Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
ÞJÓÐMÁL
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
HLUTAFÉLÖG UM HAFNIR
Akraneshöfn. í athugasemdum með frumvarpinu er sett fram hugmynd um hafnasamlag Akra-
ness, Grundartanga og Borgarness.
Hafnasamlög um
rekstur hafna?
„Eigendur hafna samkvæmt
lögum þessum eru sveitarfélög
eða hlutafélög. Hafnir geta verið
hluthafar í fyrirtækjum sem
tengjast starfsemi þeirra. Ráð-
herra skal ákveða með reglugerð
að höfðu samráði við eigendur
viðkomandi hafna að mynduð
verði hafnasamlög um rekstur
þeirra þar sem landfræðileg skil-
yrði eru fyrir hendi. Innan hvers
hafnasamlags skal rekinn einn
hafnarsjóður. Með reglugerð um
hvert hafnasamlag skal fylgja
áætlun um hafnarframkvæmdir
innan þess, sem verður hluti af
hafnaáætlun ..."
Svo segir í 8. grein frumvarps
til hafnalaga, sem lagt var fram
á Alþingi í vor.
I - Nýjungar í frumvarpinu
í frumvarpi til hafnalaga, sem
lagt hefur verið fram til kynning-
ar, eru fjórar höfuðbreytingar frá
gildandi lögum:
* 1) Frumvarpið gerir ráð fyrir
að hlutafélög geti verið eigendur
hafna, auk sveitarfélaga. Þetta
er athyglisverð nýjung. Jafnframt
er heimilað að hafnir geti orðið
hluthafar í fyrirtækjum sem
tengjast starfsemi þeirra. Það er
ekki síður eftirtektarvert. Sam-
kvæmt þessari grein gætu hafnir
til dæmis orðið hluthafar í fisk-
mörkuðum.
* 2) Samkvæmt frumvarpinu
má myndahafnasamlög um rekst-
ur tveggja eða fleiri hafna, þar
sem landfræðileg skilyrði eru fyr-
ir hendi. í fylgiskjali er sett fram
hugmynd um hafnasamlag
Grindavíkur, Hafna, Sandgerðis,
Garðs, Keflavíkur, Njarðvíkur,
Voga og Keilisness, svo dæmi sé
nefnt. Þá er sett fram hugmynd
að hafnasamlagi Þingeyrar, Flat-
eyrar, Suðureyrar, Bolungarvík-
ur, Ísaíjarðar og Súðavíkur, þegar
gerð jarðganga á Vestfjörðum er
lokið. Fleiri hugmyndir af svipuð-
um toga eru í athugasemdum með
frumvarpinu.
* 3) Hafnargarðar (öldubijót-
ar), dýpkanir hafna, innsiglingar,
siglingamerki og sérbúnaður fyrir
ekjuskip og feijur færist úr 75%
kostnaðarþátttöku ríkissjóðs í
90% ríkisframlag. Ríkissjóður
greiðir allt að 100% kostnaðar við
frumrannsóknir, samkvæmt nán-
ari ákvæðum í reglugerð. Allar
aðrar styrkhæfar framkvæmdir
(s.s. bryggjur, viðlegukantar, upp-
fyllingar, umferðaræðar á hafnar-
svæði, upptökumannvirki fyrir
skip, niðurrif hafnarmannvirkja
o.fl.) hljóta 60% ríkisstyrk. 40%
styrkflokkur er felldur niður.
* 4) 25% álag á vörugjald skal
renna í Hafnarbótasjóð. Alagið
skal renna til lán- og styrkveitinga
úr sjóðnum en ekki sem framlag
ríkisins til almennra hafnarfram-
kvæmda.
II - Hafnaráð og
hafnamálastofnun
Samgönguráðherra skipar
hafnaráð sér til ráðuneytis um
hafnamál. í því skulu eiga sæti
fimm fulltrúar: Tveir tilnefndir af
Hafnasambandi sveitarfélaga til
fjögurra ára í senn, þrír skipaðir
af ráðherra (og skal einn þeirra
vera starfsmaður samgönguráðu-
neytis og jafnframt formaður
ráðsins) til fjögurra ára í senn.
