Morgunblaðið - 19.05.1992, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1992
53
1
99E1N 3TJCRSTF? FORÆNDHNR
MÓTI SIKöRSKY-l*rt?LUNWl
VRR VEROHONORINN. S&- ~
FR^OHHóflNEFNDlN TRLDIHWS ^
VE6RR EKKIINNRN SiNS SWIDS
TOKVEDRUPPpRUMHVRDVID-
RÆDUR R STJÓRNMðLHUEGUM
GRUNDVELLl &ETR lEUT TiLÍ
RREVTINGUM A VERRTILB0DI44
BeaTOeHKMBÐUK ,
DÓMaMRLHRROH. I DV
W\/f=ie> KCÆTTTR
pÆT2. f=? STTJÓF2W-
MFBUFBl—CSrlR'tJKJCÞ'
^V'en-U, Ml*aíreF? UERS
WOF=Olt>fc3t?
Pralaya o g manvantara
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
VEGNA þess hve hvellkenningin
mikla um „upphaf alheimsins"
hefur nú fengið nýtt eldsneyti í
geymana til að geta haldið áfram
þotuflugi sínu um auglýsingahim-
in alþjóðamarkaðins verð ég enn
að gera þá athugasemd að „uphaf
alheimsins“ er ekki til. „Sérhvað
eitt, sérhvað takmarkað á frumor-
sök sína fyrir utan sig“ hefur mik-
ill heimspekingur sagt. Jafnvel
þótt menn segi, að „rúm og tími
hafi orðið til“ við hvellinn (og
hananú) breytir það engu um það,
að eitthvað hlaut að verða til þess,
að þetta varð. Það er glöggur vott-
ur um vanhugsun þessa mann-
kyns, sem virðist að því komið að
eyða sjálfu sér, hve mikilla vin-
sælda kenning um hvell eða skell
sem upphaf alls nýtur meðal hinna
áhrifamestu afla.
Engu að síður verður að viður-
kenna, að kenningin um „alheim",
sem með nokkrum hætti sé tak-
mörkum bundinn, virðist hafa
nokkuð til síns máls. Helgi
Þjeturss vitnar í elstu indverska
heimspeki og segir þá tala þar um
pralaya, þá öld sem var, áður en
heimur var skapaður, og manvant-
ara, eftir að heimur varð til. í allri
kenningu doktors Helga, hvar sem
borið er niður, er gert ráð fyrir
takmörkuðum alheimi (en geysi-
stórum), en eingöngu þó sem þætti
í tilveru sem er óendanleg. Það
er þetta síðastnefnda sem leysir
vandann, gerir það fært að ineð-
taka hugsunina um takmarkaðan
stjörnugeim. En á hvem hátt það
tengist hinni meiri tilveru er vandi
að vita. Hitt hef ég fyrir stjörnu-
fræðinga, sem sögðu drýginda-
'ega: „Út í það fara fáir.“ Ekki
get ég dáðst að slíkri aðhaldssemi.
Ef gert er ráð fyrir því, að goða-
sögur fornar feli í sér meiri speki
en við fyrstu sýn virðist — en það
hefur þó oft orðið að hæpnum leik
— má sjá að kenningin um jötun-
inn Ymi (Ýmir er hann stundum
nefndur en Ymir mun réttara),
sem slátrað var „áður en heimur
var skapaður", þá er gott sam-
ræmi við hinar indversku hug-
myndir um pralaya og manvant-
ara. Ymir varð að farast, því að
„hann var illur og allir hans ætt-
menn“ eins og Snorri segir og
bendir þetta til þess að hinn fyrri
heimur hafi verið missmíði. Van-
þekking svipuð þeirri sem nú veð-
ur uppi hér á jörð, víða mjög, og
eitrar flesta brunna, varð ráðandi
í þeim alheimi sem fórst. í skjóli
vanþekkingar fengu hinir illu
möguleika að þróast, á ótal hnött-
um. En nú, á öldinni sem hinir
fomu spekingar nefndu manvant-
ara („Mann vantar að .. .bæta
úr“), hefur maður komið fram,
sem enginn varð slíkur í hinum
fyrra heimi. Eðli svefns og
drauma, og þar sem sambandið
milli lífsins á stjörnunum hefur
fundið verið — á einum hinna „af-
skekktustu“ kothnatta. Furðulega
samstæð og altæk heimspeki hefur
komið fram og skráð verið. Sigur-
braut er lögð, ef menn þá vilja
nokkuð annað en ósigur. Það verð-
ur fróðlegt að sjá þann bátsvein
(„boatswain" segir Shakespeare),
sem fyrstur sest þannig undir árar,
að skriður verði að.
