Morgunblaðið - 13.05.1992, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992
Sparisjóður Mývetninga:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Útvarpsleikrit hljóðritað eftir sjö ára hlé
Leikritið Fangakapall eftir Valgeir Skagfjörð var
tekið upp í hljóðveri Ríkisútvarpsins á Akureyri á
föstudag í liðinni viku. Leikrit hafa ekki verið tekin
upp á Akureyri frá árinu 1985, en það ár voru hljóð-
rituð tvö leikrit norðan heiða. Það er norðlenskir
leikarar sem fara með hlutverkin í Fangakapli Val-
geirs og hlaut Utvarp Norðurlands styrk úr Menning-
arsjóði útvarpsstöðva til að taka það upp, en tilefn-
ið er 75 ára afmæli Leikfélags Akureyrar. Arnar
Páll Hauksson forstöðumaður Útvarps Norðurlands
sagði að í kjölfarið væri vonast til þess að tekið
yrði upp leikrit hjá útvarpinu á Akureyri ár hvert.
Á myndinni eru frá vinstri, Björn Sigmundsson,
tæknimaður og leikararnir Þórdís Arnljótsdóttir,
Valgeir Skagfjörð, Sunna Borg, Þráinn Karlsson og
Hallmar Sigurðsson.
var honum jafnframt falið að
stjórna fundinum.
Ingólfur Jónasson flutti starfs-
skýrslu sjóðsins síðastliðið ár. Þar
kom m.a. fram, að þá störfuðu að
meðaltali 5 ársmenn hjá sparisjóðn-
um og námu launagreiðslur rúmum
8 milljónum króna. Rekstrarhagn-
aður varð 4,7 milljónir og var hann
færður til hækkunar á varasjóði.
Ábyrgðarmenn Sparisjóðs Mývetn-
inga eru nú 31.
Úr stjórninni áttu að ganga Þráin
Þórisson og Jón Kristjánsson. Þráinn
var endurkjörin, en Jón baðst undan
endurkosningu. í hans stað var kosin
Ásmundur Jónsson. Voru Jóni þökk-
uð ágæt störf í þágu sjóðsins. Spari-
sjóður Mývetninga er með afgreiðsl-
ur á Helluvaði og Reykjahiíð.
Á fundinum fékk stjórnin. þakk-
læti fyrir ágæt störf og starfsfólk
fyrir frábæra þjónustu. Einnig kom
fram að Sparisjóður Mývetninga er
mikilvæg stofnun fyrir þetta byggða-
lag. Sparisjóðsstjóri er Ingólfur Jón-
asson.
Kristján
Tæplega 5 millj.
króna hagnaður
Björk, Mývatnssveit.
AÐALFUNDUR Sparisjóðs Mý-
vetninga var haldinn 7. maí síðast-
iiðinn. Formaður sljórnarinnar,
Helgi Jónasson, setti fundinn og
Þríþrautar-
keppni haldin
í Mývatnssveit
KEPPNI í þríþraut verður haldin
við sundlaugina í Mývatnssveit
laugardaginn 23. maí næstkom-
andi og hefst hún kl. 10.
Keppnin felst í því að synda 750
metra, hjóla síðan 20 kílómetra og
hlaupa loks 5 kílómetra. Hjólað verð-
ur og hlaupið á olíumalarvegi og
henta fjallahjól því ágætlega.
Keppt verður í flokkum karla og
kvenna, 14-16 ára, 17-19 ára,
20—39 ára, 40-44 ára, 45-49 ára,
50—54 ára og 55-59 ára, en allir
sem Ijúka keppni fá þátttökupening.
„Nú er rétti tíminn til að heíja
skipulegar æfíngar fyrir þessa
keppni og aðrar slíkar og tækifærið
er upplagt fyrir trimmara að kanna
styrk sinn hvort sem er til að keppa
við sjálfan sig eða aðra,“ segir í frétt-
atilkynningu vegna keppninnar.
Skráningar þurfa að berast fyrir 20.
maí næstkomandi, en allar nánari
upplýsingar gefur Birkir Fanndal í
Mývatnssveit.
--------------
Erindi um
Atvinnuhorfur framhaldsskólanema á Akureyri;
Fimmtungur skólafólks óviss
eða hefur ekki vinnu í sumar
vinmivernd
í TILEFNI af alþjóðadegi hjúkr-
unarfræðinga sem var í gær, 12.
maí, og vinnuverndarátaki '92
koma þær Kitta Rossi hjúkrunar-
framkvæmdastjóri við finnska
Vinnueftirlitið og Guðmunda Sig-
urðardóttir til Akureyrar og halda
erindi í kennslustofu Fjórðungs-
sjúkrahússins kl. 15-16.
Fyrirlestramir eru opnir öllu
starfsfólki heilbrigðisstofnana á Ak-
ureyri og nágrenni. Erindi Guð-
mundu nefnist: Hegðunarmynstur
einstaklings og umhverfí hans, en
erindi Kittu Rossi: Áhættuþættir í
starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga,
starfsmannaheilsuvemd.
Ástandið svipað og síðastliðið vor
ATVINNUHORFUR framhaldsskólanema á Akureyri eru með svipuð-
um hætti og var síðastliðið vor, þó eru heldur fleiri nú sem ekki
hafa vísa vinnu í sumar en í fyrra. Nokkru fleiri stúlkur en piltar
hafa þegar tryggt sér sumarvinnu og það eru frekar nemar í neðstu
bekkjum skólanna sem ekki hafa enn fengið vinnu í sumar. Flestir
nemanna munu starfa við afgreiðslustörf, hjá hinu opinbera í iðnaði
og fiskvinnslu, en fáir munu starfa við landbúnað og fiskveiðar.
