Morgunblaðið - 12.06.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
Minning:
Bjöm Hjartarson
bankaútibúsijóri
Elskulegur bróðir og besti vinur
er látinn, aðeins 64 ára. Bjössi bróð-
ir var mér einstaklega kær alla tíð
og samband okkar og fjölskyldu okk-
ar mjög náið.
Æskuárin vestur á Bræðraborg-
arstíg eru mér sérstaklega minnis-
stæð. Bjössi var elstur okkar 5 systk-
ina og var því ávallt í öndvegi. Okk-
ur þeim yngri fannst oft erfitt að
þurfa að hlýða stóra bróður, en hann
hafði alltaf gott lag á okkur.
Snemma fór Bjössi að hjálpa
pabba í versluninni á Bræðraborgar-
stíg 1, eins og við gerðum reyndar öll.
Ungur fór Bjössi til sumardvalar
að Svignaskarði í Borgarhreppi, sem
þá var stórbýli og gistiheimili. Þar
var hann í fjögur sumur og minntist
ávallt dvalar sinnar þar með mikilli
ánægju. Þar hitti hann í fyrsta sinn
lífsförunaut sinn, Sigríði Ármann,
en Lilla og Bjössi hefðu átt 40 ára
brúðkaupsafmæli þann 5. júní sl.
Við Skarðslæk í landi Svigna-
skarðs reistu þau sér sumarhús árið
1966 og þar hafa þau dvalið sér til
hressingar og skemmtunar öll þessi
ár. Við og Laulau heitin dvöldum þar
oft með bömin okkar og var þá oft
glatt á hjalla og allir nutu dvalarinn-
ar. Landið í kring um sumarbústað-
inn er lifandi minnisvarði Bjössa, en
þar hefur hann gróðursett tijáplönt-
ur í þúsundatali og er þar nú stór
og fallegur skógur.
Bjössi varð stúdent frá MR 1948
og stundaði nám í læknisfræði við
Háskóla íslands um skeið en hvarf
frá því. Á námsárum sínum stundaði
hann ýmsa almenna vinnu, m.a. var
hann í fjögur sumur á síld með
frænda okkar og vini Jóni Björnssyni
skipstjóra og minntist hann oft þess
tíma með ánægju.
Bjössi var gæfumaður. Hann átti
góða konu og fjögur böm. Þau eru
Bjöm Valdimar, fæddur 1966, pn dó
aðeins þriggja mánaða gamall, Sig-
bjöm, bóndi á Lundum, Ásta, ballett-
kennari, og Pálína, bankamær og
ballettkennari. Kona Sigbjörns er
Ragna Sigurðardóttir og eiga þau tvö
böm. Maður Ástu er Guðni B. Guðna-
son tölvufræðingur. Pálína er ógift.
Bjössi var mikill heimilisfaðir og
sóttist ekki eftir frægð eða frama.
Hann hlúði vel að konu sinni og böm-
um. Vinnu sína tók hann með þeirri
ábyrgð og samvisku sem var aðdáun-
arverð. Hann var bóngóður maður -
það veit ég af eigin reynslu, því
mörg góð ráð gaf hann mér. Hann
fylgdist með bömum okkar og þau
áttu alltaf hauk í homi þar sem hann
var.
Nú að leiðarlokum þökkum Við
Olla og fjölskyldan samfylgdina og
vináttuna. Megi góður Guð styrkja
og varðveita aldraða móður sem sér
nú á eftir fmmburði sínum, Lillu sem
sér á eftir traustum eiginmanni og
böm á eftir elskuðum föður.
í Guðs friði.
Grétar Hjartarson.
Það kom eins og reiðarslag þegar
síminn hringdi aðfaranótt fímmtu-
dagsins 4. júní sl. og mér tjáð að
vinur minn Bjöm Hjartarson væri
svo gott sem látinn. Bjössi Hjartar,
eins og hann var ætíð kallaður af
vinum og bekkjarfélögum, kom til
mín á læknastofu mína einum og
hálfum sólarhring fyrir andlátið.
