Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 2

Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 2
 0 2 seei ImC/i, .oi 5r!;iA''n!>HVQiM qjga.iíi^i MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra: Til greina kemur að endurskoða búvöru- sammnginn frá grunni Akurej^ri. „BUVORUSAMNINGURINN er engin heilög örk,“ sagði Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra á fundi með bændum í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit í gærkvöldi. FjöUeikahús í Reykjavík: Sæljónin komintil landsins SÆLJÓNIN þijú sem deilt hefur verið um hvort hafa megi til sýnis i fjölleikahúsi í Reykjavík í sumar eru kom- in til landsins. Dýravemdar- nefnd ríkisins mun líklega taka ákvörðun í dag um hvort hafa megi dýrin til sýnis hér- lendis í sumar að sögn Sig- urðar Sigurðarsonar, for- manns nefndarinnar. Dýravemdamefnd mun meta aðbúnað sæljónanna í dag og ef hún telur hann fullnægjandi mun Jörundur Guðmundsson, sem ætlar að reka ijölleikahús- ið, fá ieyfí til að hafa sæljónin til sýnis í sumar. Að sögn Sig- urðar Sigurðarsonar er hins vegar ekki fullvíst hvort nefnd- inni takist að meta aðbúnaðinn í dag. Hann sagði að sá samdráttur í sauðfjárframleiðslu sem bændur stæðu nú frammi fyrir væri mjög alvarlegur, og yrðu þeir að mæta fyrirsjáanlegum tekjusamdrætti með hagræðingu og vöraþróun. Halldór sagði að á síðustu tveim- ur ámm hefði orið 32% samdráttur í sauðfjárframleiðslu og 7% í fram- leiðslu mjólkur. Ljóst væri að bænd- ur fengju ekki bætur vegna þessa til frambúðar, og óhjákvæmilegt væri að bændum myndi fækka og byggð dragast saman af þessum sökum. Hann sagði að opinber af- skipti af landbúnaðarmálum undan- fama áratugi hefðu ekki leitt til góðs, og of mikil yfírstjóm myndi síður en svo lyfta bændastéttinni upp úr þeim þrengingum sem hún væri nú í. Farsælast væri að bænd- ur tækju sjálfír ábyrgð á sínum sölumálum, eins og nú hyllti reynd- ar undir að yrði. Landbúnaðarráðherra sagði að þó svo að endurskoðun yrði hafín á búvörusamningnum, þá stæði ekki til að draga úr greiðslum til bænda, og í heild sinni yrði staðið við það sem kveðið er á um í samn- ingnum. Hann sagði skynsamlegt að kannað yrði gaumgæfilega hvemig best væri að veija fjármun- um til greinarinnar, og í máli hans kom meðal annars fram að hugsan- lega mætti spara 300-400 milljónir árlega með því að gefa áburðarverð fijálst. Landspítalinn vill gera 70 hjartaðgerðir í viðbót STJÓRNARNEFND Ríkisspítala hyggst gera heilbrigðisráðuneytinu tilboð um að Landspítalinn geri allt að 70 hjartaaðgerðir til viðbót- ar þeim um 200 aðgerðum sem fjárveiting er fyrir nú í byijun árs. 63 sjúklingar eru á biðlista eftir hjartaaðgerðum og þykir ljóst að senda þurfi sjúklinga út ef hjartaaðgerðir hér á landi verði einung- is um 200 í ár. Það er hins vegar þrefalt dýrara en að framkvæma aðgerðimar hér. Að sögn Áma Gunnarssonar, for- manns stjómamefndar ríkisspítal- anna, er ljóst að þörf er fyrir um 270 hjartaaðgerðir í ár. „Við höfum ákveðið að bjóðast til að taka að okkur þessar 70 aðgerðir í viðbót í stað þess að Trygginga- stofnun ríkisins þurfí að greiða kostnað fyrir sjúklinga sem þiirfi að fara utan í aðgerðir," segir Árni. Hann segir að hjartaaðgerðimar séu tvisvar til þrisvar sinnum dýrari ytra og því yrði um mikinn spamað fyrir ríkissjóð að ræða. „Við erum jafnframt að kanna hvort við gætum tekið að okkur hjartaðgerðir á útlendingum ef vel gengur með að minnka biðlistann hjá okkur þar sem hver aðgerð myndi væntanlega geta fært inn tekjur sem greiddi eina aðgerð á íslendingi," segir Ámi. Morgunblaðið/Sverrir Fjölmennt norrænt læknaþing 28. þing norrænna fæðinga- og kvensjúkdóma- lækna var sett af Sighvati Björgvinssyni heilbrigð- isráðherra í Perlunni í gærkvöldi. Þingið er stærsta læknaþing hérlendis í ár en um 750 þátttakendur sækja það, þar af rúmlega 500 fæðinga- og kven- sjúkdómalæknar frá öllum Norðurlöndunum. