Morgunblaðið - 12.06.1992, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
Feijumálm tekin upp
á öðrum grundvelli
- segir samgönguráðherra
UNNIÐ er að skoðun á málefnum ferja og flóabáta í samgönguráðu-
neytinu og hvernig að þessum máium verður staðið í framtíðinni
að sögn Halldórs Blöndals, samgönguráðherra. Hann sagðist hafa
lagt á það áherslu að feq'umálin væru tekin upp á öðrum grundvelli
en áður og þeim gerð skil. I Morgunblaðinu í gær kom fram að
skuldir rekstraraðila ferja og flóabáta við ríkið eru um tveir milljarð-
ar króna og áætlað er að þeir þurfi 1,7 miHjarða í rekstrar- og stofn-
styrki á fimm ára tímabili. Karl Steinar Guðnason formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis sagði að taka yrði feijumálin föstum tökum.
Halldór Blöndal sagði að tölur þær
sem fram hefðu komið í blaðinu um
kostnað við ferjur og flóabáta væru
ekki réttar í öllum atriðum. Til dæm-
is væri ekki búið að ganga frá kaup-
um á Sæfara og ákveða hvernig rík-
issjóður stæði að skuldbindingum
sínum í því sambandi.
„Ég hef ekki heyrt um það að það
eigi að hefja nýja skipaútgerð með
því að ríkið leysi til sín feijuskipin,"
Bílvelta á
Þingvöllum
Selfossi.
TVEIR voru fluttir á slysadeild
í Reykjavík eftir bílveltu skammt
frá Valhöll á Þingvöllum. Þrír
voru í bílnum þegar hann valt.
Að sögn lögreglu leikur grunur
á að um ölvunarakstur hafi verið
að ræða. Þeir sem fluttir voru á
slysadeild fengu að fara heim að
lokinni rannsókn.
Sig. Jóns.
sagði Halldór. Hann kvað það mis-
skilning að í vegalögum væri gert
ráð fyrir að reka skip á borð við
Heijólf, en það gilti hins vegar um
feijur yfír ár og þvíumlíkt, sem ekki
þekktist lengur og engin þörf væri
fyrir.
Halldór kvað ekki liggja fyrir
glögga mynd af því hvaða möguleik-
ar fælust í nýja Heijólfi. Hann sagði
einnig, að ákvörðun um hvort ráðist
yrði í gangagerð undir Hvalfjörð
hefði afgerandi áhrif á hvaða stefna
verði tekin varðandi Akraborgina.
Hann kvað ástæðu til að ætla
að rekstrarstyrkinn fyrir Fagranes
mætti minnka um helming þegar
komin væri viðunandi hafnaraðstaða
í Djúpinu, og nýja skipið kæmist í
gagnið.
„Það er ljóst að það verður að
taka feijumálin föstum tökum,“
sagði Karl Steinar Guðnason. Hann
sagði að kanna bæri hvort ástæða
væri til að halda úti þessum rekstri,
því hjá ríkissjóði væri ekkert fé að
fínna til að greiða þá styrki sem
menn ætluðust tfl.
Aðspurður sagði Karl Steinar að
sér litist vel á að rekstur feijanna
væri boðinn út.
Steinar Berg Björnsson ásamt félögum sínum að störfum fyrir
Friðargæslusveitirnar á Hermon-fjalli í Gólanhæðum.
Islendingnr yfir
friðargæsluliði
SÞ í Líbanon
STEINAR Berg Björnsson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri
friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna á landamærum Líbanons og
ísraels, UNIFIL, og hefur hann þegar tekið við því starfi. Steinar
var fyrir framkvæmdastjóri friðargæsluliðsins í Gólanhæðum með
aðsetri í Damaskus og verður það jafnframt áfram þar til annað
verður ákveðið. í Líbanon hafa Sameinuðu þjóðirnar 5.900 manna
herlið og 500 óbreytta starfsmenn, enda hefur verið ófriðlegt þar
fram á þennan dag, allt frá því UNIFIL var stofnað og SÞ tóku
við friðargæslu þar 1978.