Tvo fulltrúa samgönguráðherra
skal skipa að nýju við ráðherra-
skipti.
Hafnamálastofnun ríkisins fer,
samkvæmt frumvarpinu, með
framkvæmd hafnamála á þann
hátt sem lög kveða á um hveiju
sinni. Hafnaráð skal fjalla um
skipulags-, rekstrar-, starfs-
manna- og fjárfestingarmál Hafn-
amálastofnunar ríkisins og fylgj-
ast almennt með starfsemi henn-
ar. Það skal fjalla um fram-
kvæmdaáætlanir til skemmri og
lengri tíma, svo og fjármál hafn-
anna, þ á m. gjaldskrárbreyting-
ar.
Hafnamálastjóri skal skipaður
af ráðherra til fimm ára í senn,
að fenginni umsögn hafnaráðs.
Hann veitir Hafnamálastofnun
forstöðu, jafnframt því sem hann
gegnir starfí vitamálastjóra. Hann
ræður starfsfólk stofnunarinnar.
Frumvarpið er í sex köflum og
42 greinum og spannar yfirstjórn
hafnamála, stjóm hafna og rekst-
ur, framkvæmdir í höfnum og
fjármögnun þeirra, framkvæmda-
áætlanir, hafnabótasjóð og ýmis
ákvæði.
í kaflanum um stjóm hafna og
rekstur eru tilgreind gjöld til
hafna (skipagjöld miðuð við stærð
skipa og dvalartíma, hafnsögu-
gjöld, vigtargjöld, gjöld af feijum,
vörugjöld, þjónustugjöld o.fl.).
Tekjum og eignum hafnarsjóðs
má einungis veija í þágu viðkom-
andi hafnar. Hafnarsjóðir skulu
undanþegnir hvers konar sköttum
til sveitarsjóða.
Samgönguráðuneytið setur að
fengnum tillögum eigenda hafna
sérstaka reglugerð fyrir hveija
höfn (um stærð og takmörkun
hafnarsvæðis, starfs- og valdssvið
hafnarstjórnar, starfsemi og um-
ferð á hafnarsvæði, öryggi við
flutninga, varnir gegn mengun,
hafnsögu og viðurlög við brotum).
Frumvarpið var lagt fram á
síðasta þingi, sem fyrr segir, en
fékk ekki fullnaðarafgreiðslu.
f
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR,
andaöist mánudaginn 8. júnf.
Sveinn Eyþórsson, Hafdis Eggertsdóttir,
Birgir Eyþórsson, Birna Stefánsdóttir,
Gunnar Eyþórsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
f
Elskuieg eiginkona mín, móðir,- dóttir og tengdadóttir,
VIKTORÍA ALFREÐSDÓTTIR ÁSMUNDSSON,
Ijósmóðir og hjúkrunarfræðingur,
Ljósalandi 10,
andaðist á heimili sínu mánudaginn 8. júní.
Axel K. Bryde og börn,
Aðalheiður Ása Georgsdóttir,
Karen Bryde.
f
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
GUNNVÖR BRAGA SIGURÐARDÓTTIR,
Vogatungu 61,
sem lést mánudaginn 1. júní, verður jarðsungín frá Kópavogs-
kirkju fimmtudaginn 11. júní kl. 10.30.
Björn Einarsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
f
Útför
MAGNÚSAR EINARSSONAR
útibússtjóra Landsbankans,
Egilsstöðum,
fer fram frá Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 11. júní kl. 14.00.
Guðlaug Guttormsdóttir,
Maria Éir Magnúsdóttir, Ellert Sigurður Magnússon,
Guðrfður Arney Magnúsdóttir,
Droplaug Nanna Magnúsdóttir, Ragnar Örn Egilsson,
Guðrföur Ólafsdóttir.