Þetta kemur fram í könnun á 76% nemanna hafa vísa atvinnu í
sumar, sem er nánast sama hlut-
fall og var á síðasta vori, 2,6% nem-
anna hafa vinnu hluta úr sumri, en
14,5% þeirra sögðu óvíst hvort þeir
fengju vinnu og 6,6% hafa enga
örugga atvinnu í sumar.
Fleiri stúlkur, en piltar hafa þeg-
ar tryggt sér sumarstarf, eða rúm-
lega 80% þeirra, en einungis 71%
atvinnuhorfum framhaldsskóla-
nema á Akureyri sumarið 1992,
sem Hermann Oskarsson gerði fyr-
ir Atvinnumálanefnd Akureyrar.
Alls tóku 999 nemar í framhalds-
skólunum tveimur þátt í könnun-
inni, sem gerð var dagana 27. apríl
til 30. apríl síðastliðinn.
Fram kemur í könnuninni að rúm
piltanna. Tæplega 17% stúlknanna
hafa ekki fengið vinnu eða segja
óvíst með vinnu í sumar, en tæp-
lega 27% piltanna eru í þeim spor-
um.
Hvað varðar nema búsetta á
Akureyri og þátt tóku í könnun-
inni, hafa rúm 73% þeirra fengið
vinnu í sumar og 2% hluta úr sumri.
Óvíst er með atvinnu, eða engin
vinna vís hjá tæpum 25% hópsins.
Heldur fleiri segjast ekki hafa neina
atvinnu í sumar en var í fyrra, eða
8,7% á móti 5,5% á síðasta ári.
Flestir nemanna sem fengið hafa
sumarvinnu starfa á Akureyri eða
tæp 90% hópsins, tæp 6% hafa feng-
ið vinnu á Eyjafjarðarsvæðinu og
tæp 5% annars staðar á landinu.
Starfsmenn hitaveitna
á námskeiði
Starfsmenn hitaveitna víða um land voru fyr-
ir helgina á námskeiði á vegum Sambands ís-
lenskra hitaveitna í húsakynnum Hitaveitu
Akureyrar við Rangárvelli. Á námskeiðinu var
farið yfir rekstur, meðferð og notkun djúp-
dæla, en slíkar dælur eru slagæðar allra hita-
veitna. Tilgangur námskeiðsins er að tryggja
sem öruggastan rekstur og viðhald á djúpdæl-
um og var farið yfír alla helstu þætti er að því
lúta. Ámi Gunnarsson verkfræðingur skipul-
agði námskeiðið og sagði hann að verið væri
að kenna starfsmönnum til verka, þannig að
þeir væru betur í stakk búnir til að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir varðandi rekstur og viðhald
dælanna, en með því ætti að nást fram sparnað-
ur, þar sem dælurnar hefðu oft verið sendar
beint í viðgerð í heilu lagi þegar eitthvað kom
uppá. Árni leiðbeindi á námskeiðinu, en honum
til aðstoðar við undirbúning og verklega fram-
kvæmd voru þeir Snælaugur Stefánsson, yfír-
verkstjóri, Ari Rögnvaldsson, yfirvélfræðingur,
Kristján Hálfdánarson, verkstjóri, allir starfs-
menn Hitaveitu Akureyrar og Jón Eggertson
yfirvélfræðingur Hitaveitu Reykjavíkur.
MorgunDladið/Kunar Pör
Rúmur fjórðungur nemanna hafa
fengið vinnu við afgreiðslustörf,
rúmlega 15% munu starfa hjá því
opinbera, tæp 13% við iðnað og
rösk 10% við fískvinnslu. Fæstir,
eða 2% hópsins munu starfa við
landbúnað í sumar og rétt um 3%
við fiskveiðar. Flestir piltanna hafa
fengið vinnu hjá ríkinu, þá við iðn-
að, afgreiðslustörf, byggingavinnu
og í fímmta sæti eru fískveiðar.
Hvað stútkurnar varðar hafa flestar
þeirra fengið störf við afgreiðslu,
þá í fískvinnslu, við ferðaþjónustu
og heilsugæslu.
------» ♦ ♦------
Leikfélag Akureyrar:
Síðustu sýn-
ingar á Islands-
klukkunni
ALLRA síðustu sýningar á ís-
landsklukkunni eftir Halldór Lax-
ness verða á fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld (14., 15.
og 16. maí) kl. 20.30 í Samkomu-
húsinu á Ákureyri. íslandsklukk-
an var frumsýnd hjá Leikfélagi
Akureyrar 27. mars sl. í leikstjórn
Sunnu Borg. Leikmynda- og bún-
ingateiknari var Siguijón Jó-
hannsson, búningameistari Frey-
gerður Magnúsdóttir, Jón Hlöðver
Árnason samdi tónlist við verkið
og ljósahönnuður var Ingvar
Björnsson.
íslandsklukkan, sem leikritið
byggir á, birtist fyrst í leikritsformi
við opnun Þjóðleikhússins 1950 og
hefur síðan oft verið þar á fjölun-
um, en LA sýndi íslandsklukkuna
áður leikárið 1959-60. íslands-
klukkan var nú jafnframt afmælis-
verkefni Leikfélags Akureyrar sem
var 75 ára í apríl en þá varð höfund-
urinn Halldór Laxness, níræður.
(Úr fréttatilkynningu)