðabil hafi verið milli okkar,
náðum við vel saman og gat ég
deilt öllu mínu með henni. Mér
finnst ég rík að hafa átt þennan
tíma með henni.
Mig langar að þakka ömmu fyr-
ir góðu stundirnar sem við áttum
saman. Ég mun sakna hennar sárt.
Sigurbjörg.
; .Ð ÚFl SINu
*jf&.tfGGJA gbuN.„
* UlKUR EINN w
Vaxtalínan er
fjármálaþjónusta
fyrir unglinga
13-18 ára.
VAXTALÍNAN
RAKIÐ D/fcMI F YRIR
U N G L I N G A
■k \\
1 ^ r v w
Þegar þú skráir þig í Vaxtalinuna
opnast þér ýmsir möguleikar:
AFSLÁTTARKORT
f^*mál**0*
SKÓLADAGBÓK
"♦ítta***'
C FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ
BÍLPRÓFSSTYRKUR
LÁNA«eGuie,*L''8A«4
Félagar fá Vaxtalínubol um leið og þeir
skrá sig - þeim að kostna&arlausu.
iBIÍNAÐARBANKI
1ÍSLANDS
Ester Hurle.
VJS / QISIJH VIJAH