Þau hjónin Sigríður eða Lilla eins
og hún var ávallt nefnd af vinum
sínum voru þá nýkominn úr tveggja
vikna ferð til Portúgal. Hann var
hinn ánægðasti yfír ferðinni og brosti
og hló af og til með sínum sjarmer-
andi og mjög svo smitandi hlátri.
Hann sagði mér þó að hann væri
ekki alveg nógu hress, en þó engin
ákveðin einkenni um sjúkdóm þann
er varð honum að aldurtila.
Einum og hálfum sólarhring síðar
var Bjössi allur. Daginn eftir ætluðu
þau hjónin að halda upp á 40 ára
brúðkaupsafmæli, aðeins þau tvö.
Þegar Bjössi minntist á þau tímamót
sagði hann að veita ætti hjónum, sem
hefðu búið svó lengi saman sérstök
heiðursverðlaun fyrir þá miklu þolin-
mæði, að þola hvort annað svona
lengi og hló dátt.
Við Bjössi ólumst upp í vesturbæn-
um, þrátt fyrir mikla nálægð kynnt-
umst við fyrst að ráði í Menntaskól-
anum í Reykjavík, sérstaklega síð-
ustu tvö til þtjú árin. Félagslíf var
þá mikið og mikil gróska á ýmsum
sviðurri. Djassklúbbur var m.a. starf-
andi og vorum við Bjössi ásamt
mörgum öðrum bekkjarfélögum
miklir djassgeggjarar.
Hljómflutningsútbúnaður, þ.e.a.s
„græjur“ eins og það er kallað í
dag, voru þá óþekkt fyrirbæri.
Bjössi sem bjó í föðurhúsum á
Bræðraborgarstíg 32 var með þeim
fyrstu sem eignaðist plötuspilara fyr-
ir 78 snúninga plötur. Hittumst við
nokkrir félagamir reglulega í her-
berginu hans Bjössa uppi á lofti og
nutum eðaltóna jassins af innlifun.
í þá daga skipust menn á plötum,
eins og gerðist síðar með hasarblöð-
in.
Þann 16. júní 1948 útskrifaðist
fríður hópur nýstúdenta, að mig
minnir 92 talsins frá MR. í útskrift-
arveislunni, sem haldin var á Hótel
Borg, gekk hver júbílanta árangur-
inn á fætur öðrum inn í salinn, fyrst
fímm ára, tíu ára o.s.frv. Þegar röð-
in var komin að þijátíu ára júbílötum
var það skoðun all flestra okkar að
þetta fólk væri komið með annan
fótinn í gröfína.
Á næsta ári hefði Bjössi og við
haldið upp á fjörutíu og fímm ára
stúdentaafmælið.
Við Bjössi ræddum þetta oft seinni
árin, hversu afstæður aldurinn og
sjónarmið hinna ýmsu aldurshópa til
aldursins væri misjafn. Dauðinn er
einnig mjög afstætt hugtak, eitt er
víst að frá fæðingu fylgir dauðinn
okkur sem skuggi, oftast í hæfílegri
fjarlæg, en oft í óhugnanlegri ná-
lægð. Það eina sem við getum geng-
ið að vísu er dauðinn. Það má með
sanni segja að vinur minn Bjössi
fékk sinn óskadauða, en mjög svo
ótímabærann.
Eftir að skemmtilegustu árunum
lauk, þ.e.a.s menntaskólaárunum,
þrátt fyrir heragann, sem því fylgdi
tók við alvara lífsins. Menn urðu að
taka ákvarðanir utri framtíðina með
sitt veganesti upp á vasann. Við
Bjössi byijuðum saman í læknisfræði
og lásum saman fyrstu tvö árin.
