Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
'sJéeja.', er þetta. biátt eÁu gnátt
---- -=*- m dZ—’ '-
Því ferðu í þessari gömlu
druslu. Þú átt þær í tauga-
tali uppi á lofti...
Ást er...
.. . að hlýja henni á
nebbanum.
TM Reg U S Pal Off — all righls reserved
® 1992 Los Angeies Times Syndícale
Við viljum ráða mann sem
þorir að taka sjálfstæðar
ákvarðanir og því er ég
undrandi að sjá þig hér . . .
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF TÍL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Starf Hjálp-
artækja
bankans er
brautryðj-
endastarf
Frá Jóhönnu Ingólfsdóttur:
GREIN þessi er rituð af því tilefni
að laugardaginn 11. apríl nk. mun
Hjálpartækjabanki RKÍ og Sjálfs-
bjargar standa fyrir opnu húsi í
húsakynnum Hjálpartækjabankans í
Hátúni 12. Verður húsið opið kl.
13-17 og gefst þá fólki kostur á
að kynna sér starfsemi bankans.
Þykir því ekki úr vegi að kynna hér
iítillega fyrir almenningi starfsemi
Hjálpartækjabankans og þá þjón-
ustu, sem hann veitir viðskiptavinum
sínum.
Aðdraganda að stofnun Hjálpar-
tækjabankans má rekja allt til ársins
1967 þegar Rauði kross íslands stóð
fyrir könnun á því hvort hin ýmsu
félög öryrkja gætu sameinast um
stofnun hjálpartækjastöðvar, en þá
var engin slík stöð ti! í landinu og
oft erfitt að nálgast hjálpartæki.
Athugun RKÍ leiddi í ljós að Sjálfs-
björg, landssamband fatlaðra, hafði
áhuga á slíkri stofnun. Sjálfsbjörg
og RKÍ gerðu með sér samning um
stofnun Hjálpartækjabankans í lok
ársins 1975 og hóf hann starfsemi
sína í ársbyijun 1976.
I upphafi var einn launaður starfs-
maður í Hjálpartækjabankanum og
naut hann um skeið aðstoðar sjálf-
boðaliða frá Kvennadeild RKÍ. Vöru-
úrvalið einskorðaðist einkum við
þarfir hreyfihamlaðra. Árið 1980
hófst nýr þáttur í starfseminni. Þá
hófst sala á ýmsum einnota vörum,
þ.á m. svonefndum stomavörum, og
var ráðinn til starfa hjúkrunarfræð-
ingur með s'érþekkingu á því sviði.
Þessi þjónusta og ráðgjöf hefur
mælst vel fyrir hjá viðskiptavinúm
bankans. Reynt hefur verið að hafa
þjónustuna persónulega, þannig að
hún henti hverjum einstaídingi sem
best.
Á síðasta áratug hefur mikil þró-
un verið á sviði hjálpartækja, og
möguleiki fatlaðra og aldraðra á
aðstoð á þeim vettvangi stóraukist.
í samræmi við það markmið Hjálpar-
tækjabankans að veita sem víðtæk-
asta þjónustú á faglegum grunni var
árið 1982 ráðinn til starfa hjá fyrir-
tækinu aðili með faglega þekkingu
á hjálpartækjum og menntun á sviði
læknisfræði, þ.e. iðjuþjálfi. Iðjuþjálf-
inn veitir ráðgjöf og leiðbeiningar
um val á hjálpartækjum, en fer að
auki í heimahús og leiðbeinir þar
um notkun tækjanna.
í áranna rás hefur þjónusta hjúkr-
unarfræðings og iðjuþjálfa verið vel
nýtt. Fólki hefur líkað vel sá mögu-
leiki að leita aðstoðar fagfólks, sem
veitir því persónulega þjónustu. Hef-
ur Hjálpartækjabankinn verið frum-
kvöðull á þessu sviði.
1 dag er starfsemi bankans víð-
tæk. Hann hefur kappkostað að
bjóða sem mest úrval af hjálpartækj-
um, þar sem þörfin er mismunandi.
Reynt hefur verið að þjóna öllu land-
inu og því hafa verið farnar kynning-
arferðir út á landsbyggðina. Auk
þess að selja hjálpartæki og veita
ráðgjöf hefur bankinn efnt til nám-
skeiða fyrir faglært fólk og hafa þau
verið vel sótt. Þá hefur Hjálpar-
tækjabankinn lánað sjúkrarúm til
sjúklinga í heimahúsum og hefur það
m.a. verið gert í samvinnu við heima-
hjúkrun á Reykjavíkursvæðinu.
Rúmin eru lánuð út tímabundið og
án endurgjalds. Þessa þjónustu hefur
Heimahlynning Krabbameinsfélags-
ins nýtt sér töluvert. Þetta eykur
möguleika sjúklinga á að búa á
heimili í návist ættingja í stað þess
að dvelja á stofnun.
Enn er verið að auka við þjónustu
bankans. Tekið hefur verið í notkun
grænt símanúmer, 996233, og gefst
landsbyggðarfólki þar með kostur á
að afla sér upplýsinga um vörur og
þjónustu okkar án þess að greiða
fyrir langlínusamtal.
