Morgunblaðið - 30.08.1992, Page 14

Morgunblaðið - 30.08.1992, Page 14
14 r MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 30. ÁGÚST 1992 : Fjórar listsýningar Myndlist Bragi Ásgeirsson Magnús S. Guðmundsson, sem sýnir 8 myndverk í listhúsinu Einn einn við Skólavörðustíg nam_ í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands á árunum 1984-1988 og Jan van Eyck Akademie, Hollandi 1988-1990. Þetta er mjög hefð- bundinn námsferill íslenskra listspíra og hefur lengi verið, en illa hefur mér gengið að sjá mun á námsferli þeirra, þótt þeir hafi stundað nám við hina ýmsu skóla í Hollandi. Af því má marka, að listaskólakennsla þar hafi verið nokkuð einhæf á undangengnum áratugum. En mér er kunnugt um að mikið og nær ótakmarkað frelsi ríkti í þessum skólum Iengi vel, en nú mun nokkur breyting hafa orðið á að mér skilst, því misskilið og misnotað frelsi ásamt rausnar- legu styrkja- og námslánakerfí hafði allt aðrar afleiðingar en reiknað var með. Hins vegar koma myndverk Magnúsar mér nokkuð á óvart, því ég hef fylgst með ferli hans innan MHÍ, og einnig eru þau á skjön við flest það sem frá Hol- landi hefur komið til þessa. Þetta telst fyrsta alvarlega einkasýning Magnúsar á opinber- um vettvangi eftir að námi lauk, en áður hefur hann sýnt á Mokka (1986) og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningunni eru 6 akrýlmálverk og tvö olíumálverk, svo að hann vinnur í mög hefð- bundnum efnivið, en annað sem einnig er hefðbundið er formsýn hans, en myndverkin minna mig sterklega á abstraktmálverk sjötta áratugsins. Má ætla að ef til vill sé vegur abstraktmálverksins að aukast í Hollandi, en undir öðrum formerkjum og annarri heimspeki og hefði verið fróðlegt að fá útlist- an á því sérstaklega á sýningunni. Annars skal bent á að höfuðp- aurar abstrakt málverksins, sem enn eru á lífi, hafa á engan hátt vikið af braut sinni, sama er að segja um þá er aðhylltust strangflatalist og Cobra-lista- mennirnir hjakka enn í sama far- inu, eins og sagt er, en hins vegar eru flestir áhangendur þessara liststíla sláandi ferskir og auk þess mjög virkir í samtímanum. Myndverk Magnúsar bera með sér að hann er enn á mótunar- skeiði og hin lit- og formræna uppbygging myndanna er nokkuð óklár á köflum. Hér sker þó olíu- málverk nr. 4 sig nokkuð úr fyrir sannfærandi uppbyggingu í gráu, grábláu og svörtu. Þá eru litlu akrýlmyndirnar nr. 6, 7 og 8 ákaf- lega heillegar í útfærslu. 'Ólafur Benedikt Guðbjartsson, sýnir í innri sal listhússins og að auk í kaffihúsinu á Laugavegi 22. Hann nam við MHÍ á sama tíma og Magnús, en valdi sér allt annan námsferil að því loknu og það all óvenjulegan. Fyrst nam hann kín- versku við háskólann í Beijing og síðan stundaði hann nám við Fud- an háskólann í Shanghai og á komandi vetri mun hann nema austurlenzka fornleifafræði við Sorbonne! Af þessu má ráða að Ólafur sé mjög andlega sinnaður og að nám hans beinist um þessar mundir aðallega að því að rannsaka aust- urlenzka dulspeki, forn tákn og innsigli. Þetta er fyrsta einkasýning Ólafs á íslandi, en áður hefur hann verið með opna vinnusteofu í Shanghai (1990) auk þess sem hann var með einkasýningu í Gall- eria via Corso Mazzini í ágúst 1991, í báðum tilvikum sýndi hann málverk. Þá hefur hann á þessu ári verið með sýningu á kínversk- um innsiglum í Kínahúsinu í Par- ís, og Gallerí Emil hér í borg. Þrátt fyrir að námsferill Ölafs sé all óvenjulegur og skari ekki þekkta listaskóla, þá eru málverk hans tæknilega merkilega vel úr garði gerð. Einkum kemur þetta vel fram í málverkunum í listhús- inu, en síður á veitingastaðnum. Það er ekki vel fallið til málverkja- sýninga, því myndirnar njóta sín illa á veggjunum, en kannski þyk- ir það ávinningur að sýna á staðn- um, þar sem þangað kemur marg- ur listamaðurinn, auk þess sem einn nafnkenndur sjónháttafræð- ingur virðist jafnvel nota staðinn sem vinnustofu á svipaðan hátt og Jón Árnason stjörnuspekingur notaði Hressingarskálann í gamla daga. Dulhyggja, heimspekileg um- ræða og ýmis myndræn tákn bijót- ast um á myndfletinum í verkum Ólafs og það er býsna mikil ein- Ólafur Benedikt Guðbjartsson: „Innsiglin fimm“ 1991. Cheryl Hill barnakennari Helen Stephens kennarl Helen Everett yfirkennari Linda Walker kennari Jimmy Gallegos kennari Julie Ingham skólastjóri Berta Faber kennari ALLIR KENNARAR SKOLANS ERV 9 Vclkomin í knskuskólann Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann í spjall og kaffi áður en námskeiðin hefjast 3. til 8. september. Við bjóðum upp á 11 námsstig I ensku. Við metum kunnáttu þína og I framhaldi af því ráðleggjum við þér hvaða námskeið hentar þér og þínum óskum best. Komdu í heimsókn eða hringdu - því fylgja engar skuldbindingar. MAL ^ INIMRITUIM STEIMDUR YFIR ■B í DAG OG NÆSTU DAGA HRINGDU j SÍMA2S330 EÐA25900 OG FÁÐD FREKARIUPPLÝSINGAR KENNSLA HEFST 9. SEPTEMBER Fyrirfullorðná Almenn enska. Með áherslu á tal- mál. Námskeið að degi til, kvöldi og laugardaga. Viðskiptaenska Rituð enska - enskar bókmenntir Krárhópar TOEFL-GMAT-GRE undirbúningsnámskeið Fyrir börn Leikskóli fyrir 3-4 ára Forskóli fyrir 5-6 ára Enskuskóli fyrir 7-12 ára Unglinganámskeið fyrir 13-15 ára Fyrir stofnanir og fyrirtæki Viðskiptaeinkakennsla - Sérmótuð námskeið fyrir fyrirtæki Málsmiðjan - þýðingarþjónusta/ prófarkalestur Einkatímar Hægt er að fá einkatíma eftir vali VR og flest önnur stéttarfélög taka þátt i námskostnaði sinna félagsmanna. ÞÚ FINNUR ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN í HÓPINN... skólinn TUNGOTU 5 101 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.