Morgunblaðið - 10.06.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
31
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjgvík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Nýjar stoðir at-
vinnulífsins
Islendingar eiga ótrúlega mikla
möguleika á að auka fjölbreytni
í atvinnulífinu, skapa ný atvinnu-
tækifæri, auka hagvöxt og mala
gull fyrir þjóðarbúið. Við eigum nær
óþijótandi orku í fallvötnum og jarð-
varma, tært vatn og ómengaðar af-
urðir lands og sjávar. Þjóðin er dug-
mikil og vel menntuð til hugar og
handa. Að því má færa sterk rök,
að íslendingar hafi aðeins að litlu
leyti fært sér í nyt þau miklu tæki-
færi; sem fólgin eru í auðlindum allt
umhverfis okkur, legu landsins og
pólitískri stöðu og loks í fólkinu
sjálfu. Það þarf bjartsýni, áræði og
dug til að nýta þessi tækifæri og
vísa út í hafsauga þeim bölmóði, sem
vart hefur orðið í kjölfar upplýsinga
um ástand þorskstofnsins.
Samdráttur hefur verið í efna-
hagslífinu sl. 3-4 ár og afleiðingin
hefur verið minnkandi atvinna og
skert kjör. Við höfum lifað um efni
fram og safnað skuldum erlendis.
Þær eru orðnar svo miklar, að ekki
er á lántökumar bætandi nema til
arðbærra verkefna. Ráðlegging Al-
þjóða hafrannsóknaráðsins um 40%
niðurskurð á þorskveiðum er því
mikið áfall fyrir þjóðarbúið og getur
leitt til meira atvinnuleysis en við
höfum þekkt í nær aldarfjórðung,
rýmandi kjara og gjaldþrotahrinu
fyrirtækja. Hart er um það deilt,
hvort fylgja beri ráðleggingum fiski-
fræðinga út í æsar og ekki munu
deilurnar minnka, þegar að því kem-
ur að jafna aflaskerðinguna niður
milli útgerða og byggðarlaga. Mikil
áhætta er í því fólgin að hunza
ábendingar fiskifræðinganna og því
er líklegt, að stjómvöld verði að
draga verulega úr aflaheimildum í
kjölfar þess að Hafrannsóknarstofn-
un leggur tillögur sínar fram síðar í
þessum mánuði.
En það þýðir ekkert að leggja árar
í bát, þrátt fyrir þetta áfall, heldur
verður að heQast handa nú þegar
um að draga úr áhrifunum á efna-
hags- og atvinnulífið í nánustu fram-
tíð og hefja nýja atvinnusókn til
framtíðar, skjóta nýjum stoðum und-
ir þjóðarbúið og draga úr þeim sveifl-
um, sem fylgja misjöfnu árferði í
sjávarútveginum. Þetta eru ekki ný
sannindi. Um það hefur verið rætt í
meira en þrjá áratugi, að nýta beri
orkulindir landsins til að koma á fót
stóriðju og fullvinna sjávarfang. Lítið
hefur þó áunnizt í þessum efnum frá
tíma Viðreisnarstjómarinnar á sjö-
unda áratugnum, sem réðst í stór-
virkjanir og byggingu álversins í
Straumsvík. Á áttunda áratugnum
var jámblendiverksmiðjan byggð á
Grundartanga, en síðan ekki söguna
meir, þótt ýmsar ráðagerðir hafi ver-
ið á prjónunum.
Ein af ástæðunum fyrir þessu eru
miklar pólitískar deilur um uppbygg-
ingu stóriðju í samvinnu við útlend-
inga, sem uppi voru m.a. fyrir u.þ.b.
áratug. Framsóknarfiokkurinn, en
þó sérstaklega Alþýðubandalagið,
hafa verið andvígir atvinnuuppbygg-
ingu með erlendu fjármagni. í þess-
um efnum hafa Islendingar þurft að
súpa seyðið af stjómaraðild þessara
flokka síðustu tvo áratugina og á
það sérstaklega við um það upp-
hlaup, sem Alþýðubandalagið stóð
fyrir gegn samningum við Sviss-
neska álfélagið og varð til þess að
skapa tortryggni í garð Islendinga
meðal erlendra stórfyrirtækja.
