Morgunblaðið - 12.06.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.06.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992 9 ÞREFALDUR 1. VINNINGUR Biðröð í banka. Ríkisbankar verði hluta^ félög! Leiðari Alþýðublaðsins í gær fjallar um ríkisbanka, stjórnmálamenn og fyrir- greiðslupólitík í tilefni af fréttum um Bún- aðarbankann á Akureyri. „Dæmið frá Akureyri sýnir og sannar að löngu er orðið tímabært að breyta rekstrarformi ríkisbankanna í hlutafélög eins og frum- varp viðskiptaráðherra segirtil um,“ seg- ir í leiðaranum. Þingmeim og ríkisbankar Alþýðublaðið segir í leiðara í gær: „Nýr bankastjóri Bún- aðarbankans á Akureyri hefur hætt allri fyrir- greiðslu til nokkurra fyr- irta'kja sem að mati hans eru komin yfir hættu- mörkin og sum vel það. Bankastjórinn stöðvaði alla fyrirgreiðslu til byggingafyrirtækisins Fjölninsmanna á Akur- eyri fyrir skömmu og varð það til þess að fyrir- tækið gat ekki greitt laun og lýsti sig _gjaldþrota í kjölfarið. Ymsir hafa orðið til þess að gagn- rýna hinn nýja banka- stjóra og haldinn hefur verið fundur forystu- manna nokkurra fyrir- tækja á Akureyri þar sem meðal annars var rætt um að hætta öllum viðskiptum við útibú Búnaðarbankans á Akur- eyri. Samkvæmt fréttum komu ákvarðanir banka- stjórans um að setja fyr- irtæki á svartan lista, bankastjóminni í opna skjöldu. Þá hafa þing- menn allra flokka í kjör- dæminu haft samband við bankastjómina vegna þessa máls. Af fréttum af málinu má þvi ráða að banka- stjórnin, alþingismenn og ýmis fyrirtæki á Akur- eyri hafi ekki mestu áhyggjumar af þeim við- skiptaaðilum Búnaðar- bankans á Akureyri, sem eru í miklum vanskilum og ógna hagsmunum bankans, heldur virðast ofangreindir aðilar hafa þyngstu áhyggjumar af ákvörðunum hins nýja bankastjóra að loka á vanskilamenn bankans. Heldur virðist þessi af- staða öfugsnúin. Það væri nær að ætla að stjómarmenn lánastofn- unarinnar, svo og alþing- ismenn, þar sem bankinn er rikisbanki og þar með eign þjóðarinnar allrar, stæðu heilir að baki hin- um skörulega banka- stjóra sem gerir þá skyldu sína eina að gæta hagsmuna síns banka. Það er ennfremur undar- leg afstaða fyrirtækja á Akureyri sem eiga við- skipti við Búnaðarbank- ann, en virðast ekki vera í vanskilum, að taka und- ir hinn endalausa fyrir- greiðslusöng. Eina hald- bæra skýringin hlýtur að vera sú að fyrirtækin vilja að bankinn reki óhóflega fyrirgreiðslu- stefnu sem gæti komið sér vel i framtíðinni, ef rekstur þeirra snerist einn daginn á verri veg.“ Akureyri er ágætt dæmi um fyrirgreiðslupólitík rikisbankanna. Pólitískt skipað bankaráð með hagsmunapólitikusa kjördæmisins að baki hvetur til fyrirgreiðslu og útlána sem oft em óliagstæð og eiga að fjár- magna óarðbærar fjár- festingar. Viðskiptaleg- um hagsmunum er blandað saman við pólit- íska hagsmuni. Það er afar erfitt að reka slikan banka á viðskiptalegum grunni. Yfirstjórnir rikis- banka hvetja oft til ákvarðana og fram- kvæmda bankíistjóra sem beinlínis em gegn hagsmunum eigenda bankans, sem í þessu til- felli er þjóðin öll. Auðvitað er það sjálf- sögð krafa gamals við- skiptavinar viðkomandi banka að bankinn standi með sér þegar illa árar og Iijálpi fyrirtækinu út úr kröggum eða tíma- bundnum rekstrarerfið- leikum. Það er hins vegar alltaf skynsemismörk fyrir því hve langt banki getur gengið í fyrir- greiðslunni: Hvenær ber að stöðva leikinn áður en fyrirtæki og lánastofnun em komin of langt út í fenið? Dæmið frá Akureyri er lítið miðað við svo- nefnda gjörgæzludeild Landsbankans í höfuð- borginni. Hveijar skyldu tí/ad mynda vera skuldir SÍS í bankanum í dag? Hefðu Sambandið og önnur fyrirtæki ekki ver- ið betur stödd i dag ef bankinn hefði veitt þeim eðlilegt aðhald frá upp- Iiafi? Ef bankastjómin og bankastjóramir að við- bættum stjómmálamönn- unum hefðu gripið til ámóta aðgerða og nýr bankastjóri Búnaðar- bankans á Akureyri ger- ir nú. Dæmið á Akureyri sýnir og sannar að löngu er tímabært að breyta rekstrarformi ríkisbank- anna í hlutafélög eins og fmmvarp viðskiptaráð- herra segir til um, sem bíður nú afgreiðslu haustþings." Það er margt til í þeim sjónarmiðum, sem Al- þýðublaðið setur fram. Og víst er um það, að stjóramálamcnn hafa oft haft áhrif í þá átt að bankar láni til vonlausra fyrirtælya. Hinu má ekki gleyma, að lánastofnun- um er oft vandi á hönd- um, ekki sizt ríkisbönk- unum, þegar um er að ræða, hvort atvinnulif í heilum byggðarlögum stöðvast. Það er hægt að skamma banka fyrir að lána of mikið en þá er rétt að minnast þess, að þeir em líka gagnrýndir fyrir að lána of litið á stundum. Og forsenda fyrir einkavæðingu ríkis- bankanna er að sjálf- sögðu sú, eins og Morg- unblaðið hefur marg- sinnis bent á, að sett verði löggjöf, sem tak- markar eignaraðild ein- stakra aðila að bönkum. Einkavæðing viðskipta- banka Síðan segir Alþýðu- blaðið: „Mál útibússtjórans á SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI ! I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.