Morgunblaðið - 10.04.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992
47
KORFUKNATTLEIKUR/ URSLITAKEPPNIN
Valur-IBK 56:78
Hlíðarendi, fjórði úrslitaleikurinn á
Islandsmótinu í körfuknattleik, Japis-
deild, fimmtudaginn 9. mars 1992.
Gangur leiksins: 0:11, 6:19, 8:28,
19:40, 30:51, 35:63, 50:72, 56:78.
Stig Vals: Franc Booker 28, Svali
Björgvinsson 7, Magnús Matthíasson
5, Ari Gunnarsson 4, Síinon Ólafsson
4, Lárus Pálsson 4, Matthías Matthí-
asson 2, Tómas Hoiton 2.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 17, Jonat-
han Bow 12, Sigurður Ingimundarson
11, Kristinn Friðriksson 10, Nökkvi
Már Jónsson 9, Júlíus Friðriksson 6,
Hjörtur Harðarson 5, Albert Óskars-
son 4, Brynjar Harðarson 2, Guðjón
Skúlason 2.
Áhorfendur: Um 1.400
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Krist-
ján Möller. Dæmdu ágætlega en ekki
eins vel og þeir hafa gert hingað til
í úrslitakeppninni.
Dómgæsla:
Fimm vilja
fá FIBA-
rétftindi
FIMM íslenskir körfuknatt-
leiksdómarar sækjast eftir al-
þjóðlegum dómararéttindum,
en KKÍ sendir aðeins tvo á
námskeið sem haldið verður í
Moregi í tengslum við Norður-
landamótið.
Alþjóðlegt dómaranámskeið
verður haldið í Noregi í
tengslum við Norðurlandamótið
dagna 6. til 11. maí og fimm ís-
lenskir dómarar hafa áhuga á að
sækja það námskeið. Bergur Stein-
grímsson, Helgi Bragason, Kristinn
Oskarsson, Kristján Möller og Leif-
ur Garðarsson hafa allir hug á að
komast á námskeiðið — en aðeins
tveir komast.
Dómararnir eru því þessa dagana
að lesa reglurnar enn betur en þeir
gera daglega því KKÍ mun halda
úrtökupróf fyrir þá og tveir efstu
úr því fara á námskeiðið. Prófíð
verður bóklegt og einnig verður
myndbandapróf FIBA notað. Þá eru
sýnd atriði úr leikjum, myndbandið
stoppað og dómararnir spurðir hvað
eigi að dæma, eða hvort eitthvað
eigi að dæma.
Þeir sem fara til Noregs munu
væntanlega dæma einhveija leiki á
Norðurlandamótinu því það verður
hluti af prófínu. Kristinn Albertsson
er eini virki FIBA dómarinn hér á
landi en nú stendur greinilega til
að ljölga þeim um tvo.
BLAK
Kvennalandslið-
iðtil Gíbraltar
Kvennalandsliðið í blaki heldur
til Gíbraltar í dag til að taka
þátt í smáþjóðamóti í blaki. Island
leikur í riðli með Færeyjum og
Kýpur. Fyrsti leikur íslenska liðsins
verður við það færeyska á sunnu-
daginn en síðan leikur liðið við
Kýpur á mánudaginn. Fyrirfram er
búist við því að möguleikar íslands
verði ekki miklir gegn Kýpur en
allt verður lagt í sölurnar til að ná
sigri gegn Færeyingum.
I hinum riðlinum eru lið Lúxem-
borgar, San Marino og Gíbraltar
en þar er búist við sigri landsliðs
Lúxemborgar. Úrslitakeppnin verð-
ur með því sniði að tvö efstu liðin
úr hvorum riðli leika saman sam-
kvæmt krossafyrirkomulagi þannig
að þau lið sem sigra þar leika til
úrslita.
L
Ikvöld
Handknattleikur
Úrslitakeppni kvenna:
Víkin, Víkingur - Fram.....20
Heimsókn færcyska landsliðsins:
I.augardalshöll, U-18 - Færeyjar...21
Aðgangur ókeypis
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni 1. deildar:
Seljaskóli, ÍR- UBK.......20
Fjórði úrslitaleikur
Islandsmótsins i körfuknattleik
í Valsheimilinu 9. april 1992
21/6 Víti 16/10
23/4 3ja stiga 11/2
36 Fráköst 40
19 (varnar) 29
17 (sóknar) 11
3 3olta náð 9
12 Bolta tapað 13
2 Stoðsendingar 22
Jón Kr.
Magnús
Morgunblaðið/Sverrir •
Gíslason skorar hér af öryggi umkringdur Valsmönnum. Símon Ólafsson gerir tilraun til að stöðva Jón en
Matthíasson og Ragnar Jónsson fylgjst vonlitlir með.
■ GUÐNI Hafsteinsson lék ekki
með Val í gær. Hann var dæmdur
í tveggja leikja bann af aganefnd
fyrir að veitast að Albert Oskars-
syni í þriðja leik liðanna í Keflavík
á þriðjudaginn. Guðni leikur því
ekki héldur með á morgun.
■ VALSMENN voru ekki líkir
sjálfum sér í gær. Þeim tókst ekki
að skora fyrr en eftir fímm mínútna
leik! Þegar 10 mínútur voru liðnar
höfðu þeir aðeins gert 6 stig! '
■ KEFL VÍKINGAR léku góða
vörn, en sókn Vals var svo slök að
þeir þurftu ekki að bijóta á þeim.
Keflvíkingar fengu fyrstu villuna
eftir 10 mínútna leik.
