Morgunblaðið - 12.06.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.06.1992, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri. Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen/ Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Aukið valfrelsi sængnrkvenna Nokkrar umræður urðu í vetur og vor í kjölfar þess að Fæðingadeild Landspítalans yf- irtók rekstur Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Ákvörðun um þetta var tekin af heilbrigðisyfirvöldum í því skyni að hagræða í rekstri og spara fé. Um það er ekki deilt í sjálfu sér að miðað við aðstæð- ur í þjóðfélaginu, gífurlegan halla á fjárlögum og skuldsetningu þjóðarbúsins, er brýn þörf á að spara, minnka útþenslu ríkis- báknsins. Niðurskurður ríkisút- gjalda er óhjákvæmilegur til að ná tökum á efnahagsmálum og stöðva hallareksturinn, en um- talsverður árangur getur ekki náðst nema dregið verði úr út- gjöldum í heilbrigðis-, trygginga- og menntamálum, en þessir mál- aflokkar taka til sín hvorki meira né minna en um 60% af útgjöld- um íjárlaga. Endurmat á 'skip- ulagi heilbrigðisþjónustunnar og ný rekstrarform á heilsuþjónustu, m.a. einkarekstur, veitir einnig tækifæri til hagræðingar og spamaðar á opinberu fé. Deilumar, sem urðu út af breyttu rekstarfyrirkomulagi á Fæðingarheimili Reykjavíkur, má fyrst og fremst rekja til þess, að konur vilja geta valið hvar þær fæða böm sín. Margar mæður hafa bundizt tilfinningaböndum við Fæðingarheimilið og hefur líkað vel þjónustan og andrúms- loftið, sem þar hefur ríkt. Val- frelsið hefur verið þungamiðjan í málflutningi þeirra þúsunda kvenna ,og reyndar karla líka, sem hafa mótmælt breytingu á rekstri Fæðingarheimilisins. Á fundi borgarstjómar Reykja- víkur í síðustu viku var samþykkt tillaga frá borgarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins um fæðingaþjón- ustu, sem er mjög athyglisverð í ljósi óska um frjálst val kvenna um hvar þær fæða böm sín. Sam- þykkt borgarstjómar er svohljóð- andi: „Borgarstjóm beinir þeim til- mælum til heilbrigðisráðuneytis að teknar verði upp beinar greiðslur til fæðandi kvenna, svo skapast geti aukið val foreldra á fæðingaþjónustu. Með því móti kynni að vera unnt að vekja áhuga fagaðila á sjálfstæðum rekstri í fæðingaþjónustu." Eins og fyrirkomulagið er nú greiðir ríkið kostnað af fæðingum á sjúkrahúsum og fæðingadeild- um, sem allar eru reknar af hinu opinbera. Tryggingastofnun greiðir einnig kostnað vegna fæð- inga í heimahúsum. Greiðslur til ljósmæðra geta numið allt að 30 þúsund krónum og auk þess fá sængurkonur greidda dagpen- inga í allt að tíu daga, en upphæð þeirra er mismunandi eftir því hversu mörg börn em á heimil- inu. Heildargreiðslumar geta numið 35-40 þúsund krónum, auk lyfjakostnaðar, en foreldri greiðir annan tilfallandi kostnað, t.d. ef læknir er viðstaddur fæð- inguna, a.m.k. kannast Trygg- ingastofnun ekki við greiðsliir til lækna vegna heimafæðinga. Undanfarin ár hefur orðið vart við hugarfarsbreytingu á afstöðu fólks til heimilisins, m.a. vilja fleiri og fleiri mæður fæða heima og dvelja heima hjá börnum sín- um á meðan þau era ung. Umönnun aldraðra fari í ríkari mæli fram innan fjölskyldunnar og jafnvel að fólk fái að deyja heima. Þetta bendir til þess, að fólk skynji betur en verið hefur undanfarna áratugi, að lífsgæða- kapphlaupið er í raun eftirsókn eftir vindi, ef það er á kostnað samskipta innan fjölskyldunnar. Það er ekki innantómt slagorð, að fjölskyldan er hornsteinn þjóð- félagsins. Samþykkt borgarstjórnar er því orð í tíma töluð. Hún kemur til móts við óskir sængurkvenna um fijálst val, því beinar greiðsl- ur til þeirra veita möguleika á því að fæða á þeim stofnunum, sem fyrir era, fæða heima, eða þá að fæða á fæðingarstofum, sem læknar og ljósmæður koma á fót. Það er mjög líklegt, að margar konur velji þann kost að fá áfram ummönnun þeirra lækna, sem þær hafa leitað til fyrir meðgöngu og á meðan á henni stendur. Þetta veitir einnig möguleika á því, að fæðingastof- ur bjóði