Stofnun Hjálpartækjabankans ber
vott um að framsýnir menn voru þar
að verki. Meðal þeirra sem lögðu
hönd á plóginn voru Ólöf Ríkharðs-
dóttir, forstöðumaður félagsmála-
deildar Sjálfsbjargar, Teodór Jóns-
son, fyrrum forstöðumaður lands-
sambands Sjálfsbjargarfélaga, Egg-
ert Ásgeirsson, fyrrum framkvæmd-
astjóri RKÍ, Björn Tryggvason
aðst.seðlabankastjóri, og Björn
Önundarson tryggingayfirlæknir.
Hjálpartækjabankinn hefur frá
upphafi haft nána og góða samvinnu
við Tryggingastofnun ríkisins. Hann
hefur verið leiðandi stofnun á sviði
hjálpartækja á íslandi og unnið þarft
brautryðjendastarf. Við vonumst
eftir að sjá sem flesta á opnu húsi
laugardaginn 11. apríl nk.
JÓHANNA INGÓLFSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri Hjálpar-
tækjabankans.
Víkveiji skrifar
að er kannski að æra óstöðug-
an að fara að kvarta enn einu
sinni undan kartöflunum sem eru
hér á boðstólum. En Víkveiji þessa
stundina getur samt ekki látið það
vera að velta því fyrir sér hvernig
standi á því að minnsta kosti önnur
hver kartafla sem hann veiðir upp
úr pottinum heima hjá sér og ætlar
að leggja sér til munns, skuli vera
með skemmd í miðju. Svo vill til
að Víkveiji var á ferð í Mið-Evrópu
ekki alls fyrir löngu og komst þá
að raun um að allar kartöflur sem
hann veiddi upp úr pottinum á þeim
slóðum voni öldungis lausar við
þessa meinsemd. Samt segir sagan
að hún hafi borist hingað til lands
með innfluttu útsæði frá Evrópu.
Þess vegna hljóta menn að spyija
sig hvaða aðferðum evrópskir kart-
öfluframleiðendur ráða yfir til að
skila á markað vöru sem stenst all-
ar gæðakröfur en virðast ekki hafa
verið innleiddar hér á landi. Þótt
íslenskum kartöfluframleiðendum
og pökkunarstöðvum virðist hafa
orðið vel ágengt að vinsa burt kart-
öflur með yfirborðskemmdir er tíðni
þessara duldu skemmda inn í kart-
öfiunum orðinn slík að það hlýtur
að vera framleiðendum verulegt
áhyggjuefni og varla einleikið þegar
borið er saman við erlendar kartöfl-
ur.
xxx
Pétur Blöndal hefur um skeið
haldið úti þáttum á Rás 2
með hugleiðingum og ráðleggingum
til fólks um sparnað og peninga-
mál, enda maðurinn margfróður á
þessu sviði. Ekki er að efa að marg-
ir leggja við eyrun, þegar Pétur
leiðir hlutsendur um völundarhús
allra þessara fjárfestingakosta og
sparnaðarleiða sem nú eru í boði,
enda er hann óspar á heilræðin.
Víkveiji þykist hafa orðið var við
að ekki síst eldra fólki þyki talsverð-
ur fengur af ráðleggingum af þessu
tagi. Pétur verður þess vegna að
gæta þess að ígrunda heilræðin og
varast alhæfingar. Þess vegna var
nokkuð sérkennilegt að heyra hann
halda því fram í einum þættinum
ekki alls fyrir löngu að fólk sem
væri vel við aldur, ætti að varast
að taka langtímalán. Er þetta ekki
full mikið sagt? Þetta hlýtur að
fara eftir eðli lánsins? Fjöldi eldri
borgara fjármagnar nú þjónustu-
íbúðir sínar með langtímalánum að
hluta, svo sem eins og húsbréfum,
og verður ekki séð að nein áhætta
sé því fylgjandi. Langtímalán af
þessu tagi eru yfirleitt með veði í
eigninni og verða þar áfram, þótt
lántakandinn falli frá. Það er því
fremur verið að hugsa um hag erf-
ingjanna en fullorðna fólksins með
viðvörunum af þessu tagi.
xxx
Heldur þykir Víkveija það hæp-
in ákvörðun hjá aðstandend-
um Barna náttúrunnar að ætla að
fara að taka þátt í klögumálum út
í ítölsku óskarsverðlaunamyndina,
sem forsvarsmenn sænsku myndar-
innar Uxinn hafa hafið og sagði frá
í fréttum hér í blaðinu í í vikunni.
Best er að láta Svíana eina um
þennan eftirmála og taka niður-
stöðu bandarísku kvikmyndaaka-
demíunar af karlmennsku. Börn
náttúrunnar mega vel við una með
útnefninguna eina sér og viðtökurn-
ar' sem myndin fær þessa dagana
á kvikmyndahátíð ungra leikstjóra
í New York. Þar fer t.d. einn virt-
asti kvikmyndagagnrýnandi
Bandaríkjanna, Vincent Canbý hjá
New York Times afar lofsamlegum
orðum um mynd Friðriks Þórs.