Það er ekki fyrr en með auknu
fijálsræði í viðskiptum allra síðustu
árin, t.d. gjaldeyrislöggjöf, að bera
tekur á nýsköpun í íslenzku atvinnu-
lífí fyrir framtak einstakra athafna-
manna. Þar má nefna útflutning á
vatni, hvers kyns vörum og búnaði
til útgerðar og ýmsum sjávarafurð-
um unnum úr tegundum, sem ekki
hafa verið nýttar til þessa, t.d. ígul-
kerum, gulllaxi og tindabikkju. Eng-
inn vafi leikur á því, að óþijótandi
möguleikar eru á nýtingu hvers kyns
tegunda úr lífríki sjávar, sem við
höfum ekki sinnt til þessa, t.d. þangs
og annars gróðurs. Augu manna eru
farin að opnast fyrir þessu og má
m.a. marka það af þeim mikla áhuga,
sem orðinn er á nýtingu búrans.
Þrátt fyrir efnahagssamdráttinn
eru merki um jákvæða þróun í ýms-
um atvinnugreinum og má þar nefna
ferðaþjónustuna, sem vaxið hefur
verulega undanfarin ár, og þar eru
taldir miklir framtíðarmöguleikar til
aukinna tekna og atvinnu. Innan
sjávarútvegsins eru merki um áhuga
fyrirtækja á að hasla sér völl á er-
lendum vettvangi og t.d. keypti
Grandi h.f. nýiega hlut í útgerðarfyr-
irtæki í Chile og fleiri fyrirtæki hafa
áhuga á að selja sérþekkingu sína
erlendis eða jafnvel stunda veiðar á
erlendum fiskimiðum. Síðustu dag-
ana hafa birzt fréttir um það, að
íslenzka heilsufélagið hf. ætli að
koma á fót lyfjafyrirtæki í Litháen
og Delta hf. öðru í Rússlandi. Sér-
þekking íslendinga í nýtingu jarð-
varma hefur verið markaðssett af
Virki-Orkint h.f. víða um heim og
íslenzk verktakafyrirtæki hafa feng-
ið verkefni erlendis, t.d. á. Græn-
landi. íslenzku skipafélögin hafa
einnig sótt á erlenda markaði til að
auka umsvif sín.
Hér hafa aðeins verið nefnd örfá
dæmi um grózku, sem örlar á í ís-
lenzku atvinnulífí, og enginn vafí er
á því, að með aukinni efnahagssam-
vinnu við nágrannaþjóðirnar og
auknu viðskiptafrelsi munu íslenzk
fyrirtæki og einstaklingar horfa æ
meira til útlanda til að selja fram-
leiðslu sína og sérþekkingu, auka
tekjur þjóðarbúsins og skapa ný
störf. Þáttaskil verða í þessum efn-
um, þegar íslendingar gerast aðilar
að Evrópska efnahagssvæðinu og á
því er brýn nauðsyn, að fyrirtækin
búi sig undir það hið fyrsta að færa
sér í nyt þá víðtæku möguleika, sem
þeim munu opnast innan tíðar.
En EES-samningurinn skapar líka
mikla möguleika á því að laða erlend
fyrirtæki til fjárfestinga á íslandi,
þar sem tollfijáls aðgangur verður
að hinum auðuga markaði Vestur-
Evrópu. íslenzk stjórnvöld eiga brýnt
verk fyrir höndum við að kynna er-
iendum fyrirtækjum þessa nýju
möguleika og greiða götu þeirra sem
áhuga hafa.
Ingvar Örn Eiríksson með björgunarfólki sínu og foreldrum, f.v. Ingibjörg Eva Arnardóttir móðir Ingvars Arnar, Helgi Jónsson, Ingvar
Örn, Anna Helga Hallgrímsdóttir og Eiríkur Ingvarsson faðir Ingvars.