mismunandi mikla þjón- ustu. Foreldramir greiða þá sjálf- ir fyrir þá þjónustu, sem þeir óska eftir, ef fæðingargreiðslurn- ar nægja ekki. Fyrir örfáum áratugum voru starfræktar nokkrar sjálfstæðar fæðingastofur, a.m.k. í Reykja- vík, en rekstri þeirra var hætt, þegar fæðingaþjónusta færðist alfarið í hendur hins opinbera. Nú hafa kröfur breyst um aukna þjónustu í heilbrigðismálum og fólk vill eiga fleiri kosta völ en ríkisrekið kerfí býður upp á. Það er því augljóst, að einkavæðing mun stórlega færast í vöxt í heilsuþjónustu á næstu árum. Sú þróun er af hinu góða, því hún gefur fólki kost á aukinni og bættri þjónustu auk þess sem tækifæri gefst ti! spamaðar í heilbrigðiskerfinu. Það er því ekki úr vegi, að heilbrigðisyfirvöld skoði gaum- gæfílega tillögu borgarstjórnar Reykjavíkur um beinar greiðslur til sængurkvenna og fínni leið til þess að veita þeim aukið valfrelsi og möguleika á aukinni þjónustu. Landspítali; Nýtt segulómunar- tæki tekið í notkun NYTT segulómunartæki hefur verið tekið í notkun á röntgendeild Landspitala. Tækið er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er gjöf ríkisstjórnar til spítalans á 60 ára afmæli hans. Þetta segulómunartæki er sneið- myndatæki sem hentar mjög vel til rannsókna og sjúkdómsgreiningar á miðtaugakerfi, stoðkerfi og í grindarholi. En segulómun er talin nákvæmari og markvissari en aðrar myndarannsóknir við ofangreindar sjúkdómsgreiningar. Tæknin við notkun þessa nýja tækis byggir á því að segulmagna vetni í líkamanum. Til þess að það sé hægt þarf öflugan segul og hef- ur hið nýja tæki segul sem er tíu- þúsund sinnum sterkari en segul- svið jarðar. Segullinn er gerður of- urleiðandi með því að kæla hann niður í 269 stiga frost með fljót- andi helíum. Þannig er komið í veg fyrir að hann myndi viðnám gegn rafmagni, þess vegna getur hann flutt mikinn rafstraum og myndað sterkt segulsvið. Segullinn er það öflugur að seguláhrifanna gætir utan hans og jafnvel utan herberg- isins þar sem hann er. Vegna þess að seguláhrifin eru sívirk þarf að fylgja sérstökum öryggisreglum í umgengi við tækið. Hið nýja segulómunartæki röngen standa Ásmundur Brekkan prófes ingur, og Þorgeir Pálsson verkfra Þörf á endurskoðaðri útgáfu tölvuorðasafns - segir formaður Orðanefndar Skýrslutæknifélagsins SIGRÚN Helgadóttir, formaður Orðanefndar Skýrslutæknifélags íslands, segir að brýn þörf sé á útgáfu nýs tölvuorðasafns en fé skorti til að undirbúa verkið. Nefndin hafi staðið að útgáfu slíks safns í árslok 1986 en vegna örrar þróunar og breytinga á þessu sviði sé þörf á endurskoðaðri útgáfu. Sigrún segist sjá fyrir sér, að í framtíð- inni verði hægt að leita til Málræktarsjóðs um stuðning vegna verk- efna af þessu tagi, en um þessar mundir er verið að safna stofnfé í hann. Skýrslutæknifélag íslands var stofnað árið 1968 og var orðanefnd félagsins stofnuð skömmu síðar. Sigi ún Helgadóttir, tölfræðingur, varð formaður hennar árið 1978 og gegnir hún enn því starfí. Með henni í nefndinni hafa setið þeir Baldur Jónsson, forstöðumaður fslenskrar málstöðvar, Þorsteinn Sæmunds- son, stjörnufræðingur, og Örn Kald- alóns, kerfisfræðingur. Sigrún segir, að þegar þau hafi komið til starfa í orðanefndinni hafí þau fyrst kynnt sér hvernig staðið væri að málum sem þessum erlendis, til dæmis annars staðar á í frétt frá Lifandi myndum segir m.a.: „Verstöðin ísland var frumsýnd hinn 9. maí sl. og hefur nú verið sýnd í samtals 11 daga, þar af eina helgi á ísafirði. Viðtökur áhorfenda hafa verið margfalt betri en við hafði verið búist og hefur nú á þriðja þús- syngur undir stjórn organistans Guðna Þr Guðmundssonar. Messur á sjómannadaginn hafa gjarnan verið vel sóttar enda fá þau heimili á landi okkar, sem ekki eiga Norðurlöndum. Þar byggi menn á alþjóðlegum stöðlum og hafi þau ákveðið að gera slíkt hið sama. í máli hennar kemur fram, að árið 1983 hafi komið út lítið tölvu- orðasafn, sem undibúið hafi verið af nefndinni. í kjölfar þess hafi svo yinnan haldið áfram og nefndin við- að að sér meira efni. Útgáfa tölvuorðasafns 1986 „Okkur var ljóst,“ segir Sigrún, „að mikil þörf var á útgáfu aukinn- ar og endurbættrar útgáfu tölvu- orðasafns. En það var meira verk en svo, að hægt væri að vinna það und manns séð myndina. Auglýstar, voru síðustu sýningar 31. maí sl. en þá varð húsfyllir og þurftu margir frá að hverfa, sem sýnir að fólk kann vel að meta þá nýbreytni að sjá heimildarmyndir eins og Verstöð- ina ísland á stóru breiðtjaldi.