Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
45
X
Yfirlýsing vegna „Þjóðlífsmáls“
Frá Jóhannesi Halldórssyni:
ÁSKRIFTARKRÖFUR frá Þjóðh'fí
hf. voru keyj)tar í þrennu lagi af
fyrirtækinu Utey hf. Kaupsamning-
ur á áskriftum fyrir Reykjavík og
Seltjarnarnes er dagsettur hinn 31.
janúar 1991 og var kaupverð þess
samnings kr. 725.000. Áskriftar-
reikningar fyrir landsbyggðina voru
keyptir samkvæmt tveimur kvittun-
um dagsettum hinn 26. febrúar
1991 og hinn 2. mars 1991, önnur
upp á kr. 1.400.000,00 en hin upp
á kr. 1.140.000,00. Samtals er því
kaupverðið 3 milljónir og 265 þús-
und krónur. Enginn ágreiningur var
um að Þjóðlíf hf. seldi þessar kröf-
ur. Samkvæmt öðrum lið kaupsamn-
ingsins er tekið fram að ef kröfur
hafi þegar verið greiddar muni Þjóð-
líf taka þær til baka og láta nýjar
kröfur í staðinn, en það hafa Þjóð-
lífsmenn ekki staðið við. Einnig var
ítrekað reynt að semja um endur-
kaup Þjóðlífs á kröfunum, en þar
sem tilboð Þjóðlífsmanna var
óviðunandi, í boði var skuldabréf til
greiðslu af Þjóðlífi hf. sem nú er
gjaldþrota, og mun lægra en þeim
hafði verið greitt í byijun, tókust
samningar ekki.
Þrátt fyrir að milligöngumaður
og starfsmaður Þjóðlífs, hr. Agnar
Agnarsson, hafi fuliyrt að búið væri
að taka frá allar kröfur sem væru
þegar greiddar eða ónýtar, kom í
ljós, haustið 1991, að stór hluti
krafnanna, eða á milli 50-60%, hafði
þegar verið greiddur til Þjóðlífs,
áður en þeir seldu skuldapakkann.
Ef um örfáar undantekningar hafi
verið að ræða, hefði það verið skilj-
anlegt, enda samkvæmt ákvæðum
samningsins.
Það sem kom einnig á óvart í
sambandi við vinnubrögð Þjóðlífs-
manna var að í mörgum tilfellum
hafa þeir prentað út tvo reikninga
og selt þá báða. Einnig er dæmi um
að menn hafi skilað inn tveimur
kvittunum og Þjóðlíf hafi síðan selt
Utey þriðja reikninginn. Ekki er að
sjá annað en að Þjóðlíf hf. hafi gef-
ið út reikninga í stórum stíl til þess
að bjarga fjárhag fyrirtækisins sem
var komið að gjaldþroti. Tugir
manna sem hafa haft samband við
Innheimtur og Ráðgjöf hf. geta
staðfest þetta. Enda kemur í ljós
að Þjóðlífsmenn sendu á faxi til allra
bæjarfógeta- og sýslumannsemb-
ætta á landinu, bréf, þess efnis að
engin áskrift stæði á bak við þessa
seldu reikninga, sem Innheimtur og
Ráðgjöf hf. voru að innheimta. Þessi
yfirlýsing þeirra, til etnbættanna,
sýnir og sannar að meining þeirra
var að selja reikninga sem engin
fótur var fyrir og svíkja vísvitandi
fé út úr kaupanda reikninganna.
Kaupsamningurinn var gerður í
8 liðum og ber hann það með sér,
því að í áttunda lið segir: „Fram-
selji kröfukaupi kröfur þessar skal
kröfukaupi skilyrðislaust sjá til þess
að þriðji aðili uppfylli ofangreinda
skilmála nr. 1-8.“ Eftir að hafa
móttekið fax dagsett 29. ágúst
1991, varð mér ljóst að 9. lið hafði
verið bætt við eftir að skrifað hafði
verið undir samninginn. En þar er
Garðar Vilhjálmsson, f.h. Þjóðlífs,
búin að handskrifa níundu greinina
inn í kaupsamninginn þar sem segir
að ekki megi höfða mál vegna
krafanna. Ég spyr: Hver hefði keypt
kröfur sem ekki má rukka? Það er
ljóst að skuldapakkinn hefði aldrei
verið keyptur ef 9. greinin hefði
verið með í samningnum.
Það er því augljóst mál að Garðar
Vilhjálmsson þarf að svara því hjá
RLR hvernig 9. liðurinn er tilkominn
í samningnum. Agnar Agnarsson
sem var milligöngumaður og fyrr-
verandi starfsmaður Þjóðlífs hf. hef-
ur vottað það skriflega að 9. grein
var ekki til í kaupsamningnum þeg-
ar hann var undirritaður af Útey hf.
Allar þessar ásakanir eru skjal-
festar.
