Morgunblaðið - 16.04.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1992
35
Skíðaði nið-
ur Erninn
Isafirði.
Jón Nordquist skíðaði af
brúnum fjallsins Ernis úr 720
metra hæð niður á Isafjarðar-
flugvöll á þriðjudag. Eins og
sagt var frá í blaðinu í gær
guggnuðu tveir Bandaríkja-
menn, sem fóru með honum
fljúgandi upp á fjallið, á því að
skíða niður á þessum stað, en
komust þó klakklaust niður
annars staðar, áður en hjálpar-
flokkur, sem sendur var þeim
til bjargar, náði upp til þeirra.
í baksýn myndarinnar má
sjá þverhnípt klettabeltin þar sem
Jón hóf ferðina, en hann fór niður
þröngt en snarbratt gil, milli 50
og 100 metra, áður en hlíðin sjálf
opnaðist. Jón sagði að líklega
hefði hann verið betur búinn í
ferðina en hinir, því að efst við
hæstu lyftuna á Seljalandsdal er
gil, sem hann er vanur að skíða
líkt og aðrir ísfirðingar, en þar
er hægt að fara smá brekku sem
er um 90 gráður. Að sögn Jóns
eru Bandaríkjamennirnir óhressir
með að hafa ekki lagt í brekkuna
og vilja gjarnan gera aðra tilraun
þótt seinna verði.
Úlfar.
Ars fangelsi
fyrir misneyt-
ingu og svik
26 ARA maður hefur verið dæmd-
ur í sakadómi Reykjavíkur til 12
mánaða fangelsis fyrir misneyt-
ingu, fjárdrátt, tékkabrot, þjófnað
og skjalafals.
Mál gegn manninum var höfðað
vorið 1989, en var ekki tekið fyrir
fyrr en nú, þar sem maðurinn hvarf
úr landi. Hann fór til Bandaríkjanna,
en var vísað þaðan í lok mars. Þar
hafði hann verið í haldi lögreglu í
íjóra mánuði vegna gruns um aðild
að líkamsárásum, þjófnuðum og inn-
.brotum í Virginíufylki.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa notfært sér vanheilsu, greind-
arskort og dómgreindarleysi mið-
aldra konu. Ilann fékk hana til að
undirrita um 20' víxla, skuidabréf og
tékka og hagnýtti sér andvirði þeirra,
um 2,5 milljónir króna. Skuldbind-
ingar konunnar vegna þessa leiddu
til þess að hún var gerð gjaldþrota
og missti eignir sínar.
Maðurinn var einnig sakfelldur
fyrir fjárdrátt, tékkabrot, þjófnað og
skjalafals. Refsing hans var ákveðin
12 mánaða fangelsi, óskilorðsbundið.
Þá var lagt farbann á manninn, þar
til afplánun hans hefst, en hann
unir dómi sakadóms.
Pétur Guðgeirsson, sakadómari,
kvað upp dóminn.
--------------
Langbylgju-
útsendingar
hafnaráný
Langbylgjuútsendingar Ríkis-
útvarpsins eru nú hafnar að nýju
á 207 kílóriða tíðni. Jafnframt því
hætta tímabundnar útsendingar
allan sólarhringinn á stuttbylgju,
3242 kílóriðum, segir í frétt frá
tæknideild RÚV.
Bruninn í loftnetshúsinu, sem
stöðvaði útsendingarnar er talinn
stafa af því að einangrari í loftnets-
húsinu hafi gefið sig og brotnað,
með þeim afleiðingum að háspennu-
leiðsla hafi snert húsið og kveikt í því.
Útlit var fyrir að langbylgjusend-
ingar gætu iegið niðri lengi-i tíma
sökum þess að alla varahluti vantaði
en starfsmenn Radíódreifistöðva-
deildar Pósts og síma sýndu mikla
útsjónarsemi og smíðuðu þann búnað
er á vantaði. Það er ástæðan fyrir
því að sendingar eru nú hafnar, fyrr
en vonir stóðu til.
Afengissala minnkar
mn 11,6% janúar-mars
HEILDARSALA áfengis minnk-
aði um 11,6% fyrstu þrjá mánuði
ársins miðað við sama tímabil í
fyrra mælt í lítrum. Ef mælt er
í alkóhóllítrum varð samdrátt-
urinn 10%. Sala vindlinga stóð
í stað fyrstu þijá mánuðina í
ár miðað við samatímabil í fyrra
en sala á vindlum minnkaði um
4,6%.
Samkvæmt upplýsingum frá
ÁTVR nam heildarsala áfengis,
að bjór meðtöldum, 1.586.964 lítr-
um fyrstu þrjá mánuði ársins á
móti 1.795.332 lítrum í fyrra. Hér
skal tekið fram að dymbilvikan var
í mars_ 1991 en er í apríl í ár og
segir ÁTVR að salan í tengslum
við páskafrí sé jafnan umtalsverð.
Heildarsala nef-og munntóbaks
nam 3390 kg. og er það 10,8%
aukning frá sama tíma í fyrra.
Sala á vindlingum stóð í stað en
heildarsala vindla nam 2.864.315
stykkjum á móti 3.003.190 stykkj-
um í fyrra.
í fyrrgreindum magntölum er
ekki tekið tillit til áfengis og/eða
tóbaks sem áhafnir skipa og flug-
véla flytja inn í landið né þess
magns sem ferðamenn koma með.
Þorlákshöfn:
Jóhann tefl-
ir fjöltefli
Þorlákshöfn.
HALDIÐ verður kjördæma-
mót í skák í grunnskólanum
í Þorlákshöfn. Rétt til þátt-
töku á mótinu hafa þeir nem-
endur sem urðu í 1. og 2.
sæti á sýsiumótum kjördæm-
isins.
Skákmótið er tveggja daga
mót, hefst kl. 13 síðasta vetrar-
dag, 22. apríl, og lýkur um kl.
12 sumardaginn fyrsta, 23.
apríl.
Að kvöldi keppnisdags mun
síðan Jóhann Hjartarson stór-
meistari tefla fjöltefli við þátt-
takendur á kjördæmamótinu og
aðra skákmenn á Suðuriandi.
- J.H.S.
OPIÐ UM PÁSKANA SEM HÉR SEGIR:
Skírdagur, kl. 9 - 22
Föstudagurinn langi, LOKAÐ
Laugardagur, kl. 9- 2 2
Páskadagur, LOKAÐ
Annar páskadagur, kl. 9-22
PÁSKALILJUR
»■ AWSKQMMMkm 06 1 POffOM
NÚ ER PÁSKALEGT
í BLÓMAVALI