Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
Hvítasunnumót Fáks:
Stórmótsbrag-
urinn hafði bet-
ur gegn veðrinu
Nökkvi frá Þverá sigraði B-flokkinn eins og búist var við að lokinni
forkeppni, knapi er Baldvin Ari Guðlaugsson.
Prati frá Stóra-Hofi hlaut Sölvabikarinn þar sem hann stóð efstur
Fákshesta, knapi er Alfreð Jörgensen.
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
ÞÓTT veðurguðirnir væru allir
að viya gerðir í að spilla fyrir
Fáksmönnum þegar þeir héldu
sitt árlega Hvítasunnumót með
meiri myndarbrag en vepja er, í
tilefni sjötugsafmælis félagsins
höfðu Fáksmenn þó betur. Mótið
hófst á föstudag þar sem B-
flokksgæðingar og börn. mættu
til dóms. Veðrið setti svip sinn á
mótið þá þrjá daga sem keppni
stóð yfir og verst var það síðasta
daginn, annan I hvítasunnu, þeg-
ar síst skyldi.
En þrátt fyrir allt tókst að halda
þeirri spennu sem alltaf fylgir sönn-
um stórmótum. í B-flokki kom fram
ný stjarna, Nökkvi frá Þverá, sem
Baldvin Ari Guðlaugsson sat en
hann vantaði aðeins herslumuninn
á að ná 9,0 í aðaleinkunn sem eru
óopinber mörk úrvalsgæðingsins í
dag. Hlaut hann 8,99 í einkunn
þannig að tæpara gat það ekki ver-
ið. Það voru helst Prati frá Stóra-
Hofi og Alfreð Jörgensen sem veittu
Nökkva og Baldvini einhveija
keppni en hann stóð efstur Fáks-
hesta í þessum flokki og var verð-
launaður sem slíkur með Sölvabik-
amum. í A-flokki gæðinga var for-
keppni nokkuð spennandi. Allir
reiknuðu með Gými í fyrsta sætið
og fór það allt eftir áætlun en
keppnin um sæti úrslitum var hins-
vegar það sem hélt spennunni gang-
andi enda mikið um nýja lítt reynda
hesta. Ekki voru allir sammála dóm-
umm um úrslitasæti. Fannst ýms-
um að öskubuskan úr röðum stóð-
hesta Seimur frá Víðidal eiga meira
skilið og hefði að ósekju mátt verma
sæti Gusts frá ísabakka í úrslitun-
um. Þá komst Sörli frá Skjólbrekku
á undarlegan hátt í úrslitakeppnina
sem níundi hestur en hann og Nátt-
ar frá Miðfelli voru jafnir eftir
fyrsta útreikning en þegar betur
var reiknað hafði Náttar betur og
Sörli hefði þar með átt að vera út
úr myndinni. Þess má þó geta að
Sörli og knapi hans sýndu það í
sjálfum úrslitunum að þau áttu þar
heima er þau unnu sig upp í sjötta
sæti. Þetta er gott dæmi um það
hvemig hestar eru vandæmdir ef
þeir koma snemma inn í dóm í for-
keppni en Sörli var tólfti inn. Hér
er þetta fyrst og fremst spurning
um fordæmi þegar reglur eru snið-
gengnar eins og þarna var gert.
Svipað dæmi mun hafa átt sér stað
í barnaflokki á mótinu. Úrslita-
keppnin í A-flokki var ótrúlega
skemmtileg og stóðu knapar sig þar
með mikilli piýði því allan tímann
hellirigndi og ekki var logn. Nokkr-
ar breytingar urðu á röð hestanna.
Stóðhesturinn Dofri frá Homafirði
sem Aðalsteinn Aðalsteinsson sýndi
af mikilli snilli féll úr þriðja sæti í
það sjöunda en að mati undirritaðs
hlaut hann of háa einkunn í for-
keppninni. Er við hæfi að gefa yfir
9,0 fyrir fegurð í reið þegar hestur
sýnir áberandi taglslátt þegar að
honum er lagt og liggur greinilega
á beisli af miklum þunga inn á
milli? Höfði frá Húsavík vann sig
úr fjórða í þriðja sæti, Gustur fór
í níunda sætið og Fáni frá Hala
vann sig upp úr sjöunda sæti í
fjórða. Gýmir hélt fyrsta sætinu og
Þristur öðru sætinu, Þokka fimmta
sætinu og Náttar því áttunda.