Þriggja ára dreng bjargað frá drukknun í Olfusá:
Snör viðbrögð nágranna o g reið-
hjólahjálmur urðu honum til lífs
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
Andstæðingar ríkissijórnarinn-
ar 52,8% - fylgismenn 28,1%
Stjórnarflokk-
arnir samanlagt
með 42% fylgi
STUÐNINGSMÖNNUM ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar hefur
fækkað verulega frá því í nóvem-
ber síðastliðnum samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar, sem
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands gerði fyrir Morgunblaðið
29. maí til 6. júní. Er spurt var:
„Hvort mundir þú segja að þú
værir stuðningsmaður ríkis-
sljórnarinnar eða andstæðing-
ur?“ svöruðu 28,1% því til að
þeir væru stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar, 19,1% sögðust
hlutlausir og 52,8% lýstu sig and-
stæðinga stjórnarinnar. í könnun
Félagsvísindastofnunar í nóvem-
ber síðastliðnum sögðust 35,1%
vera stuðningsmenn ríkisstjórn-
arinnar, 19,3% sögðust vera hlut-
lausir og 45,6% svöruðu því til
að þeir væru andstæðingar ríkis-
stjórnarinnar.
Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú?
Samanburður við fyrri kannanir og alþingiskosningar 1991, % þeirra sem taka afstöðu
404
138,65-
Vikmörk könnunar
i júní1992
S'35,2
31,6
April 1991
KOSNINGAR 1991
Júní1991
Október 1991
Nóvember 1991
JÚNÍ1992
1,3
flörip
2,1
Selfossi.
ÞRIGGJA ára drengur, Ingvar
Örn Eiríksson, var hætt kominn
er hann félt í Ölfusá fram undan
Tryggvagötu á Selfossi um klukk-
an 13 á sunnudag. Sjónarvottur
var að atburðinum og tóks honum
með aðstoð að bjarga Ingvari Erni
frá drukknun. Ingvar Örn var með
öryggishjálm á höfðinu sem ótví-
rætt varð honum til lífs. Vöxtur
var í ánni og verulegur straumur
þar sem drengurinn féll í ána en
annárs er þar frekar lítið vatn
þegar minna er í ánni.
„Ég var að draga gluggatjöldin
frá glugganum á svefnherberginu
þegar ég sá strákana á bakkanum.
Ég fylgdist með þeim en þeir voru
eitthvað að stympast og allt í einu
datt Ingvar Örn aftur fyrir sig og
hvarf,“ sagði Anna Helga Hallgríms-
dóttir sem býr á efri hæðinni í húsi
númer eitt neðst við Tryggvagötu.
„Ég hljóp út á sokkunum og öskraði
á Helga að koma og þjálpa mér.
Hann hljóp síðan á eftir mér niður
að ánni. Þetta tók ótrúlega á og ég
hélt satt að segja að drengurinn
væri dáinn þama í ánni,“ sagði Anna
Helga.
„Vissi hvers kyns var þegar
ég sá hjálminn"
„Ég vissi ekki hvað hafði gerst
en heyrði á hljóðunum að það var
eitthvað alvarlegt. Ég skellti mér í
skó og hljóp út á eftir Önnu Helgu
og vissi þá að einhver hafði dottið í
ána,“ sagði Helgi Jónsson sem býr
á neðri hæðinni á Tryggvagötu 1.
Hann komst niður fyrir Ingvar Örn
þar sem hann flaut um einn metra
frá bakkanum um fímmtíu metrum
Ingvar örn Eiríksson með hjálm-
inn góða sem kom að góðum
notum.
neðan við staðinn þar sem hann féll
útí. „Þegar ég sá hjálminn vissi ég
hvers kyns var. Ég óð útí og greip
í hjálminn sem losnaði þá af strákn-
um en þá greip ég í handlegginn á
honum og óð í land. Það er alveg
klárt að hjálmurinn hefur bjargað
honum því hann hreinlega flaut á
hjálminum," sagði Helgi Jónsson.