■ DÆMDAR voru 5 villur á Val
í fyrri hálfleik en 10 á Keflvíkinga.
■ SÍMON Ólafsson fékk fimmtu
villu sína þegar rúmar 13 mínútur
voru eftir af leiknum. Jonathan
Bow þegar rúmar tvær mínútur
voru eftir af leiknum og Franc
Booker einnig.
■ ALLIR leikmenn ÍBK skoruðu
í gærkvöldi.
■ ÞAÐ má segja að setið hafi
verið í hveiju horni í Valsheimilinu
að Hlíðarenda. Búið var að bæta^"
við sætum sem fengin voru í Laug-
ardalshöll. Þegar ein og hálf
klukkustund var þar til leikurinn
átti að hefjast var anddyri Vals-
hússins troðfullt af fólki sem ætl-
aði á leikinn.
50 stiga sveifla!
Valsmenn gerðu aðeins 19 stig í fyrri hálfleik og aldrei möguleika á heimavellL
KEFLVÍKINGAR ollu aðdáendum sínum ekki vonbrigðum igær-
kvöldi og sýndu að þeir geta ennþá leikið vel, ef einhver skyldi
hafa dregið það í efa. Valsmenn voru hins vegar heillum horfnir
— og þá er vægt til orða tekið — þeir gerðu aðeins 19 stig í
fyrri hálfleik og hefur það örugglega aldrei gerst áður í körfu-
knattleik í bestu deild hér á landi og varla í heiminum. Keflvíking-
ar kafsigldu Valsmenn, á svipaðan hátt og Valsmenn kjöldrógu
Keflvíkinga á dögunum. Lokatölur urðu 56:78, eða 22ja stiga
munur. Valur vann á dögunum með 28 stiga mun og sveiflan á
milli leikja er því 50 stig!
Það varð strax ljóst í hvað
stefndi. Keflvíkingar voru ör-
yggið uppmálað frá byijun en Vals-
menn hræðilega
Skúli Unnar slakir, svo slakir að
Sveinsson varla var annað
skrifar hægt en að vor-
kenna þeim. Sókn-
arleikur IBK var yfirvegaður og
skynsamur. Lið Keflvíkinga lék ekki
ósvipað og Valsmenn hafa gert í
hinum leikjunum, nýtti tímann og
beið eftir góðu skotfæri.
„Við náðum upp góðri einbeit-
ingu fyrir leikinn og vissum að það
var að duga eða drepast fyrir okk-
ur. Við höfðum mikinn vilja til að
sigra og lékum sóknina skynsam-
lega og það leiddi af sér sterka
vörn,“ sagði Jón Kr. Gíslason þjálf-
ari og leikmaður ÍBK við Morgun-
biaðið.
Vörn Keflvikinga var sterk, en
ekki svona sterk! Þegar Valsmenn
fengu upplögð færi til að skora hittu
þeir ekki og það nær náttúrlega
ekki nokkurri átt að gera bara 19
stig í heilum hálfleik. Tölurnar sýna
betur en mörg orð hversu máttlítil
sókn Vals var. Og ennfrekar sýna
villurnar sem liðið fékk í fyrri hálf-
leik að Valsmenn voru ekki að reyna
neitt. Þeir fengu aðeins dæmdar á
sig fimm villur í fyrri hálfleik.
Valsmenn klóruðu aðeins í bakk-
ann í upphafi síðari hálfleiks en
síðan ekki söguna meir. Yfirburðir
Keflvíkinga voru algjörir á öllum
sviðum. Sem dæmi má nefna að
stoðsendingar þeirra voru 22 í
leiknum en Valsmenn áttu aðeins
tvær slíkar.
„Taugarnar eiga sjálfsagt ein-
hvern þátt í hversu lélegir við vor-
um. Keflvíkingar tóku okkur eigin-
lega á okkar eigin bragði, léku af
yfirvegun og skynsemi. Það greip
einhver öi’vænting okkur eins og
hjá þeim í síðasta leik. Það var virki-
lega gaman að sjá svona marga
Valsmenn samankomna í húsinu og
leiðinlegt að geta ekki sýnt þeim
betri leik,“ sagði Tómas Holtan
þjálfari og leikmaður Vals.
Hreinn úrslitaleikur verður á
laugardaginn kl. 16 í Keflavík og
höfðu körfuknattleiksunnendur á
orði að vonandi næðu bæði lið að
leika vel þá, ekki bara annað í einu
eins og verið hefur. „Nú er pressan
jöfn á liðunum en við höfum 1.000
manns með okkur og það vegur
þungt og gæti gert gæfumuninn,“
sagði Jón Kr. Gíslason.
„Við verðum búnir að lagfæra
það sem miður fór hjá okkur í
kvöld. Það hafa verið gríðarlegar
sveiflur í þessum leikjum og ef til
vill verður úrslitaleikurinn jafn og
spennandi," sagði Tómas Holton.
Það var gríðarlega sterk liðsheild
ÍBK sem skóp sigurinn. Allir léku^
veþeinn fyrir alla og allir fyrir einn.
Vörnin var góð og sóknin leikin af
mikilli skynsemi. Það var sama
hveijir voru inná — munurinn hélst
og yngri og óreyndari leikmenn liðs-
ins áttu í fullu tré við byijunarlið
Vals.
Enginn lék vel hjá Val. Franc,
Booker gerði reyndar 28 stig, eða
helming stiga liðsins en nýtingin
var ekki til að hrópa húrra fyrir.