Ekki munaði miklu að hann næði
settu marki. Ég er viss um að Bjössi
hefði orðið frábær læknir, alveg eins
og hann varð frábær útibússtjóri
Útvegsbankans og síðar íslands-
bankans á Laugavegi 105. Bjössi
gerði útibú sitt að stórveldi innan
bankans. Galdurinn á bak við þetta
var hans sjarmerandi framkoma,
bæði gagnvart viðskiptavinum og
starfsfólki. Að gefa viðskiptavinum
von í stað blákalds nei var hans
mottó. Það má með sanni segja að
þegar maður missir einn af sínum
bestu vinum verður tilveran mun lit-
lausari og ekki eins ánægjuleg sem
fyrr.
Ég sá Lillu Ármann fyrst 1946,
þá voru við í síldarvinnu á Ingólfs-
fírði. Ég gleymi aldrei þessari fallegu
ungu kærustu Bjössa. Síðar átti ég
eftir að kynnast betur þessari ein-
stöku konu, sem varð að ævarandi
vináttu sem ég mat mikils. Þau voru
gefín saman í hjónaband 5. júní 1952
og var ég viðstaddur þá ánægjulegu
stund.
Foreldrar Bjössa voru þau sæmd-
arhjón Ásta L. Björnsdóttir, sem nú
lifir sitt elsta barn, og Hjörtur Hjart-
arson kaupmaður. Systkini Bjössa
eru Anna, Hjörtur og Grétar og upp-
eldissystirin Anna Þórunn. Lillu og
Bjössa varð fjögurra barna auðið.
Elstur er Sigbjöm, fæddur 1955,
bóndi að Lundum í Stafholtstungum,
búfræðikandídat frá Hvanneyri,
maki er Ragna J. Sigurðardóttir, þau
eiga tvö böm. Ásta fædd 1958, bai-
lettkennari, maki hennar Guðni B.
Guðnason, tölvunarfræðingur. Björn
Valdimar, fæddur 1965, dáinn þrem
mánuðum síðar, yngst er Pálína
bankastarfsmaður og balletnemi,
fædd 1969.
Við ykkur öll vil ég segja þetta,
frá unga aldri hef ég verið hluti af
ykkar fjölskyldu og þið hluti af mínu
lífí. Við hjónin og synir okkar viljum
að lokum segja, megi góður Guð
styrkja ykkur og vernda við fráfall
okkar ástkæra vinar.
Haukur Jónasson.
Síðastliðin fimmtán ár hafa íbú-
arnir í Stallaseli beðið sumarsins með
tilhlökkun. Þá hittast grannarnir
gjarnan úti við, rabba saman og
gefa hver öðrum góð ráð við garð-
yrkjustörfín.
I stað tilhlökkunar drúpum við nú
höfði og syrgjum Björn Hjartarson,
vin okkar og nágranna. Það er erfitt
að trúa því að þessi hlýi og notalegi
granni, sem gaf öðmm svo mikið,
sé nú horfínn.
Hann var höfðingi götunnar sem
bar ávallt hag íbúanna fyrir bijósti
og gaf sér tíma til að ræða við ná-
granna sína, unga sem aldna. Öll
fórum við ríkari og létt í lund af
hans fundi.
Á kveðjustundu minnumst við
Bjöms og þökkum ánægjulegar sam-
verustundir á liðnum árum.
Elsku Sigríður, við vottum þér og
börnum þínum og fjölskyldum þeirra
innilega samúð okkar.
Kveðja frá nágrönnum.
Okkur langar í fáum orðum að
minnast Björns Hjartarsonar sem
okkur þótti báðum mjög vænt um.
Við fráfall hans koma upp í hugann
margar góðar minningar um ógleym-
anlegar samverustundir.
Bjöm var þeim eiginleikum gædd-
ur að geta talað við alla um hvaða
málefni sem var hvenær sem var.
Fyrir nokkrum árum vorum við stödd
í næsta húsi um miðnætti og sáum
þau hjónin inn um eldhúsgluggann
að ljúka við laufabrauðsbakstur. Við
litum í heimsókn og spjölluðum um
heima og geyma og gleymdum því
alveg að við vorum gestkomandi í
næsta húsi.
í þau fáu skipti sem við höfum
náð að hitta Bjöm í árvissum heim-
boðum nú á síðustu árum var alltaf
jafn gaman að heyra frásagnir hans
af sameiginlegum afrekum okkar.
