Morgunblaðið - 06.09.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
27
___________Brids_____________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Síðastliðinn miðvikudag, 2. septem-
ber var spilaður tvímenningur í Björg-
unarsveitarhúsinu í Sandgerði með
þátttöku 12 para, og urðu úrslit þann-
ig að í fyrsta sæti urðu Ingimar Sum-
arliðason og aldurforseti félagsins
Maron Björnsson (81 árs).
Úrslit urðu annars þessi:
Maron Bjömsson - Ingimar Sumarliðason 198
MagnúsMagnússon-SiguijónJónsson 182
EinarJúlíusson-BjömDúason 180
Eyþór Jónsson—Víðir Jónsson 177
BirkirJónsson-AmórRagnarsson 173
GarðarGarðarsson-LárusÓlafsson 172
Spilað verður áfram næstu miðviku-
daga í Björgunarsveitarhúsinu, og eru
allir velkomnir, spilarar sem áhorfend-
ur.
Bridsfélag Kópavogs
Starfsemi B.K. hefst fimmtudaginn
10. sept. Spilað verður í Þinghól
Hamraborg 11 hjá Lovísu, keþpnis-
stjóri Hermann Lárusson.
Á aðalfundi félagsins 22. maí sl.
voru eftirtaldir kosnir í stjóm: form.
Þorsteinn Berg, gjaldkeri Hafliði
Magnússon, ritari Ragnar Jónsson,
bronsstigaritari Helgi Viborg og með-
stjórnandi Sigríður Möller. Varastjórn
Jón Steinar Ingólfsson og Þröstur
Ingimarsson.
Spilað verður á fimmtudögum í vet-
ur eins og undanfarin ár, og verður
byijað kl. 19.45. Fyrsta kvöldið verður
upphitunartvímenningur en síðan
hefst hausttvímenningur þriggja
kvölda. Eins og áður er öllum heimilt
að spila hjá félaginu, og hvetur stjórn-
in alla þá sem hafa hugsað sér að
spila í vetur að byija sem fyrst. Allar
nánari upplýsingar veitir formaður,
hs. 40648.
Bridsfélag Reykjavíkur
Ðagskrá vetrarins 1992-93 hefir
verið ákveðin og verður sem hér segir:
9. september: Upphitunartvímenn-
ingur.
6. sepember til 7. október: Fjög-
urra kvölda hipp-hopp tvímenningur.
Þetta er Mitchell í 4 riðlum með sömu
spilum í öllum riðlum. Nýtt tölvuforrit
sér til þess að samanburður fæst við
Grensáskirkja
Persónuleg
þjónusta
ogfræðsla
í fyrirrúmi
Um árabil hefur sálgæsla og fyrir-
bænaþjónusta verið áberandi þáttur
í safnaðarstarfi Grensássóknar. í
vetur verður áfram lögð áhersla á
þessa mikilvægu þætti starfsins.
Kyrrðarstundir eru í kirkjunni alla
þriðjudaga kl. 12. Stundin hefst með
orgelleik og altarisgöngu. Þar sam-
einast þátttakendur um þau bæna-
efni sem fram eru borin hveiju sinni.
Að lokum er boðið upp á léttar veit-
ingar þannig að ölu er lokið iaust
fyrir kl. 13.
Þeir sem ekki komast í kyrrðar-
stundirnar geta komið bænaefnum
sínum til okkar í kirkjunni símleiðis
eða á annan hátt.
Fræðslustarf safnaðarins á sér
langa sögu. Allt frá árinu 1974 hef-
ur sr. Haldór S. Gröndal verið með
reglulega biblíufræðslu. Nk. þriðju-
dag kl. 14.00 hefjast biblíulestrar sr.
Halldórs að nýju. Að lokinni fræðsl-
unni er drukkið síðdegiskaffi og rab-
bað saman. Þó að eldri borgarar
sóknarinnar hafi verið fjölmennir við
þessa biblíulestra þá eru allir hjartan-
lega velkomnir til þessara stunda.
Á þessum vetri verður Grensás-
söfnuður þijátíu ára og verður þess
minnst síðar á vetrinum. Fjórir prest-
ar hafa á þessu tímabili þjónað í
söfnuðinum sem í dag eru um sex
þúsund sóknarbörn. Eru aldraðir þar
fjölmennir eða um 17%. Prestgr safn-
aðarins í dag eru sr. Halldór S. Grön-
dal og sr. Gylfi Jónsson og organisti
er Árni Arinbjarnarson.
allan salinn og að sömu pör mætist
ekki tvisvar.
14. október til 4. nóvember: Hrað-
sveitakeppni. Hér geta spilarar byijað
þreifingar í sveitamálum fýrir veturinn
og þær sveitir sem þegar hafa verið
myndaðar fá örlitla upphitun.