Steinar Berg og kona hans,
María Árelíusdóttir, munu búa
áfram í Damaskus út júlímánuð.
Síðan setjast þau að í litlu þorpi,
Nakuvia, í ísrael, 5 km sunnan við
líbönsku landamærin. Steinar hefur
að undanfömu unnið að því að
endurskipuleggja og minnka
rekstrarkostnað við friðargæslulið-
ið í Gólanhæðum um 6 milljónir
dollara á ári án þess þó að fækkað
sé í liðinu, og vill fyigja því eftir
til loka. Friðargæsla UNIFIL í Líb-
anon kostar árlega um 140 millj-
ónir doliara.
Steinar er viðskiptafræðingur og
hefur starfað hjá Sameinuðu þjóð-
unum samfellt frá 1986, en á ís-
landi vann hann áður við ýmis störf
frá 1973, m.a. hjá Rafmagnsveit-
um Reykjavíkur og sem fram-
kvæmdastjóri Pharmacos og Lýsis
hf. Eftir að hann sneri aftur tii SÞ
var hann fyrst við störf í aðalstöðv-
unum í New York en 1990 var
hann sendur til Bagdad sem fram-
kvæmdastjóri friðargæslunnar á
landamærum írans og íraks og var
þar fram að Persaflóastríðinu.
Fljótlega þar á eftir var hann skip-
aður framkvæmdastjóri liðsins í
Gólanhæðum.
Á ýmsu hefur gengið síðan ísra-
elsmenn drógu sig út úr Líbanon
1978 og friðargæsluliðið tók sér
stöðu í suðurhluta iandsins. Þessi
staður hefur hingað til verið talinn
einn sá erfiðasti sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa friðargæslu á milli
stríðandi aðila.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Nýja Markarfyótsbrúin er nú opin fyrir umferð. Á inn-
felldu myndinni eru starfsmenn Vegagerðarinnar við
mælingavinnu vegna frágangs vegarins að Markarfljóts-
brú.
Nýja Markarflj ót sbrúin opnuð
Selfossi.
NÝJA brúin yfir Markarfijót og vegaframkvæmdimar verða 20%
ódýrari en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir, eða 215 milljónir.
Kostnaðaráætlunin gerði ráð fyrir 258 miiyónum. Umferð var
hleypt á brúna í fyrrakvöld.
Lokið er við að setja fyrra lag
klæðningarinnar á veginn en síð-
ara lagið verður sett 1. júlí og þá
er gert ráð fyrir að frágangi á
köntum verði lokið. Nýi vegurinn
að brúnni er 10,1 kflómetri að
lengd og styttir hringveginn um
5,2 kflómetra. Gera má ráð fyrir
að um Markarfljótsbrú fari í
kringum 800 bílar á dag yfir sum-
artímann.
í tengslum við framkvæmdim-
ar verður lagður vegur að Selja-
landsfossi og útbúinn áningar-
staður þar fyrir ferðamenn. Við
brúargerðina voru gerðir vamar-
garðar þannig að frá gömlu
brúnni og að þeirri nýju er óslitið
vamargarðakerfi en það kemur í
veg fyrir að fljótið flakki um eyr-
amar.
Sig. Jóns.
Afiamiðlun um útflutning á ferskum þorski og ýsu:
Utflutmngur á viku
bundinn við 600 tonn
STJÓRN Aflamiðlunar ákvað I gær að takmarka heimildir til út-
flutnings á óunnum þorski og ýsu við 600 tonn á viku næstu tvær
vikurnar. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, framkvæmdasljóra
Aflamiðlunar, hefur útflutningur á ísuðum fiski á markaði erlend-
is á undanförnum árum verið einna mestur í fýrstu vikunum að
loknum sjómannadegi og á síðasta ári hafi verið flutt út um 1.000
tonn vikulega á þessum árstíma. Vilhjálmur sagði að ákvörðun
stjórnarinnar nú hefði verið tekin með tilliti til bréfs frá utanríkis-
ráðherra þar sem farið eí fram á að dregið verði úr útflutningi
og með tilliti til annarra aðstæðna.
