Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
Borgarspítalinn:
Hugmynd starfsmanns
sparar á annað hundr-
að þúsund krónur á ári
ÁSDÍS Arthursdóttir, yfirmaður í borðsal mötuneytis Borgar-
spítalans, varpaði fram hugmynd við starfsmannaráð spítalans
fyrr í vetur um hvernig spara mætti mjólk í mötuneyti sjúkra-
hússins. Fyrirkomulaginu var breytt og upp frá því hefur ekki
þurft að hella niður mjólk í mötuneytinu. Hugmyndin mun
væntanlega spara á annað hundrað þúsund krónur í rekstri
sjúkrahússins á ári.
Ásdís segir að áður hafi mjólk-
urkönnur verið látnar standa á
borðum í mötuneytinu og hafi
það orðið til þess að hella þurfti
niður um fímm lítrum af ónot-
hæfri mjólk eftir hvem dag.
„Okkur húsmæðrunum var
löngu farið að ofbjóða hversu
mikilli mjólk var hellt niður á
hveijum degi. Stundum voru
þetta fleiri lítrar," segir Ásdís.
Hún segist oft hafa verið búin
að velta því fyrir sér hvemig
koma mætti í veg fyrir að hella
þýrfti mjólkinni niður. „Þegar
spamaðarandinn greip alla
fannst mér kjörið tækifæri til að
stinga upp á því að taka mjólkur-
könnumar af borðunum og stilla
mjólkinni upp við kaffíkönnuna.
Fólk tók þessu afar vel og engin
mjólk hefur farið til spillis síð-
an,“ segir Ásdís.
Ásdís Arthursdóttir.
VEÐUR
12'
'V
4 aC Vy—Njf
Y 112° V >
V
<í ^
15°\\ S ^ A\ J
/15®
10'
ÍDAGkl. 12.00
Heimild: Veöuretoia i$iand«
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
1/EÐURHORFUR I DAG, 10. JUNI
YFIRLIT: Milli Jan Mayen og N-Noregs er 1027 mb hæð en 1000 mb
lægð á Grænlandshafi hreyfist lítið og grynnist. Grunnt lægðardrag yfir
miðju landinu þokast austur.
SPA: Suðlæg átt, gola eða kaldi. Skúrir um sunnan- og vestanvert land-
ið, en norðaustanlands léttir til. Hiti 7—10 stig sunnanlands, en allt að
15 stig um landið norðanvert,_
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG:Fremur hæg sunnanátt. Skúrir um landið
sunnanvert og 7— 10 stig hiti en þurrt og allt að 16 stiga hiti norðanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnanstrekkingur með súld eða rigningu
sunnantil, en þurrt og sumsstaðar léttskýjað nyrðra. Hiti 9—13 stig
sunnanlands en allt að 25 stiga hiti á norðanverðu landinu.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * /
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V V V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
riig..
FÆRÐA VEGUM: (Kf. 17.30ígær)
Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, utan einstaka vegakaflar sem
lokaðir eru vegna aurbleytu, svo sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum.
Vegna aurbleytu eru sumstaðar sérstakar öxulþungatakmarkanir á veg-
um á sunnanverðum Vestfjöröum og austan Þórshafnar á Norðaustur-
landi og eru þær tilgreindar með merkjum við viðkomandi veg. Aliir
hálendisvegir landsins eru lokaðir vegna aubleytu og snjóa.
Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tfma
hítí veöur
Akureyri 18 mistur
Reykjavlk 7 rigning
Bergen 25 léttskýjað
Helsinki 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Narssarssuaq 3 þoka
Nuuk 2 léttskýjað
Ósló 23 hálfskýjað
Stokkhólmur 18 léttskýjað
Þórshöfn 16 skýjað
Algarve 21 skýjað
Amsterdam 20 skýjað
Barcelons 21 skýjað
Berlín 25 skýjað
Chicago 18 alskýjað
Feneyjar 21 þokumóða
Frankfurt 20 hálfskýjað
Glasgow 17 mistur
Hamborg 23 skýjað
London 21 skýjað
LosAngeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 15 skúr
Madrid 17 skýjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 23 skýjað
Montreal 17 léttskýjað
NewYork 21 skýjað
Orlando 24 alskýjað
París 21 Skúr
Madeira 20 háHskýjað
Róm 22 háifskýjað
Vín 16 rigning
Washington 23 þokumóða
Winnipeg 12 urkoma
Tillaga í borgarstjórn:
Fæðandi konur fái
beinar greiðslur
TILLAGA sjálfstæðismanna um að borgarsfjórn beini þeirri hugmynd
til heilbrigðisráðuneytis að teknar verði upp beinar greiðslur til fæð-
andi kvenna, svo skapast geti aukið val foreldra á fæðingarþjónustu,
var samþykkt á fundi borgarstjórnar í síðustu viku. Með því móti
er talið að hægt verði að vekja áhuga fagaðila á sjálfstæðum rekstri
í fæðingarþjónustu. Tveimur tillögum fulltrúa minnihlutans var vísað
frá á fundinum.
Borgarfulltrúar Nýs vettvangs
báru fram tillögu á fundinum um
að borgarstjóm samþykkti að skipa
nefnd til undirbúnings stofnunar
nýs fæðingarheimilis í Reykjavík.
