Morgunblaðið - 10.04.1992, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR
FOSTUDAGUR 10. APRIL 1992
HANDKNATTLEIKUR
Grótta niður
„VIÐ sprengdum þá, breyttum
um taktík og í stað þess að róa
leikinn eins og síðast, keyrðum
við upp hraðann og þeir ein-
faldlega sprungu. Það var meiri
barátta í okkur og meiri vilji til
að vera í 1. deild,“ sagði fyrir-
liði HK, Óskar Elvar Oskarsson,
eftir 19:25 sigur á Gróttu á
Nesinu í gærkvöldi. Með sigri
héltHKsérM.deilden Grótta
~>fellur í2. deild.
Leikurinn byrjaði af gríðarlegum
krafti, hratt spil og sóknar-
menn keyrðu á varnirnar en það tók
tæpar fimm mínútur
að skora fyrsta
markið. Það gerði
HK en Magnús var
þá búinn að gefa
tóninn með því að vetja þijú skot,
þaraf eitt vítaskot. Grótta spilaði
flata vörn en Óskar Elvar tók Stef-
án, fyrirliða Gróttu, úr umferð. Það
truflaði sóknarleik heimamanna svo
sóknin varð frekar bitlaus.
Stefán
Stefánsson
skrifar
HK hélt hraðanum eftir hlé en
Gróttu gekk illa að koma að skoti.
Stefán Arnarson reyndi að taka
besta mann HK, Michal Tonar, úr
umferð en það gekk ekki sem skyldi
því Michal sleit sig lausan eða Ösk-
ar Elvar braust í gegn og skoraði.
Um miðjan hálfleik fór að draga
af heimamönnum og undir lokin
misstu þeir áhugann.
„Ömurlegt, einbeitingin klikkaði
og við héldum að heimasigur væri
sjálfgefinn“, sagði Stefán Arnar-
son, fyrirliði Gróttu. „Það verða
einhvetjar breytingar en við förum
strax upp aftur.“ Liðið var langt
frá sínu besta, þar á meðal mark-
vörðurinn Alexander Revine, sem
hefur átt skínandi leiki í vetur.
HK var betra liðið í þessum leik,
Michai Tonar var óstöðvandi,
Magnús í markinu varði eins og
berserkur, Hilmar Sigurgíslason
hélt Páli Björnssyni föstum, Óskar
Elvar reif sig lausan ef þurfti og
aðrir stóðu þeim lítt að baki.
. Morgunblaöiö/Júlíus
Magnús Ingi Stefánsson, markvörður HK, fagnar sigrinum ásamt tveim-
ur ötulustu stuðningsmönnum HK, Leifi Óskarssyni, syni fyrirliða HK, og
Andrési Aðalsteinssyni. Snáðarnir, sem eru aðeins tveggja og þriggja ára,
hafa mætt á alla leiki HK í vetur.
Rætt við Þorberg og Einar
Framkvæmdastjórn HSÍ ákvað á fundi sínum í gær að hefja formleg-
ar viðræður við Þorberg Aðalsteinsson og Einar Þorvarðarson um
að þeir haldi áfram sem landsliðsþjálfarar fram yfir heimsmeistara-
keppnina á íslandi 1995. Þeir voru ráðnir með þann tíma í huga, en
kveðið var á um að samningurinn yrði endurskoðaður eftir B-keppn-
ina. Landsliðsnefnd HSÍ lagði til við framkvæmdastjórnina að þeir
félagar yrðu endurráðnir og þeir hafa einnig sýnt áhuga á að halda
áfram með liðið.
Kvennaliðinu boðið
sæti í B-keppninni
Alþjóða handknattleikssam-
bandið hefur boðið HSÍ að
senda landslið kvenna í B-keppnina,
sem verður haldin í Litháen um
mánaðarmótin nóvember desember
næstkomandi.
íslenska liðið náði ekki að tryggja
sér farseðilinn í B-keppnina í síð-
ustu C-keppni, en er fyrsta varaþjóð
Evrópu. Únigimy ng Paragrtay
hættu við þátttöku og aðrar þjóðir
afþökkuðu sæti og því var íslandi
boðið.
HSÍ hefur ákveðið að þyggj boð-
ið með þeim fyrirvara að IHF stað-
festi þátttökuna fyrir sumarið og
fjámiögnun verði tryggð, en talið
er að kostnaður verði um þtjár
milljónir.
URSLIT
Golf
Bandaríska meistarakeppnin [US Mast-
ers] hófst í gær í Augusta í Georgíu. Efstu
menn eftir fyrsta keppnisdag eru eftirtaldir
(Bandaríkjamenn nema annað sé tekið
fram):
65 Jeff Slumn, Lanny Wadkins
68 Wayne Grady (Ástralíu), Mike Hulbert
og Davis I/)Ve.
69 Ian Woosnam (Bretlandi), Jodie Mudd,
Jack Nicklaus, Raymond Floyd, Bem-
hard Langer (Þýskalandi), Bruce Li-
etzke, John Huston, Fulton Allem (Suð-
ur Afríku), Steve Elkingtson (Ástralíu),
Steven Richardson (Bretlandi).