1. Falsaður kaupsamningur af
hálfu Þjóðlífs er í vörslu Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
2. Greiðsluseðlar sem sanna að
Þjóðlíf hefur móttekið fleiri hundruð
þúsund krónur vegna reikninga sem
þeir seldu, eru til í bönkum, spari-
sjóðum og pósthúsum út um allt
land. Fróðlegt verður að fylgjast
með hvort þessar greiðslur eru til í
bókhaldi Þjóðlífs!
3. Undirskrifuð föx, af hálfu Þjóð-
lífs, sem voru send til allra bæjar-
fógeta- og sýslumannsembætta
landsins, sýna að þeirra ásetningur
var að selja kröfur sem enginn fótur
var fyrir.
Þjóðlífsmenn verða væntanlega
að svara þessum ásökunum hjá RLR
og síðan í sakadómi. Ég vil taka
það fram fyrir hönd Innheimtu og
Ráðgjafar hf., að engum sem lagði
fram kvittun áður en stefna var
gefin út var stefnt til að greiða
reikninginn. Tugir manna sem
fengu innheimtubréf og sendu kvitt-
un um hæl, geta vottað það.
Að lokum vil ég segja að mér
þykir slæmt hvernig ráðamenn Þjóð-
lífs hafa notað sambönd sín í
fjölmiðlaheiminum til að traðka nið-
ur og rægja kunningja minn, Úlfar
Nathanaelsson, trúlega í þeim eina
tilgangi að breiða yfir fjársvik sín.
JÓHANNES HALLDÓRSSON,
Innheimtur og ráðgjöf hf.
Síðumúla 27, Reykjavík.
Óhugnaður
Frá Sigríði Jónsdóttur:
FYRIR alllöngu birtu dagblöð hér
fregn frá Rio de Janeiro, þar sem
greint var frá því að lögreglan í
borginni skjóti útigangsbörn á færi
og ætlunin væri að hreinsa borgina
af þessari óværu áður en fyrirhuguð
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um
umhverfisvernd og þróun hæfist.
Einnig var skýrt frá þessu í Ríkis-
sjónvarpinu og fylgdi þá mynd með
af manni, sem var að taka margar
bamagrafir.
Umrædd fregn nísti mig inn að
hjartarótum. Þessi borg hafði van-
rækt börnin sín og síðan myrt þau
áður en hún fengi fína gesti, svo
að þessi vanhirtu börn skyggðu ekki
á glæsileik borgarinnar.
Og óhugnaðurinn hélt áfram. Ég
bjóst við sterkum viðbrögðum frá
Sameinuðu þjóðunum, hinum tjöl-
mörgu félagssamtökum, sem vinna
að mannúðarmálum, kirkjunni, o.fl.
o.fl. En hvað gerist? Enginn segir
neitt. Má þó vera, að einhverjir hafi
nefnt þetta, þó að það hafi ekki
borist mér til eyrna, en allt um það
þá hafa aðalviðbrögðin verið að
VELVAKANDI
PAFAGAUKAR
BLÁR páfagaukur, karlkyns
' fór að heiman frá sér í Garðabæ
laugardagskvöldið 4. apríl. Vin-
samlegast hringið í Sólveigu í
síma 656224 ef hann hefur ein-
hvers staðar komið fram. Á
sama stað er hvítur kvenkynsp-
áfagaukur, sem kom fram í
Hafnarfirði, í óskilum.
UR
KARLMANNSÚR með stállit-
aðri umgerð, blárri skífu og
brúnni leðuról tapaðist föstu-
daginn 3. apríl. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 31716.
Úr fannst í Skipholti fyrir
síðustu helgi. Upplýsingar í
síma 22695.
Gullúr með grárri ól tapaðist
fyrir helgina, í eða við Sundlaug
Kópavogs eða fyrir utan Kópa-
vogsskóla. Finandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
42258. Fundarlaun.
HJOL
GRÆNT Muddy Fox hjól var
tekið fyrir utan Björnsbakarí
við Fálkagötu fyrir skömmu.
Vinsamlegast hringið í síma
19811 ef það hefur fundist.
KETTIR
LÍTIL bröndótt þrílit læða,
kettlingafull, týndist frá Skóla-
stræti í Miðbænum í síðustu
viku. Vinsamlegast hafið hring-
ið í síma 17646 eða hafið sam-
band við Kattavinafélagið ef
hún hefur einhvers staðar kom-
ið fram.
Síamsköttur fannst í Mos-
fellsbæ. Upp. síma 668108.
KJÓLL
HEIMASAUMAÐUR kjóll tap-
aðist fyrir utan bensínstöðina
við Fannborg í Kópavogi. Kjóll-
inn er einstakur og þekkist
hvar sem er. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 624063. Fundarlaun.
