Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
Ljósmyndastofan Mynd
HJÓNABAND.16. maí sl. voru
gefin saman í Hafnarfjarðarkirkju
Guðjón Steinar Sverrisson og Sig-
ríður Jenný Halldórsdóttir. Prestur
var sr. Einar Eyjólfsson. Heimili
þeirra er á Hverfisgötu 16, Hafnar-
firði.
Ljósmyndastofan Mynd
HJÓNABAND.16. maí sl. voru
gefin voru saman í Víðistaðakirkju
Jóhann Þráinsson og Matthildur
Úlfarsdóttir. Prestur var sr. Sigurð-
ur H. Guðmundsson. Heimili þeirra
er á Strembugötu 16, Vestmanna-
eyjum.
iwo i-.im [ ,uri
OTRULEGT
VERÐ í
TAKMARKAÐAN
TÍMA
QÆ900|
^^^kr.stgr!
7
• Stór flatur skjár
• Nicam sterio
• Black line myndlampi
• Islenskt textavarp
TAKMARKAÐ MAGN!
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
ÁRNAÐ HEILLA
Djass á Hressó í kvöld
DJASS er á dagskrá klúbbs listahátíðar, Hressó í kvöld klukkan
21, er Sigurður Flosasaon, Eyþór Gunnarsson, Tómas R. Einars-
son og Einar Scheving leika, Jóhann Hjálmarsson og Berglind
Gunnarsdóttir lesa upp og Ólafur Eini fremur myndlistargjörn-
ing. Þá segir í fréttatilkynningu: Kokkur Kyrjan Kvæsir.
Á morgun, fimmtudag verður verða Vinir Dóra á laugardags-
Risaeðlan á Hressó svo og Þríhorn- kvöldið, Pinetop Perkins og
. •. t á föstudag Todmobile. Loks Chicagi Beau.
Tríó Reykjavíkur á
tónleikaferð í Danmörku
TRÍÓ Reykjavíkur fór í tón-
leikaferð til Danmerkur í lok
febrúar og byrjun mars en
tríóið skipa Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari, Gunnar
Kvaran sellóleikari og Halldór
Haraldsson píanóleikari. Þau
höfðu áður farið í tónleikaferð
til Danmerkur og Finnlands í
nóvember á sl. ári, en að þeirri
ferð lokinni fengu þau mörg
tilboð um að halda tónleika. I
Danmörku hélt tríóið tónleika
m.a. í Friðriksborgarhöll í
Hilleröd, tvisvar í hátiðasal
Konunglega tónlistarháskól-
ans í Kaupmannahöfn, í boði
á heimili íslensku sendiherra-
hjónanna, í Gjethuset í Frede-
riksværk og á fleiri stöðum,
eða sjö tónleika alls.
Eftir tónleika tríósins í Frið-
riksborgarhöll, sem Danska út-
varpið tók upp og þegar hefur
verið útvarpað, birtist gagnrýni
í dönskum dagblöðum. Fyrirsögn
dagblaðsins Politiken var á þessa
leið: „Hver tónn var þrunginn
anda“, og undirfýrirsögn: „ís-
lendingar í glóandi samleik". Um
verk Schuberts, Sjostakovítsj og
Þorkels Sigurbjörnssonar segir í
sjálfri gagnrýninni m.a.:
„Tónleikarnir voru mikil upp-
lifun fyrir stóran hóp áheyrenda,
sem sátu í hinum fagra „fyrir-
lestrarsal" Friðriksborgarhallar.
Hið funheita samspil fiðluleikar-
ans, Guðnýjar Guðmundsdóttur,
og sellóleikarans, Gunnars Kvar-
ans, hljómaði af festu og ákafa,
sem myndaði skarpar andstæður
í hinni lýrísku paradís Schuberts,
Es-dúr tríóinu op. 100. Þessir
tveir strengjaleikarar léku með
mjög þéttri tónmyndun, svo tón-
amir titruðu af fullri og ljómandi
tjáningu. Margar tónhendingar
Schuberts hljómuðu af næmum
Tríó Reykjavíkur; Gunnar Kvaran, Guðný Guðmundsdóttir og
Halldór Haraldsson.
innileik og dramatískri tjáningu,
sem minnti á Beethoven ...“
í tríói nr. 2 eftir Sjostakovítsj
var steyttur hnefínn í hinni þrúg-
andi svartsýni. í inngangsflautu-
tónum verksins túlkaði sellóleik-
arinn nístandi þjáningu, sem
minnti á er bor tannlæknis snert-
ir viðkvæma taug. Tríóinu tókst
að túlka öll hin margvíslegu blæ-
brigði verksins."