“ Þannig hefur kirkjuskipið átt sam- leið með þeim skipum sem hafins vegti sigla, því bæði rúma þá, sem vilja þjóna þeim Guði, sem einn vak- ir og ræður. (Fréttatilkynning) allt í sjálfboðavinnu. í ársbyijun 1985 ákvað stjórn Skýrslutæknifé- Iagsins að leggja í kostnað vegna þessa og safna fé hjá fyrirtækjum og stofnunum og var ég þá ráðin ritstjóri verksins. Mér til aðstoðar var Kristín Bjarnadóttir, sem sá um alla tölvuskráningu, las yfir handrit og gerði fjölmargar athugasemdir sem komu að góðum notum. Við fengum aðstöðu í húsnæði íslenskr- ar málstöðvar og aðgang að efnis- flokkunar- og skráningarkerfi ís- lenskrar málnefndar. Orðanefndin hélt á þessum tíma fíölmarga fundi, stundum tvisvar í viku, og sótti þá sægur sérfræðinga. Útkoman var orðasafn sem út kom í árslok 1986.“ Hún segir að í tölvuorðasafninu séu um 2.600 hugtök og fylgi þeim um 3.100 íslehsk heiti og nær 3.400 ensk. „Við höfðum að leiðarljósi við val hugtaka, að orðasafnið kæmi sem flestum að notum, bæði sér- fræðingum og öðrum, sem fjalla með einhveijum hætti um tölvu- tækni á íslensku,“ segir hún. „Eftir að vinnu við þessa útgáfu var lokið reyndum við að halda starfí nefndarinnar áfram, enda er tölvutæknin í örri þróun og sífellt era að bætast við hugtök, sem gefa þarf íslenskt heiti. Þess vegna er nú brýn þörf á að gefið verði út nýtt orðasafn, en fé skortir til verks- ins. Best væri auðvitað ef alltaf væri hægt að hafa starfsmann í hlutastarfi, sem sæi um að viðhalda safninu. En þar sem svo hefur ekki verið er ljóst að ráða verður rit- stjóra tímabundið til að undirbúa nýja útgáfu. Ég sé fyrir mér að Málræktarsjóður gæti þar komið til sögunnar, en í skipulagsskrá hans er einmitt gert ráð fyrir að hann styrki starf orðanefnda ljárhags- lega.“ Sjáum árangur af starfi okkar Sigrún segist sjá mikinn árangur af starfi orðanefndarinnar. „Um það leyti sem ég byijaði í nefndinni var varla hægt að skrifa grein eða flytja erindi um tölvutækni á ís- lensku, því það vantaði svo mörg íslensk heiti. Þá virtist heldur ekki þykja neitt sérlega fínt að nota ís- lensku, til dæmis þegar verið var að kynna eða auglýsa tölvuvörur. Á þessu hefur orðið breyting til batn- aðar en þó er mikið starf óunnið. Hér er um afar mikilvægt'starf að ræða. Ef fólk byijar að nota slett- ur, hvort sem það er um tölvutækni eða eitthvað annað, er hætta á að það missi tilfinningu fyrir málinu. Við verðum að geta rætt og ritað um málefni nútímans á íslenskil, Yerstöðin Island sýnd um sj ómannadagshelgina ÁKVEÐIÐ hefur verið að framlengja sýningar á heimildarkvikmynd- inni Verstöðinni Islandi um eina helgi i viðbót vegna mikillar aðsókn- ar. Myndin verður sýnd í Háskólabíói laugardaginn 13. júní og á sjó- mannadaginn 14. júní. Hefjast sýningar báða dagana kl. 14.00. Aðgang- ur er ókeypis. Myndin er í fjórum hlutum og er gert hlé á milli hvers hluta. Sýning fjórða hlutans lýkur um kl. 19.00. Messa á sjómannadag- inn í Bústaðakirkju Á SJÓMANNADAGINN verður guðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 11.00 árdegis. Þar verður meðal annars flutt lag Sigfúsar Halldórssonar, Þakkargjörð, við texta Sigurðar H. Guðmundssonar. Einnig verður flutt lag, sem Sigfús samdi fyrir Sjómannafélag Reykjavíkur á 75 ára afmæli þess. Texti þessa lags er eftir Örn Arnarson og var hann sam- inn á 25 ára afmæli Sjómannafélagsins. Sóknarpresturinn sr. Pálmi Matt- tengsl við sjóinn og sjómennsku á híasson prédikar og kór kirkjunnar einn eða annan hátt. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.