Ingvar Örn var með meðvitund
þegar hann náðist úr ánni en var
nokkuð kaldur. „Hvar er hjálmurinn
minn,“ var það fyrsta sem hann sagði
þegar upp á bakkann var komið. í
þann mund sem Helgi kom Ingvari
Erni upp á bakkann kom lögregían
á sjúkrabíl og tók við honum. „Ég
tel mig mjög lukkulegan mann að
hafa getað náð stráknum uppúr.“
Ingvar Örn Eiríksson á heima á
Tryggvagötu 4. Hann fór út að leika
sér skömmu áður en atburðurinn
varð. „ Rétt eftir að hann fór út
datt mér í hug að rétt væri að láta
hann vera með hjálminn. Ég hljóp
því út á eftir honum og setti hjálm-
inn á strákinn og fímm mínútum
seinna var komið með hann renn-
blautan," sagði Ingibjörg Eva Arn-
ardóttir móðir Ingvars Arnar en
henni og eiginmanni hennar Eiríki
Ingvarssyni var að vonum brugðið.
Ekki áformað að girða með
ánni
t húsunum neðst við Tryggvagötu
er nokkur fjöldi ungra barna og
meðal- þeirra sem rætt var við í
tengslum við atburðinn voru uppi
raddir um að tryggja þyrfti öryggi
þeirra betur, jafnvel með girðingu
með ánni. Karl Bjömsson bæjarstjóri
var spurður álits á því atriði.„Það
hefur verið óskráð regla hér á Sel-
fossi að foreldrar hafa brýnt það
fyrir börnum sínum að vera ekki að
leik við ána. Það er mikilvægt að
gætt sé sérstaklega að þessu þegar
vatnavextir eru. Ég geri ráð fyrir
að yfir þessi mál verði farið og kann-
að hvernig auka megi öryggi við
ána. Það er starfandi á vegum bæjar-
félagsins vinnuhópur um öryggi
bama og það er eðlilegt að hann fjalli
um öryggi við ána eins og um önnur
öryggismál barna á Selfossi. Annars
eru aðstæður á bökkum Ölfusár mjög
misjafnar hér á Selfossi og það hafa
ekki verið uppi áform um að girða
ána, en breyttar aðstæður geta vissu-
lega haft áhrif þar á, svo sem aukinn
bamafjöldi í nágrenni árinnar," sagði
Karl Bjömsson bæjarstjóri á Selfossi.
- Sig. Jóns.
Möguleikar kannaðir á samstarfi við
Indverja og Mexíkóbúa í sjávarútvegi
FYRIRTÆKIÐ Icecon hefur í samráði við nokkur íslensk fyrirtæki
ákveðið að kanna möguleika á samstarfi íslenskra útgerðarfyrir-
tækja og Indveija við fiskveiðar á Indlandsmiðum. í nýlegri heim-
sókn konsúls íslands í Dehli, sem rekur þar umfangsmikið fyrirtæki,
var skrifað undir minnisblað um þessa könnun. Þá er Icecon einnig
að kanna möguleika á samskiptum á sjávarútvegssviði við Mexíkó
fyrir íslensk einkafyrirtæki. Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður
hefur haft milligöngu um þessi tvö verkefni.
Björn Bjamason hjá Icecon sagði
að næstu mánuði yrði indverska
fyrirtækinu, sem íslenski konsúllinn
rekur, sendar skriflegar fyrirspurnir
en á grundvelli svara við þeim yrði
metið í haust hvort tilefni væri til
að senda sendinefnd til Indlands til
að gera nákvæma úttekt á sam-
starfsmöguleikunum og hugsanlega
samstarfssamning í kjölfarið.