Frá Kvennalista, Alþýðubanda-
lagi og Framsóknarflokki kom til-
laga um að borgarstjóm samþykkti
að hefja viðræður á ný við heilbrigð-
isráðherra til að fullreyna vilja ráðu-
neytisins til að halda starfsemi
Fæðingarheimilis Reykjavíkur
áfram í óbreyttri mynd. Jafnframt
yrði greitt jafnvirði launa eins sér-
fræðings við Fæðingarheimilið til
bráðabirgða, á meðan á viðræðum
stæði.
Tillögum minnihlutans var vísað
frá með þeim rökum að borgarstjórn
hefði ítrekað Iýst þeirri skoðun sinni
að við ákvörðun heilbrigðisráðun-
eytisins um að flytja það flármagn
sem Borgarspítala hefði verið út-
hlutað til rekáíurs Fæðingarheimiiis
Keykjavíkur, yfír til ríkisspítala,
yrði áhersla lögð á að tryggja áfram
þann valkost sem þjónusta Fæðing-
arheimilsins hefði verið.
Vilji heilbrigðisráðuneytisins til
þess að byggja upp samskonar fæð-
ingaraðstöðu á Landspítala og verið
hefði á Fæðingarheimili Reykjavík-
ur hefði enn verið ítrekaður í þréfi
sem stjórn Sjúkrastofnana Reykja-
víkurborgar hefði borist frá ráðu-
neytinu í síðustu viku.
Tillaga sjálfstæðismanna um að
borgarstjórn beini þeirri hugmynd
til heilbrigðisráðuneytis að teknar
verði upp beinar greiðslur til fæð-
andi kvenna var samþykkt með 10
atkvæðum meirihluta sjálfstæðis-
manna gegn 2 atkvæðum Ólínu
Þorvarðardóttur og Guðrúnar
Ágústsdóttur. Aðrir fulltrúar minni-
hluta sátu hjá.
Sala hlutar ríkisins í fjórum fyrirtækjum:
Öll verðbréfafyrirtækin
hafa skilað inn tilboðum
NÚ hafa verðbréfafyrirtækin 5
skilað inn tilboðum um að annast
undirbúning og sölu á hlut ríkis-
ins í fjórum fyrirtækjum, Lyfja-
verslun ríkisins, íslenskri endur-
tryggingu, Steinullarverksmiðj-
unni og Þróunarfélaginu. Einka-
væðingarnefnd ríkisstjórnarinnar
á eftir að fara yfir tilboðin og
ákveða hvaða verðbréfafyrirtæki
mun sjá um umsjón með sölu hlut-
ar ríkisins í hveiju hinna fjögurra
fyrirækja, að sögn Hreins Lofts-
sonar formanns framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu.
Verðbréfafyrirtækin Handsal,
Kaupþing, Landsbréf, Verðbréfa-
markaður íslandsbanka og Fjár-
festingarfélagið, buðu öll í umsjón
með undirbúningi einkavæðingar
Lyfjaverslunar ríkisins og íslenskrar
endurtryggingar. Þau buðu öll nema
Vei-ðbréfamarkaður íslandsbanka
(VÍB) í umsjón með undirbúningi
einkavæðingar Steinullarverksmiðj-
unnar. í undirbúning með umsjón
einkavæðingar Þróunarfélagsins
buðu Fjárfestingarfélagið, Lands-
bréf og Kaupþing. Hreinn Loftsson
segir tilboð verðbréfafyrirtækjanna
vera áþekk en til að segja eitthvað
frekar um tilboðin eigi eftir að skoða
þau nánar.
Rólegt í eft-
irlitsfluginu
„LÖGREGLAN fór í eftirlits-
flug um helgina með þyrlu
Landhelgisgæslunnar og
fylgdist með umferð á vegum,
sem var venju fremur róleg
miðað við Hvítasunnuhelg-
ina,“ sagði Magnús Einarsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, í
samtali við Morgunblaðið.
Magnús sagði að þyrlan hefði
einnig flogið yfir hálendið, til
að fylgjast með umferð. Ekkert
athugavert hefði verið við um-
gengnina þar. „Það gekk allt
vel, eins og í borginni og á veg-
um út frá henni,“ sagði hann.
Olafur H. Einarsson
héraðslæknir látínn
ÓLAFUR H. Einarsson, fyrrver-
andi héraðslæknir í Hafnarfirði,
lést á Sólvangi aðfaranótt mánu-
dagsins 8. júní.
Olafur fæddist á Svalbarða í
Miðdölum, Dalasýslu, 9. desember
1895 og var 96 ára er hann lést.
Hann lauk embættisprófí í lækn-
isfræði við Háskóla íslands 1929.
Hann stundaði eftir embættispróf
framhaldsnám í áföngum í Þýska-
landi og Danmörku á árunum 1929-
1932. Hann var skipaður héraðs-
læknir í Flateyjarhéraði í ágúst
1930-1932, í Grímsneshéraði 1932-
1947 og í Hafnarfjarðarhéraði
1947-1966. Eftir að hann lét af
störfum sem héraðslæknir vegna
aldurs, rak hann sjálfstæða lækna-
stofu í Hafnarfírði í allmörg ár.
Hann var í stjórn RKrd. Hafnarfjarð-
ar 1948-1960 og var formaður
deildarinnar um skeið. Hann gegndi
einnig fleiri trúnaðarstörfum, þar
sem hann starfaði sem læknir. Eig-
inkona hans var Sigurlaug Einars-
Ólafur H. Einarsson
dóttir frá Brimnesi í Skagafirði, en
hún lést árið 1985. Þau eignuðust 6
böm og eru 5 þeirra á lífí.