Svandís Ingólfs-
dóttir — Minning
Hún rifjaði stundum upp þegar
hún sá frétt um að stofnun Félags
einstæðra foreldra stæði fyrir dyr-
um. „Þá hugsaði ég, þangað skai
ég fara. Þó að fyrr hefði verið.“
Sjálf hafði hún baslað ein með ung
börn og vissi að liðs var þörf. Hún
var alla tíð góður og ötull félagi
einkum við fjáröflunarvinnu sem
mörgum þykir hvimleið og forðast.
Þegar Félag einstæðra foreldra lét
pijóna trefla í litum íþróttafélaga
og selja á knattspymuleikjum varð
hún dyggasta sölukonan og sú að-
sópsmesta. Um hverja helgi í tvö
eða þijú sumur fór hún á Akranes
að selja enda voru Skagamenn
hennar menn. Hún seldi merki,
slaufur, jólakort og hún var ókrýnd
Flóadrottning okkar í mörg ár og
lét sig varla nokkurn tíma vanta
við flóamarkaðsvinnu. Hún átti sína
slá og var í essinu sínu þegar mest
var að gera. Einhvem tíma höfðum
t
Ástkær eiginkona mín og móðir,
MARGRÉT ÁSDÍS
ÓSKARSDÓTTIR,
lést í Borgarspítalanum að morgni
9. júní.
Gunnsteinn Sigurðsson,
Sigriður Gunnsteinsdóttir.
t
EÍnginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BALDUR TEITSSON
deildarstjóri hjá Pósti og si'ma,
Hófgerði 18,
Kópavogi,
sem lést á heimili sínu að kvöldi föstu-
dagsins 5. júní 1992, verður jarðsung-
inn frá Kópavogskirkju föstudaginn
12. júní kl. 15.00.
Sigurveig Þórarinsdóttir,
Þórarinn Baldursson, Marfa Loftsdóttir
Sigurður Baldursson, Jóhanna Ingvarsdóttir,
Gunnar Baldursso Guðrún Reynisdóttir
o jrnabörn.
við frétt að hún væri lasin og af
stakri tillitssemi var ekki haft sam-
band við hana til að vinna. En
klukkutíma áður en opnað var
geystist hún inn, bálill af því hún
héít hún hefði gleymst. Smákrank-
leiki skyldi ekki aftra henni frá því
að vera á sínum stað. Vinnan var
henni ekki kvöð, heldur hluti af
hugsjón að vinna félaginu gagn og
vera samvistum við góða félaga.
Hún gat verið hvatvís í orðum
og yfírlýsingum ef henni fannst
menn ekki standa sig. Sjálf hafði
hún unnið eins og púlshestur alla
tíð og taldi ekki eftir sér vinnu.
Innan FEF eignaðist hún vini og
félaga sem tóku tryggð við hana
og sakna hennar nú. Hún tók ást-
fóstri við börn margra félaganna
sem komu með foreldrum sínum
að vinna fyrir FEF og fylgdist með
þeim af ákefð og einlægni.
Við vorum oft saman í trefla-
bransanum, seldum merki og slauf-
ur við kjörstaði og alltaf seldi hún
meira en ég. Saman vorum við ár
eftir ár á flóamörkuðum. Við töluð-
um margt en samt hugsa ég um
það nú þegar leiðir hafa skilist um
sinn að kannski vissi ég minna um
hana en ég hélt. Hún gaf mér að
vísu hiutdeild í hlýju hjarta. En hún
átti sín leyndarmál sem hún sagði
engum.
Hún bar djúpa umhyggju fyrir
sínu fólki og óskaði einskis frekar
en þvi famaðist vel í lífinu. Það var
Félagi einstæðra foreldra ávinning-
ur að hún gekk til liðs við það, og
sjálfri mér gleði að kynnast henni.
Ég sendi öllum þeim sem þótti
vænt um hana samúðarkveðjur.
Jóhanna Kristjónsdóttir
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!