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar: Framsóknarflokkur fengi 26,2% atkvæða SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 31,6% atkvæða ef kosið væri til Alþingis nú og hefur tapað 3,6% fylgi frá því í nóvember, sam- kvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gert fyrir Morgunblaðið. Framsóknarflokkur- inn fengi 26,2% sem er 4,5% hærra hlutfall en í nóvember. í könnun- inni nú segjast 28,1% svarenda vera stuðningsmenn ríkisstjórnarinn- ar, 52,8% eru andstæðingar hennar og 19,3% eru hlutlausir. í samsvarandi skoðanakönnun sem gerð var í nóvember síðastliðn- um fékk Sjálfstæðisflokkurinn 35,2% fylgi samanborið við 31,6% nú, en í kosningunum 1991 fékk flokkurinn 38,6% atkvæða. Fram- sóknarflokkurinn fékk 21,75 fylgi í könnuninni í nóvember, 26,2% nú, en í kosningunum fékk hann 18,9% atkvæða. Alþýðubandalagið hefur 17,5% fylgi samkvæmt könnuninni, fékk 19,6% í nóvember en 14,4% í kosningunum. Kvennalistinn mæl- ist með 12,2%, heldur meira en í nóvember þegar hann hafði 10,8% en 8,3% í kosningunum. Alþýðu- flokkurinn fékk f könnuninni nú 10,4% fylgi, hann naut 11,3% fylg- is í nóvember, en fékk 15,5% at- kvæða í kosningunum. Þegar afstaðan til ríkisstjórnar- innar er greind eftir stuðningi svar- enda við flokka, þá kemur í ljós að 80,6% stuðníngsmanna Sjálfstæðis- flokksins styðja ríkisstjórnina en 6,9% eru andstæðingar, og 58,1% stuðningsmanna Alþýðuflokksins styðja stjórnina, en 27,4% eru and- stæðingar. Af stuðningsmönnum Framsóknarflokksins styðja 3,6% ríkisstjómina, en 84,9% eru henni andvígir, og sömuleiðis styðja 3,6% stuðningsmanna Alþýðubandalags- ins stjórnina en andstæðingar eru 89,3%. Af stuðningsmönnum Kvennalistans styðja 2,7% stjórnina og andstæðingar hennar eru 84%. Sjá frétt á miðopnu. Þrotabú ÍSNO selt fyrir 22 milljónir Hlutafélagið Rifós stofnað um reksturmn Morgunblaðið/Ingvar Hætta á mengunarslysi hjá Isaga Slökkviliðið í Reykjavík var í gærkvöldi kallað að athafnasvæði ísaga við Stórhöfða, en þar rauk gufa upp af gaskút. í upphafi var haldið að þar væri um klórgas að ræða, en það er eitr- að og hefði getað valdið nokkurri mengun. Slökkviliðsmenn sprautuðu fyrst vatni á gufuna en fljótlega tókst að loka kútnum og koma hon- um í gám, þar sem hægt var að tappa af honum og eyða efninu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er nú talið að ekki hafí verið klór- gas í kútnum, en í gærkvöldi var ekki enn vitað um hvaða lofttegund hér var að ræða. UNDIRBÚNINGSHÓPUR um nýtt hlutafélag um ÍSNO keypti í gær fasteignir og lausafé þrota- bús ÍSNO fyrir 16 milljónir króna og seyði og klakfisk fyrir 6 milljónir króna, sem borgað verður upp innan eins árs, að sögn Ólafs Jónssonar sem er í undirbúningsnefnd fyrir hið nýja hlutafélag. Hlutafélagið, sem fengið hefur nafnið Rifós, mun ekki taka við skuldum þrotabús- ins sem áætlaðar hafa verið um 700 milljónir. Landsbanki íslands og ýmsir opinberir sjóðir voru stærstu einstöku lánardrottnar ÍSNO. í Morgunblaðinu hefur áður kom- ið fram að bókfært verð eigna fyrir- tækisins var um 400 milljónir króna. „Það er ekkert athugavert við það að undirbúningshópurinn skyldi kaupa þrotabú ISNO fyrir 22 milljónir eins og staðan er nú í fiskeldi. Enginn annar aðili var til- búinn að greiða hærra verð á jafn skömmum tíma og við gerum. Þess vegna er verðið jafn lágt og við fáum þrotabúið nú á. í hinu nýja hlutafélagi verður breiður hópur hluthafa og þar á meðal_ nokkrir af fyrrum starfsmönnum ÍSNO og heimamenn í Kelduhverfi," segir Ólafur Jónsson. „Við munum skoða ýmsa þætti til að bæta og efla rekstur Rifóss. Hingað til hefur fyrirtækið einungis verið í laxeldi en til greina kemur að vera einnig með annars konar fiskeldi." sagði hann. -------» ------------ Tværtrillur vélarvana Vogum. EINS tonna opinn grásleppubát- ur, Sigþór frá Vogum, dró í gærkvöld tvær vélarvana trillur, Fengsæl HF og Lilju Helgu KE, að landi í Vogum. Trillurnar höfðu verið á færaveiðum, en vegna vélarbilunar hjá Lilju Helgu tók Féngsæll hana í tog út af Vatnsleysuströnd. Fengsæll varð síðan vélarvana á hvirflun- um út af Vogum. Þórður Vormsson á Sigþóri var að vitja um grásleppunet er hann sá tvo báta liggja saman, en athug- aði það ekki nánar fyrr en menn um borð veifuðu til hans. Kom þá í Ijós að báðár trillurnar voru vélar- vana. Tók Þórður síðan trillurnar í tog og dró þær að landi í Vogum. Hann sagði það hafa verið létt verk, þrátt fyrir að þær væru mun stærri en hans eigin trilla. E.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.