Er þá minnisstæðast þegar Páll Þór
var í pössun og aðstoðaði við að
mála sumarbústaðinn ungur að
árum.
Alltaf var jafn gaman að koma í
sumarbústaðinn og sjá áhuga hans
á uppgræðslu. Hann var stoltur þeg-
ar hann gekk með okkur um landar-
eignina og sýndi okkur þann árangur
sem hafði náðst með gróðursetningu
og aðhlynningu í gegnum árin.
Þegar Hulda kom inn í fjölskyld-
una þurfti hún ekki að vera lengi
feimin í kring um hann. Hann tók
öllum sem jafningjum með þægilegu
viðmóti.
Það er ekki fyrr en við missi ást-
vinar að fólk skilur hvað sorgin er
og tómarúmið sem fylgir slíkum
missi. Því verður að fylla í tómarúm-
ið með öllum góðu og fallegu minn-
ingunum.
Innilegar samúðarkveðjur til allra
ástvina hans.
Hulda Björnsdóttir og
Páll Þór Ármann.
Starfsfélagi okkar og vinur er lát-
inn. Fregnin var reiðarslag. Björn
var nýkominn aftur til starfa eftir
ánægjulega ferð til Portúgal. Eftir
heimkomuna hafði hann á orði <að
sér liði ekki sem best en engan grun-
aði að lífsferli væri að ljúka. Dauðinn
er fjarri huga okkar í dagsins önn
en verður ekki umflúinn.
Björn Hjartarson hóf störf hjá
bankanum fyrir rétt rúmum 37 árum
eftir íjölbreytileg störf til sjós og
lands á námsárunum. Hann var vart
búinn að starfa í tvö ár þegar honum
var falin sú mikla ábyrgð að opna
nýtt útibú að Laugavegi 105 við
Hlemm.
Mikilvægi útibússtjóra ætti að
vera augljóst en er það ekki alltaf.
Þegar á bjátar eða þegar velja þarf
nýjan mann í þá stöðu til starfa,
kemur e.t.v. best í Ijós hve kröfumar
þurfa að vera miklar. Hann verður
að vera gegnheill, sem treysta má í
öllum viðskiptum hvort sem þau eru
fjármálalegs eðlis eða júta að mann-
legum samskiptum. Útibússtjóri er
sem skipstjóri á skipi og þarf margs
að gæta ef vel á að famast. Mörg
eru blindskerin sem varast ber, ekki
hvað síst í útlánum. Á útibússtjórann
reynir mest og hann er dreginn til
ábyrgðar ef illa fer. Hann þarf að
sameina lipurð og festu með þeim
hætti að viðskiptavinum og sam-
starfsólki líki.
Á löngum og farsælum starfsferli
Björns nýttust eiginleikar hans vel.
Hann var góður stjórnandi sem hafði
lag á að velja og rækta traust sam-
starfsfólk og vingjanlegt samband
við viðskiptavini. Hann byggði upp
útibúið og reksturinn var til fyrir-
myndar. Gegnum góða sem erfíða
tíma tókst Birni að auka umsvifín
en gæta jafnframt aðhalds í tilkostn-
aði. Með góðri og persónulegri þjón-
ustu tókst honum og hans einvala
liði að laða að og annast viðskipta-
vini með þeim hætti að eftir var tekið.
Björn var ötull og einlægur í starfi
sínu. Okkur samstarfsfólki Björns
er ekki síður ofarlega í huga hversu
góður félagi hann var. Hann var
afar jákvæður maður. Hvert sinn sem
Bjöm birtist var sem geislaði af hon-
um góður hugur og hlýja. Öllum leið
vel í návist hans.
Ætla mætti að með aldrinum og
hafandi starfað svo lengi á sama
stað hefði Bjöm átt erfítt með að
taka þeim breytingum sem óhjá-
kvæmilega hlutust af sameiningunni
í íslandsbanka. Það var nú öðm
nær. Bjöm var fyrirmynd annarra
að þessu leyti. Hann tók öllum breyt-
ingum með jákvæðu hugarfari og
taldi kjark í aðra sem erfiðara áttu
með að aðlagast nýjum háttum.
