Morgunblaðið - 19.05.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1992
13
Ferðakynning
á Eiðistorgi
ALLAR helstu ferðaskrifstofur
Iandsins kynna sumarferðirnar
í ár, á morgun, miðvikudaginn
20. maí, í verslunarmiðstöðinni
á Eiðistorgi.
Þar getur fólk komið, gert sam-
anburð á verði og kynnt sér úrval-
ið á einum og sama staðnum og
þar með sparað sér mikla fyrir-
höfn. Kynntir verða ferðamögu-
leikar bæði innanlands og erlend-
is. Eftirtaldir aðilar í ferðaiðnaði
munu mæta á staðinn og kynna
þjónustu sína: Ferðaþjónustu
bænda, Ferðafélag íslands, Flug-
ferðir-Sólarflug, Samvinnuferðir-
Landsýn, Úrval-Útsýn, Félag ís-
lenskra ferðaskrifstofa, Ferða-
skrifstofa stúdenta, Alís, Ferða-
skrifstofa Reykjavíkur og Ferða-
málaráð. Einnig verður Bókaversl-
un Eymundssonar með sérstaka
ferðabókakynningu. Boðið verður
upp á gos og á torginu og á vor-
markaði Hagkaups bjóðast gas-
grill, sumarhúsgögn og reiðhjól.
Ferðaveislan verður á efri hæð-
um Eiðistorgs 11 og hefst kl.
14.00 og muna standa yfir til
klukkan 18.00.
(Fréttatilkynning)
Fyrirlestur
um þunglyndi
HALDIN verður námstefna á
Hótel Holiday Inn á vegum
Öldrunarfræðafélags íslands
miðvikudaginn 20. maí nk.
Efni námstefnunnar er þung-
lyndi hjá öldruðum. Framsögu-
menn verða: Halldór Kolbeinsson
læknir, Anna S. Þórðardóttir
hjúknmarfræðingur, Heiðdís
Sigurðardóttir sálfræðingur og
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir.
Námstefnan hefst kl. 13.15 og
lýkur kl. 16. Skráning hefst kl.
12.50. Námstefnan er öllum opin.
ófrekjum -“. Hér var á ferðinni
fáránleikaverk, sem dansar á
mörkum þess að vera ballett. Samt
var eitthvað sem virkaði ágætlega
- kannski var það húmorinn í verk-
inu. Ljós voru ágætlega notuð,
eins og reyndar einnig í verki Lilju.
Það er fátt um verkið að segja,
því fáránleikinn er hvorki góður
né vondur. Hann er og á að vera
fáránlegur. Annars missir hann
marks.
Þetta litla leikhús við Tjörnina
hentaði þessari sýningu þokka-
lega, þó ekki sé það vel fallið til
að sýna dansverk. Það væri gaman
að sjá sýningu frá Uppspuna, sem
gerði meiri kröfur til danskunnáttu
hópsins. Þessi sýning var frekar
eins og sýning á kóreógrafíu.
Framtakið ber að lofa og hvetja
hópinn til dáða. Það ætti að vera
til rúm fyrir Uppspuna í borgarlíf-
inu.
einbeiting áhorfandans að flökta
og verkið getur misst marks. Að
skaðlausu hefði mátt þétta verkið
og stytta. Samt var þetta líklega
heilsteyptasta verkið.
Lokaverk kvöldsins eftir
Katrínu Ólafsdóttur bar heitið „-
af ferskum ferskjum og óferskum
Merrild
- hefur kennt íslendingum að meta gott kaffi.
Þú getur valið um þrjár mismunandi
tegundir af Merrild-kaffi.
103 - Millibrennt
304 - Dökkbrennt
104 - Mjög dökkbrennt
Merrild setur brag á sérhvem dag.
Tívolí við tjörnina
__________Ballett_____________
Ólafur Ólafsson
Færeyska ferðatívolíið.
Danshöfundar: Katrín Olafs-
dóttir, Lilja Ívarsdóttir, Marta
Rúnarsdóttir.
Hljóð: Gunnar Arnason.
Dansarar: Guðbjörg Arnardótt-
ir, Jóhanna Guðlaugsdóttir, Jó-
hanna Kristín Jónsdóttir, Katr-
ín Olafsdóttir, Lilja fvarsdóttir,
Marta Rúnarsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Linda Sif
Þorláksdóttir.
Tjarnarbíó, 14. maí 1992.
Hópur dansara, sem kallar sig
Uppspuna, stendur að sýningu,
sem hefur hlotið heitið Færeyska
ferðatívolíið. Reyndar~hefur sýn-
ingin hvorki neitt með Færeyjar
eða tívolí að gera. Höfundar verk-
anna hafa sótt nám bæði hérlend-
is og erlendis á undanförnum árum
og hrinda sýningunni af stað að
eigin frumkvæði. Á sýningunni eru
þijú dansverk, sem öll reyna á þol
og athygli áhorfandans.
„Speculum" heitir fyrsta verkið,
og er eftir Mörtu Rúnarsdóttur.
Speculum er einnig nafn á áhaldi,
sem notað er til að skyggnast inní
líkama manna. Sögupersóna
Mörtu er líka að skoða. Spegil-
myndin er ekki alltaf sú „rétta“.
í leit að sjálfsímynd finna margir
strengjabrúðu í fjötrum, sem hrin-
ur ef skorið er á strengina. Verkið
er kaflaskipt, sem styrkir það ekki.
Lilja ívarsdóttir dansar vel í þriðja
kaflanum, en í heild náði verkið
ekki að hrífa nóg. Of oft var frá-
sögnin í dansinum óljós og ómark-
viss.
Annað verkið hét ,,-ætíð í far-
sælu samræmi í sannsögulegum
viðburðum -“ og var eftir Lilju
-ívarsdóttur. Sviðið var tómur salur
með ósamstæðum stólum með-
fram veggjum. Þetta verk fór vel
af stað og virtist ætla að verða
mjög hvasst og markvisst. Tónlist-
in var á köflum með tregablöndn-
um bernskuhljómi úr spiladós.
Verkið segir frá fjórum_ konum,
sögu þeirra og skaphöfn. Á köflum
virkar verkið sem langdregið stól-
askark, og drepur það nokkuð nið-
ur þá spennu, sem svona verki er
nauðsyn. Danshöfundur verður að
halda athygli áhorfandans
óskiptri. Ef losnar um böndin, fer