þegja þunnu hljóði, og það sem verra
er, að ráðamenn þjóðanna, þar á
meðal ráðamenn okkar íslendinga,
ætla að fjölmenna á ráðstefnuna til
að skála við barnamorðingjana og
leggja þannig blessun sína yfír
níðingsverk þeirra.
Hvar erum við stödd? Er þetta
árið 1992? Hvernig getur staðið á
því að annað eins á sér stað í hinum
svokallaða siðmenntaða heimi?
Þetta framferði ráðam'ánna í Rio
de Janeiro gefur ekki síður tilefni
til viðskiptaþvingana og að hunsa
mannfagnaði þeirra en margt annað
sem slík viðbrögð hefur vakið á liðn-
um árum.
Ráðstefnugestir geta ekki búist
við því að á þá verði hlustað þegar
þeir snúa heim eftir að hafa sótt
mót um umhverfisvernd, þar sem
strætin hafa nýlega verið lauguð
blóði saklausra og varnarlausra
fórnarlamba, sem skotin hafa verið
samkvæmt skipunum gjörspilltra
ráðamanna.
Nýlega er lokið hér söfnun til
styrktar íslenskum útigangsbörn-
um. Landsmenn brugðust vel við
og virtust hafa hjartað á réttum
stað. En íslensku börnin eru hvorki
betri né verri en börnin í Rio de
Janeiro. Hvernig liði okkur ef úti-
gangsbörnin okkar væru skotin á
færi?
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Gaukshólum 2, Reykjavík.
LEIÐRETTINGAR
Rangt nafn
RANGT var farið með nafn fram-
kvæmdastjóra Hins íslenska bók-
menntafélags í myndatexta á bls.
27 í Morgunblaðinu í gær. Hann
heitir Sverrir Kristinsson. Hlutað-
eigendur eru beðnir afsökunar.
Enn rangt nafn
ÞAÐ skal tekið fram, að nafn fyrir-
tækisins, sem bauð í loftin í í Þjóðar-
bókhlöðunni er Beyki, ekki Beykir.
Nafn féll niður
í F'RÉTT þar sem sagt var frá 60
ára afmæli Búnaðarsambands
Eyjafjarðar og birtist í blaðinu á
þriðjudag féll niður nafn eins þeirra
sem sæti eiga í ritnefnd vegna út-
komu bókar um byggðir Eyjafjarð-
ar. Formaður nefndarinnar er Jó-
hannes Sigvaldason, Akureyri. Beð-
ist er velvirðingar á þessu.
Innilegt þakklœti sendum viÖ börnum okkar,
tengdabörnum og barnabörnum sem heiöruöu
okkur á 60 ára brúÖkaupsafmœlinu meÖ höfö-
inglegri matarveislu i Perlunni 7. april ’92,
einnig þökkum við öll skeytin.
Magnús og Halldóra, Reynihvammi.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig
á áttrœöisafmœli mínu 30. mars sl. Sérstaklega
þakka ég sonum mínum og tengdadœtrum, og
þá ekki síst Bryndísi tengdadóttur minni, þó á
engan skyldi hallaÖ, en þau stóöu fyrir þessum
afmœlisfagnaÖi mér til mikillar gleÖi. K
Eg þakka barnabörnum, dóttur minni og fjöl-
skyldu, tengdafólki og öörum vinum í Noregi
- vinum og œttingjum hér heima - skátasystr-
um og -brœÖrum og öllum hinum mörgu vin-
um, sem glöddu mig með nœrveru sinni, kveðj-
urn, gjöfum og góðum óskum.
Góöir vinir er eitt af því dýrmœtasta, sem
maÖur eignast, og aldrei verður metið sem
skyldi. Ég þakka öll hin hlýju orö sem til min
voru töluö. Ég þakka heimsókn og söng ungu
skátanna, og heimsókn og söng barnanna úr
Kirkjuskjólinu. Égþakka öllum sem lögöu fram
starf rausnarlega gjöf sóknarnefndar og kven-
félags - og Bandalags ísl. skáta, allra skáta
og gildisvina - allt til þeirra, sem stóÖu meÖ
fánana viö dyrnar.
Guð blessi ykkur öll, kœru vinir.
Hrefna Samúelsdóttir Tynes.
Barnaskfir
éf®
Hvítir lakk m/gylltri
spennu.
St. 28-35. V. kr. 2.485,-
barnaskfir
Svartir og rauðir lakk á
stráka og stelpur.
St. 28-35. V. kr. 2.485,-
fiyv-* pi Iw. A y* Sérverslunmeðbarnaskó
OiUd.OA.Ui Skólavörðustíg 6b.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
íþróttaskór
Litir: Hvítt m/grænu, hvitt m/fjólubláu.
Ath. Mikið úrval af íþróttaskóm. Ýmsar tegundir.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Domus Medica, Toppskórinn, Kringiunni,
Egilsgötu 3, Veltusundi, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 21212 sími 689212
Meim en þúgeturímyndad þér!