Björn sagðist hafa gert frumat-
hugun fyrir tveimur árum á mögu-
leikum á veiðum við Indland fyrir
íslenskt útgerðarfyrirtæki en ekki
hefði verið farið út í nákvæma at-
hugun í kjölfarið, m.a, vegna þess
að kröfur Indverja hefðu verið mjög
strangar. Síðan hefði verið slakað á
þessum kröfum, m.a. vegna þess að
Indverjar gerðu sér grein fyrir að
þama væri um að ræða ónýtta auð-
lind sem mætti nýta með annarra
hjálp.
Margar vannýttar fískitegundir
eru við Indlandsstrendur, að sögn
Björns, sérstaklega þegar komið er
út á það dýpi þar sem smábátar ná
ekki til. Þar væri m.a. túnfiskur og
makríll sem íslendingar gætu vel
veitt með smávægis æfingu; og
botnfisktegundir eins og rækja,
humar, karfi og fleiri góðfískar.
Icecon er einnig að athuga mögu-
leika á samskiptum á sviði sjávarút-
útvegs við Mexíkó fyrir íslensk eink-
afyrirtæki. Bjöm sagði að þessa
stundina væri verið að afla upplýs-
inga bréflega frá mexíkóskum aðil-
um og líklega færu fulltrúar Icecon
til Mexíkós síðar í sumar.
Björn sagði að í fljótu bragði virt-
ust möguleikar í Mexíkó helst felast
í viðskiptum með tæki til fiskvinnslu
og skip frekar en veiðum í lögsögu
Mexíkós. Nytjastofnar þar virtust
vera fullnýttir en fiskveiðifloti Mexí-
kóbúa væri úr sér genginn og tækni-
væðing í fiskvinnslu komin skammt
á veg.
Þegar skoðað er hvernig stuðn-
ingi við ríkisstjómina er háttað
meðal stuðningsmanna hvers
stjórnmálaflokks um sig kemur í
Ijós að stjómin nýtur mests stuðn-
ings meðal þeirra, sem segjast kjósa
Sjálfstæðisflokkinn ef nú yrði geng-
ið til kosninga, eða 80,6%, og að-
eins 6,9% stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokks segjast andvígir
stjóminni. Meðal stuðningsmanna
hins stjómarflokksins, Alþýðu-
flokks, er andstaðan við stjórnina
hins vegar 27,4%, en stuðnings-
menn eru 58,1%.
Af stuðningsmönnum Framsókn-
arflokks eru 84,9% andvígir stjórn-
inni, og 89,3% Alþýðubandalags-
Fá Ijöld um
hvítasunnu-
helgina
LÍTIÐ var um að fólk safnaðist
sainan á tjaldstæðum og öðrum
útivistarsvæðum um helgina,
enda rigning víðast hvar. Helst
var það á Norðurlandi, sem tjöld
sáust.
Tjaldstæði vom opin í þjóðgarð-
inum í Skaftafelli um helgina, en
fáir nýttu sér það, enda stytti ekki
upp, að sögn starfsmanna þjóð-
garðarins, sem töldu að 40-50
manns hefðu verið á tjaldstæðinu
þegar flest var.
I Borgarfírði voru tjaldstæði,
t.d. í Húsafelli, lokuð. Mikill mann-
fjöldi sótti dansleik í Logalandi á
sunnudagskvöld. Að sögn lögregl-
unnar í Borgarnesi náði bílalestin
að samkomuhúsinu um tíma allt
niður á þjóðveg, eða um 500 metra
leið. Allt gekk það slysalaust.
Tjaldstæði voru leyfð við Loga-
land, en afar fáir nýttu sér það.
Þýskalands-
forseti heim-
sækir Island
RICHARD von Weizsacker forseti
Þýskalands og eiginkona hans frú
von Weizsacker eru_ væntanleg í
opinbera heimsókn til Islands dagana
16.-18. júlí nk., segir í frétt frá
skrifstofu forseta íslands.
fólks og 84% þeirra, sem segjast
myndu kjósa Kvennalistann segjast
vera andvígir ríkisstjórninni.