Fyrirsögn Beriingske Tidene
var: „íslenskt tríó með ákveðnar
skoðanir". í sjálfri gagnrýninni
segir m.a.: „Tríó Reykjavíkur
sækir nú Danmörku heim. Sl.
mánudag léku þau í Friðriks-
borgarhöll, þar sem tækifæri
gafst til að heyra verk eftir Sjos-
takovítsj, Schubert og Þorkel
Sigurbjörnsson, leikin á sér-
stakan íslenskan máta. Sterkir
persónuleikar hafa vaxið upp á
hinni norðlægu hrauneyju og það
setur sinn svip á tónlist þeirra.
í verki Þorkéls Sigurbjömssonar,
„Þijú andlit í látbragðsleik", taka
fíðlan, sellóið og píanóið þátt í
baráttu sem á allan hátt sýnir
ljóslega eðli hljóðfæranna, skyld-
leika þeirra innbyrðis og and-
stæður. I þessari tónlist er
þijóska hærra metin en sveigjan-
leiki og árekstrarnir eru manni
að skapi. Þijóskan og krafturinn,
sem einkenndi leik tríósins, setti
einnig sinn svip á túlkun þess á
Tríói Sjostakovítsj í e-moll og
Tríói Schuberts í Es-dúr. í tríói
Sjostakovítsj kom þetta fram
sem fastmótaðir ritmar, kraftur
þijóskunnar og dirfska, sem mér
þótti hæfa þessu verki frábær-
lega vel. Hið undirliggjandi stolt,
sem ávallt er til staðar í tónlist
Sjostakovítsj, kom upp á yfír-
borðið í þessari tónlist sem
þijóska og viljakraftur.“
Tríóið hefur þegar fengið fjöl-
mörg tilboð um fleiri tónleika á
næsta ári.
(Fréttatilkynning)
Norræni sumarháskólinn:
*
Aðalfundur Islands deildar
Aðalfundur íslandsdeildar
Norræna sumarskólans verður
haldinn í Norræna húsinu
fimmtudaginn 11. júní kl. 17
Fundurinn er opinn öllum sem
áhuga hafa á starfinu. Fyrir
dyrum stendur hið árlega sum-
armót skólans sem að þessu
sinni er haldið í lok júlí í Sví-
þjóð.
Norræni sumarskólinn hefur
starfað um áratugaskeið. Hann er
ekki aðeins í gangi yfír sumarið
og er því síður háskóli í venjuleg-
um skilningi. Hann samanstendur
af hópum sem starfa í hveiju landi
um nokkurra ára skeið óháð hinum
opinberu háskólum og í honum eru
engin próf.
Að þremur árum liðnum eru
hópamir endurnýjaðir og aðrir
stofnaðir í staðinn. Hópar frá öll-
um Norðurlöndunum hittast síðan
um eina helgi yfír veturinn í ein-
hveiju landanna og á sumrin koma
þeir allir saman um viku tíma á
svokölluðu sumarmóti. Sumarmót-
ið í ár verður haldið í S-Svíþjóð
síðustu vikuna í júlí. Veittir eru
styrkir til ferðanna svo að kostnað-
ur þátttakenda er í lágmarki.
A íslandi eru nokkrir hópar
starfandi innan Norræna Sumar-
háskólans. Þeir fjalla um Evrópu-
mál, fiskveiðisamfélög, bókmennt-
ir á grundvelli sálgreiningar og
táknfræði, og femínísma. Að auki
eru nokkrir hópar starfandi á hin-
um Norðurlöndunum sem eftir er
að stofna hér á landi. Norræni
sumarháskólinn stendur einnig
fyrir útgáfu fræðirita og hver hóp-
ur hefur sitt fréttabréf. íslending-
ar eru styrktir til að þýða greinar
sínar í bækur og rit á vegum hans.
í fréttatilkynningu frá íslands-
deild Norræns sumarháskólans
segir að hann sé kjörinn vettvang-
ur fyrir þá sem vilji halda menntun
sinni við að loknu háskólanámi en
ekki síður fyrir lengra komna stúd-
enta sem áhuga hafa á að fá ann-
að sjónarhorn á fræði sín.
Frekari upplýsingar veitir Eirík-
ur Guðjónsson, formður íslands-
deildar NSU, í síma 28800 (v) og
75983 (h).
I'WTUH IM/.Zl IMlllí l.l IKIW
l'óOu |)ér |iiz/Cii l'i.'i l’i//n llm l\iii'
Irikiiiil í sjóiix :n'|)iiiii. \ ið scntlinil
fríii lii'ini cðii |iii kcninr <)ir horðiir
>: 1 ’ I&,
&&&
41ut,
%
<x
di
FJOLSK YLDULKIKUR
l’i/za llm gclur '2Ö0 lilla l'olliolla í (ilcfni lj\ro|)iikc|)|)iiimi;ir i knallspyriHi
Kymilii |)cr l(ölskyl<liilillx«)ið og (aklu J>á11 i lclliini l'jolsk\ l<111!<■ iU i lciðiimi
Þn gclur |)ii iinniO l’i/.za llm liolla.
PfcCGí
-Hut.
Hótel Esju, sími 68 0 809 • Mjódd, sími 682208