Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
21
FLUGELDASYNING EÐA
H AGSMUN AB ARÁTT A?
eftir Eirík
Ingólfsson
Úthlutunarreglur LÍN fyrir
skólaárið 1992-93 voru afgreiddar
á stjómarfundi Lánasjóðsins
sunnudaginn 31. maí sl. Eins og
oft áður við sömu aðstæður, var
uppi talsverður ágreiningur milli
ólíkra hagsmunahópa innan stjórn-
arinnar, um útfærslu einstakra
reglna. Þegar drög að úthlutunar-
reglum voru kynnt námsmönnum
þ. 21. maí var öllum málsaðilum
ljóst að skammur tími var til
stefnu, enda umsóknarfrestur að
renna út í mörgum skólum. Full-
trúar meirihlutans lýstu því yfir
að .stefnt væri að því að afgreiða
úthlutunarreglumar eigi síðar en
1. júní. Ekki komu fram neinar
athugasemdir við þessa áætlun frá
fulltrúum námsmanna en þann
sama dag hófst áróðursherferð
þeirra með tilheyrandi yfirlýsing-
um í fjölmiðlum.
Fjórir stjómarfundir voru haldn-
ir fyrir 1. júní og lögðu námsmenn
fram ýmsar fyrirspurnir og óskir
um gögn. Var að sjálfsögðu orðið
við því eins og kostur var. Nokkur
tími fór í að reyna að meta áhrif
af mismunandi útfærslum á regl-
um um barnastuðla og tekjutillit
og vom hugmyndir fulltrúa minni-
hlutans að sjálfsögðu skoðaðar eins
og aðrar hugmyndir. Þegar á
reyndi voru fulltrúar námsmanna
hins vegar ekki tilbúnir til að gera
beinar tillögur um þessi atriði.
Fulltrúar ríkisvaldsins gerðu hins
vegar breytingar á sínum tillögum
sem gengu til móts við hugmyndir
námsmanna.
Upplýsingaskortur og málþóf
Námsmenn gagnrýndu einnig
harðlega nýjar reglur um náms-
framvindu og töldu reglu um
skerðingu lána í hlutfalli við náms-
framvindu ekki framkvæmanlega.
Til þess að stjórnarmenn gætu
áttað sig á þýðingu þessarar reglu
vom lagðar fram upplýsingar um
námsframvindu lánþega sjóðsins
sundurgreindar eftir löndum.
Námsmenn töldu þetta ekki nægar
upplýsingar og fóru fram á að afl-
að yrði gagna frá Háskóla íslands
um námsframvindu háskólanema.
Töldu þeir ekki hægt að afgreiða
úthlutunarreglurnar nema þessar
upplýsingar lægju fyrir. Auðvelt
er að færa rök fyrir því að upplýs-
ingar um námsframvindu háskóla-
nema í heild eru ekki nothæfar sem
mælikvarði á lánþega LÍN al-
mennt, þar sem einungis hluti há-
skólanema tekur lán og lánþegar
í HÍ einungis hluti af lánþegum
sjóðsins. Þessar upplýsingar hefðu
því ekki bætt neinu nýtilegu við
upplýsingar sjóðsins sem þegar
lágu fyrir. Samt vildu námsmenn
fresta afgreiðslu málsins þar til
þessi gögn bærust.
Námsmenn gerðu einnig kröfu
um að afgreiðslu reglnanna yrði
frestað þar til fyrir lægi afrit af
ummælum menntamálaráðherra á
Alþingi um lán fyrir skólagjöldum.
Þar sem ráðherra höfðu verið
kynntar tillögur um lán fyrir skóla-
gjöldum og hann ekki farið fram
á breytingar á þeim, var ljóst að
eftirprentun á fyrrgreindum um-
mælum hans myndi ekki breyta
niðurstöðu málsins, enda voru eng-
ar beinar tillögur um það lagðar
fram. Samt vildu námsmenn fresta
afgreiðslu á þessum forsendum.
sem lög og ráðstöfunarfé sjóðsins
gera mögulegt og öll gögn og út-
reikningar sem máli skiptu fyrir
afgreiðslu málsins lágu fyrir. Þess
vegna var ekki eftir neinu að bíða
með afgreiðslu úthlutunarregln-
anna. Vantraustsyfirlýsingar og
aðrar hótanir minnihiutans breyta
ekki þeirri staðreynd og eru varla
til þess fallnar að bæta málstað
þeirra.
Höfundur er varafulltrúi í stjórn
LIN, skipaðuraf
menntamálaráðherra.
BOSCH
VERKSTÆÐI
Lágmúla 9 sími 3 88 20
• Vélastillingar
• Smurþjónusta
• Raíviðgerðir
• Ljósastillingar
fiRMssfiKTHi? • Diselverkstæði
Eiríkur Ingólfsson.
„Það er þó ljóst að tek-
ið hafði verið mið af
flestum meginkröfum
námsmanna innan þess
ramma sem lög og ráð-
stöfunarfé sjóðsins
gera mögulegt og öll
gögn og útreikningar
sem máli skiptu fyrir
afgreiðslu málsins lágu
fyrir. Þess vegna var
ekki eftir neinu að bíða
með afgreiðslu úthlut-
unarreglnanna.“
Vantrauststillagan var
út í hött
Það var því ljóst að engin efnis-
leg rök lágu fyrir því að víkja frá
upphaflegri tímaáætlun um að af-
greiða úthlutunarreglur þann 1.
júní. Þegar námsmenn sáu að þeir
gætu ekki tafið afgreiðslu málsins
fremur með málþófí, báru þeir upp
tillögu um vantraust á formann
stjómarinnar. Vegna þess að full-
trúar ríkisvaldsins fara með fjögur
atkvæði af sjö í stjórninni var í
hæsta máta ósennilegt að tillagan
yrði samþykkt. Rétt er einnig að
hafa í huga að formaðurinn er
skipaður af ráðherra og því geta
aðrir stjórnarmenn í raun hvorki
fellt formann né kosið nýjan. Til-
lagan um vantraust var því ekkert
nema sjónarspil. Eftir að tillagan
hafði verið felld ætluðu fulltrúar
námsmanna að ganga af fundi, en
hættu við þegar þeim var tjáð að
ef þeir tækju ekki þátt í að af-
greiða reglumar með þeim tilslök-
unum sem gerðar höfðu verið, teldi
meirihlutinn sig óbundinn af fram-
komnum breytingartillögum.
Stjórnin stóð því öll að afgreiðslu
úthlutunarreglnanna.
Námsmenn hafa kvartað mikið
yfír því að „valtað" hafí verið yfir
minnihlutann í stjóminni. Vissu-
lega vora skiptar skoðanir um af-
greiðslu mála og framangreindar
baráttuaðferðir og yfírlýsingar
námsmanna síst til þess fallnar að
bæta samstarfíð innan stjómarinn-
ar. Það er þó ljóst að tekið hafði
verið mið af flestum meginkröfum
námsmanna innan þess ramma
SOLIGNUM
olíuvidarvörn
að þínu sumarskapi!
Af áralangri reynslu vita íslendingar að
Solignum olíuviðarvörnin er tvimælalaust
ein sú endingarbesta á markaðnum. Og
litaúrvalið er meira en nokkru sinni -
Solignum Architectural fæst nú í 14 litum
- einn þeirra er örugglega að þínu
sumarskapi. Einnig bjóðum við Solignum
grunnefni og gróðurhúsaefni.
Solignum fæst í flestum málningarvörubúðum.
SKAGFJÖRÐ
IH H
Kiistján Ó. Skogfjörá hf. Umboás- og heildverslun