26% stuðningur
Framsóknarflokks
í könnun Félagsvísindastofnunar
var jafnframt spurt um stuðning
við stjómmálaflokkanna, og vom
þijár spurningar lagðar fyrir svar-
endur. Fyrst var spurt: „Ef alþingis-
kosningar væm haldnar á morgun,
hvaða flokk eða lista heldurðu að
þú myndir kjósa?“. Þeir, sem svör-
uðu „veit ekki“ við þessari spurn-
ingu, voru spurðir áfram: „En hvaða
flokk eða lista heldurðu að liklegast
sé að þú myndir kjósa?“. Þeir, sem
enn sögðust ekki vita, voru spurðir
í þriðja sinn: „En hvort heldurðu
að sé líklegra að þú kjósir Sjálfstæð-
isflokkinn eða einhvern annan flokk
eða lista?“. Eftir tvær fyrstu spurn-
ingarnar voru 17,5% kjósenda enn
óráðnir, en eftir að þeir höfðu verið
spurðir þriðju spumingarinnar var
hlutfall óráðinna 4,8% og 8,3% neit-
uðu að svara.
Þegar litið er á svör við öllum
þremur spurningunum samanlögð-
um og aðeins tekið tillit til þeirra,
sem svöruðu, kemur í ljós að 31,6%
segjast myndu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn ef nú yrði gengið til kosn-
inga. Flokkurinn fékk hins vegar
38,6% í síðustu kosningum og 35,2%
í könnun Félagsvísindastofnunar í
nóvember í fyrra. í könnuninni
sögðust 10,4% kjósa Alþýðuflokkinn
en flokkurinn fékk 15,5% atkvæða
í kosningunum og 11,3% í könnun-
inni í nóvember. Samanlagt hafa
stjórnarflokkarnir því fýlgi minni-
hluta svarenda, eða 42%, en í kosn-
ingunum 1991 fengu þeir sam-
anlagt 54,1%, og í könnuninni í
nóvember fengu þeir 46,5%.
Samkvæmt könnuninni bætir
Framsóknarflokkurinn verulega við
sig fylgi frá síðustu könnun, en
26,2% sögðust kjósa flokkin nú. í
könnuninni í nóvember sögðust
21,7% kjósa Framsóknarflokkinn,
og í kosningunum 1991 fékk flokk-
urinn 18,9% atkvæða. Alþýðuband-
alagið missir fylgi frá síðustu könn-
un, en 17,5% sögðust myndu kjósa
flokkin nú á móti 19,6% þá. í kosn-
ingunum 1991 fékk Alþýðuband-
alagið 14,4% atkvæða. Kvennalist-
inn bætir hins vegar við sig fylgi
og fengi 12,2% nú á móti 10,8% í
síðustu könnun og 8,3% í kosning-
unum. Fylgi annarra flokka en
þeirra fimm, sem eiga menn á þingi,
er óverulegt.
Er litið er á fylgi flokkanna eftir
landshlutum má sjá að báðir stjóm-
arflokkarnir njóta meira fylgis í
þéttbýlinu suðvestanlands en á
landsbyggðinni. Þannig er fylgi
Sjálfstæðisflokksins 35,3% í
Reykjavík og 37,8% á Reykjanesi,
en á landsbyggðinni er fylgi flokks-
ins 24,4%. Fylgi Alþýðuflokksins í
Reykjavík er 12,1%, á Reykjanesi
er fylgið 12,7% og á landsbyggðinni
er það 8%. Á landsbyggðinni er
Framsóknarflokkurinn langstærst-
ur, með 38,6% fylgi, en í Reykjavík
er fylgi flokksins 14,1% og 23,2%
á Reykjanesi. Fylgi Alþýðubanda-
lagsins er 16,35 í Reykjavík, 10,8%
á Reykjanesi og 22,4% á lands-
byggðinni. Kvennalistinn nýtur sér-
staklega mikils fylgis í Reyjkavík,
eða 19,6%, á Reykjanesi er fýlg
flokksins 13,2%, en á landsbyggð
inni er fylgi Kvennalistans hins veg
ar aðeins 5,3%.
