Morgunblaðið - 12.06.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
G.Á. Pétursson hf
tlátluvéla
maiMuíinn
Nútíöinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
Opið laugardaga
frákl. 10-16.
Sunnudaga í júní
frákl. 10-14.
!£ 311
Raögrelöslur
Sæmundur Runólfsson
landið í fóstur og bæta umgengni
um landið okkar meira, en verið
hefur til þessa.
Höfundur er framkvæmdasljóri
UMFÍ.
Lokaorð um stöðu
fríkirkjusafnaða
eftir Pétur Pétursson
13. maí sl. birti Morgunblaðið
eftir mig grein sem ég skrifaði í
tilefni af grein formanns Frí-
kirkjusafnaðarins í Reykjavík,
Einars Kr. Jónssonar, og fjallaði
grein mín aðallega um sögulegar
forsendur hugtaksins fríkirkja hér
á landi. Ég ætla ekki að rekja
efnisatriði greinar minnar aftur
en ég spurði þar m.a. hvort ekki
væri tímabært að lúthersku frí-
kirjusöfnuðirnir ættu aðild að
kirkjuþingi sem fjallar um innri
málefni evangelísku lúthersku
safnaðanna í landinu og öðrum
lýðræðislegum stofnunum þjóð-
kirkjunnar sem komið hafa til
sögunnar eftir að fríkirkjusöfnuð-
imir voru stofnaðir. Þessi grein
mín varð svo fríkirkjuprestinum í
Hafnafirði, séra Einar Eyjólfs-
syni, ástæða til að birta grein í
sama blaði þar sem komið er inn
á fleiri atriði en grein mín gaf
tilefni til en ekki minnst á þessi
atriði sem voru þó meginatriði
málsins að mínu mati.
Yfirskrift greinar minnar var
„Er fríkirkjan tímaskekkja?“, en
grein Einars Kr. Jónssonar, for-
manns Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík, sem ég var að svara
bar heitið: „Er fríkirkjan sértrúar-
söfnuður?" Báðar þessar fyrir-
sagnir eru náttúrlega villandi ef
þær eru slitnar úr samhengi við
efni greinanna.
Eftir á að hyggja þá sé ég að
heiti greinar minnar var mjög
óheppilegt þó það væri sláandi.
Sem fyrrverandi fréttaritari veit
ég hversu mikilvægt er að ná at-
hygli lesenda með heiti greina og
millifyrirsögnum. í þessu tilfelli
skaut ég yfir markið og ég bið
meðlimi fríkirkjusafnaðanna hér
með afsökunar á þessari fyrir-
sögn. Hún er reyndar ekki í sam-
ræmi við andann í greininni og
lýsir alls ekki viðhorfi mínu til
þessara safnaða og forsvars-
manna þeirra. Meðal þeirra á ég
vini og kunningja sem ég veit að
vinna frábært starf.
í grein sinni víkur séra Einar
að aðalatriði málsins og á það
jafnt við um fríkirkjusöfnuði sem
þjóðkirkjusöfnuði, sem er, að það
Pétur Pétursson
er Kristur sjálfur sem vöxtinn
gefur söfnuði sínum og kirkjan
er hið mannlega andsvar við fagn-
aðarerindinu, vakið af heilögum
anda Guðs.
Undir þessi orð tek ég heilshug-
ar og geri þau að lokaorðum mín-
um í þessu máli.
Höfundur er settur prófessor í
félagsvísindadeild Háskóla
íslands.
Vortónleik-
ar RARIK-
kórsins
RARIK-KÓRINN heldur sína ár-
legu vortónleika laugardaginn
13. júní í Stykkishólmskirkju og
hefjast þeir kl. 16. A efnis-
skránni eru íslensk og erlend lög.
Stjórnandi kórsins er Violeta
Smid, tónlistarkennari. Um undirleik
og útsetningu laga annast Pavel
Smid, tónlistarkennari.
RARIK-kórinn mun svo ljúka 12.
starfsári sínu með tónleikum 2. júlí
nk. kl. 18 í íþróttahúsinu Kaplakrika
í tengslum við tónlistarmót Norrænu
alþýðutónlistarsamtakanna.
ODYRA AMERISKA
SLÁTTUVÉLIN
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans! y
Fósturbörn ungmennafélaga,
umhverfisvemd til framtíðar
RUSLASTAMPAR
akta hf.
Sími685005
eftir Sæmund
Runólfsson
Ungmennafélag íslands hefur
unnið að umhverfisvernd allt frá
stofnun samtakanna árið 1907.
Á undanförunum árum hefur
verið efnt til átaka eða verkefna
til þess að bæta umgengni og end-
urheimta gróður í landinu.
í fyrrasumar efndu ungmenna-
félögin til umvherfisverkefnis sem
nefnt var „Fósturbörnin". Ætlunin
er að það standi í þijú ár og hafa
ungmennafélagar út um allt land
unnið ötullega að því. Um er að
ræða hverskonar hreinsun, heft-
ingu foks, gróðursetningu, eða
„Nú á öðru ári „Fóstur-
barnanna“ hvetjum við
ungmennafélaga og
alla landsmenn til þess
að taka landið allt í fóst-
ur og bæta umgengni
um landið okkar.“
annað það sem landinu kemur til
góða.
Laugardagurinn 13. júní hefur
verið valinn til þess að minna ung-
mennafélaga og aðra umhverfis-
verndarsinna á mikilvægi þess að
halda verkinu áfram og nema ekki
staðar.
Fósturbörn ungmennafélag-
anna eru í dag orðin um 250 tals-
ins og verkefnin hafa verið af
margvíslegum toga. Mörg félög
hafa tekið að sér hreinsun með-
fram vegum, í fjörum eða á al-
menningssvæðum. Önnur gróður-
setja plöntur, grisja eða hlúa að
tijágróðri og lagfæra girðingar
umhverfís skógarreiti. Þá hefur
verið sáð í flög og rofabörð í sam-
ráði við Landgræðslu ríkisins sem
hefur stutt myndarlega við verk-
efnið. Fjölmörg félög beina sjónum
sínum að félagssvæði sínu og
planta þar og hreinsa.
Sem betur fer hafa augu fólks
opnast fyrir umhverfis- og gróður-
vernd og það bætast fleiri og fleiri
í þann hóp sem ber virðingu fyrir
umhverfínu. En til þess að menn,
dýr og gróður geti lifað í sátt og
samlyndi í landinu okkar þá verða
allir að hugsa og framkvæma á
einn veg, að vernda landið.
Nú á öðru ári „Fósturbarnanna"
hvetjum við ungmennafélaga og
alla landsmenn til þess að taka
Frábær vinnuhestur. Nú meö aflmeiri
BRIGGS og STRATTON
fjórgengisvél 3,75 hestafla.
kr. 16.737,-
MTD 042
Þrælsterk amerisk sláttuvél meö öryggi í
handfanginu fyrir hnífinn.
- Vildarkjör Visa eða Eurokredit:
- Engin útborgun og jafnar mánaðarlegar
greiðslur
Viðurkennd viðhalds- og varahlutaþjónusta.
- Gerið verð- og gæðasamanburð!
- Rafeindakveikja
- Grassafnari (auka)