Utanríkisráðherra sendi stjórn
Aflamiðlunar bréf í síðasta mánuði
þar sem farið var fram á að leyfí
til útflutnings á óunnum fiski,
einkum þorski og ýsu, til sölu á
erlendum mörkuðum, verði tak-
mörkuð eins og kostur er og að
ráðuneytið vonist til að þurfa ekki
að grípa til ráðstafana í þessu
skyni. Stjórn Aflamiðlunar ákvað
í síðustu viku að takmarka út-
flutningsheimildir á þorski og ýsu
við 600 tonn í þessari viku og í
gær var síðan ákveðið að binda
Þrotabú Islenska stálfélagsins;
Lokauppboði frestað vegua
áfrýjunar til Hæstaréttar
SÆNSKI bankinn Skandinaviska Endskilda Banken ákvað í gær að
áfrýja öðru uppboði á eignum þrotabús íslenska stálfélagsins til
Hæstaréttar en það hefur í för með sér að þriðja og síðasta upp-
boði verkmsiðjunnar sem fara átti fram í dag er frestað. Mun málið
verða tekið fyrir í Hæstarétti í október. Að sögn Helga Jóhannesson-
ar bústjóra standa nú yfir viðræður milli fulltrúa bankanna sem
eiga veð í eignum búsins og bandaríska fyrirtækisins St. Louis
Colddrawn um sölu verksmiðjunnar. Hafa veðhafar verið boðaðir
til fundar í Reykjavík á mánudag.
Helgi sagði að þar sem um ioka-
uppboð hefði verið að ræða hefði
ekki verið heimilt samkvæmt lögum
að fresta því en vonir stæðu til að
takist að selja verksmiðjuna áður
en áfrýjunarstefnan verður tekin
fyrir í Hæstarétti.
Gestur Jónsson hæstaréttarlög-
"maður”áfryja31~uppboðinu í gær
fyrir hönd sænska bankans. í áfrýj-
unarstefnunni segir að áfrýjandi
telji að uppboðsauglýsingu hafi ver-
ið ábótavant og eru gerðar þær
dómkröfur að uppboðið verði
ómerkt og að lagt verði fyrir upp-
boðshaldara að auglýsa nýtt uppboð
á eigninni, þar sem m.a. komi fram
til hvaða fylgihluta með verksmiðj-
unni uppboðið nái.
heimildirnar við sama magn næstu
tvær vikur.
Vilhjálmur sagði að ástæða þess
að útflutningur hefði að öllu jöfnu
aukist í fyrstu vikunum í kjölfar
sjómannadags hefði verið að flot-
inn hefði verið inni á sjómannadag-
inn og stór hluti hans svo komið
inn til löndunar í annarri viku þar
í frá, sem hefði haft í för með sér
mikla verðlækkun á mörkuðum
innanlands.
Brotist inn í
4 bíla í Þing-
holtunum
LÖGREGLAN í Reykjavík
segir að innbrotafaraldur í
bíla sé nú í borginni. í fyrri-
nótt var brotist inn í fjóra
bíla í Þingholtunum og verð-
mætum eins og geislaspilur-
um, radarvörum og útvarps-
tækjum stolið úr þeim.
Grunur leikur á um að hér
sé um skipulagða starfsemi að
ræða. Nokkrir innbrotsþjóf-
anna hafa náðst, að sögn lög-
reglunnar, en allt kemur fyrir
ekki — innbrotin halda áfram.
Lögreglan dregur þá ályktun
að um fleiri en einn hóp inn-
brotsþjófa sé að ræða.
Að sögn lögreglúnnar hefur
ekki verið brotist inn í bíla í
einu hverfi öðrum fremur. Yf-
irleitt bijóta þjófarnir rúður til
að komast inn í bílana og valdi
með því enn meiri spjöllum.