70 Manny Zerman (Suður Afríku), Rocco
Mediate, Craig Stadler, Ian Baker-Finch
(Ástralíu), Greg Norman (Ástralíu),
Nick Price (Zimbabwe), Manny Zerman
(Suður Afríku, áhugamaður)
• Skor nokkurra þekktra kylfinga: Nick
Faldo Bretlandi 71, Sandy Lyle, Bretlandi,
og Hale Irwin 72, Mark Calcavecchia 73,
Jose-Maria Olazabal, Spáni, 76.
■Nick Price, sem lék á 70 höggum í gær,
á vallarmetið á Augusta National-veliinum,
ogerþað 64 högg. Hann setti metið 1986.
SUND / MEISTARAMOTIÐ INNANHUSS
Reynt við ólympíulágmörk
MEISTARAMOTISLANDS í
sundi innanhúss fer fram i
Vestmannaeyjum um helgina
og verður sett í dag. 111 kepp-
endur frá 16 félögum taka þátt
og eru skráningar 380 talsins.
Keppt verður í 32 greinum og
markmið sumra er að synda
undir lágmörkum vegna
Ólympíuleikanna í Barcelona í
sumar.
Þetta er í fimmta sinn, sem ís-
landsmótið fer fram í Eyjum
og hafa mörg met fallið á mótun-
um. 1986 voru sett sjö íslandsmet,
1988 15 met, 1990 tvö met og í
fyrra sex met.
Flest besta sumlfólk landsins tek-
ur þátt nema Magnús Már Ólafs-
son, Eðvarð Þór Eðvarðsson og
Arnþór Ragnarson, sem ætla að
reyna við ólympíulágmörk á sund-
móti í Edinborg í Skotlandi í næstu
viku. Ragnheiður Runólfsdóttir og
Helga Sigurðardóttir koma gagn-
gert frá Bandaríkjunum til að taka
þátt í mótinu og einnig verður Ingi-
björg Arnardóttir á meðal kepp-
enda, en hún hefur æft í Þýska-
landi frá síðustu áramótum.
Lokahóf mótsins verður á sunnu-
dagskvöld og verða þau, sem flest
stig hljóta samkvæmt alþjóða stiga-
töflu, sérstaklega verðlaunuð. Þá
velja þjálfararnir efnilegasta sund-
fólkið.
Ragnheiður Runólfsdóttir
GETRAUNIR
BADMINTON / EVROPUMOTIÐ
fs. Heimaleikir frá 1979 1 X 2 Mörk
—/fW—
Djurgárden : Trelleborgs FF 0 0 0 0-0
GAIS : Örebro 0 0 3 1-4
Malmö FF : Öster 4 3 1 13-7
Norrköping : AIK 3 3 1 10-5
V. Frölunda : IFK Göteborg 0 2 1 2-7
Arsenal : Crystal Palace 3 1 0 12-4
Aston Villa : Liverpool 1 6 4 12-19
Everton : Sheffield Utd. 0 0 1 1-2
Leeds : Chelsea 1 2 1 8-7
Notts County : Coventry 3 0 0 9-3
QPR : Tottenham 5 2 1 14-9
Sheffield Wed. ; Manchester City 3 1 0 7-3
West Ham : Norwich 3 1 2 4-4
Úrslit
Mín spá
1 x 2
Stefnt að 2. deild
ÍSLENSKA landsliðið í badmin-
ton fer til Skotlands á morgun
til að taka þátt í Evrópumeist-
aramótinu, bæði Miðakeppni
sem og einstaklingskeppni. ís-
land leikur í þriðju deild og
keppir að þvf að komast upp í
2. deild.
|sland er í F-riðli með Austurríki
og Frakklandi, en í hinum riðli
3. deildar, E-riðli, eru Belgía, Tékkó-
slóvakía og Búlgaría. Sigurvegarar
riðlanna leika um sæti í 2. deild.
Á mánudag verða leikirnir í riðlin-
um, en á þriðjudag verður leikið um
sæti. Einstaklingskeppnin hefst á
sunnudag.
I landsliðinu eru Broddi Kristjáns-
son, Árni Þór Hallgrímsson, Jón P.
Ziemsen, Elsa Nielsen, Ása Pálsdótt-
ir og Þórdís Edwald, öll úr TBR.
Mike Brown er landsliðsþjálfari.
Grótta-HK 19:25
íþróttahúsið Seltjarnarnesi, íslandsmótið í
handknattleik, úrslitaleikur um sæti í 1.
deild karia, fimmtudaginn 9. apríl 1992.
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 2:5, 5:6,
7:9, 8:10, 8:12, 11:15, 13:19, 15:21,
16:24, 18:25, 19:25.
Mörk Gróttu: Guðmundur Albertsson
12/7, Kristján Brooks 4, Páll Björns-
son 1, Gunnar Gíslason 1, Svafar
Magnússon 1.
Varin skot: Alexander Revine 7.
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk HK: Michal Tonar 11/2, Óskar
Elvar Óskarsson 5, Rúnar Einarsson
4, Ásmundur Guðmundsson 3, Gunnar
Gíslason 2.