Þessi setning heyrðist handan-
að, fyrir ekki löngu, líklega frá
nýframliðnum, sem ætlaði að fara
að hafa samband við Reykvíkinga,
en rak sig á erfiðleika þegar hann
gægðist inn í hugskotin: „Þeir
hafna þáttöku í hinu mikilsverð-
asta málefni, en leggja líf og sál
í einskisverða heimsku-keppni."
Hinn framliðni hafði ekki varast
það, að „brids“ hafði altekið húg
manna.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Pennavinir
Frá Ghana skrifar 29 ára tækni-
menntaður karlmaður með áhuga á
golfi, tennis og bókalestri:
George Best,
Box 760,
Cape Coast,
Ghana.
Vinningstölur
iaugardaginn
FJÖLDI UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA
1.
2.
3.
4.
163
3af5 [ 4.969
2.626.591
114.150
4.832
369
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.704.368 kr.
UPPLÝSfNGAR: SÍMSVAR! 91 -681511 LUKKULlNA991002
uo
2
5
r>
—i
_i
UJ
>
I
r>
2
2
>
5
D
Q
2
Oí
LU
>
RAÐSTEFN A
NAMSKEIÐ EÐA FUNDIR Á DÖFINNI?
I Múlalundi færð þú fundarmöppur, barmmerki
(nafnmerki), óletranir, merkingar og
annað sem auðveldar skipulag og eykur
þægindi og árangur þátttakenda.
Allar gerðir, margar stærðir, úrval
lita og áletranir að þinni ósk!
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS - Hátúni 10c
Símar: 68 84 76 og 68 84 59.
KREM KREMANNA FRÁ
JEAN D'AVÉZE
Jouvence kremið, best selda kremið hjá
Jean d’Aveze, er orðið
30 ára gamalt og sýnir
alls engin
aldurseinkenni.
1« ^
• Mjögvirkformúla inniheldurjurtaefnið Perretol, sem stuðlarað
jafnvægi, eykur endurnýjun frumanna ogdregur úr ellimörkum ásamt
öðrum húðgöllum og lýtum eins og örum. Krem sem konurvilja í dag.
• Notist sem næturkrem og/eða dagkrem ef húðin er mjög þurr,
hefur græðandi og róandi áhrif.
• Jouvence kremið hentar öllum húðtegundum og öllum aldurshóp-
um. Óumdeilanlegursigurvegari, sem mun áfram láta til sín taka.
Jouvence línan er einföld og inniheldur allt sem þú þarft
fyrir virka húAmeöferö. Fyrir utan Jouvence kremiö er boA-
iA upp á: Mjög milda hreinsimjólk, andlitsvatn með og án
alkóhóls,
þunnfljótandi rakakrem, verndandi dagkrem og sérkrem
eins og hálskrem og andlitsmaska.
Útsölustaðir: Andorra, Ársól, Bjarg, Akranesi, Bylgjan, Evlta, Grindavikurapótek,
Lyfsalan, Vopnafirði, Mikligarður v/Holtaveg, Snyrtistofan Jóna, Stykkishólmsapó-
tek, Top Class, Vörusalan, Akureyri, Snyrtivöruverslunin Glœsibœ, Sigurboginn,
Apótek Ólafsvíkur, Smart, Keflavík.
Í.L.-V'Vito:
DANF0SS
VEITHVADÞÚ VILT!
Mikil útbreiðsla DANFOSS ofnhitastilla a
fslandi sýnir að þeir eru f senn nákvæmir og
öruggir.
Æ fleiri gera nú sömu kröfur til baðblöndun-
artækja og velja hitastilltan búnað frá
DANFOSS.
Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu
Þú stillir á þægilegasta hitann í hverju her-
bergi og DANFOSS varðveitir hann nákvæm-
lega.
Og i baðinu ertu alltaf öruggur með rótta
hitann á rennandi vatni, ekki sístfyrir litla fólkið
þitt.
Aukin veltíðan, lœgriorkukostnaður.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SfMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER