Morgunblaðið - 10.04.1992, Side 48
NAMSMANNATRYGGINGAR
LETTOL
MORGUNBLAÐW, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJA VÍK
Slm 091100, SÍMBRÉF 091181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FOSTUDAGUR 10. APRIL 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Frumvarp um S-Afríku:
Heimildtil
-að aflétta
viðsldpta-
banninu
Ríkisstjórnin hefur lagt fram
lagafrumvarp á Alþingi um að
fella úr gildi viðskiptabann á
Suður-Afríku. Samkvæmt frum-
varpinu á utanríkisráðherra að
ákveða hvenær lögin öðlast gildi
og verði það komið undir áfram-
haldandi lýðræðisþróun í landinu.
í greinargerð með frumvarpinu
segir að rétt þyki að afnema við-
-—--íkiptabannið til þess að staðfesta
að raunveruleg framþróun hafi orð-
ið í átt til lýðræðislegra stjórnar-
hátta og afnáms kynþáttaaðskilnað-
arstefnunnar og veita þeim stjórn-
málaöflum stuðning, sem vilja að
áfram verði haldið á sömu braut og
raunverulegu lýðræði komið á í
Suður-Afríku.
Alþingi setti lög um bann gegn
viðskiptum við Suður-Afríku og
Namibíu í maí 1988 en viðskipta-
bannið á Namibíu var afnumið 1990.
Endumýjaði
ekki og varð
af DAS-húsi
ÞEGAR dregið var í happ-
drætti DAS á þriðjudag kom
í Ijós að aðalvinningurinn,
DAS-húsið, hafði fallið á miða
sem seldur var í umboði happ-
drættisins á Akureyri. Sá sem
miðann átti fær hins vegar
ekkert húsið; miðinn hafði
ekki verið endurnýjaður.
Húsið kom upp á miða númer
26237, en hann hafði verið seld-
ur í umboðinu á Akureyri. Þar
sem eigandi miðans hafði ekki
endumýjað verður hann af hús-
inu, en um er að ræða parhús
með bílskúr við Aflagranda 25
í Reykavík og er verðmæti þ'ess
15 milljónir króna.
Happdrættið mun selja húsið
og rennur andvirði þess i bygg-
ingarsjóð DAS, en fjölmörg
verkefni Iiggja fyrir, m.a. upp-
bygging nýrra deilda við Hrafn-
istu í Hafnarfirði og húsnæði
fyrir fólk sem hlotið hefur heila-
skaða.
Sýslað við páskaskraut
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óðum styttist í páska og eflaust eru margir farnir að huga
að því að skreyta húsakynni sín við hæfi fyrir hátíðina. Við
slíka iðju kemst fólk í hátíðarskap eins og þessar litlu -telpur
hafa eflaust komist að. Þær heita (f.v.) Júlía Kristjánsdóttir,
María Helga Guðmundsdóttir og Ólöf Skaftadóttir og eru á
barnaheimilinu Tjarnarborg.
Sumarvinna fyrir námsmenn:
Yfir 1.800 skráðu sig í fyrstu
vikuimi hjá Reykjavíkurborg
Rúmlega tvö þúsund skráðu sig á tveimur mánuðum í fyrra
YFIR 1.800 skólanemendur 16
ára og eldri höfðu látið skrá sig
hjá Ráðningarstofu Reykjavík-
urborgar vegna sumarvinnu á
miðvikudag þegar vika var liðin
frá því að skráning hófst. Það
er rúmlega þrefalt fleiri en
höfðu skráð sig fyrstu vikuna í
fyrra þegar 504 skráðu sig, en
þá skráðu rúmlega tvö þúsund
skólanemendur sig í apríl og
maí. 462 sóttu um sumarvinnu
hjá Kópavogskaupstað saman-
borið við um 303 í fyrra og er
verið að ganga frá ráðningu 120
þeirra um þessar mundir. Könn-
un á atvinnuhorfum skólafólks
í sumar er í gangi í Hafnarfirði
Fiskeldisfyrirtækið ÍSNO
hf. óskar gj aldþ r otaskipta
STJÓRN ÍSNO hf., sem er eitt af elstu og stærstu fiskeldisfyrirtækj-
um landsins, hefur óskað eftir því við sýslumanninn í Árnessýslu
að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Skuldir eru taldar um
700 milljónir kr. og eru Landsbanki Islands og ýmsir opinberir
sjóðir stærstu einstöku lánardrottnarnir. Verðmæti eigna er óvíst,
bær eru bókfærðar á 400 milljónir kr. í reikningum félagsins.
•-andsbankiim á veð í eldisfiski og segir Eyjólfur Konráð Jónsson,
stjórnarformaður ÍSNO, að bankinn muni nú þegar taka við eldinu
til að tryggja veðið og að áður hafi verið samið við Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna um sölu á 100 tonnum af laxi sem slátra þurfi
nú þegar þar sem eldisker fyrirtækisins í Lónum í Kelduhverfi séu
orðin yfirfull af fiski.
Á stjórnarfundi ÍSNO hf. í fyrra-
kvöld var samþykkt að óska eftir
gjaldþrotaskiptum ef Landsbankinn
myndi ekki veita fyrirtækinu áfram-
haldandi rekstrarlán. Eftir fundi
með ráðherrum og fleiri fulltrúum
stjórnvalda fyrr um daginn lá fyrir
að Tryggingasjóður fiskeldislána
myndi ekki veita fyrirgreiðslu. Þar
sem Landsbankinn synjaði erindi
félagsins í gær var beiðni um gjald-
þrotaskipti lögð fram.
í bréfinu til sýslumanns segir að
ÍSNO hf. hafi átt við verulega
rekstrarerfiðleika að stríða síðustu
misserin, aðallega vegna verðhruns
á laxi, en einnig vegna óveðurstjóna
sem fyrirtækið hafi orðið fyrir.
Þrátt fyrir að allt hafi verið gert
til að rétta við ljárhag félagsins að
undanförnu, meðal annars með
samningum við lánardrottna, verði
ekki komist hjá gjaldþroti.
ÍSNO hf. er með seiðaeldisstöð á
Öxnalæk í Ölfusi og Lónum í Keldu-
hverfi og sjókvíaeldi og hafbeit í
Lónum og Vestmannaeyjum.
Sjá viðtal við Eyjólf Konráð
Jónsson á bls. 20.
og hefst skráning þar ekki fvrr
en niðurstöður liggja fyrir.
Rúmlega 600 manns hafa skráð
sig hjá Atvinnumiðlun náms-
manna.
Um 850 skráðu sig fyrsta dag
mánaðarins hjá Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar og síðan hefur
bæst við jafnt og þétt. Á miðviku-
dag höfðu 1.864 látið skrá sig en
fyrstu vikuna í fyrra skráðu 504
sig og 427 árið 1990. „Við verðum
að horfast í augu við þá staðreynd
að atvinnuleysi nú er yfir helmingi
meira en í fyrra,“ sagði Gunnar
Helgason, forstöðumaður Ráðn-
ingarstofunnar, aðspurður hvort
það væri stefna borgaryfirvalda
að útvega öllum þeim skólanem-
endum sumarvinnu sem sæktu
um. „Það hefur verið stefna
Reykjavíkurborgar að reyna að
hjálpa eins mörgum og auðið er
og meira getum við ekki sagt á
þessu stigi málsins," sagði hann
ennfremur.
Gunnar sagði erfitt að segja til
um hvað atvinnufyrirtæki tækju
við mörgum í sumarafleysingar,
en Ijóst að atvinnuástand væri allt
annað en í fyrra. Nú væru 1.422
skráðir atvinnulausir i borgjnni
samanborið við 654 á sama tíma
í fyrra. Tekist hefði að útvega öll-
um skólanemendum sumarvinnu á
síðasta ári, en þá hefðu rúmlega
tvö þúsund sótt um. Borgin hefði
ráðið til sín um 1.300 manns og
aðrir fengið vinnu annars staðar.
Unnið er að könnun á atvinnu-
horfum almennt í Hafnarfirði, ekki
síst með tilliti til sumarvinnu
námsmanna, að sögn Gunnars
Rafns Sigurbjörnssonar bæjarrit-
ara. Hann sagði að undanfarin ár
hefði verið rekin sérstök vinnu-
miðlun skólafólks og hann gerði
ráð fyrir að svipaður háttur yrði
hafður á í ár, en á síðasta ári tók
vinnumiðlunin til starfa í maí. Vilji
bæjarstjórnar væri ótvírætt sá að
þegar niðurstaða lægi fyrir um
atvinnuhorfurnar almennt myndi
bærinn grípa tii sérstakra ráðstaf-
ana í atvinnumálum eins og gert
hefði verið áður.
Kópavogur hefur auglýst eftir
umsóknum um sumarvinnu og
rann umsóknarfrestur út seinni
hluta marsmánaðar. 462 sendu inn
umsóknir samanborið við 303 í
fyrra og ákveðið hefur verið að
ráða 120 sem er sami fjöldi og á
síðasta ári.
Rúmlega 600 skólanemendur
hafa skráð sig hjá Atvinnumiðlun
námsmanna frá því hún tók til
starfa 23. mars. Að sögn Ástu
Snorradóttur, framkvæmdastjóra
Atvinnumiðlunarinnar, hefur ekk-
ert af störfum komið inn ennþá.
Hún sagði að ástandið á vinnu-
markaði virtist mjög erfitt nú.
Atvinnumiðlunin verður opin fram
í júlímánuð.