í könnun Félagsvísindastofnunai
vartekið 1.500 manna tilviljunarúr-
tak úr þjóðskrá. Viðtöl voru tekin
í síma og fengust alls svör frá 1056
manns, sem er 70,4% svarhlutfall,
Nettósvörun — þegar dregnir hafa
verið frá nýlega látnir, erlendir rík-
isborgarar og fólk sem dvelur er-
lendis — er 72%. Félagsvísinda-
stofnun telur fullnægjandi samræmi
milli skiptingar úrtaksins og þjóðar-
innar allrar eftir aldri, kyni og bú-
setu og að því megi ætla að úrtak-
ið endurspegli þjóðina, 18 til 75
ára, allvel.
Byrjar brösótt en lítur vel út
LAXVEIÐI á stöng hefur geng-
ið brösótt í þeim ám sem þegar
hafa verið opnaðar og kenna
menn um of lágum vatnshita og
miklu og skoluðu vatni. í Norð-
urá, Þverá og Laxá á Ásum, þar
sem veiðin hófst fyrst, telja
menn að eitthvað sé gengið af
laxi, en aðstæður gera mönnum
erfitt fyrir að meta hversu
magnið er mikið og veiði glæð-
ist vart fyrr en sljákka fer í
ánum og þær að hlýna. I dag
hefst veiði í nokkrum frægum
laxveiðiám og bera þar hæst
Laxá í Kjós, Laxá í Aðaldal og
síðast en ekki síst Elliðaárnar.
í þeim öllum hefur sést töluvert
af laxi á neðstu svæðum og má
því búast við að nokkrir falli í
valinn.
Orri Vigfússon sagði í samtali
við Morgunblaðið, að menn hefðu
séð nokkra stórlaxa í Bjargstreng
í Aðaldalnum um hvítasunnuna og
segðu kunnugir, að þegar hann
sæist í þeim stað fyrst væri það
vísbending um að hann væri búinn
að ganga um Kistukvísl í viku til
tíu daga. 1. júní sást mikið líf
undir Laxfossi í Kjósinni, en vatna-
vextir síðan hafa torveldað mönn-
um að fylgjast náið með frekari
göngum. Norðurá hefur gefið alls
nærri 50 laxa það sem af er og
Þverá eitthvað aðeins meira og
Kjarráin nokkra fiska þrátt fýrir
afleit skilyrði.
Fregnir að utan benda hins veg-
ar til þess að miklu mun meira sé
af laxi á ferðinni en í áraraðir. í
laxveiðiám í Skotlandi, Noregi,
Svíþjóð og írlandi hefur veiðin
byrjað afbragðsvel og laxinn verið
bæði stór og í góðum holdum.
Orri Vigfússon hafði t.d. eftir veið-
imanni sem hafði veitt í skosku
ánni Cree í 50 ár, að hún færi nú
betur af stað heldur en dæmi
væru til um síðasta aldarfjórðung-
inn. Sömu sögu væri að segja frá
öllum helstu ám í nágrenninu og
meira að segja hefðu verið að ber-
ast slitróttar fregnir frá rússnesku
laxveiðiánum á Kólaskaga. Þar
væri veiðin betri miðað við árstíma
heldur en í mörg ár. Og laxinn
væri miklu vænni en áður. Orri
Vigfússon sagði að þó svo að nokk-
urra ára reynslu þyrfti til þess að
sjá fyrir víst hvaða áhrif færeysku
úthafsveiðarnar og veiðar dönsku
sjóræningjabátanna höfðu á laxa-
stofninn ,þá væri hann sjálfur
sannfærður um það, svo og allir
hans félagar í Alþjóðlegu kvóta-
kaupanefndinni, að menn væru nú
að sjá fyrsta árangur erfiðisins.
gg