11. nóvember til 16. desember:
Sex kvölda aðaltvímenningur. Þessi
vinsælasta keppni félagsins verður
með hefðbundnu sniði og kemur spil-
urum í tvímenningsskóna fýrir
Reykjavíkurmótið sem verður um
þetta leyti.
6. janúar til 27. janúar: Þessi kvöld
fellur niður spilamennska í félaginu
vegna Reykjavíkurmóts í sveita-
keppni. Hugsanlegt er þó að hefja
spilamennsku 27. janúar á eins kvölds
tvímenningi ef Rvíkmótinu er lokið.
3. febrúar til 10 mars: Sex kvölda
aðalsveitakeppni. Keppnin verður 12
umferða monrad, 16 spila leikir. Rað-
að verður í báða leiki kvöldsins fyrir
spilakvöld nema síðustu tvær uihferð-
irnar. Mögulegt er að mæta sömu
sveit tvisvar þar sem raðað verður upp
á nýtt eftir 6 umferðir.
17. mars til 31. mars: Þriggja
kvölda tvímenningur þar sem tvö bestu
kvöldin telja til verðlauna. Bryddað
verður upp á nýjungum með verðlaun-
um fyrir þessa keppni!
7. apríl: Frí.
14. apríl til 19. maí: Sex kvölda
Butler tvímenningur. Hér sameina
spilarar æfingu vetrarins í tvímenn-
ings- og sveitakeppni og ljúka vetrar-
starfinu í einni keppni þar sem allar
þeirra bestu hliðar geta notið sín.
Aðalfundur félagsins verður aug-
lýstur síðar.
Sljórn Bridsfélags Reykjavíkur
1992-1993:
Formaður: Oddur Hjaltason. Vara-
formaður: Eiríkur Hjaltason. Gjald-
keri: Steingrímur G. Pétursson. Rit-
ari: Sverrir Kristinsson. Fjármálarit-
ari: Páll Valdimarsson.
Spilastaður: Sigtún 9 á miðvikudög-
um kl. 19.30.
Keppnisstjóranámskeið í brids
Bridssamband íslands gengst fyrir
keppnisstjómanámskeiði dagana
11.-13. september í húsi Bridssam-
bandsins Sigtúni 9. Farið verður yfir
helstu skyldur og verksvið keppnis-
stjóra. Einnig verður kennd grann-
kunnátta á hugbúnaði ætluðum til'
útreiknings á bridsmótum. Leiðbein-
andi verður Kristján Hauksson. Nám-
skeiðið byijar kl. 20.00 föstudaginn
18. september og því lýkur sunnudag-
inn 21. september. Þátttökugjaldi hef-
ur verið stillt í hóf og er aðeins 2.500
kr.
^^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
DANSSKOU
Oftlf),
Sunnudag frá kl. 1300 til 1700
^vuda gstjj
Jz.°d
áður
nú 2.900,-
BRETT speglar, fura, hvítt
og svart, 60x75 sm.
áður 6,600;-
nú 3.900,-
BRETT speglar, fura, hvítt
svart og rauðbrúnt, 60x108 sm.
Það er opið í dag í IKEA.
Líttu við í sunnudagskaffi og kynntu þér
fjölbreytt úrval húsmuna í verslun okkar.
Sunnudagstilboð á hreint hlægilegu verði.
TT
KRINGLUNNI 7 • SIMI 91-686650
...líka á sunnudögum!
ii
ilONS PETURS og KORU
B0LH0LTI6 REYKJAVIK
S. 91-36645 og 686045
Fu 91-683545
J3& SPORIRETTA ATT!
INNRITUN í SÍMUM:
36645 og 685045
ALLADACA
1.-8. sept. kl. 12 -19
KENNSLA HEFST
10. sept. 1992
Skírteini afhent
í Bolholti 6
Mibvikudaginn
9. sept. kl. 14-22
RAÐCREIOSIUR
Aubbjörg Kara |ón Pétur Hinrik
Samkvæmisdansar: standard og subur-amerískir
Cömludansarnir - Tjútt - Swing
Barnadansar (yngst 4 ára)
Byrjendur - Framhald - Hóptímar - Einkatímar
Allir aldurshópar velkomnir:
Barnahópar - Unglingahópar - Fullorbinshópar
(einstaklingar, pör og hjón)
► Erlendir gestakennarar
► Kennsla a landsbyggðinní auglýst síðar
► Seljum hina frábæru Supadance dansskó
Æfingasalur opinn sjö daga vikunnar
JÍD • Félag ísteasin diasiemie Di• Dansréð islands
M 9208