Björn hafði skoðanir á málunum,
kom þeim á framfæri og var virkur
í umræðum. Fyrir honum var stífni,
tilgerð og kynslóðabii ekki til.
Við í íslandsbanka söknum Björns
Hjartarsonar. Við þökkum samfylgd-
ina en hefðum viljað njóta samstarfs
og samvista við hann miklu lengur.
Eiginkonu Björns, frú Sigríði Ár-
mann, og ljölskyldu þeirra vottum
við okkar dýpstu samúð. Blessuð sé
minning hans.
Tryggvi Pálsson.
Enn hef ég verið minntur á hverf-
ulleika lífsins. Gleði í gær, sorg í
dag. Ég kveð samferðamann minn
að morgni og áður en næsti dagur
rennur upp er hann allur. Björn
Hjartarson, bankaútibústjóri, er
kvaddur í dag.
Bjöm var sonur hjónanna Ástu
Laufeyjar Björnsdóttur frá Ána-
naustum, sem í dag kveður kæran
son, og Hjartar Hjartarsonar frá
Reynimel. Hann ólst upp í foreldra-
húsum í návist afa og ömmu á
Bræðraborgarstígnum, elstur 5
systkina.
Hjörtur faðir hans var kaupmaður
í hverfinu og lengst af rak hann
verzlun sína á Bræðraborgarstíg 1.
Ég átti því láni að fagna að vera
búðarþjónn hjá Hirti í nokkra daga
og þar kynntist ég verzlunarháttum,
sem nú eru að hverfa. Ekki er að
efa að Björn hefur verið forveri minn
í því starfi nokkrum áratugum fyrr.
En Björn valdi sér annan vettvang
fyrir þjónustuhlutverk sitt. Nokkrum
árum eftir stúdentspróf hóf hann
störf hjá Útvegsbanka íslands og
fljótlega var honum falið að stofn-
setja og reka fyrsta útibú bankans
í Reykjavík. Laugavegur 105 varð
hans vettvangur. Utibúið óx og dafn-
aði undir hans stjóm. Fyrst man ég
eftir því í húsnæði, sem nú er skrif-
stofa útibústjóra. Hann var dáður
af viðskiptavinum, elskaður af
starfsfólki og virtur af yfirmönnum.
Mér er til efs að nokkur annar hafí
gegnt starfí útibústjóra jafn lengi
og hann.
Þegar ég varð útibústjóri hjá Út-
vegsbankanum gekk ég að sjálfsögðu
í smiðju hjá „seniornum" og tók hann
mér unglingnum alltaf vel. Viðhorf
hans og úrlausnir byggðust alltaf á
skynsemi og mannþekkingu. Þegar
hann hafnaði erindi viðskiptavinar
gerði hann það á þann veg að þeir
skildu afstöðu hans. Það er list. Ef
bankastarfsemi er stunduð hinum
megin, þá hefur Bjöm örugglega
hafið störf.
Bjöm var miklu meira en venjuleg-
ur bankakarl. Áhugamál hans voru
víða. Það var hrein unun að hlusta
á hann segja frá veru sinni á síld á
„Ribbanum" (Rifsnesi) eða þá sveita-
dvöl sinni í æsku á Svignaskarði.
Björn hefði sómt sér vel sem bóndi
og sveitahöfðingi í Borgarfírði. hann
bætti sér það upp með því að byggja
Vertu klár í slaginn
Tftl / / Z1 / > <V< .. / V-#
jSFAbu
Garcia
Fjölbreytt úrval afgóðum veiðivörum d verði,
sem kemur skemmtilega d óvart
Opið til kl. 18 mánud.-fimmtud.
til kl. 19 áföstudögum
frá lcl. 10 til 16 á laugardögum
og á sunnudögum frá kl. 11 til 16.
Hafnarstræti 5, Símar 1 67 60 og 1 48 00