Morgunblaðið - 10.04.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
Matsölu- og skemmtistaður
Kringlan 4
CALIFORNIA CUISINE
GESTUR:
LISA STALVEY
fi'á veitingahúsinu Spngo i Los
Angeles >...
Opið fóstudngs- og laugardngskvöld
firá kl. 18—-03
Ellen Kristjdnsdóttir
Jozzcómbó Sigurðnr Flosasonar
iÍl Borðapantanir í síma 68
fclk í
fréttum
Einar Júlíusson
stórsöngvari
í-filmar Sverrisson
Kljónisveit
Dansað í Naustinu
Endið gíkða máltíð með
dansi í Naiistinu
Koníaksstofa
Njótni þess
Sýnishorn af matseöli:
CWO
STARFSFRÆÐSLA
Grandi fékk verðlaun
DÆGURTÓNLIST
Granda hf. var nýlega af-
hent viðurkenning frá
fræðsluskrifstofu Reykjavík-
urumdæmis fyrir einstakt
kynningar- og fræðslustarf,
gott skipulag í því sambandi
og hlýjar móttökur sem mik-
ill fjöldi grunnskólanema hef-
ur notið hjá fyrirtækinu, eins
og Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri komst að orði,
þegar hún afhenti Brynjólfi
Bjarnasyni, forstjóra fyrir-
tækisins, viðurkenningar-
skjalið nýlega.
Við sama tækifæri veitti
Grandi 11 ára nemendum 6.
bekkjar C í Melaskóla viður-
kenningarskjal og verðlauna-
peninga fyrir frammistöðu í
spurningaíeik sem nemend-
um í þeim fjölmörgu deildum
6. bekkjar grunnskóla á höf-
uðborgarsvæðinu, sem heim-
sótt hafa fyrirtækið, hefur
gefist kostur á að taka þátt í.
Í vetur hefur starfsfólk
Granda tekið á móti 1.144
11 ára börnum en að sögn
Völu-
spá
Ein nýjasta rokk- og
dægurlagahljómsveit
landsins ber hið forníslenska
nafn Völuspá, en hljómsveit-
in kemur fram í fyrsta sinn
nú um helgina í veitingahús-
inu Firðinum í Hafnarfirði.
Sveitina skipa Björgvin Gísl-
ason gítarleikari, Halldór
Olgeirsson trommari,
Sveinn Guðjónsson hljóm-
borðsleikari, Jón Ólafsson
bassaleikari og Ágúst Atla-
son rythmagítarleikari. Allir
eru þeir gamalreyndir spil-
arar sem víða hafa komið
við á löngum og litríkum
ferli í gegnum tíðina.
Þrír hinir fyrstnefndu
léku til skamms tíma saman
með hljómsveitinni „Gömlu
brýnin“, en spiluðu með
ýmsum sveitum hér á árum
áður og má þar nefna Nátt-
úru, Roof Tops, Peilican,
Alfa Betu og Hauka, svo
lítið brot sé nefnt. Jón
lafsson hefur að undan-
förnu leikið með hljómsveit
Rúnars Þórs, en lék fyrr á
árum með ýmsum þekktum
hljómsveitum svo sem Töt-
urum, Cabarett, Start og
Morgunblaðið/KGA
Hljómsveitin Völuspá þreytir frumraun sina í veitinga-
húsinu Firðinum í Hafnarfirði um helgina. Fremst er
Halldór Olgeirsson, þá Ágúst Atlason, Sveinn Guðjóns-
son, Björgvin Gíslason og Jón Olafsson.
örl
01
ásamt Björgvin í Pelican
■ þegar hin þekkta útfærsla á
„Sprengisandi" Kaldalóns
var þrykkt á plast sælla
minningar. Ágúst Atlason
er óþarfi að kynna, en þessi
geðþekki rythmagítarleikari
og söngvari hefur um árabil
yljað landsmönnum um
hjartaræturnar með Ríó-trí-
óinu.
Að sögn liðsmanna Völu-
spár er nafnið þannig til
komið að þetta forna Eddu-
kvæði vitjaði eins hljóm-
sveitarmannanna í draumi
með táknrænum hætti um
það leyti sem fæðingahríðar
sveitarinnar stóðu sem
hæst: „Nafnið gefur sveit-
inni menningarlegt yfir-
bragð, en annars munum
við reyna að vera dálítið
„væld“, þótt snyrtimennsk-
an og léttleikinn verði jafn-
an í fyrirrúmi," sögðu þeir.
Að sögn þeirra félaga
mun efnisskrá ’Völuspár
miðast við almenna fót-
mennt og félagslegan
þroska þeirra samkomu-
gesta sem viðstaddir eru
dansleiki sveitarinnar hveiju
sinni, og telja þeir sig færa
í flestan sjó hvað lagaval
snertir. Sjálfir leggja þeir
þó mesta áherslu á gullald-
arrokk og tónlist frá sjöunda
áratugnum með sérstakri
áherslu á bresku rokksveit-
ina Rolling Stones.
Brynjólfur Bjarnason veitir viðurkenningu fræðsluskrif-
stofunnar viðtöku úr höndum Guðrúnar Þórsdóttur
kennslufulltrúa, sem er lengst til hægri á myndinni.
Milli þeirra stendur Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri.
Pjeturs Árnasonar hjá
Granda leggur fyrirtækið
metnað í og áherslu á að
fræða börnin og einnig kenn-
arana um undirstöðuatvinnu-
veg þjóðarinnar. Tekið er á
móti einum bekk í senn ásamt
kennara og veitt nákvæm
leiðsögn um fyrirtækið. Auk
heimsóknar í vinnslusali er
komið við í nytjafiskasafni
fyrirtækisins og öllum nem-
endum er svo boðið að
smakka á framleiðslunni.
Morgunblaðið/KGA
Nemendur 6-C í Melaskóla ásamt starfsfólki Granda, þar á meðal Brynjólfi Bjarna-
syni, framkvæmdastjóra, svo og Áslaugu Brynjólfsdóttur fræðslustjóra.
COSPER
VITASTIG 3 t,di
SÍMI623137 ilOL
Föstud. 10. apríl opið kl. 20-03.
KK-BAND
' KK, gítar, songur,
Ellen Kristjánsdóttir, söngur,'
Eyþór Gunnarsson, píanó,
Þorleifur Guðjónsson, bassi, .
Kormákur Geirharðsson, trommur.
KK-unnendur, nú er
vissara aðtryggja
sér miða ítíma!
PÚLSINN
- heimkynni tónelskra!
Lougav*gi 45 - 21 255
í kvöld:
FRESSMENN
Laugardagskvöld:
FRESSMENN
og REDHOUSE
Sunnudagskvöld:
KARAOKE
Skráið ykkur til þátt-
töku í síma 21255.