Varin skot: Magnús I. Stefánsson 24,
þaraf 2 vítaskot.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Guðmundur Sigurbjörns-
son og Jón Hermannsson komust
ágætlega frá erfiðum leik.
Áhorfendur: 400 og mjög virkir.
Haukar - Færeyjar 27:28
íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði,
vináttuleikur í handknattleik, fimmtudaginn
9. apríl 1992.
Mörk Hauka: Páll Ólafsson 6, Óskar Sig-
urðsson 6, Petr Baumruk 4, Pétur Vilberg
Guðnason 4, Jón Örn Stefánsson 2, Halldór
Ingólfsson 1, Sigurður Sigurðsson 1, Svein-
berg vGíslason 1, Gunnar Sigutjónsson 1,
Aron Kristjánsson 1.
Mörk Færeyja: Andreas Hansen 7, Hannes
Wardum 6, Ingi Olsen 6, Jóan Olsen 3, Dia
Midfjord 1, Jonleif Sólsker 1, John Petersen
1, Pétur Petersen 1.
SKÍÐI
Svíar fjöl-
menna á
fis-mótin
53 erlendir skíðamenn frá sjö
þjóðum hafa skráð sig til
keppni á alþjóðlegu stigamót-
unum sem hefjast á Akureyri
um helgina. 25 keppendur
koma frá Svíþjóð, 18 karlar og
sjö konur.
Guðmundur Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Skíðasam-
bandsins, sagði í samtali við Morg-
unbiaðið íið mikið hefði verið að
gera á skrifstofu sambandsins við
að svara fyrirspurnum erlendis frá
um mótið. „Nú er svo komið að við
erum að sprengja kvótann. Það er
greinilega mjög mikill áhugi fyrir
mótunum," sagði Guðmundur.
í gær höfðu 33 etiendir keppend-
ur skráð sig til keppni í karlaflokki
og 20 í kvennaflokki. Auk þess
verða um 20 íslenskir skíðamenn
sem taka þátt og þar á meðal er
Ólafsfirðingurinn, Kristinn Björns-
son. 25 keppendur koma frá Sví-
þjóð, 9 frá Danmörku, 8 frá Bret-
landi, 6 frá Noregi, 2 frá Ungverja-
landi og einn frá Kanada og Astral-
íu.
Fis-mótin verða sex að þessu
sinni. Fyrstu þt'jú mótin verða á
Akureyri. Keppt verður í svigi á
laugardag og síðan stórsvigi á
sunnudag og mánudag. Þá verður
farið til Isafjarðar og keppt í tveim-
ur svigmótum á miðvikudag og
fimmtudag. Mótaröðinni lýkur með
svigi í Bláfjöllum laugardaginn 18.
apríl. Keppt verður um Visa-bikar-
inn, sem er veittur fyrir besta sam-
anlagðan árangur í mótunum sex.
KORFUKNATTLEIKUR / BANDARISKA HASKOLAKEPPNIN
Háskólinn í Duke varði titilinn
Þjálf ari óskast
íþróttafélagið Höróur á Patreksfiröi óskar
að ráóa þjálfara í sumar. Um er að ræða
fótbolta og frjálsar íþróttir. I boói eru góó
laun og frítt húsnæói. Framtíóarmöguleikar
fyrir íþróttakennara vió vetrarkennslu.
Upplýsingar gefur Kristín Gísladóttir í síma
94-1481 eftirkl. 16.00.
HÁSKÓLINN í Duke varði titil-
inn íbandarísku háskólakeppn-
inni á dögunum. Duke sigraði
Michigan 71:51 íhreinum úr-
slitaleik í Minneapolis fyrir
framan51 þúsund áhorfendur.
Þetta var í fyrsta sinn sem lið
íháskólakeppninni nærað
verja titilinn í 20 ár.
Leikurinn var mjög jafn og
spennandi fram í hálfleik, en
Michigan hafði þá eins stigs for-
Frá Gunnari
Vaigeírssyni
i Bandaríkjunum
ystu, 31:30. Lið
Duke tók síðan leik-
inn í sínar hendur
og keyrði yftr lið
Michigan og sigraði
örugglega. Michigan gerði aðeins
20 stig í síðari hálfeik og segir það
allt um stórgóðan varnarleik Duke
liðsins.
Þetta var í fyrsta sinn sem lið í
háskólakeppninni næt' að vetja titil-
inn í 20 ár. Þar áður var það UCLA
sem sigraði í háskólakeppninni ell-
efu sinnum á 12 árum. 360 háskóla-
lið tóku þátt í deildarkeppninni og
komust 64 þeirra í úrslitakeppnina
sjálfa. Falur Harðarson og samhetj-
ar í Charleston Southern háskóla
voru nálægt því að tryggja sér
sæti á meðal þessara 64 liða, en
töpuðu í úrslitaleik.
Eftir leikinn í Minneapolis kom
til átaka milli 5.000 stúdenta í Mic-
higan sem tóku tapinu illa og lög-
reglu, sem varð að nota táragas til
að stilla til friðar. Hins vegar var
mikill fögnuður í Norður-Karoiínu.
i
i
í