í unglingaflokki sigraði Sigurður
Matthíasson á Bessa frá Gröf en
hann var einnig eftstur eftir for-
keppnina. Þrír stóðhestar vom
sýndir í unglingaflokki sem er sjálf-
sagt einsdæmi. Undirstrikar það
góða reiðmennsku unglinganna og
einnig að þau eru tekin sem fullgild-
ir reiðmenn. í bamaflokki sigraði
Guðmar Þór Pétursson á Kvisti frá
Skeggstöðum en hann virtist hafa
nokkra yfirburði yfir keppinauta
sína. Hlaut Guðmar 9,22 fyrir ásetu
sem er góður árangur en hann var
einnig með hæstu einkunn 8,63
fyrir gangtegundir. Mikil umræða
átti sér stað á síðasta ársþingi LH
um hvort ætti að gefa sérstaklega
fyrir ásetu í úrslitum og af því til-
efni fylgdist umsjónarmaður Hesta
nokkuð með störfum dómara í úr-
slitum og mátti þar greinilega sjá
að mestur tími þeirra fer í pappírs-
vinnu með ritaranum en minni tími
í að fylgjast með keppendunum og
má draga þá ályktun að sú röðun
sem framkvæmd er geti verið mjög
handahófskennd. Virðist spumingin
standa um það hvort menn vilji fá
röðun fyrir ásetu og hugsanlega
ónákvæmari vinnu eða að sleppa
ásetunni í upréttingu spjalda og
betri athygli dómara á keppendum.
Undanhald samkvæmt áætlun
Kappreiðar hjá Fáki eru góður
mælikvarði á gróskuna í kappreið-
um hérlendis og kemur enn betur
í ljós þegar nú er haldið stórmót
með þeim hætti eins og nú er gert.
Verður ekki betur séð en þátttakan
fari síminnkandi ár frá ári og er
nú svo komið að enginn skráir í 300
metra brokk og 250 metra stökk
og lítil sem engin þátttaka er í 350
og 800 metrunum og jafnvel í skeið-
inu sem margir hafa talið óvinnandi
vígi má sjá merki um undanhald.
Allir sem vilja hljóta að sjá að hér
Sigurður Matthíasson sigraði í
unglingaflokki á Bessa frá Gröf,
en Þóra Brynjarsdóttir til vinstri
varð önnur á Fiðringi. Sigurður
hlaut einnig knapaverðlaun.
flýtur að feigðarósi sem er í sjálfu
sér í góðu lagi ef allir eru sammála
um að það sé hrossarækt og hesta-
mennsku til framdráttar. Ef svo er
ekki er gott að menn geri sér grein
fyrir því að þetta lagast ekki af
sjálfu sér.
En það voru Leistur frá Keldudal
og Sigurbjöm sem sigmðu að venju
liggur manni við að segja. Tíminn
ekkert sérstakur en Erling og Vani
gerðu sitt til að hafa sigur af Leisti
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
A-flokksgæðingar að verðlaunafhendingu lokinni, lengst til vinstri má þekkja formann Fáks Viðar Halldórsson og Rögnu Bogadóttur konu
hans sem afhentu verðlaunin, næstir koma Einar Oder á Gusti, Hinrik á Náttari, Aðalsteinn á Dofra, Olil á Sörla, Atli á Þokka, Kristinn á
Fána, Sigurður á Höfða, Sigurbjörn á Þristi og Trausti Þór situr sigurvegarann Gými og við hlið þeirra stendur Jóhanna Björnsdóttir
eigandi Gýmis.
hagstæð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir
gjaldmiðlar
m
IÐNÞROUNARSJOÐUR
Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92